Morgunblaðið - 05.07.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 19
ERLENT
Framkvæmdastj óri NATO reynir að friða ríki sem ekki fá aðild
Solana segir Madrídarfund-
inn marka upphaf stækkunar
Brussel, París, Prag. Reuter.
JAVIER Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, NATO,
sagði í gær að fundur bandalagsins
í Madríd í næstu viku, þar sem
nokkrum fyrrum kommúnistalönd-
um verður boðin aðild, muni marka
upphaf en ekki endi stækkunar
bandalagsins. „Madríd verður sú
andrá þegar NATO verður skil-
greint fyrir nýja Evrópu," sagði
Solana við fréttamenn.
Fréttaskýrendur segja orðum
Solanas augljóslega ætlað að friða
stjórnir þeirra ríkja sem ekki verður
boðin aðild. Talið er víst að Pól-
landi, Ungveijalandi og Tékklandi
verði boðið að ganga í hóp banda-
lagsríkjanna, en Frakkar og ítalir,
ásamt fleiri Evrópuþjóðum, vilja að
Rúmenía og Slóvenía verði einnig
í hópnum.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefur útilokað frekari stækk-
un, og sagt að einungis þijú fyrst-
nefndu ríkin séu nú reiðubúin til
aðildar, en heitið því að útiloka
ekki aðild annarra Mið- og Austur-
Evrópuríkja síðar meir. Háttsettur
embættismaður NATO sagði í gær
að stækkun yrði að stuðla að auknu
öryggi í Evrópu í heild, og eins og
staðan væri nú þætti nokkrum aðil-
um að aðild sumra ríkja myndi ekki
stuðla að því.
Fulltrúi franska utanríkisráðu-
Aðild er „skylda við komandi kynslóð-
ir“ segir forseti Tékklands
Havel
neytisins sagði i
gær að það væri
mat Frakka að
fimm ríki væru
hæf til aðildar,
en þeir væru
einnig þeirrar
skoðunar að
veita bæri þrem
ríkjum aðild.
Stækkun NATO
væri hinsvegar þróun sem ekki
væri lokið.
Haft var eftir embættismönnum
bandalagsins í gær að endanleg
ákvörðun um hveijum verði boðin
aðild hljóti að verða rædd á þriðju-
dag, fyrri dag ráðstefnunnar í
Madríd, af æðstu mönnum stjórna
ríkjanna sextán. Af hálfu banda-
lagsins hefur verið gerð grein fyrir
því viðhorfi að einungis ríki með
blandað hagkerfi og virkt lýðræði,
og þar með lýðræðislega stjórn her-
afla, sem ekki eigi í neinum útistöð-
um við nágrannaríki komi til greina
sem aðildarríki.
Vegna komandi kynslóða
Václav Havel, forseti Tékklands,
sagði í viðtali við Reuters í gær, að
Blindir ósáttir við
Magga nærsýna
New York. The Daily Telegraph.
MAGGI nærsýni, teiknimyndafíg-
úra sem Walt Disney skapaði á
sjötta áratugnum, hefur nú kallað
reiði minnihlutahópa og fatlaðra
yfir Disney-samsteypuna. Hafa
áðurnefndir hópar krafist þess að
þegar í stað verði hætt gerð kvik-
myndar um Magga nærsýna, þar
sem hún sé mógðun við blinda og
nærsýna. Með hlutverk Magga fer
gamanleikarinn Leslie Nielsen og
stendur til að frumsýna hana um
jólin.
Eins og nafnið gefur til kynna
sér Maggi afar illa og ganga sög-
urnar út á ýmsar hremmingar sem
hann lendir í sökum sjóndeprunnar.
Maggi hefur ekki öðlast sömu
frægð og ýmsar aðrar fígúrur sem
spruttu úr penna Disneys og er það
vel að mati blindra. „Nú hefur fólk-
ið hjá Disney hins vegar dregið
Magga nærsýna fram úr gleymsk-
unnar dái, þar sem hann átti rétti-
lega heima, í von um að Bandaríkja-
mönnum finnist það fyndið að horfa
Koro^ov. Reuter.
ÁHÖFN rússnesku geimstöðvarinn-
ar Mír þarf meiri tíma til að und-
irbúa viðgerð í rannsóknarstofunni
Spektr, sem er ein eining stöðvar-
innar, að sögn Vladímírs Solovjovs,
stjómanda Mír-áætlunarinnar.
