Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.11.1997, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Samtök iðnaðarins vilja að stjórnvöld dragi úr þenslu Vara við aukinni samneyslu Morgunblaðið/Golli INGÓLFUR Bender, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, kynnir til- lögur samtakanna um aukið aðhald í ijármálum ríkis og sveitarfé- laga og eflingu þjóðhagslegs sparnaðar. SAMTOK iðnaðarins hafa áhyggjur af þenslu í þjóðfélaginu og vilja að stjórnvöld grípi til ákveðinna að- gerða til að draga úr henni. Leggja þau til að aukið aðhald verði sýnt í fjármálum ríkis og sveitarfélaga og að stjórnvöld hvetji til aukins sparnaðar einkaaðila. Samtökin vara við aukinni samneyslu og benda á að Islendingar séu með þriðju mestu samneyslu meðal OECD-ríkja, að frádregnum út- gjöldum til vamarmála. Á blaðamannafundi, sem Samtök iðnaðarins (SI) efndu til í gær, kom fram að framleiðslugeta hagkerfís- ins er nú nýtt að því marki er sam- ræmist stöðugleika. Innlendur kostnaður fyrirtækja vex örar en erlendur, sem endurspeglast í versnandi samkeppnisstöðu inn- lendra fyrirtækja. Stærsta hluta þessara hækkana hafa fyrirtækin tekið á sig með því að skerða hagn- að en öðru hafa þau velt út í verð- lagið. Talsmenn SI, Haraldur Sumar- liðason formaður, Sveinn Hannes- son framkvæmdastjóri og Ingólfur Bender hagfræðingur segja að hætta sé á að innlendir kostnaðar- þættir hækki umfram þau mörk, sem atvinnulífið þoli, ef ekki verði sýnd aðgát. Raungengi muni þannig hækka umfram það sem fáist staðist til lengdar og verði sú raunin standi valið á milli tveggja kosta, sem báð- ir séu slæmir; gengisfellingar eða aukins atvinnuleysis. Samtökin vilja hvorugt sjá og óska nú eftir því við stjórnvöld að þau grípi til aðgerða til að bægja hættunm fra. „Við höf- um spennt bogann of hátt. Kostnað- ur atvinnulífsins hefur aukist og samkeppnisstaðan er að versna. Við viljum ekki gengisfellingu heldur vinna okkur út úr vandanum og standa við kjarasamninga án þess að atvinnuleysi aukist. Til þess þurfa stjórnvöld að vinna með okk- ur en ekki á móti,“ segja forráða- menn samtakanna. I áliti, sem Samtökin sendu frá sér í gær, er lagt til að aðhald verði aukið hjá hinu opinbera. Ríki og sveitarfélög geri sig nú sek um að auka þenslu fremur en að draga úr henni og sé það í fullu ósamræmi yið stöðu hagkerfisins í hagsveifl- unni. Einungis Danir og Svíar með meiri samneyslu Vísað er til aðhaldsaðgerða Seðla- bankans á síðastliðnum misserum og segja Samtökin að þær séu til marks um verulega þensluhættu í hagkerfínu. „Eins og kunnugt er eru vextir mun hærri hér en í við- skiptalöndunum. Aðgerðir bankans auka enn á þennan mun og koma því til viðbótar fram í hækkandi nafngengi krónunnar. Bæði aukinn vaxtamunur og hækkandi gengi kemur niður á samkeppnisstöðu innlendra fyrirtækja. Samtök iðnað- arins telja að aðgerðir Seðlabank- ans hefðu verið óþarfar ef ríki og sveitarfélög hefðu beitt sér nægjan- lega til að auka þjóðhagslegan sparnað," segir í álitinu. Ingólfur Bender, hagfræðingur SI, bendir á að samneysla, sem hlutfall af landsframleiðslu, sé meiri á Islandi en víðast hvar annars stað- ar eða 21%, samanborið við 16% meðaltal í OECD-löndunum. „Ef út- gjöld til varnarmála eru undanskilin er samneyslan hérlendis sú þriðja mesta á meðal OECD-iíkjanna. Að- eins Svíar og Danir eru með meiri samneyslu en eins og kunnugt er reyna þeir nú að draga úr sam- neyslunni. Þróunin er önnur hér- lendis en því er spáð að samneysla muni aukast um 2,2% á þessu ári en 3% árið 1998.