Morgunblaðið - 05.07.1997, Síða 48
. 48 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ANDTHE
HÁSKÓLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
OVÆTTURINN
TOM SIZEMORE PE'NELOPE ANN MILLER
^ FRÁ FRAMLEIÐANDA
TERMINATOR OG ALIENS
The Relic er vísindaskáldsaga í anda Aliens meö Tom Sizemore og
Penelope Ann Miller í aðalhiutverkum og framleiöandi er Gale Anne
Hurd sem er fræg fyrir framleiðslu „science fiction" mynda á bord við
Terminator 2, Aliens og the Abyss. The Relic er mögnuö spennumynd
sem þú veröur að sjá.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
FRUMSÝNING: EINRÆÐISHERRA í UPPLYFTINGU
Fran Drescher
LTON
SANDRA BULLOCK CHRIS O'DONNEL
mt
The Beautician and The Beast er frábaer gamanmynd meö Fran
Dresher (Barnfóstran á Stöö 2) og Timothy Dalton (James Bond) i
aðalhlutverkum. Einræöisherrann Boris i Slovetziu ætlarað snúa
landi og þjóð til vestrænna siöa og ræöur, aö hann heldur, kennara
frá bandaríkjunum aö kenna börnum sinum vestræna siði. Kennarinn
er föröunarfræöingurinn Joy frá Queens sem heldur aö hún haf verið
ráðin til aö lappa upp á útlit einræöisherrans.
Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.10.
Sýnd kl. 5.30.
Enskt tal, ótextað.
PIERCE BROSNAN LINDA HAMILTON
UNDIRD'JUP
ÍSLANDS
Diagðu andarin dju|3t
■Æ*:%
★ ★ ★
OHT Rás2
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9
og 11.15.
B. i. 12 ára.
ÁTT ÞÚ EFTIR
AÐ SJÁ KOLYA?
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Síðustu sýningar
GINA Lollobrigida ber aldur-
inn vel.
Á sínum yngri árum var Gina
þrjú ár í myndlistarakademí-
unni í Róm.
Sjötug
Og
síung
►GINA Lollobrigida heldur
upp á sjötugsafmæli um þessar
mundir. Hún sló í gegn á sjötta
áratugnum með leik í kvik-
myndum á borð við Hringjar-
ann frá Notre Dame. Á áttunda
áratugnum dró hún sig í hlé í
leiklistinni til að sinna myndlist
en sneri aftur á þeim níunda í
sjónvarpsmyndaflokknum góða
Falcon Crest.
k
Rólegur
steinn
MICK gamli Jagger, söngv-
ari hljómsveitarinnar Roll-
ing Stones, tekur fregnun-
um um að eiginkonan Jerry
-*i Hall sé ófrísk með stóískri
ró. Hann er reyndur faðir,
orðinn 53 ára, og ef allt
gengur að óskum verður
þetta sjötta barn hans. Hér
sést hann rölta um í al-
menningsgarði nálægt
heimili sínu á Englandi.
^ Jerry á von á sér í desem-
ber.
Fylgst með
fólkinu
Á síðustu misserum hefur orðið til öflug
stétt atvinnuplötusnúða sem ferðast um
heiminn og leikur tónlist efbir aðra. Derríck
Carter heitir einn af þeim sem hvað mestrar
virðingar nýtur um þessar mundir, en hann
skemmtir hér á landi í kvöld.
STARF plötsnúðarins er orðið
annað og meira en var á árum
áður, því nú er hann í fararboddi
þeirra sem kynna nýja tónlist og
plötusnúðar hafa mikið að segja
um framvinduna í danstónlistar-
heiminum. Breski dansstaðurinn
Plastic People, sem er með helstu
dansklúbbum Lundúna, hefur gert
samning við íslenskt danshús um
að það verði einskonar útibú frá
Plastic People einu sinni í viku og
í kvöld kemur hingað Derrick
Carter, sem er að sögn skipuleggj-
enda heimsóknarinnar, Margeirs
Jónssonar og Helga Más Bjarna-
sonar, með virtustu plötusnúðum
heims.
Derrick Carter er hálfþrítugur
Chicagobúi og vakti fyrst athygli
fyrir níu árum, þegar hann sendi
frá sér fyrstu breiðskífuna á eigin
útgáfu. Síðan hefur honum gengið
allt í haginn, hvort sem hann hef-
ur ferðast um heiminn til að æsa
dansgesti eða gefa út plötur, en
hann er meðal annars frægur fyr-
ir það að hafa undir þijá plötusþil-
ara samtímis þegar hann er að
skemmta.
Carter segist snemma hafa sýnt
áhuga á tónlist. „Móðir mín á í
fórum sínum upptökur þar sem
ég syng James Brown lög þriggja
ára gamall og ég kom fyrst fram
sem plötusnúður níu ára. Þar með
BANDARÍSKI plötusnúður-
inn Derrick Carter.
var framtíðin ráðin því eftir það
hugsaði ég ekki um annað en plöt-
ur og spilara, setti saman eigin
græjur úr tveimur gömlum plötu-
spilurum og sundurteknu segul-
bandi.“ Þegar Carter var sautján
ára segist hann hafa verið kominn
á kaf í starfið, en þá var mikil
uppsveifla í danstónlist í Chicago
sem kallaðist house. Carter var
of ungur til að komast að sem
plötusnúður í klúbbum Chicago,
þar sem aldurstakmarkið var 21
árs, og því var hann iðinn ið að
troða upp á skemmuskemmtunum.
Með tímanum varð fastur liður að
hann skemmti á gríðarstóru háa-
lofti sem félagi hans leigði og þar
segist hann hafa fengið fijálsar
hendur til að spila það sem hann
vildi. „í klúbbunum voru menn að
spila gamaldags og hallærislega
tónlist að okkar mati,“ segir hann,
„en ég gat leyft mér hvað sem er
og fyrir vikið var sífellt meira og
meira að gera, því fólk var fíkið
í nýja tónlist.“
Derrick Carter segir að aðal
plötusnúðsstarfsins sé að fylgjast
með fólkinu í salnum. „Það skiptir
ekki svo miklu hvaða tónlist þú
ert að spila; aðalatriðið er að þú
raðir lögunum rétt saman í dag-
skránni, fylgist með fóikinu á
staðnum og^ stýrir því rétt með
tónlistinni. Ég reyni að láta alla
fljóta með dansbylgjunni, skýt inn
gömlum lögum í bland við ný til
að halda samhengi í því sem ég
er að gera.“ Carter ólst upp við
house-tónlist í Chicago, en segist
leika hvaða tónlist sem er eftir því
sem verkast vill, hvort um sé að
ræða nánast ambient draumtóna,
svellandi house eða dynjandi tec-
hno.
Derrick Carter skemmtir í
Rósenbergkjallararanum í kvöld. á
vegum Plastic People með plötu-
spilarana sína þijá..