Gat kom á byrðing Spektr við
árekstur birgðafars í síðustu viku
og sólrafhlöður, sem eru utan á
rannsóknarstofunni og sjá Mír fyrir
um helmingi raforku sinnar, löskuð-
ust. Gert hafði verið ráð fyrir að
geimfararnir myndu freista við-
gerðar á rafhlöðunum í næstu viku,
tengja þær orkukerfi Mír með því
að tengja þær framhjá rafkerfi
saga biturrar reynslu gerði Tékk-
lendingum skylt að ganga í NATO
vegna komandi kynslóða. Forsetinn
sagði að með aðild gæfíst landinu
sögulegt tækifæri til þess að bindast
evrópska öiyggiskerfínu sem standi
vörð um lýðræðisleg gildi.
„í augnablikinu ógnar enginn
Tékklandi. Ég veit ekki til þess að
erlendur herafli sitji við landamæri
okkar og búi sig undir innrás, en
við vitum ekki hvað kann að gerast
eftir 10, 20, 30 ár,“ sagði Havel
og vísaði til þess er sovéskur her
réðst inn í Tékkóslóvakíu 1968 og
batt enda á „vorið í Prag“, sem
hafði verið tilraun til „mannlegs
sósíalisma."
Havel, sem koma mun til ráð-
stefnunnar í Madríd, hefur sagt að
NATO sé fulltrúi þeirra gilda sem
ný lýðræðisríki Austur-Evrópu deili
með Vestrænum ríkjum. Hann
sagði að önnur samtök, þá sérstak-
lega Evrópuráðið, hefðu haft meiri
afskipti af þróun og gæslu þessara
gilda, en hernaðarmáttur NATO
væri enn mikilvægur.
Lýst yfir
neyðarástandi
Guayaquil. Reuter.
FABIAN Alarcon, forseti Ekvadors,
lýsti í gær yfir neyðarástandi í land-
inu til að gera stjóminni kleift að
bregðast við úrhelli og flóðum af
völdum E1 Nino, heitum sjávar-
straumi sem veldur usla í ríkjum við
Kyrrahaf.
Veðurfræðingar hafa spáð miklum
flóðum á næstu mánuðum og talið
er að bændur verði fyrir miklum
búsifjum, einkum í strandhéruðunum.
Úrhellið hófst í vikunni sem leið og
fregnir herma að flóð hafí þegar
valdið tjóni á hrísgijóna-, banana-
og sykurreyrsökrum. Búist er við að
flóðin nái hámarki í september.
Ekvador varð síðast fyrir barðinu
á E1 Nino á árunum 1982-83 og tjón-
ið er talið hafa numið jafnvirði 45
milljarða króna.
Stjómin hefur þegar ákveðið að
veija jafnvirði 550 milljóna króna í
framkvæmdir á vegum, brúm og
holræsum til að reyna að draga úr
tjóninu.
Kolaportið fær
kaupstaðarréttindi
á skapstyggan og vanhæfan blind-
an mann hrasa um hluti og mis-
skilja allt í umhverfi sínu,“ sagði
Marc Maurer, formaður landssam-
taka blindra í Bandaríkjunum.
Disney-samsteypan hyggst ekki
láta undan þrýstingnum og segir
kvikmyndina ekki á nokkurn hátt
geta talist móðgun við blinda.
Maggi sé „nærsýnn, ekki blindur
og þótt sjóndepra hans verði tilefni
nokkurra hlægilegra uppákoma,
kemur hún ekki í veg fyrir að hann
leysir glæpagátu og stendur uppi
sem hetja myndarinnar.“
En blindir hafa ekki látið sann-
færast, auk þess sem Maggi nær-
sýni vekur upp vondar minningar
hjá mörgum nærsýnum, sem máttu
þola það sem börn að vera sýknt
og heilagt líkt við Magga vegna
þess að þeir voru með gleraugu.
Hafa blindir og sjónskertir verið
hvattir til þess að grípa til þeirra
aðgerða sem þeir telja viðeigandi
gegn myndinni.
esti bærmn i boramm
Um helgina fær Kolaportið kaupstaðar-
réttindi og verður því fagnað ó
sunnudag kl. 14:00-16:00.
