Morgunblaðið - 05.07.1997, Page 44
44 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/GSH
Meistarar í kvennaflokki
BRETAR urðu sigurvegarar í kvennaflokki á Evrópumótinu í brids
í Montecatini eftir harða baráttu við Frakka. Á myndinni sést sigurl-
iðið á verðlaunapaiiinum taka vel undir breska þjóðsönginn. Frá
vinstri eru Jimmie Arthur fyrirliði, Michele Hendry, Heather
Dhondy, Nicoia Smith, Liz McGowan, Pat Davies, Sandra Landy og
Brian Senior þjáifari. Þær Dhondy og McGowan unnu heimsmeist-
aramótið í blönduðum flokki með Islendingum á Ródos í fyrra.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sumarbrids 1997
Mánudaginn 30. júní var spilaður
Mitchell-tvímenningur og spiluðu 22
pör. Meðalskor 216. Úrslit kvöldsins
urðu þessi:
N/S
Erlendur Jónsson - Hermann Lárusson 261
Sverrir Ármannsson - Guðni Ingvarsson 234
Nicolai Þorsteinsson - Þorleifur Þórarinsson 229
A/V
ÞórðurBjömsson-EinarJónsson 280
Sverrir Ármannsson - Pál! Hjaltason 253
Bemódus Kristinsson - Georg Sverrisson 245
Þriðjudaginn 1. júlí spiluðu 32 pör
Mitchell, meðalskor 364. Þá unnu riðil-
inn:
FUNDARLAUN - FUNDARLAUN
Kerro, mjög svipuð þessari ó myndinni, hvorf um síðustu helgi fró Hvoleyrarbroul 39,
Hafnarfirði. Kerron er smíðuð af Víkurvögnum, sérstyrkt fyrir flutninga ó timburbóntun,
einnig er hún öll galvanhúðuð með fjórum þverslóm og opnanlegum göflum.
Skróningarnúmer Nl -116.
Þeir sem telja sig geta gefið einhverjar upplýsingar um kerruna vinsamlegast lótið
vita í sima 893 4152 eða lögregluna í Hafnarfirði.
GÓÐUM FUNDARLAUNUM HEITIÐ
N/S
Ragnar Örn Jóns. - Vilhjálmur Sigurð. jr. 424
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 420
Sævin Bjamason - Guðmundur Baldursson 419
A/V
Helgi Bogason - Steinberg Ríkharðsson 463
Þórður Björnsson - Þröstur Ingimarsson 423
Jón Stefánsson - Torfi Ásgeirsson 415
Miðvikudaginn 2. júlí var spilaður
Monrad-barómeter með 28 pörum.
Efstu pör urðu:
ÓlafurLárusson-HermannLárasson 91
Erlendur Jónsson - Þröstur Ingimarsson 84
Erla Siguijónsdóttir - Guðni Ingvarsson 67
Haildór Svanbergsson - Kristinn Kristinsson 45
Jón Steinar Ingólfsson - Jens Jensson 40
í bronsstigakeppni vikunnar er Her-
mann Lárusson nú efstur með 58 stig,
en bronsstig vikunnar eru reiknuð frá
mánudegi til sunnudags og verðlaun
vikunnar eru matur fyrir tvo á veit-
ingahúsinu Þremur Frökkum.
TOPPTILBOD
Langur laugardagur
Kr. 1.695,
Tegund:3406
Litur: Svartur
Stærðir: 36-41
. 3.495,-
Tegund: 12608
Litur: Svartir, bláir og
brúnir
Stærðir: 36-42
( póstsendum samdægurs - Opið i dag
frá kl. 10 til 16. j
\oppskórinn
^ v/lngólfstorg • v/Veltusund • sími. 552 1212
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Þekkir einhver mennina?
Á MEÐFYLGJANDI mynd frá árinu 1931 er flokkur glímumanna úr ÍR. Ekki er vitað hveijir á myndinni eru, en
ef glöggir lesendur telja sig þekkja einhvern eru þeir vinsamlega beðnir að hafa samband við Ágúst Ásgeirsson í
síma 569-1285 eða á netfangið agasÞmbl.is.
