Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 60
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ahugi
Japana
á norður-
ljósunum
BÚIST er við að allt að 2.000 jap-
anskir ferðamenn komi hingað til
lands í vetur á vegum Flugleiða til
að skoða norðurljósin og fara í
stuttar skoðunarferðir út frá
Reykjavík.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
aðstoðarmanns forstjóra Flug-
leiða, komu 500 ferðamenn frá
Japan í fyrra hingað til lands í því
skyni að skoða norðurljósin og
telja stai-fsmenn í ferðaþjónustu í
Japan að í vetur verði hægt að fá
hingað 2.000 ferðamenn í þessu
skyni. Um er að ræða 3-4 daga
ferðir hingað með viðkomu í Kaup-
mannahöfn. Hópur ferðaskrif-
stofufólks frá Japan er væntanleg-
ur hingað til lands á næstunni til
að undirbúa ferðirnar en fyrstu
ferðamannahóparnir koma seinni-
partinn í nóvember.
Meðal þess, sem japönsku ferða-
mönnunum verður boðið upp á hér
á landi, er dorgveiði í Reynisvatni
og útreiðar þar um slóðir á vegum
Laxalóns. Gert verður að afla
þeirra á meðan á útreiðatúrnum
stendur og setjast þeir að snæðingi
að honum loknum.
--------------
Flutti vopn
milli staða
LÖGREGLAN var kvödd að húsi á
Norðurstíg í gærkvöldi eftir að
vegfarandi hafði tilkynnt um að
þar hefði sést til manns með skot-
vopn.
Lögreglu gekk greiðlega að hafa
upp á manninum. Við nánari eftir-
gi'ennslan reyndist þarna vera
byssusmiður á ferð. Hafði hann
verið að flytja vopnin á milli staða.
Stafaði engum ógn af flutningum
hans.
Samanburður á íslandi og hinum Norðurlöndunum
Ævilíkur aldraðra
hafa aukist minna hér
Kornið
skorið
Laxamýrí. Morgunblaðið.
’jvORN var skorið á Hjarðarbóli í
Aðaldal fyrir helgi og fengust sjö
tonn af korni á rúmlega tveimur
hekturum lands. Kornrækt er
hafin á íjórum bæjum í Suður-
Þingeyjarsýslu og virðist árang-
urinn lofa góðu. Þetta er annað
árið í röð sem kornrækt er
stunduð með þessum hætti í hér-
aðinu og á myndinni meta
feðgarnir á Hjarðarbóli upp-
skeruna við kornsekkina, f.v.
Hálfdán Á. Björnsson, Benedikt
og Sigurður Hálfdánarsynir.
Veðrið leikur við bændur nyrðra
þessa dagana og í dag spáir Veð-
urstofan allt að 20 stiga hita á
*^íorðausturlandi.
ÆVILÍKUR aldraðra hafa aukist
minna hér á landi en í Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi á sama tíma.
Ævilíkur yngra og miðaldra fólks
hafa hins vegar aukist álíka mikið
hér á landi og í ofangreindum lönd-
um.
Jón Snædal, formaður Öldrunar-
ráðs Islands og yfirlæknir á öldr-
unarlækningadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, varpar fram þeirri
spurningu í grein í Morgunblaðinu
í dag, hvort verið geti að minni
aukning á ævilíkum aldraðra hér á
landi og á hinum Norðurlöndunum
þremur síðustu fimmtán ár geti
stafað af lakari kjörum aldraðra
hér á landi.
Jón sagði að ef árin 1981-85 ann-
ars vegar og árin 1994-95 hins veg-
ar væru borin saman kæmi fram
að ævilíkur þeirra sem væru átt-
ræðir og eldri hefðu aukist um
einn mánuð að meðaltali hér á
landi á þessu tímabili. I hinum
löndunum hefðu hins vegar ævilík-
ur þessa aldurshóps aukist um eitt
ár og rúmlega það. Hann sagði að
engin ein skýring væri á þessum
mun, en hins vegar væri vitað að
almennt efnahagsástand skipti
verulegu máli í þessum efnum.
I greininni kemur fram að aldr-
aðir hafi lakara mótstöðuafl ef eitt-
hvað bjáti á og hafi ekki sömu
möguleika til að bregðast við áföll-
um og þeir sem yngri eru. Góður
fjárhagur sé eitt sterkasta vopnið
til verndar heilsunni, þó vitanlega
komi margt annað til.
