Morgunblaðið - 05.07.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1997 25
Ætla íslensk stjórnvöld að taka
þátt í baráttunni gegn barnavinnu
Á RÁÐSTEFNU Norræna verka-
lýðssambandsins um barnavinnu
sem ég sótti í apríl sl. sagði Neil
Kearney frá Alþjóðasambandi
starfsmanna í vefnaðariðnaði frá 5-7
ára börnum sem vinna 16-20 stund-
ir á dag í fataiðnaði í Bangladesh.
Börnin eru veik, sum næstum blind
og mörg með berkla. Hann sagði frá
7 ára strák sem vann við að setja
smellur á gallabuxur með hamri.
Fingur hans voru þrútnir og bólgnir
og hann var barinn ef hann gerði
einhver mistök í starfi sínu. Neil
sagðist hafa spurt þennan strák
hvenær hann hefði tíma til þess að
leika sér. Það fékkst ekkert svar
vegna þess að orðið leikur var ekki
til í hugarheimi þessa stráks. Þessi
börn fengu engin laun og unnu fyr-
ir mat. Foreldrar barnanna voru
annaðhvort atvinnulausir eða höfðu
svo lág laun að þau gátu ekki fætt
þessi börn. Neil taldi að aðalástæðan
fyrir þessu ástandi væri óstjórnleg
græðgi atvinnurekenda og hugleysi
ríkisstjórnarinnar. -
Þessi frásögn er ótrúlega ljót og
það er auðvitað líka mjög illa gert
af mér að trufla lesendur Morgun-
blaðsins með því að fá þetta birt
þar. Sumir kunna líka að segja að
ég sé að setja málin óheiðarlega
- eða ætla þau að sitja hjá?
fram með því að tengja
þessa frásögn fyrirsögn
greinarinnar. Bera ís-
lensk stjómvöld virki-
lega ábyrgð á þessu
hræðilega ástandi?
Svarið er að auðvitað
bera íslensk stjómvöld
ekki ábyrgð á þessu,
EN, þau gætu staðið
sig mun betur í því að
taka þátt í baráttu gegn
barnavinnu og baráttu
fyrir auknum mann-
réttindum í heiminum.
Hvað eru
samþykktir ILO?
ísland á aðild að ILO,
Alþjóða vinnumálastofnuninni, sem
er ein af stofnunum Sameinuðu þjóð-
anna. Eitt af því sem ILO gerir er
að setja reglur um vinnumarkaðs-,
félags- og mannréttindamál sem
eiga að gilda fyrir allan heiminn. ILO
er þríhliða stofnun þar sem samtök
launafólks, samtök atvinnurekenda
og stjórnvöld þurfa að ná samkomu-
lagi um þessar reglur. Reglurnar em
síðan staðfestar af aðildarríkjunum
Ari
Skúlason
og taka gildi eft.ir
ákveðnum reglum.
ísland hefur staðið
sig mjög illa við að stað-
festa samþykktir ILO.
Við höfum einungis
staðfest 18 samþykktir
á meðan hin Norður-
löndin hafa staðfest á
bilinu 70-100 sam-
þykktir. Alþýðusam-
band íslands hefur bar-
ist fyrir því í mörg ár
að fá fleiri samþykktir
samþykktar en staðið
frammi fyrir mikilli
andstöðu bæði stjórn-
valda og atvinnurek-
enda.
Til hvers eru
samþykktir ILO?
Nú eru samþykktir ILO mjög mis-
munandi og skipta okkur mismiklu
máli. Nú liggja t.d. fyrir Alþingi, og
hafa legið lengi, þingsályktunartil-
lögur um að íslensk stjórnvöld stað-
festi samþykktir ILO um málefni
starfsfólks með fjölskylduábyrgð og
uppsögn starfs af hálfu atvinnurek-
Ætlar ísland að taka
þátt í samstöðu með
öðrum þjóðum um það,
spyr Ari Skúlason,
að berjast gegn því böli
og smánarbletti sem
bamavinnan er á
heimssamfélaginu.
enda. Þessar tvær samþykktir skipta
máli fyrir réttindi og kjör íslensks
launafólks og því eru þær mikilvæg-
ar fyrir okkur.
Síðan eru til aðrar mikilvægar
samþykktir sem við höfum ekki stað-
fest sem skipta okkur litlu máli, en
skipta aðra mjög miklu máli. Dæmi
um það er ILO-samþykkt nr. 138
um bann við vinnu barna. Einn helsti
liðurinn í baráttunni gegn barna-
vinnu í heiminum er að sem flest
ríki staðfesti þessa samþykkt til
þess að það sé hægt að nota hana
sem vopn í baráttunni gegn bama-
vinnu. En af hvetju ætti ríki eins
og Bangladesh að staðfesta sam-
þykkt af þessu tagi þegar land eins
og ísland hefur ekki gert það?
