Morgunblaðið - 29.03.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 11
á meginlandi Evrópu þar sem
fæðubótarefnið Avoparsin var not-
að í landbúnaði. Avoparsin er ná-
skylt sýklalyfinu vancomysini, sem
lengi vel var eina lyfið sem verkaði
á sýklana, en þar sem sýklarnir og
fæðubótarefnið voru saman í göm
dýranna fengu þeir tækifæri til að
mynda ónæmið. Onæmu sýklamir
bárast síðan úr dýranum yfir í
menn.
„Við höfum mestar áhyggjur af
að genið sem veldur vancomysin-
ónæmi berist frá enterokokkunum
yfir í staphylokokka,“ segir Karl.
„Meðal staphylokokka era til svo-
kallaðir mósar; nafn þeirra er
myndað úr samsetningunni met-
hicillin ónæmir staphylococcus
aureus. Lengi vel var methieillin
eina lyfið sem virkaði á stap-
hylokokkana. Síðan fóra að koma
upp á sjúkrahúsum stofnar, mósar,
sem vora ónæmir fyrir því einnig
og þar með fyrir öllum svonefndum
beta-laktam lyfjum en þau era
langstærsti og mikilvægasti sýkla-
lyfjaflokkurinn. Þar með var eitt
helsta vopnið horfið úr vopnabúr-
inu.
Mósar era algengastir á stærstu
sjúkrahúsunum þar sem flóknustu
aðgerðirnar era gerðar á veikustu
sjúklingunum en þangað sendum
við fólk t.d. til hjartaaðgerða. Þeir
hafa ekki náð bólfestu á íslenskum
sjúkrahúsum en við búum því við
stöðugan ótta um að þeir geri það.“
LyQakostnaður myndi
margfaldast
Og Karl heldur áfram: „Þess
vegna era allir sjúklingar sem
koma úr aðgerðum erlendis frá, að
Norðurlöndunum undanskildum,
settir í einangrun þar til búið er að
útiloka að þeir beri þessar bakterí-
ur. Ef mósasmit uppgötvast er
reynt að uppræta smitið með
ákveðnu lyfi sem oftast er virkt
gegn sýklunum. Það gengur ekki
alltaf og þá verður sjúklingurinn að
vera í einangran á meðan hann er á
sjúkrahúsinu.“
Minna máli skiptir þó að einstak-
lingur úti í bæ sé smitaður því þar
era minni líkur á að ónæmið breið-
ist út.
„Við beitum sömu aðferðum og
gert er annars staðar á Norður-
löndunum og Ástralir beittu. Nú er
þetta orðið að vandamáli í Astralíu
og það er spuming hve lengi við
getum varist mósunum.
Mósar valda ekki hættulegri
sýkingum en sýklalyfjanæmir stap-
hylokokkar. Astæðan fyrir því að
okkur er svona illa við að þeir
breiðist út er að þá era vancomysið
og skyld lyf einu lyfin sem við get-
um notað. Þau era margfalt dýrari
en þau lyf sem við notum annars.
Aætlaður kostnaður, ef þessir
stofnar ná fótfestu á einni sjúkra-
húsdeild, hleypur á milljónum.
Dagsskammturinn af vancomycini
fyrir einn sjúkhng kostar um 10
þúsund krónur á móti um 100
krónum ef hægt er að nota venju-
leg lyf. Þar að auki er vancomycin
einungis til sem stungulyf og það
getur haft eiturverkanir á nýrun ef
það er gefið í of stóram skömmt-
um. Ef mósar ná fótfestu á deild
verður eftirleiðis að gefa
vancomysin sem fyrsta lyf í hvert
einasta skipti sem alvarleg sýking
kemur upp, þar til neikvæðar
ræktunarniðurstöður hafa borist,"
segir Karl og bætir við að einangr-
unaraðstaða á sjúkrahúsum á Is-
landi sé ófullnægjandi bæði vegna
plássleysis og manneklu.
„Því miður hefur þessi algengi
sýkingarvaldur myndað ónæmi
fyrir öllum sýklalyfjaflokkum á
ákveðnum sjúkrahúsum í Japan,“
segir Karl. „Japanar era þekktir
fyrir að nota mest allra þjóða af
sýklalyfjum og þessir stofnar era
mun algengari en menn granaði.
Þá hafa þeir fundist nýlega í
Bandaríkjunum líka. Kosturinn við
að þeir þróuðu ónæmið sjálfir en
fengu það ekki frá enterokokkum
er að þeir era ekki algerlega
ónæmir fyrir vancomycini. En það
að þeir era komnir með skert
ónæmi þýðir að líklegt er að þeir
muni verða alveg ónæmir."