“ Samtökin telja einnig að við þess- ar aðstæður eigi stjómvöld að hvetja einkaaðila til aukins sparnað- ar. Hlutabréfaafsláttur æskilegur Það geti þau gert með skattalegu hagræði og að bjóða einstaklingum að velja á milli sparnaðarforma, t.d. vegna hlutabréfakaupa, viðbótar líf- eyrissparnaðar og/eða sparnaðar á húsnæðissparnaðarreikningum. Aukinn sparnaður einstaklinga muni draga úr innlendri eftirspurn og verðhækkun á innlendum kostn- aðarliðum. I þessu ljósi átelja Sam- tök iðnaðarins stjómvöld fyrir það að afnema skattafslátt vegna hluta- bréfkaupa. Hluta- bréfa- vísitala VÞÍ lækkar um 0,5% HLUTABRÉF héldu áfram að lækka í viðskiptum á Verðbréfa- þingi Islands í gær. Viðskipti námu alls 60 milljónum króna og lækkaði hlutabréfavísitalan um 0,5%. Hlutabréf í ÍS lækka um 8,9% Mestar lækkanir urðu á gengi hlutabréfa í Islenskum sjávaraf- urðum í fyrstu viðsldptum með bréfín eftir að þau hlutu skráningu á VÞI. Lækkaði gengi þeirra um 8,9% í 2,55 og kemur sú lækkun til viðbótar rúmlega 8% lækkun bréf- anna á miðvikudag. Eins og fram kom í viðskiptablaði Morgunblaðs- ins í gær varð 97 milljóna króna tap af rekstri IS-samstæðunnar á fyrstu 9 mánuðum þessa árs. Skeljungsbréf lækkuðu um tæp 6% Þá lækkaði gengi hlutabréfa í Skeljungi um tæp 6%, eða 30 punkta og stóð í 5,0 við lokun. Fé- lagið hefur gripið til uppsagna til að draga úr kostnaði. Hækkanir voru hins vegar fátíð- ar í gær en hlutabréf í Nýherja hækkuðu þó um 3% eða 10 punkta í 3,4 og hlutabréf í Lyfjaverslun Is- lands hækkuðu um rúmlega 1%, í 2,25. 1,4 milljarða halli á vöru- skiptum í október Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segír aukins aðhalds þörf í íslensku efnahagslífí Auka þarf afgang rík- issjóðs um 5 milljarða VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR var ís- lendingum óhagstæður um 1,4 millj- arða króna í október sl. Alls voru fluttar út vörur fyrir 11,2 milljarða króna en innflutningur á sama tíma- bili nam tæplega 12,7 milljörðum. Fyrstu 10 mánuði þessa árs hefur því orðið 500 milljóna króna halli af vöruskiptunum við útlönd. Ef hins vegar er undanskilinn inn- og út- flutningur vegna stóriðju sem og skipa og flugvéla er vöruskiptajöfn- uðurinn neikvæður um rúma 9 millj- arða króna. Þetta er umtalsvert lak- aiá niðurstaða en varð af vöruskipta- jöfnuði á sama tíma í fyrra, er hann var neikvæður um tæpa 3 milljarða. Útflutningur hefur raunar aukist um tæp 7% á milli ára en sú aukning stafar fyrst og fremst af sölu Flug- leiða á einni véla sinna úr landi í jan- úar sl. Þá hefur álútflutningur aukist um 20% á milli ára. Almennur inn- flutningur hefur á sama tíma aukist um tæp 10%, eða um 7 milljarða króna. ------------------ íbúar ESB óttast einn gjaldmiðil Brlissel. Reuters. ENDALOK gjaldmiðla er þriðja mesta áhyggjuefni rúmlega helm- ings íbúa Evrópubandalagsins, á eft- ir skattahækkunum og glæpum, samkvæmt skoðanakönnun. Þá sýnir könnun ESB að 75% íbúa sambandsins „búist við“ að komið verði á einum, sameiginlegum gjald- miðli, evró — 8% fleiri en fyrir ári. Samkvæmt könnuninni hefur stuðningur við fyrirhugaðan sameig- inlegan gjaldmiðil hrapað niður fyrir 50% í 47% í fyrsta skipti. Fulltrúi ESB sagði hins vegar að stuðningur við sameiginlegan gjaldmiðil hefði „stóraukizt“ síðan könnun var gerð í marz-apríl. AUKINS aðhalds er þörf í peninga- stefnu Seðlabanka íslands og fjár- málum hins opinbera til að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífí, samkvæmt áliti sendinefndar AI- þjóðagjaldeyrissjóðsins sem átti viðræður við fulltrúa íslenskra stjórnvalda fyrr í þessum mánuði. Leggur nefndin til að markmið um afgang af ríkissjóði verði hækk- að um a.m.k. það sem nemi 1% af landsframleiðslu eða rösklega 5 milljarða króna. Fjárlagafrumvarp ríkisstjómarinnar gerir ráð fyrir u.