Morgunblaðið - 21.09.1997, Blaðsíða 56
Paö tekur aöeins
tr aöeins .
■virkanT^
aö koma póstinum
þínum tíl skila
PÖSTUBOOSlMIH#' Ú
*jr0iwlifeíití> 5
<o>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTItÆTI 1
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
s
Yfirmenn
hjá Gæsl-
unni fella
kjara-
samning
SKIPHERRAR, stýrimenn og bryt-
ar hjá Landhelgisgæslunni felldu
kjarasamning sem Farmanna- og
fískimannasamband íslands hafði
nýverið gert fyrir þeirra hönd við
Landhelgisgæsluna. 16 voru andvíg-
ir samningnum en 7 fylgjandi.
Alls eru í þessum hópi sjómanna
Landhelgisgæslunnar 24 menn og
greiddu 23 atkvæði, eða 96% þeirra.
Samningurinn var undirritaður 1.
september síðastliðinn og átti að
gilda til 1. nóvember 2000. Hefur at-
kvæðagreiðsla staðið frá undirritun
og voru atkvæði talin í gær.
Benedikt Valsson, framkvæmda-
stjóri FFSÍ, segir að þessi niður-
staða sýni almenna óánægju sjó-
manna Gæslunnar með samninginn.
Menn séu nú aftur á byijunarreit og
kveðst hann vona að viðræður geti
hafíst á ný í vikunni.
♦ ♦♦
Erill á
Akureyri
NOKKUR erill var hjá lögreglunni á
Akureyri í fyrrinótt.
Tvær líkamsárásir voru tilkynntar
til lögreglunnar um nóttina og gistu
tveir menn fangageymslur vegna
þeirra. Meiðsl þeirra sem urðu fyrir
barðinu á árásarmönnunum voru þó
lítils háttar.
Fjórir ökumenn óku of hratt innan
bæjarmarkanna og mældist einn
þeirra á 108 km hraða, þar sem leyfí-
legur hámarkshraði er 50 km/klst.
Ökumaðurinn þurfti að sjá á bak
ökuskírteini sínu.
*r Þá stöðvaði lögregla fór þriggja
ökumanna, sem höfðu ákveðið að
setjast undir stýri þrátt fyrir að hafa
neytt áfengis.
Iþrótta-
félag
flytur
ÞRÓTTARAR tóku í gær
skóflustungu að nýju félags-
heimili í Laugardalnum þar sem
höfuðstöðvar félagsins verða í
framtíðinni. Um Ieið fagnaði fé-
lagið sæti í efstu deild knatt-
spyrnunnar að ári. Bflstjórar úr
Vörubflstjórafélaginu Þrótti
fluttu stóran hóp nafna sinna í
Laugardalinn og var íjölmenni
við gömlu höfuðstöðvarnar við
Sæviðarsund þegar lagt var af
stað.
Deilt á tiliögu um svæðisskipulag Miðhálendisins
Ekki nægilegt tillit
til nýtingar á orku
FULLTRÚAR orkumála eru mjög gagnrýnir á tillögu, sem nú liggur fyrir
um svæðisskipulag Miðhálendisins. A ráðstefnu, sem haldin var í gær á veg-
um Félags skipulagsfræðinga og Verkfræðistofnunar HÍ kom fram að í
skipulagstillögunni, sem nær til ársins 2015, er gert ráð fyrir að alls geti
komið til framkvæmda orkuvinnsla sem nemur um 10.000 gígawattstundum
af raforku á ári á skipulagstímanum, en talið er að hér á landi sé hægt að
vinna 25-30 þúsund GWs af raforku með hagkvæmum hætti þegar tillit er
tekið til umhverfisáhrifa. Núverandi orkuvinnsla nemur um 5.000 GWs á ári.
Morgunblaðið/Golli
Leikskólakennarar undirrituðu samning eftir 42 tíma langan samningafund
Samið um 25% launa-
Þorkeli Helgason orkumálastjóri,
sagði á ráðstefnunni að ef öll tæki-
færi, sem hugsanlega byðust á skipu-
lagstímanum, yrðu nýtt gæti orku-
þörfin orðið 28.000 GWs á ári. Sam-
kvæmt lauslegu mati gæti útflutn-
ingsverðmæti þeirrar stóriðju, sem
myndi bætast eða gæti bæst við frá
og með þessu ári, numið 133 milijörð-
um króna. TO samanburðar sagði
Þorkell, að allur vöruútflutningur í ár
gæti numið sömu fjái’hæð. Aukning á
vergri landsframleiðslu vegna þess-
arar stóriðju gæti numið um 15%.
„Ber ekki að taka tillit til stærða af
þessu tagi þegar skipulag er mótað
eða geta skipulagsyfirvöld lifað í efna-
hagslegu tómarúmi?" sagði Þorkell.
Ágreiningur um virkjanir
I svæðisskipulagstillögunni er
ekki tekið undir allar þær áætlanir,
sem Landsvirkjun hefur haft um
vatnsaflsvirkjanir. Jóhann Már Mar-
íusson aðstoðarforstjóri Landsvirkj-
unar sagði á ráðstefnunni að það
væri álit fyrirtækisins að svæðis-
skipulag Miðhálendisins ætti eðli
málsins samkvæmt að endurspegla
ákvarðanir löggjafans og stefnumið
stjórnvalda í orkumálum og Lands-
virkjun féllist ekki á að samvinnu-
nefndinni og skipulagsstjóm væri
óheimilt að raska fyrirkomulagi
virkjana á Miðhálendinu.
