Morgunblaðið - 05.07.1997, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HAFÞÓR VESTFJÖRÐ
GUÐMUNDSSON
+ Hafþór Vest-
fjörð Guð-
mundsson fæddist í
Reykjavík 16. febr-
úar 1943. Hann lést
á heimili sínu í
Reykjavík 22. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Foss vogskirlq' u 1.
júlí.
Fregnin um andlát
Hafþórs mágs míns
kom eins og reiðarslag
yfir okkur öll. Aðeins
einni viku áður höfðum
við setið saman í brúðkaupi eldri
sonar hans. Og við höfðum horft á
hann í kirkjunni þar sem hann sat
hjá altarinu við hlið Helga, sonar
síns, er þeir biðu þess að brúðurinn
kæmi gangandi upp kirkjugólfið.
Hafþór með góða andlitið sitt og
rósemina.
Höggið kom meðan hann var í
blóma lífs síns, aðeins 54 ára gam-
all; báðir synirnir komnir í höfn
með góðar konur sér við hlið, fyrsta
barnabamið, hún Ásta Margrét, var
hans líf og yndi og fyrirhuguð var
sumarleyfisferð hans til Parísar í
júlí ásamt eiginkonunni Margréti.
Sumarleyfisferð, sem þó hafði
kostað fortölur, því í augum Haf-
þórs átti að nota sumarleyfi til að
vinna að einhverju uppbyggilegu,
einhveiju gagnlegu, ekki bara til
að hvíla sig eða skemmta sér. Frí-
tími hans hafði alla tíð farið í að
sinna hugðarefnunum. Hugðarefn-
um, sem voru ótrúlega
mörg og fjölbreytileg,
en áttu rætur sínar að
rekja til listrænna
hæfileika hans og
áhuga á náttúrunni.
Við sögðum stundum
við hann í gríni að hann
væri algjör dellukall.
Hann bara hló við og
hélt sínu striki.
En hann var enginn
venjulegur dellukall.
Hann sinnti öllum
hugðarefnum sínum
heils hugar og af
ítrustu vandvirni. Allt
var skoðað ofan í kjölinn, þarna var
enginn yfirborðsáhugi. Hann sótti
sér fræðslu um allt er varðaði það
áhugaefni sem var efst í huga hans
hveiju sinni. Síðan gat hann lagt
það áhugaefnið til hliðar, en fyrr
en varði var annað komið upp sem
átti hug hans allan.
Hann fékk snemma veiðibakter-
íuna og sinnti þeim þætti af fag-
mennsku í silungs-og laxveiðiðám,
oft með fjölskyldunni. Hann aflaði
sér djúpstæðrar þekkingar um líf-
emi og gönguferil fískanna, sem
hann ætlaði sér að veiða. Síðar
beindist áhugi hans að fískarækt
og fískum í búri og kom hann sér
upp dáfallegu safni fiskabúra. Safn-
aði að sér gagnlegum fróðleik með
lestri erlendra timarita og fræði-
bóka.
Þá var hann áhugasamur um
ljósmyndun og liggur eftir hann
stórt safn ljósmynda, sem hann tók,
MINNINGAR
framkallaði sjálfur og stækkaði. Sá
sjálfur um allan ferilinn.
Allt gert af svo mikilli vandvirkni
og listfengi. í náttúruna sótti hann
steina, sem hann tók heim og mál-
aði af smekkvísi. Tvö ár Hafþórs í
myndlista- og handíðaskólanum
drógu enn betur fram listræna
hæfíleika hans. Haglega gerða
muni, búna til úr leðri, úr tré eða
í stein, fengum við ástvinir hans
að gjöf frá honum og eigum nú
þakklát til minningar um hann.
Síðustu árin hefur áhugasvið
hans fundið sér nýjan farveg, því
hann hefur verið að kynna sér mið-
aldahljóðfærið íslenska, langspilið,
sögu þess, uppbyggingu og notkun
og auðvitað endaði það með því að
hann smíðaði sjálfur fallegt lang-
spil, sem hangir á vegg í stofunni
heima, tilbúið til notkunar.
Já, Hafþór var mjög fjölhæfur
maður og hann nýtti hæfíleika sína
vel, enda naut hann góðs stuðnings
fjölskyldunnar. Allt var þetta gert
í frístundum, en starf hans sem
kennari hefur einnig þróast með
honum í átt að hugðarefnunum.
