Morgunblaðið - 21.09.1997, Side 1
136 SÍÐUR B/C/D/E/F
STOFNAÐ 1913
214. TBL. 85. ÁRG.
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Eldsvoði í Mexíkó
Háaldraðir
rummungar
LÖGREGLA í Argentínu greindi frá
því í síðustu viku að hún hefði hand-
tekið þrjá aldraða rummunga sem
eru sagðir hafa rænt 22 verslanir á
einum mánuði, og voru ránin skipu-
lögð á elliheimili. Mennirnir þrír eru
67, 72 og 74 ára, og eiga yfir höfði
sér 25 ára fangelsi verði þeir fundn-
ir sekir um að hafa rænt verslanim-
ar. Að sögn lögreglu fóru ránsferð-
irnar þannig fram, að tveir mann-
anna fóru gangandi að morgni dags
frá elliheimilinu í Buenos Aires, þar
sem þeir bjuggu, með göngustafi í
höndum og byssur í vösum, og hittu
þann þriðja, sem bjó á ódýru hóteli.
Síðan sigtuðu þeir út árennilega
verslun. Tveir fóru inn í verslunina
og drógu upp skotvopnin meðan sá
þriðji stóð vörð úti fyrir. Ef heiðar-
legir viðskiptavinir ætluðu að fara
inn í verslunina sagði hann þeim að
dóttir hans væri þar að gera
vörutalningu og bað þá að koma síð-
ar. Ræningjarnir héldu síðan til
baka í leigubíl með góssið. Áætlar
lögregla að þeir hafi alls haft sem
svarar rúmlega einni milljón ís-
Ienskra króna upp úr krafsinu.
Reyndar höfðu lögreglumenn alloft
tekið mennina tali skammt frá ráns-
stöðunum en jafnan sleppt þeim þar
sem þeir virtust ekki lfldegir til að
gera neitt af sér.
Engin bók -
bara snældur
NÝJASTA skáldsaga bandarfska rit-
höfundarins Tom Wolfe er þriggja
klukkustunda löng. Hún verður ekki
talin í blaðsíðum því útgáfan er ein-
ungis á segulbandi - engin bók.
Wolfe er kunnur fyrir blaða-
mennsku og einnig sem höfundur
bókarinnar Bonfire of the Vanities
(Bálköstur hégómans). Nýjasta sag-
an heitir Ambush at Fort Bragg
(Fyrirsát við Bragg-virkið) og segir
útgefandinn að þetta sé í fyrsta sinn
sem þekktur rithöfundur gefur sögu
út á snældum án þess að fyrst komi
út hefðbundin bók. Wolfe segir sjálf-
ur að hann kunni vel við að hlusta á
bækur á snældum, ekki síst þegar
hann sé á ferð í bíl, og það minni sig
á þá tíð þegar útvarpsleikritin voru
og hétu. Það er leikarinn Edward
Norton sem Ies söguna, en hann er
m.a. kunnur fyrir leik sinn í kvik-
myndunum Innsti ótti og Málið gegn
Larry Flynt. Reyndar er Wolfe nú
að leggja lokahönd á langa skáld-
sögu, sem enn hefur ekki hlotið
nafu, en á að koma út á alvöru bók á
næsta árí.
UNG kona og barn voru meðal þeirra 200
fjölskyldna er urðu að yfirgefa heimili sín í
Naucalpan, sem er úthverfi Mexíkóborgar, á
föstudag er eitrað loft steig upp frá brenn-
YASSER Arafat, forseti heimastjórnar Pa-
lestínumanna, skoraði í gær á Bandaríkja-
menn að láta meira til sín taka við að koma
friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs
aftur af stað. Fór forsetinn fram á það að
Bandaríkjamenn lýstu stuðningi við stofnun
sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Kom þetta
fram í ræðu Arafats á fundi Arababandalags-
ins sem stendur í Kaíró í Egyptalandi nú um
helgina.
