Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 6
6 SUNKUDAGUK 29. MAKZ l!)í)8 GIC!/riíjOT/ MGRGUNBLAÐIÐ Viðskipta- bannið - bjarghring- ur Castros Viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu var sett fyrir 35 árum, meðal annars vegna uppsetningar sovéskra kjarnaflauga í land- inu, en í stað þess að grafa undan stjórn Castros og kommúnista virðist það vera það eina, sem heldur henni á floti. Þótt bannið njóti enn mikils stuðnings í Banda- ríkjunum gera æ fleiri sér ljóst, að það er tímaskekkja, sem verður æ vandræðalegri með hverju ári, sem líður. BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í síðustu viku, að nokkuð yrði slakað á viðskipta- banninu gegn Kúbu. Eru tilslakan- irnar þær helstar, að flugferðir milli Kúbu og Bandaríkjanna verða auð- veldaðar, fólk af kúbverskum ætt- um má senda ákveðna peningaupp- hæð til ættingja sinna á Kúbu árs- fjórðungslega og sala á lyfjum og læknisbúnaði verður greiðari en áð- ur. Með þessu er Clinton meðal annars að verða við áskorun Jó- hannesar Páls páfa II í Kúbuheim- sókn hans fyrir skömmu. Eftir sem áður stendur viðskiptabannið að mestu óbreytt þótt það verði aug- ljósara með hverju árinu, sem líður, að það hefur haft þveröfug áhrif við það, sem að var stefnt. í stað þess að grafa undan völdum Fidels Ca- stros Kúbuforseta hefur það orðið til að styrkja stöðu hans. Viðskipta- bannið hefur orðið að einni allsherj- arafsökun kommúnista fyrir öllu, sem aflaga hefur farið í stjórnartíð þeirra. Fyrstu viðbrögð Castros við ákvörðun Clintons voru jákvæð. Kvaðst hann að vísu eiga eftir að kynna sér hana betur en taldi þó, að hún gæti orðið til að bæta samskipti ríkjanna. Það voru helst sumir þing- menn repúblikana, sem mótmæltu „þessari eftirgjöf við einræðisstjórn Castros", og nokkrir talsmenn kúbverska samfélagsins á Miami sökuðu Clinton um að svíkja minn- ingu flugmannanna, sem fórust þeg- ar kúbversk orrustuþota skaut nið- ur tvær bandarískar einkaflugvélar innan kúbverskrar lofthelgi í febrú- ar 1996. Ný viðhorf á Miami Margir aðrir Kúbverjar á Miami hafa hins vegar fagnað tilslökunun- um, sem þeir segja, að hafí verið orðnar löngu tímabærar. Svo er líka með ýmsa frammámenn í banda- rísku atvinnulífi, sem hafa beitt sér fyrir afnámi viðskiptabannsins. Það er því líklegt, að Bandaríkjaþing muni samþykkja tilslakanirnar til- tölulega hljóðalítið. Stuðningur páfa skiptir máli í því sambandi og auk þess er á það bent, að þær muni mælast vel fyrir í Evrópusamband- inu og meðal Mið- og Suður-Amer- íkuríkja. Viðskiptabannið á Kúbu hefur staðið í 35 ár og tekur til allra efna- hagslegra samskipta, innflutnings, útflutnings, gjafa, ferðalaga og starfsemi hjálparstofnana. Var það hugsað sem svar við „fjandsamleg- um aðgerðum Kúbustjórnar“, til dæmis uppsetningu sovéskra kjamaflauga 1962 og við stuðningi hennar við kommúníska byltingu um alla Rómönsku Ameríku. Síðan hefur verið hert á viðskiptabanninu nokkrum sinnum og síðast 1996 með Helms-Burton-lögunum. í yfírlýsingu bandaríska fjár- Samhjálparblaðið erkomiðúl Má bjóða þér áskrift? Áskriftarsímar 561 1000 561 0477 Reuters. IBUAR borgarinnar Santa Clara á Kúbu fagna komu páfa í janúar- mánuði. Páfaheimsóknin er talin hafa haft mikil áhrif á bætt sam- skipti Kúbu og Bandaríkjanna. ERLENT málaráðuneytisins á sínum tíma sagði, að megintilgangur viðskipta- bannsins væri að einangra Kúbu efnahagslega og koma í veg fyrir aðstreymi bandarískra dollara. Þótt þess væri ekki getið, vonuðust bandarísk stjómvöld að sjálfsögðu til, að bannið myndi veikja stjórn Castros og kommúnista og flýta fyrir falli hennar. Ahrifin voru alveg þveröfug. Sovéskt leppríki Viðskiptabannið átti sinn þátt í að gera Kúbu að algeru leppríld Sovét- ríkjanna, sem héldu kúbversku efna- hagslífi á floti með gífurlegum fjár- framlögum. Vora þau allt að 440 milljörðum ísL kr. árlega, allt þar til kommúnisminn í Austur-Evrópu féll. Eftir 1991 hefur viðskiptabannið komið með fullum þunga niður á Kúbverjum enda urðu þeir þá að fara að standa á eigin fótum og treysta á heimsmarkaðinn í stað vöruskiptaverslunarinnar við kommúnistaríkin áður. Fyrir bylt- inguna 1959 voru Bandaríkin langstærsti markaðurinn fyrir kúbverskar framleiðsluvörar og þá var Kúba annað auðugasta ríkið í Rómönsku Ameríku. Nú verður að fara langan veg, oft þúsundir km, til að finna kaupanda að vöra, sem fyr- ir byltinguna var seld hinum megin við sundið. Bannið hefur að sjálfsögðu