Einstakur árangur
„Nú eram við líka komnir með
berklabakteríur sem era ónæmar
fyrir öllum góðum berklalyfjum,"
segir Karl ennfremur. „Þær era til
dæmis útbreiddar í Eystrasalts-
löndunum, sérstaklega í Litháen
þar sem tíðni fjölónæmra berkla-
baktería er há. Síðan era til fjöl-
ónæmir pneumokokkar en um þá
hefur töluvert verið fjallað þar sem
ein algengasta sýkingin af þeirra
völdum er eyrnabólga í börnum.
Tíðni penisillínónæmra
pneumokokka fór úr 0% árið 1988 í
20% árið 1993. Þar af voru um 80%
fjölónæmir þannig að tíðni fjöló-
næmra pneumokokka var orðin
17-18%. Engin sýklalyf til inntöku
dugðu við þessum sýklum þannig
að við þurftum að leggja mörg
börn með einfalda eymabólgu inn á
sjúkrahús og gefa þeim sýklalyf í
Við höfum verið
að nota þessi lyf
við einföldum
sýkingum eins
og t.d. unglinga-
bólum og við er-
um að með-
höndla sýkingar
sem þurfa ekki
sýklalyf. Með því
gætum við verið
að eyðileggja
framtíðina fyrir
börnunum okkar
æð. Við hófum aðgerðir til að
minnka útbreiðslu þeirra, meðal
annars með því að reka áróður fyr-
ir því að minnka sýklalyfjanotkun,
og árið 1996 var tíðnin komin niður
í 14%. Við og Svíar eram einu þjóð-
imar sem hefur tekist að snúa þró-
uninni við. Við eigum möguleika á
að stjóma þessu, meðal annars
vegna þess að fólk fylgist vel með
fréttum, en víða er það ekki mögu-
legt, svo sem í Bandaríkjunum,
Frakklandi og á Spáni og tíðnin í
þessum löndum er komin upp í
40-50%.
Það sem verra er, er að
pneumokokkar era önnur algeng-
asta orsök heilahimnubólgu. Heila-
himnubólga er sýking innan mið-
taugakerfisins og til að meðhöndla
hana verður lyfið að komast yfir
blóðheilaþröskuldinn. Til era stofn-
ar af pneumokokkum t.d. í Mexíkó-
borg og í Ungverjalandi, sem era
ónæmir fyrir öllum lyfjum nema
vancomysini en það kemst ekki yfir
þröskuldinn."
Fullorðnir vilja lyf við kvefi
Langstærsta orsök þess að
sýklalyfjaónæmi breiðist út er,
samkvæmt nýlegri könnun Karls
og samstarfsmanna hans, sýklalyf-
in sjálf.
„Við getum skipt sýklalyfjanokt-
un í tvennt. Mest hefur verið fjall-
að um sýklalyf gegn sýkingum í
mönnum en í sumum löndum er
notkunin mjög mikil í landbúnaði.
Læknavísindastofnun Bandaríkj-
anna áætlaði árið 1988 að um helm-
ingur sýklalyfja, sem þá vora fram-
leidd þar í landi, væri notaður í
landbúnaði við sýkingum, til að fyr-
irbyggja þær eða sem fóðurbætir
til að örva vöxt. Við vitum einnig að
sýklalyf era ofnotuð á Vesturlönd-
um í ákveðnum tilfellum við sýk-
ingum í fólki,“ segir Karl og nefnir
eymabólgu, kvef og berkjubólgu i
því sambandi.
„70-80% prósent af öllum
eyrnabólgum læknast af sjálfu
sér. Vandamálið felst í að ekki er
hægt að sjá fyrir hvaða eyma-
bólga læknast. Eymabólgur era
algengasta ábending sýklalyfja
þannig að með því að bíða og sjá á
hvom veginn bólgan þróast má
minnka sýklalyfjanotkunina vera-
lega. Sænskir læknar hafa gripið
til þess ráðs að senda öll böm með
roða á hljóðhimnu heim án sýkla-
lyfja. Foreldranum er síðan boðið
að koma með börn sín aftur til
skoðunar án endurgjalds og þá er
metið hvort gefa þurfi lyf við sýk-
ingunni. Víða í Svíþjóð má barn
sem fær smit af ónæmum
pneumokokkum ekki fara í leik-
skólann fyrr en það er laust við
smitið. íslenskir læknar hafa tekið
eftir að viðhorf foreldra til sýkla-
lyfja hefur breyst á síðustu árum
og að foreldrar vilji gjarnan láta
reyna á hvort sýkingin læknist af
sjálfu sér. Sýklalyf duga aftur á
móti aldrei við kvefi og sjaldnast
við berkjubólgu því hún er í lang-
flestum tilvikum af völdum veira.
Það mætti minnka sýklalyfjanotk-
un verulega með því að hætta að
gefa lyfin við þessum kvillum.