Lengstan tíma starfsferils síns hef-
ur hann verið barnakennari en hann
var einnig í nokkur ár skólastjóri
úti á landi. Síðasta árið hefur hann
ásamt starfmu sem smíðakennari,
verið í framhaldsnámi við Kennara-
háskólann.
Líf Hafþórs var óvenju innihalds-
ríkt og margþætt en það var alltof
stutt og söknuðurinn eftir hann er
sár. En minningin um hann mun
lifa og megi hún verða til að styrkja
þau öll í sorginni: eiginkonuna
Margréti, syni þeirra, Helga og Sig-
urð og tengdadæturnar, móður
hans Matthildi og systkini hans
Qögur.
Sigrún Helgadóttir.
+ Guðbjörg
Ragnheiður
Sigurðardóttir
fæddist í Reykjavík
10. desember 1949.
Hún lést á Land-
spítalanum 25. júní
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Háteigskirkju
3. júlí.
Elsku besta Gugga
frænka.
Nú ert þú, ein af
mínum uppáhalds
frænkum, komin til
himna. Ég hefði ekki trúað því fýr-
ir fáeinum árum að svo stutt væri
í kveðjustundina.
Það er margs að minnast. Þegar
ég hugsa til baka og minningarnar
um þig hrannast upp, er mér minn-
isstæðastur sá tími þegar þú áttir
heima við Skeiðfossvirkjun, en þar
fékk ég oft að vera hjá þér og fjöl-
skyldu þinni yfir sumartímann. Ég
er þakklát fyrir það. Það er skrýt-
ið en þegar ég minnist þess tíma
er ég dvaldi hjá þér kemur upp í
huga mér sól, þægilegt andrúms-
loft, góður matur, kökur og sam-
eiginleg tiltekt. Já, sameiginleg til-
tekt. Mér fannst þú alveg frábær
stjórnandi, þú áttir svo auðvelt með
að leiðbeina fólki í návist þinni.
Þegar þú sagðir að nú ættu allir
að taka til hendinni og skiptir með
okkur verkum, gengu
allir til verks, alveg
sama hversu gamlir
eða ungir þeir voru,
allir hjálpuðust að. Ég
man að ég nefndi þetta
við þig eftir að þú
veiktist og þá sagðist
þú ekki skiíja í þeim
sem nýttu sé ekki það
fólk sem væri á heimil-
inu heldur gerðu alla
hluti sjálfir. Eg var al-
veg sammála þér.
Þú og Heiðar áttuð
hlýlegt og þægilegt
heimili sem flestum ef
ekki öllum fannst yndislegt að koma
á. Mér var tekið svo vel og fannst
ég strax vera ein af fjölskyldunni.
Á betra heimili er ekki hægt að
koma.
Ég er bæði fegin og reið yfír því
að þú sért farin til himna. Fegin
yfir því að nú veit ég að þér líður
vel, en reið yfír því að fá ekki að
hafa þig lengur hér hjá okkur, en
ég veit að þú vakir yfir okkur.
Elsku Heiðar, Inga, Brói, Lilja,
Gummi, Jón Grétar, Hófí og amma
Inga, hugur minn er hjá ykkur. Guð
styrki ykkur öll.
Kæra frænka, takk fyrir allar
samverustundirnar, sérstaklega
samtölin okkar við eldhúsborðið.
Kveðja frá Danmörku.
Sólrún Ólína Sigurðardóttir.
GUÐBJORG
RAGNHEIÐUR
SIG URÐARDÓTTIR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Danska sendiráðið
auglýsir eftir ábyrgum og þroskuðum einstakl-
ingi til að aðstoða við pössun á ungabarni.
Um er að ræða hlutastarf, 4 tíma daglega,
einnig einstaka kvöld og helgar.
Upplýsingar í síma 562 1230 frá kl. 9.00 til
12.00 virka daga.
TIL SOLU
Til sölu
Til sölu er fasteign að Ytra-Holti
við Dalvík
Húsið hefur verið notað sem geymslu- og iðn-
aðarhúsnæði. Tilboðum skal skila til sparisjóðs-
stjóra, sem gefur allar nánari upplýsingar.
Tilboðsfrestur ertil 1. ágúst nk.
Dalvík, 2. júlí 1997.
Sparisjóður Svarfdæla,
Dalvík.
Nálægt FB í Breiðholti
5 herb. íbúð (4 svefnherb.) ásamt bílskúr. Stór-
ar suðursvalir. Þvottahús og búr innaf eldhúsi.