Reyndar hafa tvö Norðurlandanna
ekki staðfest þessa samþykkt; ísland
og Danmörk. Vegna mikils sjálf-
stæðis danska vinnumarkaðsins
gagnvart stjórnvöldum hafa dönsk
stjórnvöld veigrað sér við að stað-
festa samþykktir af þessu tagi. En
í þessu tilfelli hafa Danir nú ákveðið
að bijóta regluna og staðfesta sam-
þykkt nr. 138. Innan skamms verður
Island, eitt Norðurlandanna, í þeirri
stöðu að taka ekki þátt í baráttunni
gegn barnavinnu í heiminum með
því að staðfesta þessa samþykkt.
Staðfesting kostar
okkur ekkert
íslensk stjórnvöld hafa engin rök
fyrir því að staðfesta ekki ILO-sam-
þykktina um barnavinnu. Þær reglur
sem gilda nú um þessi mál ná mun
lengra þannig að staðfestingin hefði
engin áhrif á íslenskan vinnumark-
að. Spurningin snýst aðeins um það
hvort ísland vill taka þátt í samstöðu
með öðrum þjóðum um að beijast
fyrir því böli og smánarbletti sem
barnavinnan er á heimssamfélaginu.
Við teljum okkur oft meðal fremstu
þjóða, og í þessu máli ættum við að
færa okkur mun framar og öðlast
sess meðal þeirra þjóða sem láta sig
mannréttindi í heiminum einhveiju
skipta.
Höfundur er framkvæmdastjóri
ASÍ.
Undir 16 ára -
aðeins með foreldrum
AÐ UNDANFÖRNU hefur mátt
sjá auglýsingar þar sem foreldar eru
hvattir til að sýna börnum sínum
ást með því að segja nei þegar vímu-
efni eru annars vegar. Þeir eru
hvattir til að vera sam-
taka, ákveðnir og
elskulegir, m.a. með því
að neita að kaupa
áfengi fyrir unglinga
undir 16 ára aldri. Ekki
þarf að koma á óvart
að þessum tilmælum sé
beint til foreldra. Mikil
og sterk vakning er í
gangi til að beijast
gegn áfengis- og vímu-
efnanotkun unglinga
og það er vitað að fram-
lag foreldra er þar
áhrifamest.
Lengi hefur verið
unnið gegn áfengis- og
vímuefnavandanum
Valgerður
Magnúsdóttir
með fræðslu til að auka þekkingu.
Hún er nauðsynleg en ekki nægjan-
leg. Niðurstöður rannsókna sýna að
fjórir af hveijum fimm unglingum í
10. bekk hafa neytt áfengis og
margir einnig prófað önnur fíkni-
efni, t.d. hafa 13% þeirra notað hass.
Þessar tölur hafa aldrei verið hærri
en nú.
Fjölskylduferðir í stað
unglingaf er ðalaga
Það má í raun segja að unglinga-
drykkja eins og hún hefur tíðkast
sé ekkert annað en vanræksla, sem
hefur viðgengist með einhvers konar
þegjandi samþykki. Það er t.d. engin
ástæða til að unglingar undir 16 ára
aldri séu í ferðalögum án stjórnar
og leiðsagnar fullorðinna og ástæða
til að leggja þau af.
Á vorfundi okkar nýlega fögnuð-
um við félagsmálastjórar þeim krafti
sem virðist í forvarnarstarfi um
þessar mundir. Við vorum sammála
um að nauðsynlegt væri að sporna
við því að unglingar færu einir síns
liðs á útihátíðir eða aðra staði þar
sem fyrsta neyslan á sér oft stað
og ýmsar hættur geta beðið þeirra.
Því viljum við beina því til foreldra
að láta ekki undan þrýstingi, heldur
neita börnum sínum samtaka,
ákveðnir og elskulegir um að fara í
slíkar ferðir. Þannig má beina þeim
frá þeim hættum sem reynslan sýn-
ir að of mikið er af. Það er upplagt
að fara heldur með þeim i ánægju-
lega íjölskylduferð og bjóða e.t.v.
vini eða vinkonu með.
Félagsmálastjórar
heita foreldrunum lið-
sinni eftir því sem verða
má til þess að snúa vörn
í sókn og kveða þessa
vanrækslu niður. Sam-
takamátturinn sem for-
eldrar hafa virkjað að
undanförnu hefur sýnt
sig að skila árangri. Það
sést t.d. í starfi for-
eldravaktanna.