þ.b. 500 milljóna króna afgangi á næsta ári, eða sem samsvarar rösk- lega 3 milljarða afgangi samkvæmt eldri uppgjörsaðferð. í áliti sínu segir sendinefndin að París. Reuters. FRANSKI fjármálaráðherrann, Dominique Strauss-Kahn, hefur sagt að hann telji að japanski bíla- framleiðandinn Toyota Motor Corp muni ákveða að reisa aðra bílaverk- smiðju sína í Evrópu í Frakklandi, en tekið fram að ekki hafa verið tek- in endanleg ákvörðun. Að sögn japanska blaðsins Nihon Keizai Shimbun hefur Toyota valið bæinn Valenciennes í Norður- Frakklandi, en Toyota hefur staðfest að ákvörðun hafí ekki verið tekin. Toyota á fyrir verksmiðju í Bret- mjög góður árangur hafi náðst í ís- lensku efnahagslífi á undanförnum árum. Hagvöxtur hafi verið undan- farin fímm ár og verðbólga hafí haldist lítil. Hins vegar sé ekki leng- ur fyrir hendi sá slaki í efnahagslíf- inu sem haldið hafi aftur af verð- bólgu í uppgangi undanfarinna ára og margvísleg teikn séu á lofti um of- þenslu. Því sé mikilvægt að auka að- hald í peningamálum og hækka vexti tímanlega til að auka trúverðugleika peningastefnunnar. Sem kunnugt er hækkaði Seðlabanki íslands vexti sína um 0,3% í síðustu viku. Ríkisfjármál kunna að valda þenslu Sendinefndin telur hins vegar að landi og hyggst auka framleiðslu hennar í 200.000 bíla fyrir árslok 1998. Að sögn japönsku Nikkei fréttastofunnar verður Valencienn- es fyrir valinu af því að bærinn er nálægt Ermarsundsgöngunum og Evrópu-höfuðstöðvum Toyota í Briissel. Vélamar munu koma frá verksmiðju Toyota í Bretlandi, en aðrir helztu partar frá verksmiðju, sem í ráði er að reisa í Póllandi. Ákvörðun fyrir áramót Toyota hefur sagt að fyrirhugað ríkisfjármálin ættu að bera megin- þunga þeirra aðhaldsaðgerða sem þörf sé á. Núverandi vöxtur í hag- kerfinu gefí einnig færi á að skapa ákveðið svigrúm til aðgerða þegar harðna fer í ári á ný svo ekki þurfi að. koma til jafn mikils samdráttar og á fyrstu árum þessa áratugar. Til þess þurfi hins vegar metnaðarfyllri markmið. „Væntanlegur afgangur á rekstri ríkissjóðs er áfangi sem ber að fagna en hann endurspeglar einkum óvenjulega mikinn hagvöxt undan- farin tvö ár í kjölfar verulegra að- haldsaðgerða í fyrri helmingi ára- tugarins. Þjóðhagsleg áhrif fjár- lagafrumvarpsins fyrir 1998 munu í besta falli verða hlutlaus þar sem sé að skýra frá því fyrir áramót hvar í Evrópu hin nýja verksmiðja fyrirtækisins muni rísa. Sérfræðingar segja að Frakkland yrði hyggilegt val af því að Japanar vilja auka hlutdeild sína á frönskum markaði, öðrum stærsta markaði í Evrópu á eftir Þýzkalandi. Mark- aðshlutdeild Toyota í Frakklandi var 0,8% 1996. Þótt líklegast sé talið að verk- smiðjan verði reist í Frakklandi hafa Þýzkalands og Spánn einnig komið til greina. ekkert er dregið úr örvunaráhrifum ríkisfjármála. Afkomubati ríkissjóðs er lítill og á eingöngu rætur að rekja til óvenju mikils hagvaxtar. Reyndar yrðu fjármál hins opinbera þensluskap- andi ef umframútgjöld síðustu ára endurtækju sig, ef halli sveitarfé- laga yrði meiri en vænst er vegna útgjaldaaukningar, m.a. í tengslum við nýjar skyldur þeirra í mennta- málum, eða ef vöxtur innlendrar eftirspurnar reyndist meiri en spáð er opinberlega. Ekkert af þessu er ólíklegt," segir í áliti nefndarinnar. Af þessum sökum leggur nefndin til að stefnt verði að u.þ.b. 5 millj- arða króna meiri afgangi af rekstri ríkissjóðs á fjárlögum. Grundig- fyrir- tækinu bjargað MUnchen. Reuters. BÆVERSK fyrirtækjasam- tök, sem njóta stuðnings ríkis- og fylldsyfírvalda, munu bráð- lega kaupa 95% hlut í þýzka rafeindatækjaframleiðandan- um Grundig. Otto Wiesheu, fjármálaráð- herra Bæjaralands, sagði á blaðamannafundi að Grundig mundi fá 267 milljónir marka frá samtökunum. v Toyota-verksmiðja reist í Frakklandi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.