Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 12
12 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Forsetaframbjóðendur á Filippseyjum vændir um skrum og sjálfsdýrkun
• •
Ollum brögðum beitt
Baráttan fyrir forseta-
kosningarnar á Filipps-
eyjum þykir með líf-
legra móti að þessu
sinni. Asgeir Sverris-
son segir frá tilburðum
frambjóðenda og legg-
ur sérstaka áherslu á
leikarann og kvenna-
gullið Joseph Estrada,
sem stendur vel að vígi
í skoðanakönnunum.
FYRRUM eiginkona ein-
ræðisherra og maður sem
telur sig föður frelsarans
voru á meðal þeirra 83
frambjóðenda, sem kunngjörðu að
þeir hygðust bjóða sig fram í for-
setakosningunum á Fihppseyjum í
maímánuði. Nú hefur kjörnefnd
raunar skorið niður fjölda fram-
bjóðenda þannig að eftir standa 11
manns. Stjómmál á Filippseyjum
eru litrík og lífleg líkt og menning
eyjaskeggja. Ymsir hafa þó á orði
að lýðskrumið hafí aldrei áður
komist á viðlíka stig og íyrir þess-
ar kosningar og telja þá þróun
áhyggjuefni. Joseph Estrada,
varaforseti, er þó ekki í þeim hópi;
margt bendir til þess að þessi fyrr-
um kvikmyndaleikari, sem jafn-
framt þykir hjartaknúsari í þunga-
vigtarflokki, verði næsti forseti
Filippseyja.
Frambjóðendurnir 11 munu
keppa um hylli kjósenda í þeirri
von að þeim auðnist að verða eftir-
maður Fidel Ramos forseta, sem
lögum samkvæmt má ekki bjóða
sig fram að nýju. Ekki verður ann-
að sagt en stjómmálaáhuginn sé
umtalsverður á Filippseyjum. Auk
frambjóðendanna 83 sem íyrr var
getið hafa um 200.000 manns af-
ráðið að bjóða sig fram til þeirra
117.000 embætta sem kosið verður
til.
Flestir eiga forsetaframbjóð-
endumir það sameiginlegt að þeir
geta engar vonir gert sér um sig-
ur. Framboð þeirra era oftar en
ekki tilkomin sökum óhóflegs
sjálfsálits eða framlegra baráttu-
mála, sem lítinn hljómgrann
hljóta. Almennt gildir og að flokks-
vélar standa ekki að baki flestum
framboðanna.
Imelda enn á ferð
Athyglin hefur, líkt og svo oft
áður, beinst að Imeldu ___________
Marcos, hinni þraut-
seigu ekkju Ferdinands
Marcos, sem fór með
einræðisvald á eyjunum
í 14 ár, fram til ársins _________
1986 er honum var '
steypt með stuðningi Bandaríkja-
manna. Imelda, sem forðum var
annáluð fyrir ástríðufullan áhuga
sinn á skófatnaði, hefur raunar
verið dæmd í fangelsi vegna þeirr-
ar þrotlausu spillingar, sem ein-
kenndi stjómartíð eiginmanns
hennar, en þeim dómi hefur hún
áfrýjað.
Líkt og aðrir frambjóðendur
hefur Imelda Marcos gripið til
heldur óhefðbundinna aðferða til
að vekja athygli á sér og framboði
sínu. Þannig skreið hún á hnjánum
til kirkju daginn sem hún hóf opin-
berlega kosningabaráttu sína.
Imelda bauð sig einnig fram í
kosningunum 1992 og skoðana-
Reuters
JOSEPH Estrada (til vinstri) og varaforsetaefni hans, Egardo Angara, kasta sælgæti til viðstaddra á
kosningafundi skammt suður af Manila.
Talinn
hjartaknúsari f
þungavigtar-
flokki
kannanir benda til þess að nú líkt
og þá hyggist kjósendur afþakka
stjórnvisku hennar. I nýlegri
könnun var hún í áttunda sæti,
langt á eftir þeim sem fremstir
fara.