Leiðir til að auka
styrk unglinganna
Besta aðferðin til að
sporna við áukinni
áfengis- og vímuefna-
neyslu unglinga er að
auka styrk þeirra sjálfra til að standa
á móti þrýstingi um að byija að
drekka og dópa. Það þarf að hafa
áhrif á lífsstíl þeirra, ekki aðeins á
þekkingu og viðhorf. Til þess að það
sé hægt þarf þrennt að koma til. í
fyrsta lagi stuðningur, eftirlit og agi
heima fyrir. í öðru lagi góð tenging
þeirra við skólann og í þriðja lagi
Mikil og sterk vakning
er í gangi til að berjast
gegn áfengis- og
vímuefnanotkun
unglinga. Valgerður
Magnúsdóttir bendir
á að þar sé framlag
foreldra áhrifamest.
styrkur hinna ýmsu stofnana, s.s.
skóla og félagsmiðstöðva. Fyrsti
þátturinn skiptir meginmáli og til
þess að hann virki vel þurfa foreldr-
ar að fá stuðning og aðstoð frá
styrku skólastarfi, hollum og góðum
tómstundatilboðum og öflugri og
aðgengilegri fræðslu. Einnig þarf
félagsleg þjónusta að sinna vel ráð-
gjafar-, stuðnings- og meðferðar-
starfi því sem henni er ætlað. Fjölda-
margir aðilar þurfa að sinna sínum
verkefnum vel, til þess að öll tann-
hjól virki og úr verði eitt afl sem
ekkert fær stöðvað fyrr en drykkju
og hvers kyns vímuefnanotkun ungl-
inganna hefur verið útrýmt.
Nýlega voru haldnar tvær fjölsótt-
ar ráðstefnur, önnur á Akureyri og
hin í Reykjavík. Þar ríkti baráttu-
hugur og virtist uppgjafarhljóð und-
anfarinna ára á bak og burt. Stríð
stendur um unga fólkið, en það stríð
þarf að vinna. Þar eiga foreldrar að
bandamönnum starfsfólk ýmissa
stofnana sem vinna að fræðslu og
forvarnarstarfi, ráðgjöf, meðferð,
rannsóknum og ýmsu öðru sem of
langt mál yrði upp að telja.
Skoðanir foreldra og
unglinganna sjálfra
í nýrri skoðanakönnun á viðhorf-
um foreldra gagnvart unglinga-
drykkju kom í ljós að 96,4% foreldra
telja að unglingar undir 16 ára aldri
eigi ekki að neyta áfengis. Í auglýs-
ingum sem Reykjavíkurborg og Ák-
ureyrarbær standa að um þessar
mundir er foreldrum bent á að með
því að kaupa áfengi fyrir unglinga
felst samþykki við því að þau drekki
það. Slíkt samþykki vilja foreldrar
yfírleitt ekki gefa og því er tilvalið
að standa saman á móti þrýstingi
og neita samtaka, ákveðnir og elsku-
legir að kaupa áfengi fyrir ungling-
ana. Með því móti sýna foreldrar ást
sína. Það liggur ljóst fyrir að ungl-
ingarnir sjálfir vilja skýr skilaboð frá
hendi foreldra sinna. Því skyldu eng-
ir foreldrar láta blekkjast af andófí
augnabliksins og röksemdunum um
að allir hinir megi það sem til um-
ræðu er, sem vissulega getur komið
upp þegar þeir sýna umhyggju á
þennan hátt.
Fjölskylduhátíð
á Akureyri
Um komandi verslunarmanna-
helgi verður fjölskylduhátíð á Akur-
eyri og vonast er eftir mörgum gest-
um. Þangað er tilvalið fyrir foreldra
að koma með unglingum sínum og
eiga með þeim ánægjulegar stundir.
í ofangreindri könnun kom einnig
fram að foreldrar vilja fá að vita ef
einhver verður þess áskynja að barn
þeirra undir 16 ára aldri neytir
áfengis. Við því verður brugðist á
Akureyri um verslunarmannahelg-
ina. Barnaverndarstarfsmenn munu
vinna ötullega að því að láta for-
eldra vita ef einhveijir unglingar
undir 16 ára aldri verða í vanda.
Þá verður leitað til foreldra þeirra
og óskað eftir því að þeir sæki ungl-
inginn sinn, því þá þurfa þeir svo
sannarlega á pabba og mömmu að
halda. Slíkar neyðaraðgerðir má fyr-
irbyggja með öllu með því að fjöl-
skyldan skemmti sér saman á já-
kvæðan hátt.
Áfram foreldrar, elskið börnin
ykkar óhikað og segið nei, samtaka,
ákveðnir og elskulegir.
Höfundur er félagsmálastjóri
Akureyrarbæjar.
Fyrsta flokks
Fyrir fellihýsi og hjólhýsi
Gott verð og mikið úrval af þessum frábæru for-
tjöldum sem reynst hafa vel áratugum saman.
CÍSLI . 1ÓNSSON efif
Bíldshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644
Opiö lau. 10-16 og sun. 13-16
Umboösmenn: Bílasalan Fell, Egilsstööum
og BG Bílakrlnglan, Keflavík.
L A N G U R
LAUGARDAGUR
OPIÐ TIL KL. 17 í HERR AGARÐINUM
SUMARBLl SSlTIi A 20% AFSUETTI
I dag veitum við 20%
afslátt af glæsilegum
sumarblússum.
m
1$li^
omiö og sjáið fulla
búð af fatnaöi og skóm.
20%
aí'sláítur
af sumarblussum í dag
Laugavegi 13