Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 1
112 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
74. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Skopast að stjórnmálamönnum
HÓPUR skopleikara flytur háðsádeiluverk inni í gær og spunatækni hans og búningar 19. öld. Með þessari háðsádeilu vildu leikar-
á götusviði í miðborg Mexíkóborgar. Sýn- eiga rætur að rekja til háðsádeiluverka á amir sýna að stjórnmálin í Mexíkó hefðu
ing hópsins var liður í götuhátíð í miðborg- valdatíma Porfirios Díaz, einræðisherra á lítið breyst siðan þá.
Skilaboða guðs
beðið við sjón-
varpsskjáinn
150 FÉLAGAR í sértrúarsöfnuði í
Dallas í Texas komu saman í húsi spá-
manns síns á dögunum, kveiktu á sjón-
varpstækjum og biðu eftir því að guð
sendi út skilaboð um að Kristur kæmi
aftur til jarðar næstkomandi þriðjudag
eins og spámaðurinn hafði boðað. Ekk-
ert varð þó af útsendingu almættisins.
Söfnuðurinn heitir Hjálpræðiskirkja
guðs og í honum eru einkum Texasbúar
af tævönskum ættum sem ganga allir
með hvíta kúrekahatta. Spámaðurinn,
Chen Hong-ming, hafði boðað að guð
myndi birtast á einni sjónvarpsrásinni á
miðnætti til að tilkynna endurkomu
Krists.
„Þar sem guð hefur ekki birst á
skjánum getið þið litið á spádóm minn
sem vitleysu," sagði spámaðurinn við
söfnuðinn. „Ég legg til að þið trúið ekki
því sem ég segi hér eftir.“
Fylgismenn spámannsins sögðust þó
enn trúa boðskap hans. Chen Hong-
ming hefur spáð miklum hörmungum
vegna synda mannkynsins, m.a. efna-
hagskreppu og flóðum i Asíu á næsta
ári og að Iokum kjarnorkustríði sem
geri jörðina óbyggilega. Guð muni þó
miskunna þeim, sem iðrist synda sinna,
og flytja þá með geimfari í ríki sitt á
fjarlægri plánetu.
Lögreglan var með mikinn viðbúnað
við húsið þar sem óttast var að fylgis-
menn spámannsins myndu grípa til ör-
þrifaráða og svipta sig lífi eins og 39 fé-
lagar annars sértrúarsafnaðar í Banda-
ríkjunum gerðu í fyrra.
Dylan og Keats
í sama flokki?
CHRIS Smith, menningarmálaráðherra
Bretlands, segir í viðtali við vikuritið
Spectator að bandaríski tónlistarmaður-
inn Bob Dylan sé jafnoki breska 19. ald-
ar ljóðskáldsins Johns Keats.
Ekki er víst að breskum menningar-
vitum líki samanburðurínu, enda er
John Keats jafnan talinn meðal fremstu
rómantísku skáldanna á Bretlandi. Um-
mæli Smiths vekja ekki síst eftirtekt
vegna þess að doktorsritgerð hans frá
Cambridge-háskóla fjallaði einmitt um
rómantfsku skáldin bresku og hann ætti
því að þekkja verk þeirra vel.
Sljóm Verkamannaflokksins hefur
sætt nokkurri gagnrýni fyrir að baða
sig í sviðsljósi popptónlistarmanna.
Smith segir hins vegar í viðtalinu að
menn verði að gera sér grein fyrir mik-
ilvægi dægurmenningar á breskan efna-
hag og það sé markleysa að gera grein-
armun á henni og „æðri“ listum.
Tsjemomyrdín í
forsetafiÁmboð
Moskvu. Reuters.
VIKTOR Tsjernomyrdín, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Rússlands, tilkynnti í sjónvarps-
viðtali í gær að hann hefði ákveðið að gefa
kost á sér í forsetakosningunum árið 2000.