Arafat fagnaði því að Madeleine Albright,
utanríkisráðheiTa Bandaríkjanna, hefði kom-
ið til Mið-Austurlanda fyrr í mánuðinum, en
sagðist gera meiri kröfur til bandarískra
andi plasthúsgagnaverksmiðju. Engan sak-
aði í eldinum, sem lítt réðst við, en meðal
annars voru nærliggjandi skólar rýmdir í
öryggisskyni.
stjórnvalda um þátttöku í friðarumleitunum.
Fór hann fram á „stuðning Bandaríkjastjórn-
ar við stofnun palestínsks ríkis.“
Arafat sagði að ástandið í Ras al-Amoud
hverfinu í Austur-Jei-úsalem væri líkast skop-
leik. Israelskh• námsmenn dvelja nú í tveim
húsum í hverfinu, sem í búa um 11 þúsund
arabar. Fjórar ísraelskar fjölskyldur settust
að í húsunum fyrir viku í óþökk Palestínu-
manna sem ætla Austur-Jerúsalem að verða
höfuðborg sjálfstæðs ríkis síns. Samkvæmt
samningi ísraelskra stjórnvalda við eiganda
húsanna hurfu fjölskyldurnar þaðan á brott
sjálfviljugar sl. fimmtudag, en námsmennimir
Sjötta slysið í bandaríska
flughernum á einni viku
B-l fórst
í blíðviðri
Washington. Reuter.
B-IB sprengjuflugvél bandaríska hersins
fórst, og með henni fjórir menn, í Montana-
ríki á fóstudagskvöldið. Er þetta sjötta flug-
slysið í bandaríska
hernum á einni viku.
Ekkert hefur komið
fram um hverjar or-
sakir slyssins kunni
að hafa verið. Full-
trúi bandaríska
vamannálaráðu-
neytisins sagði á
fréttamannafundi í
gær að hann gæti
ekki útskýrt þessa
röð slysa, en sagði
að þama væri að vissu leyti um að ræða
„grimmd tölfræðinnar“, slys virtust oft verða
„mörg saman“, það hefði einnig gerst í fyrra.
Þotan sem fórst á föstudag var á æfinga-
flugi í blíðu veðri. Slysið varð milli kl 20 og
21 að kvöldi að íslenskum tíma. B-IB þotan
var fyrst smíðuð í upphafi níunda áratugar-
ins og gerð til þess að bera kjarnorku-
sprengjur. Vélin sem fórst á föstudag var
ekki hlaðin neinum sprengjum.
I síðustu viku fyrirskipaði William Cohen,
vamarmálaráðherra, að allar æfingaflugvél-
ar hersins skyldu kyrrsettar í sólarhring 26.
september til þess að rannsaka mætti örygg-
isráðstafanir sem gerðar væra við æfinga-
flug, í ljósi tíðra slysa undanfarið. Vegna
slyssins á fóstudag hefur varnarmálaráðu-
neytið tilkynnt að kyrrsetningunni verði flýtt
til mánudags.
Samkvæmt upplýsingum bandaríska varn-
armálaráðuneytisins hafa alls farist 55 flug:
vélar á vegum flughersins á þessu ári. í
fyrra fórast 67; 69 árið þar á undan og 86 ár-
ið 1994.
fluttu inn í staðinn og eiga að sjá um viðhald
næstu mánuði.
Á fundi Arafats með utanríkisráðherram
aðildarríkja Arababandalagsins á föstudag
bar forsetinn fram opinber andmæli við við-
brögðum ísraela við deilunni í Ras al-Amoud,
og sagði þá vera „að koma upp bækistöð fyrir
landnema" í Austur-Jerúsalem. Eftir fundinn
sagði Amr Moussa, utanríkisráðherra Eg-
yptalands, að ráðherrarnir hefðu verið sam-
dóma um að stefna Israela, og þá sérstaklega
i málum er vörðuðu Jerúsalem, væri
óviðunandi. Friðarumleitanir hefðu farið út
um þúfur vegna óbilgimi ísraela.
Yasser Arafat segir ástandið í Ras al-Amoud vera skopleik líkast
Krefst stuðnings Bandaríki anna
Kaíró. Reuter.
TREYSTA VÖLDIN
ÍKÍNA «
ESJU-
STELP-
URNAR
20
LAUGAFISKI VEX
FISKUR UMHRYGG