Áhv. 5 millj. Verð 7,3 millj.
Upplýsingar gefa Ingibjörg eða Garðar í síma
553 2492.
ÝMISLEGT
Til leigu
Til leigu eru stórar sumarhúsa- og
skógræktarlóðir í landi Steðja á Þelamörk,
Eyjafjarðarsýslu.
Þetta land er í um 15 km fjarlægð frá Akureyri.
Búið að leggja veg og vatnslögn inná svæðið.
Upplýsingar í síma 462 6848.
HÚSIMÆB! í BOOI
Stórhöfði 17
Jarðhæð, að neðanverðu. Frábært húsnæði
fyrir allskonar rekstur. Stærð rúml. 80 fm. Upp-
lýsingar í síma 587 7685. Er laust nú þegar.
SMÁAUGL VSING AR
FÉLAGSLÍF
Dalvegi 24, Kópavogi
Samkoma fellur niður vegna sum
arfagnaðar.
Dagsferðir:
í fjallasyrpum Útivistar er boðið
upp á spennandi fjallgöngur
Fjallasyrpan er á dagskrá annan
hvern sunnudag. Samhliða fjall-
göngunum er boðið upp á göngu
á láglendi meðfram á.
Sunnudaginn 6. júlí verður farið
á Heklu og jafnframt gengið með
Þjórsá.
Sunnudaginn 6. júli: Fjalla-
syrpan, 5. áfangi. Gengið á
Heklu frá Skjólkvíum. Brottför
frá BSl kl. 9.00.
Verð kr. 2.500/2.200.
Sunnudaginn 6. júlí: Árganga.
Gengið með Þjórsá og farið í Ar-
nes. Skemmtileg ganga við allrs
hæfi. Brottför frá BSl kl. 9.00.
Verð kr. 2.500/2.200.
Nýtt göngukort af Þórsmörk
og Goðalandi komið út.
Skemmtilegar lýsingar á göngu-
leiðum um stórbrotna náttúru á
ensku og íslensku. Kortið fæst é
skrifstofu Útivistar fyrir aðeins
kr. 300.
Munið hjólarækt Utivistar.
Á þriðjudögum kl. 18.30 hittisl
hópur áhugamanna um hjólreið-
ar við Grillhúsið við Breiðholts-
braut/Bústaðaveg. Þriðjudaginr
8. júí verður Vatnsendahringur-
inn hjólaður. Ekkert þátttöku-
gjald, allir velkomnir.
Kynnið ykkur sumarferðir
Útivistar á netinu:
centrum.is/utivist
TILKYNNINGAR
Þingvellir
— þjóðgarður
Dagskrá helgarinnar.
Á Þingvöllum bjóða landverðii
upp á gönguferðir og barna-
stundir og af nógu verður að
taka um helgina.
Laungardagur 5. júlí
Kl. 13.00 Skógarkot
Gengið frá þjónustumiðstöð um
Sandhólastíg í Skógarkot og til
baka um Þinggötu. Fjallað verð-
ur um sögu búskapar og jarð-
fræði á Þingvöllum. Gangan tek-
ur um 3 klst. og má gjarnan taka
með sér nestisbita.
Kl. 15.00 Leikið og litað í
Hvannagjá
Barnastund fyrir alla krakka. Far-
ið verður í létta leiki og málað
með vatnslitum. Hist verður á
bílastæði við Hvannagjá og
gengið saman upp eftir. Barna-
stundin tekur um 11/2 klst. og
nauðsynlegt er að vera vel
búinn.
Sunnudagur 6. júlf
Kl. 13.00 Hrauntún
Gengið með gjám og um fornar
götur að Hrauntúni. Á leiðinni
verður hugað að sögu og nátt-
úrufari. Gangan tekur um 3 klst.
og verður lagt upp frá þjónustu-
miðstöð.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta
Séra Heimir Steinsson annast
guðsþjónustuna. Organisti ei
Ingunn Hildur Hauksdóttir.
Kl. 15.00 Þinghelgin
Gengið verður um hinn forna
þingstað undir leiðsögn land-
varðar. Lagt af stað frá Þingvalla-
kirkju að lokinni messu. Tekur
um 1-11/2 klst.
Allar frekari uppiýsingar um
dagskrána fást hjá landvörð-
um f þjónustumiðstöð, sími
482 2660.
Eitt blað fyrir alla!
JHtrrrjímblobiti
-kJmlaáUul