Stefán Skaftason fulltrúi í sam-
vinnunefndinni um svæðisskipulagið
sagði að nefndin hefði staðið frammi
fyrir því að Alþingi hefði leyft virkj-
unarframkvæmdir sem nefndin hefði
viljað gera athugasemdir við eða
haga með öðrum hætti. Þessum
ákvörðunum Alþingis hefði nefndin
orðið að hlíta þótt hún gæti komið
skoðunum sínum á framfæri. Stefán
sagði að verndunarsjónarmið hefðu
verið talsvert ríkjandi í stefnumörk-
un nefndarinnar, en meginmarkmið-
ið hefði samt verið að koma á reglu á
hlutina og nefndin hefði leitast við að
samræma ólík sjónarmið hinna ýmsu
aðila sem telji sig hafa hagsmuna að
gæta á hálendinu.
--------♦♦♦--------
liaíkkiiii á þremur árum
SAMNINGANEFNDIR leikskólakennara og
sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning
í gærmorgun eftir 42 tíma fundarsetu. Samning-
urinn felur í sér u.þ.b. 25% launahækkun á samn-
ingstímanum. Byrjunarlaun leikskólakennara
verðá 102 þúsund í lok samningstímans. Samn-
ingurinn þýðir að launakostnaður sveitarfélag-
anna vegna reksturs leikskóla hækkar um 140-
150 milljónir króna á árinu 1998.
Þetta er með lengstu samningafundum sem
Þórir Einarsson sáttasemjari hefur stýrt. Hann
sagði afar mikilvægt að tekist hefði að koma í
veg fyrir verkfall í leikskólum. Deilan hefði orðið
^ , enn erfiðari ef til verkfalls hefði komið, ekki síst
vegna þess að þá hefði hún getað farið að tengj-
ast kjaradeilu grunnskólakennara með beinum
hætti.
Lögð fram innanhússtillaga
Við lá að upp úr viðræðum slitnaði í fyrrinótt,
en sáttasemjari hjó á hnútinn með innanhúss-
tillögu sem samningsaðilar samþykktu. Undir
^Uokin var meginágreiningsefnið lengd samnings-
tímans. Launanefnd sveitarfélaganna vildi að
Morgunblaðið/Golli
SAMNINGURINN var undirritaður hjá Þóri
Einarssyni rfldssáttasemjara, eftir 42
klukkutíma langan samningafund, af Björgu
Bjarna dóttur og Karli Björnssyni.
samningurinn næði fram á árið 2001, en niður-
staðan varð út árið 2000.
Meðaltalshækkun í samningnum er 7% 1. sept-
ember í ár, 4% í janúar 1998,3,65% í janúar 1999,
4% í janúar 2000 og 2% í desember sama ár. Á ár-
inu 1999 verða gerðar breytingar á röðun sem
fela í sér eins launaflokks hækkun stjórnarstarfa
við leikskóla.
Að mati launanefndar sveitarfélaganna felur
samningurinn í sér 24-26% launahækkun á samn-
ingstímanum. Samninganefnd leikskólakennara
metur hækkunina í samningnum 26-27%. Byrjun-
arlaun leikskólakennara hækka úr 81.613 kr. á
mánuði í 89.247 kr. við upphaf samningstímans. í
lok samningstímans verða byrjunarlaunin
102.054 kr. á mánuði.
Formenn samninganefndanna lýstu ánægju
með að tekist hefði að koma í veg fyrir verkfall.
Björg Bjarnadóttir, formaður Félags íslenskra
leikskólakennara, sagði að samningurinn fæli í
sér verulegan ávinning fyrir leikskólakennara,
bæði hvað varðar hækkun byrjunarlauna og
launaflokkaröðun. Karl Björnsson, formaður
launanefndar sveitarfélaganna, sagði að það væri
mikilvægt að samningar hefðu tekist án verkfalls
og starfsfriður væri tryggður í leikskólunum
næstu þrjú ár.
I Útgjöld á næsta ári/4
Hátíð eyríkja
Island
kynnt í S-
Kóreu 1998
SÉRSTÖK Heimsmenningarhátíð
eyríkja, World Festival for Islands
Cultures, er fyrirhuguð í Suður-
Kóreu í júlí og ágúst á næsta ári og
hefur íslendingum verið boðið að
kynna þar land og þjóð, menningu
og ferðaþjónustu fyrir Asíubúum.
Boðið er rausnarlegt, að mati
Magnúsar Oddssonar fram-
kvæmdastjóra Ferðamálaráðs, því
það felur í sér fargjöld og gistingu
fyrir 35 manns úr íslenskri ferða-
þjónustu, aðstöðu til sýninga og
uppákoma vegna kynninga.
Reiknað er með að fulltrúar frá
24 eyjum verði með í sýningunni og
að kringum milljón manna sæki
hana.
■ Ferðalög/Cl