Fyrirspurn
vegna
happdrættis
ÉG ER með fyrirspurn í
sambandi við „Happdrætti
til styrktar undirbúningi
landsliðsins í handknatt-
leik ’97 í Kumamoto í Jap-
an“. Það átti að vera auka-
útdráttur úr greiddum
miðum þann 15. maí, sem
og var, en þá átti að draga
út þijá vinninga, sem voru
ferð á heimsmeistara-
keppnina í Kumomoto. Ég
hef ekki séð neina birtingu
á vinningshöfum í þessum
úrdrætti. Er ekki hægt að
birta vinningsnúmerin?
Handboltaunnandi.
Um hunda- og
kattahald í
Skipasundi
ÞANN 2. júlí 1997 kom í
Velvakanda bréf sem mér
fannst persónulega beint
gegn mér og minni fjöl-
skyldu, og því finnst mér
að ég verði að senda frá
mér eftirfarandi línur. I
greininni er talað um
kattaplágu í Skipasundi og
talað um að einhver þar
sé með tvo ketti og einn
hund. Ég veit bara um eina
flölskyldu sem þannig er
og er það einmitt mín fjöl-
skylda. Að einhveiju leyti
er ég sammála því sem rit-
að er, og fínnst sjálfum
ekki skemmtilegt að taka
upp dauða fugla sem mín-
ir, eða aðrir kettir, hafa
drepið. Sá, eða sú sem
skrifaði Velvakanda (skrít
ið að fólk þori ekki að
koma fram undir eigin
nafni) sagði í greinni að
„þessu“ væri síðan sleppt
út og gengi svo um drep-
andi bæði fugla og unga.
Ég verð nú bara að segja
að mínir kettir eru báðir
með bjöllu, en þrátt fyrir
það ná þeir samt, því mið-
ur, að drepa fugla. Þetta
er jú bara eðli kattanna.
Ég veit ekki til þess að
fleirum en þessari einu
persónu, sem ég tel mig
reyndar vita hver er, sé
illa við kettina mína, en
miðað við hvað margir
stoppa til þess að klappa
þeim þegar þeir eru úti,
sé ég ekki alla þessa ráða-
lausu íbúa við Skipasund.
Hvað kattaskatt, sem
nefndur var í greininni,
varðar myndi ég fagna því
ef slíkur skattur yrði tek-
inn upp, því það myndi
koma í veg fyrir það að
fólk fengi sér ketti til þess
eins að losa sig við þá.
Dýravinur í Skipasundi,
Gísli Ivarsson.
Þekkir einhver
braginn?
BRAGI Magnússon á
Siglufirði hafði samband
við Velvakanda í von um
að hann gæti haft uppi á
einhveijum sem kynni eða
þekkti brag sem hann
langar til að fá allan. Hann
hefur grun um að bragur-
inn sé ættaður frá stúdent-
um, en er þó ekki viss.
Hann kann hluta af þess-
um brag og er hann eftir-
farandi:
Hann Naflajón gamli hildi
að heyja
var heljargarpur, þjóð veit öll,
en veistu það hitt, ei,
hvað menn segja
er hreystiverkin gerði hann
sjöl!
með allt sitt lið i geiragný
hann glas drakk af
krambambúlí
krambimbam krambambúlí.
Kannist einhver við
þennan brag er hann beð-
inn að hafa samband við
Magnús í síma 467-1556.
Kettlingur
Kassavanur kettlingur
fæst gefins. Upplýsingar í
síma 555-3403.
Köttur týndist
í Biskupstungum
LJÓS persneskur
ómerktur köttur sem var
gestkomandi í sumar-
bústað í Biskupstungum, í
landi Efri-Reykja, villtist
frá eigendum sínum Iauga-
rdagskvöldið 28. júní sl.