Tilbúin prinsessa og
önnur framliðin
Annar athyglisverður frambjóð-
andi er Miriam Defensor-Santiago,
sem situr i öldungadeild þingsins,
en hún tapaði naumlega fyrir
Ramos í kosningunum fyrir sex ár-
um. Kosningafundir hennar þykja
ekki síður skrautlegir en sam-
kundur þær sem ekkja einræðis-
herrans boðar til. Hún hefur byggt
kosningabaráttu sína á ýmsum
táknum úr „Stjömustríðs“-mynd-
unum sem forðum nutu mikilla
vinsælda. Leysigeislum er beitt og
reykur stígur á loft er hún birtist
sem Leia prinsessa og talar til
mannfjöldans.
(Raunar er sérstök ástæða til að
vekja athygli á framboði Loren
Legarda, sem býður sig að visu
ekki fram í forsetakosningunum
en hefur í hyggju að hreppa sæti í
öldungadeildinni. Frú Legarda,
sem er þekkt sjónvarpskona, þykir
hafa gengið einna lengst í áróðri
sínum fyrir þessar kosningar.
Alltjent er í bæklingum þeim og
fréttatilkynningum sem frá henni
________ hafa borist fullyrt að
hún sé „Díana prinsessa
endurholdguð.“)
Slagurinn um forseta-
embættið virðist ætla að
________ standa á milli þeirra
Joseph Estrada varafor-
seta og Jose de Venecia, sem hefur
lengi verið áberandi í filippeyskum
stjómmálum og hefur aukinheldur
traust sambönd í viðskiptalífinu.
Hvoragur þeirra þykir á hinn bóg-
inn hafa haldið uppi málefnalegri
kosningabaráttu og stjómmála-
skýrendur á Filippseyjum kvarta
undan því að þeir hafi öldungis
leitt hjá sér stórmál á borð við það
mikla atvinnuleysi sem þjakar
eyjaskeggja og erfiðleika í efna-
hagslífinu. Auk þeirra tveggja og
Imeldu Marcos er annar þekktur
maður í framboði, Juan Ponce En-
rile, sem var vamarmálaráðherra í
stjóm Marcos en snerist gegn yfir-
manni sínum í uppreisninni 1986.
Imelda Marcos, fyrrum einræð-
isherrafrú, í morgunleikfimi
með hópi kvenna í miðborg
Manila.
Leikari með lýðhylli
Kannanir hafa ítrekað leitt í ljós
að Joseph Estrada nýtur mestra
vinsælda frambjóðendanna.
Estrada á að baki skrautlegan feril
og hefur verið ásakaður um flest
það sem fær prýtt raunveralegan
siðleysingja en virðist ætla að
standa þær ávirðingar af sér.
Estrada segir að aðrir frambjóð-
endur hafi blásið til skipulegrar
ófrægingarherferðar gegn honum
þar sem engu sé til sparað. í hðinni
viku hélt hann því síðan fram á
blaðamannafundi að andstæðingar
hans hefðu afráðið að ráða hann af
dögum tækist þeim ekki að koma í
veg fyrir kjör hans með kosninga-
svikum.
Varaforsetinn varð frægur mað-
ur á Filippseyjum er hann tók að
leika í kvikmyndum sem margar
hverjar náðu miklum vinsældum.
Lék hann jafnan herkil og ofur-
menni og var sex sinnum kjörinn
„besti leikari Filippseyja.“ Til
sannindamerkis um vinsældir hans
má nefna að hann fékk fleiri at-
kvæði til embættis varaforseta en
Ramos hlaut árið 1992 er hann var
kjörinn forseti.
Slyngur stjórnmálamaður
Estrada er af fátæku fólki kom-
inn, fæddist í fátækrahverfinu
Tondo, í Manila-borg. Varaforset-
inn er jafnan nefndur „Erap“ og
þykja ummæh hans oftlega skop-
leg auk þess sem enskukunnátta
hans þykir gefa tilefni til gaman-
mála. „Erap“ hlaut litla menntun
og honum er borið á brýn hafa
runnið heldur frjálslega um sið-
ferðissvellið. Varaforsetinn þykir á
hinn bóginn slyngur stjómmála-
maður og enginn frambjóðandi
stenst honum snúninginn þegar
hann ávarpar alþýðu manna. Hefur
hann af þessum sökum verið bor-
inn saman við starfsbróður sinn,
Ronald Reagan fyrrum Banda-
ríkjaforseta.