Kolaportið mun í framtíðinni leigja út
lóðir undir kaupmennsku. Leigutakar
verða að samþykkja að selja aðeins
góða og vandaða vöru á lágu verði.
Helstu broddborgar hins nýja
bœjarfélags verða á ferli á
sunnudeginum í sínu besta pússi,
börnin fá blöðrur og hljómlistarmenn
koma í heimsókn.
Fresta viðgerð í Mír
Spektr, en nú hefur viðgerðinni
verið frestað fram til 17. eða 18.
júlí. „Þetta er fremur flókin viðgerð
og því verður að fresta henni,“ sagði
Solovjov.
Solovjov sagði að gert væri ráð
fyrir að geimfararnir myndu gera
við siglingakerfi geimstöðvarinnar,
sem bilaði óvænt í fyrradag. Sér-
stakir snúðvitar sem snúa geim-
stöðinni sem best gagnvart sólu
biluðu. Gert var ráð fyrir að það
yrði komið í lag áður en nýtt Progr-
ess-birgðafar á stefnumót við Mír
á mánudag, en því verður skotið á
loft í dag.
Ny götunöfn
Allar götur í Kolaportinu fá nafh og
um næstu helgar verða götuhátíðir með
tilboðum og kynningum á íbúum.
Aukastræti, Baragata,
Céstvallatröð, Dropabraut,
Efstabúð, Fimmaurasund
og Gleðistígur.
ALMENNT
VERÐ Á LÓÐUM
n*2S
> r
áiaryá tíð
Matarporti Kolaportsins
010 síldortegondir hjó Bergi
ITiu gómsætar tegundir, allar án rotvarnarefna
Þú ættir að prófa Púrtvínssíld, Paprikusíld,
Appelssínusíld og allt hitt síldarsælgætið hjá Bergi.
O Taðrcyktar rcgnbogasilunqur
Pantanir á regnbogasilungi óskast sóttar hið fyrsta
Gylfi er einnig allar helgar með laxinn sinn góða og
harðfiskinn. Verðið svíkur engan, það er eitt sem víst er.
6 Ódýrt grsnmeti d grillið
INýir og ferskir ávextir, allt í salatið og ávaxtasultur
Magnea er með grænmeti og býður einnig upp á
ávaxtasultur, bökunarkartöflur, rófúr og allt í salatið.
O Nýr, reyktur og grafinn lax
IEinnig glænýr taðreyktur Mývatnssiiungur.
Fiskurinn er góður hjá Skarphéðni. Einnig rækjur í
sérflokki og fjallaharðfiskur að hætti Everestfara.
© Marinerad grillhrossakjöt
ITilboð kr. 499,- kg á marineruðu grillhrossakjöti
Þú færð hvergi svona kjöt nema hjá Benna. Einnig úrval
af öðru grillkjöti, áleggi, hangikjöti og saltkjöti.
© Kolaportshdkarlinn lyktgódi
Hákarla-Kristinn er einnig með isfirskan harðfisk
Hákarlinn i Kolaportinu er borðaöur eins og sælgæti hjá
Kristni og nú geta allir fengið sér ísfirskan harðfisk.
O Fiskurinn frd Grundarfirði
ITangi með úrval af fiski s.s. hafbeitarlax kr. 400 kg.
Ámi mætir líka með signa ýsu og þorsk, gellur og
kinnar, skötu, nýjan Steinbít, skelfisk, harðfisk og fl.
© Vinsnla Eyrartúns kartöflarner
IMjölmiklar Guliauga og Ólafsrauðar kartöfiur
Systkinin frá Eyrartúni hafa vcrið i Kolaportinu í níu ár
og komið upp stórum hópi fastra kaupenda.
O Kleinur, skonsur og rúgbrauð
Rósa er líka með snyttubrauð a frábæru verði
Hún Rósa er engu lík þégar kemur að kleinum,
skonsum og soðnu brauði. Þú ættir að fá þér að smakka.
«9«
Kompudagar eru alltaf síðustu helgi í
hverjum mánuði og þá lækkar leigan
ipð^BARNA- OG
^IJNGLINGALÓÐIR
fJH^^HANDVlRKS-
SALA ALLAR HELGAR
Lóðaskráning er í síma 562 5030
alla virka daga kl. 10:00-16:00
KOIAPORTIÐ
Markaðstort) Holaportsins er opið allar helgar kl. IV-17