■ Fjárhagurinn/29
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
12 ára drengiir lést
eftir reiðhjólaslys
Verðum að herða áróður fyrir hjálma-
notkun, segir móðir drengsins
DRENGURINN,
sem varð fyrir bíl á
Bústaðavegi á
fimmtudag í síðustu
viku, lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur á
sunnudag. Drengur-
inn hét Valberg
Gunnarsson, til heim-
ilis að Básenda 10 í
Reykjavík. Hann var
tólf ára gamall, fædd-
ur 1. maí 1985. For-
eldrar Valbergs og
fimm systkini lifa
hann.
Verðum að grípa
í taumana
Valberg var ekki með hjálm
þegar slysið varð og hlaut m.a.
mikil höfuðmeiðsli. Móðir hans,
Heiðbjört Ingvarsdóttir, óskaði
eftir að koma á fram-
færi þeirri skoðun
sinni að herða yrði
mjög áróður fyrir
hjálmanotkun barna
á reiðhjólum.
„Hjálmarnir eru
nauðsyn. Það kom
skýrt í ljós í þessu
slysi sem drengurinn
minn varð fyrir og
fleiri dæmi eru nær-
tæk,“ sagði hún í
samtali við Morgun-
blaðið síðdegis í gær.
„Nú verður að grípa i
taumana, herða mjög
áróður og koma í veg fyrir að börn
ferðist um á hjólum nema hafa
hjálm. Mér finnst koma til greina
að taka hjól af bömum sem ekki
hlýða. Við getum ekki látið þetta
viðgangast lengur."
Valberg
Gunnarsson
Kozyrev á fundi með bæjarstjóranum á Akureyri
Hefur hug á sam-
starfi um húshitun
ANDREI Kozyrev, fyrrverandi ut-
anríkisráðherra Rússlands, lýsti
miklum áhuga á öllu því er varðar
upphitun húsa í viðræðum hans við
Jakob Bjömsson, bæjarstjóra á
Akureyri, í gærmorgun. Kozyrev
situr á rússneska þinginu fyrir
Múrmansk sem er vinabær Akur-
eyrar.
Jakob sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Kozyrev hefði verið
mjög áhugasamur um allt sem lýt-
ur að húsahitun, uppbyggingu
slíkra kerfa, orkuspamaði, ein-
angrun og nánast öllu sem lýtur að
upphitun húsa.
„Hann spurði mikið um þetta en
hann er stjórnarformaður fyrir-
tækis sem er að huga að þessum
málum sérstaklega fyrir Rússland í
heild sinni,“ sagði Jakob. „Mér
skilst að þessi mál séu ekki í nægi-
lega góðum farvegi að þeirra eigin
mati.“ Fyiirtækið, sem Kozyrev
gegnir stjórnarformennsku hjá,
heitir Rússlandshiti.
„Þetta fyrirtæki vinnur að því að
ýta undir orkusparnað og bæta
upphitunartækni í ýmsum hémð-
um Rússlands," sagði Kozyrev.
„Ég hef hug á að finna samstarfs-
aðilja sem geta veitt tæknilega
ráðgjöf og eru reiðubúnir að fjár-
festa í þessari tækni í Rússlandi."
Hann sagði að fyrirtækið starf-
aði þannig að unnið væri með
hverju héraði fyrir sig. Hópur sér-
fræðinga væri sendur á vettvang
til að gera heildarúttekt á stöðu
orkumála og hjálpa til við gerð áætl-
unar um aðgerðir. Þar væri bæði
horft til þess hvað þyrfti að gera í
náinni framtíð og til lengri tíma litið.
Kozyrev sagði að viðræður um
þessi mál væru á byijunarstigi en
hann gæti þó sagt að hann myndi í
dag ræða við ráðgjafarfyrirtækið
VSÓ.
Kozyrev kvaðst sjá færi á sam-
starfi við íslendinga á ýmsum öðr-
um sviðum, jafnt á opinberum
vettvangi sem í eflingu lítilla fyrir-
tækja. Einnig nefndi hann um-
hverfismál, sjávarútveg og skipa-
smíðar.
■ Engin lausn /31