Tsjemomyrdín skýrði frá þessu í viðtali,
sem sýna átti í fréttaskýringaþætti rússneska
ríkissjónvarpsins ORT síðdegis í gær. Fyrr
um daginn sýndi sjónvarpið brot úr viðtalinu
þar sem forsætisráðherrann fyrrverandi lýsti
því yfir að hann hefði ákveðið að sækjast eftir
forsetaembættinu.
Borís Jeltsín forseti vék Tsjernomyrdín frá
á mánudag og hann hafði þá verið forsætis-
ráðherra í rúm fímm ár. Vitað var að
Tsjernomyrdín hefði hug á að sækjast eftir
forsetaembættinu en hann hafði alltaf neitað
að svara því hvort hann ætlaði í framboð þar
til í gær.
Styður Jeltsín Tsjernomyrdín?
Þegar Jeltsín ákvað að víkja Tsjernomyrd-
ín og allri stjórn hans frá kvaðst hann hafa
falið forsætisráðherranum fyrrverandi að
undirbúa þingkosningarnar á næsta ári og
forsetakosningarnar ári síðar. Forsetinn
sagði þó ekkert um hvort hann hygðist styðja
forsetaframboð hans.
Nokkrir fréttaskýrendur töldu að sú
ákvörðun Jeltsíns að biðja Tsjernomyrdín að
undirbúa kosningamar benti til þess að for-
sætisráðherrann fyrrverandi nyti enn stuðn-
ings forsetans.
Aðrir fréttaskýrendur sögðu hins vegar að
brottreksturinn benti til þess að
Tsjemomyrdín væri ekki lengur í náðinni hjá
forsetanum, sem hefði komist að þeirri niður-
stöðu að litlar sem engar líkur væra á að hann
færi með sigur af hólmi í kosningunum. Þeir
töldu að Tsjernomyrdín hefði goldið þess að
hafa orðið of valdamíkill á síðustu mánuðum
vegna veikinda forsetans.
Margir töldu að með því að svipta Tsjerao-
myrdín embættinu hefði hann dregið mjög úr
líkunum á því að forsætisráðherrann fyrrver-
andi yrði kjörinn næsti forseti. Tsjemomyrd-
ín þykir skorta persónutöfra og hæfíleika til
að fá almenning á sitt band. Fylgi hans er
mjög lítið, ef marka má skoðanakannanir.
Norður-írland
Nýtt morð
fordæmt
Belfast. Reuters.
STJÓRNMÁLAMENN, sem taka þátt í frið-
arviðræðunum á Norður-írlandi, fordæmdu í
gær morð á fyrrverandi lögreglumanni sem
framið var seint á föstudagskvöld. Talið er að
herská hreyfmg kaþólskra lýðveldissinna hafi
staðið fyrir morðinu til að grafa undan friðar-
viðræðunum.
Cyril Stewart, 52 ára fyrrverandi lögreglu-
maður, var skotinn til bana við stórmarkað í
borginni Armagh, um 50 km frá Belfast.
Sjónarvottar sögðu að tveir grímuklæddir
menn hefðu setið fyrir honum.
Stewart er 17. maðurinn sem hefur verið
myrtur á Norður-írlandi frá því í desember.
Herskáum hreyfingum, sem era andvígar
friðarviðræðunum, hefur verið kennt um
morðin og talið er að markmið þeirra sé að
reka fleyg á milli flokkanna sem taka þátt í
viðræðunum.
Engin hreyfinganna lýsti morðinu á hend-
ur sér en lögreglan telur að tilræðismennim-
ir séu félagar í hreyfingu lýðveldissinna, sem
hefur staðið fyrir nokkram sprengjuárásum í
Armagh-sýslu síðustu vikur.
KAPPHLAUP
VID SÝKLA
FRÁ
SKÍÐASKÁLANUM
í REYKHOLT
ÁTTA SKÓSMIÐIR
í ÆTTINNI