Hann var á lyfjagjöf og
þarf nauðsynlega að fá
meðulin sín. Búið er að
leita rækilega að honum,
og því talið að hann gæti
hafa lokast inni í ein-
hverjum bústað. Sumar-
bústaðaeigendur á þessu
svæði eru vinsamlega
beðnir að hafa augun hjá
sér og hafi einhver orðið
hans var er hann vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 421-3450 eða síma
892-2406.
Víkverji skrifar...
VINKONU Víkveija er ákaflega
annt um heilsu sína og línurn-
ar og hún hefur cjftlega ergt sig á
því hversu langt íslendingar eiga í
land með að bjóða upp á úrval af
fitu- og sykursnauðum matvælum.
Dæmi um það séu mjólkurafurðir,
en henni finnst lítillar hugkvæmni
gæta hvað þetta varðar þegar nýjar
mjólkurafurðir eru settar á markað.
Þess í stað sé bætt við nýjum teg-
undum af alls kyns mjólkurmat sem
aðallega virðist ætlaður börnum,
dísætum og ijómakenndum spóna-
mat sem tæpast telst hollmeti, enda
hefur Manneldisráð oftar en einu
sinni hnýtt í Mjólkursamsöluna fyr-
ir afurðir á borð við þykkmjólk. Þá
sjaldan að dregið er úr fituinnihaldi
er óhollustunni náð upp með sykri.
Almenningur verður æ meðvitaðri
um það sem hann lætur ofan í sig
en matvælaframleiðendur virðast
ekki fylgjast með að sama skapi.
xxx
HINS vegar telur vinkonan það
Mjólkursamsölunni til hróss
hversu greinargóðar upplýsingar
um næringargildi eru á mjólkur-
matnum, en það sama verði hreint
ekki sagt um mörg önnur íslensk
matvæli. Það virðist heyra til und-
antekninga að á þeim sé að finna
ítarlegar upplýsingar um hvað þau
innihalda, hvað þá hvert næringar-
gildið er. Verst virðist ástandið vera
hvað varðar risapakkningarnar sem
seldar eru í stórmörkuðum. Engu
að síður stendur til að útiloka ýms-
ar bandarískar matvörur úr íslensk-
um verslunum vegna merkinganna,
sem þó eru til fyrirmyndar, vegna
þess að þær samræmast ekki evr-
ópskum stöðlum. Vinkona Víkverja
spyr hvaða stöðlum ómerktur ís-
ienskur pakkamatur samræmist?
XXX
VIÐSKIPTAVINUM ÁTVR hef-
ur staðið það til boða um
nokkurt skeið að sérpanta áfengis-
tegundir beint frá birgjum, sem
ekki eru í hinu venjulega úrvali rík-
isverslana. Þetta hefur vínáhuga-
mönnum þótt mikill fengur jafnvel
þótt greiða hafi þurft 400 kr. af-
greiðslugjald fyrir hveija pöntun
auk þeirrar fyrirhafnar að panta
vöruna og sækja nokkrum dögum
síðar.
Nú hefur hins vegar verið opnað
svæði í ríkinu á Stuðlahálsi, þar sem
hægt er að fá þessar sérpöntunar-
tegundir afgreiddar beint úr hillu.
Þetta er til fyrirmyndar. Skemmti-
legra er fyrir viðskiptavini að geta
skoðað tegundirnar og valið úr þeim
og fengið þær þar að auki afgreidd-
ar samstundis. Hins vegar á Vík-
veiji erfitt með að átta sig á því
hvers vegna fjögur hundruð króna
afgreiðslugjaldið skuli enn innheimt
af ÁTVR, ekki síst í ljósi þess að
fréttum af þessari nýjung fylgdi að
vörurnar í hillunum eru ekki í eigu
ÁTVR heldur heildsölufyrirtækj-
anna.
Væri ekki eðlilegra að ÁTVR
léti álagningu sína standa undir
kostnaði við hilluplássið líkt og önn-
ur verslunarfyrirtæki ekki síst þar
sem fyrirtækið stendur ekki straum
af kostnaði við birgðahald?