líka haft þau áhrif, að bandarísk fyrir- tæki mega ekkert selja til Kúbu, hvorki áburð, landbúnaðartæki, varahluti né nokkuð annað og bandarískum ferðamönnum er bannað að leggja þangað leið sína. Vegna bannsins fá Kúbverjar held- ur enga fyrirgreiðslu í alþjóðlegum fj ármálastofnunum. Dollarar frá Bandarfkjunum Á síðustu áram hafa þó æ fleiri Bandaríkjamenn farið til Kúbu þrátt fyrir ferðabannið og fara þá gjarnan um Kanada eða Mexikó. Það hefur líka mistekist að koma í veg fyrir dollarastreymi til landsins og þá er ekki átt við utanríkisversl- unina, heldur dollara beint frá Bandaríkjunum. Þótt ráðamenn á Kúbu kenni Bandaríkjamönnum um allt, sem miður fer, þá er sannleik- urinn líklega sá, að Bandaríkja- menn af kúbverskum ættum haldi efnahagslífinu á floti. Fyrr í þessum mánuði áætlaði efnahagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna fyrir Ró- mönsku Ameríku, að á árinu 1996 hefðu þeir sent til Kúbu næstum 60 milljarða ísl. kr. Það er meira en nemur öllum launagreiðslum í land- inu árlega. Eftir sem áður er Ijóst, að við- skiptabannið hefur valdið stórskaða á Kúbu og þegar við bætist komm- úniskur ríkisbúskapur, sem er í kaldakoli, þá er ekki engin furða þótt ástandið sé slæmt. í nýlegri skoðanakönnun í Bandaríkjunum kemur fram, að við- skiptabannið á Kúbu hefur enn góð- an meirihluta meðal kjósenda en það kom líka fram, að álíka margir sögðust lítið sem ekkert vita um Kúbumálin. Æ fleiri frammámenn í bandarískum stjórnmálum og í at- vinnulífinu gera sér hins vegar grein fyrir því, að viðskiptabannið á Kúbu er orðið að tímaskekkju, sem verður vandræðalegri með hverju árinu, sem líður. Bandaríkjunum stafar ekki leng- ur nein hætta frá Kúbu og staðan er nú sú, að megintilgangi viðskipta- bannsins, að steypa stjórn kommún- ista, verður líklega best náð með því að taka upp eðlileg samskipti við landið. Gömlu röksemdimar hafa með öðrum orðum snúist upp í and- hverfu sína og nú er banninu við- haldið aðallega vegna pólitískra að- stæðna í Bandaríkjunum sjálfum. Vega þar þungt áhrif kúbverska samfélagsins á Miami. Víetnam og Kúba I þessu sambandi nefna margir, að 1994, tveimur áratugum eftir lok Víetnamstríðsins, sem, kostaði tugi þúsunda Bandaríkjamanna lífið, hafi Bandaríkjastjórn fallið frá banni við viðskiptum við kommún- istastjómina í Víetnam og tekið upp fullt stjómmálasamband ári síðar. Víetnam er hins vegar ekki rétt undan ströndum Bandaríkjanna og þar er ekkert víetnamskt samfélag á borð við Kúbverjana á Miami. Ví- etnamar skutu heldur ekki niður bandarískar flugvélar á sama tíma og búist var við batnandi samskipt- um ríkjanna Á Kúbu telja raunar margir, að Castro hafi ákveðið, að flugvélarnar tvær skyldu skotnar niður vegna þess, að hann óttaðist, að Clinton, fyrsti forseti Bandaríkjanna að kalda stríðinu loknu, hygðist taka upp nýja stefnu gagnvart Kúbu. „Sovétríkin eru hrunin, markaðir okkar í Austur-Evrópu eru horfnir og það eina, sem heldur uppi þess- ari stjórn, er stefna Bandaríkj- anna,“ sagði Oswaldo Payá Sar- dinas, leiðtogi kristilegra samtaka á Kúbu, sem berjast fyrir hægfara umskiptum í efnahags- og stjórn- málum landsins. • Heimildir: Reuters, Washington Post, New York Times, The Christi- an Science Monitor Norðmenn draga úr olíuframleiðslimni V erkamannaflokkurinn styður 3% samdratt Ósló. Reuters. NORSKI Verkamannaflokkurinn féllst á föstudag á að styðja tillögu ríkisstjórnarinnar um að draga úr olíuframleiðslu um 3%, til að koma í veg fyrir verðfall á olíu. Daginn áður beið stjórnin mikinn ósigur er utanríkismálanefnd þings- ins hafnaði því að taka málið fyrir. Stuðningur Verkamannaflokksins nægir stjórninni til að fá málið í gegn á þingi. Kjell Magne Bondevik forsætis- ráðherra kvaðst myndu eiga við- ræður við aðra flokka áður en ákveðið yrði hversu mikill niður- skurðurinn yrði en bjóst við að ákvörðun myndi liggja fyrir þegar eftir helgi. Að sögn Bondeviks gerir stjómin ráð fyrir að sá samdráttur í framleiðslunni, sem verður ákveð- inn nú, muni gilda út árið. Thorbjorn Jagland, leiðtogi Verkamannaflokksins, lýsti því yfir í gær að flokkurinn myndi styðja 3% samdrátt í olíuframleiðslu en ekki meira en Opec-ríkin gerðu kröfu um. Er stuðningur flokksins háður því að önnur olíuframleiðslu- ríki dragi jafnmikið úr framleiðsl- unni og þau hafa lofað. Upphaflega hljóðuðu hugmyndir ríkisstjórnar- innar upp á 5% minni olíufram- leiðslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.