Fullorðið fólk þrýstir enn á um að
fá sýklalyf við þessum kvillum þó
að þau dugi ekki.“
Þróunina má að hluta rekja til
þj óðfélagsbreytinga
En hvemig stendur á því að
bakteríur geta þróað með sér
ónæmi gegn sýklalyfjunum?
„Maðurinn og aðrar þróaðar líf-
verur hafa mörg litningapör í
kjörnum frumanna. Bakteríur hafa
aftur á móti bara einn litning og
ekkert upphefur skaðleg áhrif
stökkbreytinga ef þær verða innan
litningsins. Breytingamar sem
verða við stökkbreytinguna koma
því strax fram. Þetta auðveldar
þróun mjög mikið. Þar að auki
fjölga bakteríur sér á 20 mínútna
fresti við kjöraðstæður,“ segir
Karl.
„Síðan hafa bakteríur þróað að-
ferðir sem kallast erfðaflutningar
til að flytja tilbúin gen á milli litn-
inga þannig að þróun sem verður
innan ákveðinnar bakteríu getur
breiðst yfir í aðra. Þetta getur
gerst á þrjá vegu. Hluti af litningi
dauðrar bakteríu getur flust yfir í
lifandi bakteríu. í öðra lagi er það
með svo svokallaðri veiraleiðslu
þar sem bakteríuveirar flytja
erfðaefni á milli baktería. Síðan er
það með tengiæxlun en þar flyst
erfðaefni milli tveggja bakteríuteg-
unda. Svo era til erfðaefnisbútar
sem kallast stökklar en þeir geta
flutt erfðaefni innan sömu bakter-
íu. Möguleikamir fyrir því að
sýklalyfjaónæmi breiðist út era gíf-
urlega margir.“
Þá bendir Karl á að þessa hröðu
þróun megi að einhverju leyti rekja
til breyttra þjóðfélagshátta. Flest
börn era á leikskólum þar sem
bakteríusmit í öndunar- og melt-
ingarfæram berast auðveldlega á
milli barnanna. Þá hafa sívaxandi
kröfur um ódýra matvöra orðið til
þess að margar skepnur era gjarn-
an hafðar saman á litlu svæði sem
einnig eykur líkur á að smitsjúk-
dómar breiðist út.
Framtíð barnanna í hættu
„Við höfum verið að nota þessi
lyf við einföldum sýkingum eins og
t.d. unglingabólum og við eram að
meðhöndla sýkingar sem þurfa
ekki sýklalyf. Með því gætum við
verið að eyðileggja framtíðina fyrir
börnunum okkar,“ segir Karl.
Búið er að koma á fót stofnun-
um, í Danmörku, Svíþjóð og Finn-
landi og verið er að stofnsetja
hana í Noregi, til að fylgjast með
og hafa eftirlit með sýklalyfja-
notkun og sýklalyfjaónæmi og
finna leiðir til að minnka lyfja-
notkunina og koma í veg fyrir að
ónæmir bakteríustofnar þróist.
Slík stofnun eða nefnd hefur ekki
verið sett á lággirnar á íslandi en
segist Karl vonast til að svo verði
innan tíðar. Þá segir hann einnig
að mikilvægt sé að efla rannsóknir
á því hvemig megi draga úr óhóf-
legri og ónauðsynlegri sýklalyfja-
notkun.
„Við megum ekki gleyma þvi að
við eram og verðum að tala um
þetta til þess að við getum með-
höndlað alvarlegar sýkingar áfram.
Þeir sem þurfa virkilega á sýkla-
lyfjum að halda verða að geta feng-
ið þau.“
im
Sparaðu sporin
- o j penin^ana
Sparnaðarlíftrygging Samlífs er íslensk
söfnunarlíítrygging sem gerir þér kleift að
leggja fyrir reglulega og njóta líftryggingar
um leið í skjóli öflugra íslenskra bakhjarla.
Hringdu i sima 569 5400 ogfáðu sendan
kynningarbtekling.
SAMLIF
Sameinaóa Kftryggingaiféiagið bf.
Kringlunni 6 • Pósthólf3200 • 123 Reykjavik
Simi 569 5400 • Grant númer 800 5454 • Fax 569 5455
VIRKAR
Ný fitubrennslunámskeið
HEFJAST FIMMTUDAGINN 2. APRÍL
♦ Eróbikk
♦ Fitubrennsla
♦ Hjólaþjálfun
(Spinning)
♦ Jeet kune do
(Kickbox)
♦ Tai Ji Quan
(Kínversk leikfimi)
♦ Tae Kwondo
♦ Tækjasalur
Næringarráðgjöf
Einkaþjálfun
SUÐURLANDSBRAUT 6 (BAKHÚS)
SÍMI 588 8383 Fax 568 7017