Vinsældir „Eraps“ skýra menn á
Filippseyjum hins vegar einkum
með tilvísun til efnahagsstefnu
þeirrar sem þar hefur verið fylgt á
undanhðnum árum. Almenningur
hafi í vaxandi mæli snúist gegn
þeirri markaðshyggju sem þar hafi
verið allsráðandi. Sífeht fleiri kjós-
endur óttist um afkomuöryggi sitt í
tengslum við þá aðhalds- og niður-
skurðarstefhu er ratt hafi sér til
rúms. Almenningur vilji að horfið
verði á ný til þeirrar forsjárhyggju
sem áður einkenndi þjóðlífið þegar
litið var svo á að rfldsvaldinu bæri
að sjá um þá sem höllum
fæti stæðu. Lýðhyggja
(populismi) varaforset-
ans virðist miða að því að
ná til þessa hluta kjós-
enda.
Hundsa at-
vinnuskort og
efnahags-
þrautir
Vændur um gjálífi
og drykkjusýki
„Erap“ býr yfir mikih stjóm-
málareynslu. Hann var um 17 ára
skeið borgarstjóri í San Juan, út-
borg Manila, þar sem einkum búa
auðmenn. Þótti hann standa sig vel
í því starfi. Öðra máh gegnir um
kjörtímabil það sem hann gegndi
embætti öldungadeildarþingmanns.
Því hefur verið haldið fram að hann
hafi aðeins beitt sér fyrir að eitt
þingmál hlyti afgreiðslu. Var það
frumvarp um ræktun vatnabuffala
(Bubalus bubahs), en þingmannin-
um mun hafa þótt aðkahandi að
koma á umbótum á því sviði þjóð-
lífsins.
Fjendur varaforsetans bera hon-
um ekki vel söguna og sjálfur neit-
ar hann því ekki að líf hans hafi á
köflum verið stormasamt. Hann
harðneitar því að hann sé alkó-
hólisti, en hann var forðum annál-
aður nátthrafn og þótt liðtækt
gleðimenni. Þá þykir „Erap“ löng-
um hafa verið djarftækur til
kvenna og í nýlegu blaðaviðtah við-
urkenndi hann að hann hefði átt
fjölmargar ástkonur um dagana,
sem borið hefðu börn hans inn í
þennan heim. Þótti þetta snjaU leik-
ur hjá frambjóðandanum og fallinn
til að draga úr áhrifum árása af
hálfu katólsku kirkjunnar, sem
löngum hefur verið áhrifamikil í
stjómmálalífi eyjaskeggja og hefur
ekki farið dult með að framboðið er
stofnuninni htt að skapi. „Syndir
mínar era einkamál mitt og al-
mættisins. Eg hef aldrei syndgað
sem embættismaður. Nafn mitt
hefur aldrei verið tengt við spill-
ingu,“ sagði hann.
Samblástur kirkju
og viðskiptalífs
Þar eð vinsældir Estrada virðast
heldur fara vaxandi heldur en hitt
hefur því verið spáð að kirkjan, við-
skiptalífið og Ramos forseti muni
herða mjög á áróðri öllum gegn
honum. Forsetinn hefur htlar mæt-
ur á þessum undirsáta sínum þar
eð Estrada tókst að koma í veg fyr-
ir áform sem Ramos og stuðnings-
menn hans höfðu um að knýja í
gegn breytingar á stjórnarskránni
til að gera foretanum kleift að sitja
í sex ár til viðbótar.
Spádómur þessi virðist ætla að
rætast, ef marka má umfjöllun fjöl-
miðla á síðustu dögum. Þannig var
Estrada í fyiTÍ viku vændur um að
hafa fyrsldpað að konur tvær
skyldu teknar af lífi er hann var
formaður nefndar þeirrar sem for-
setinn hafði skipað til að samræma
baráttuna gegn glæpastarfsemi.
Varaforsetinn lýsti yfir því að þetta
væra bláberar lygar og enn eitt
dæmið um óhróðursherferð fjenda
sinna. Þá lýsti einn frambjóðand-
inn, Manoling nokkur Morato, yfir
því að Estrada væri „kvennabósi,
drykkjumaður og forfallinn fjár-
hættuspilari". Bætti hann síðan við
í framhjáhlaupi að maðurinn væri
öldungis óhæftir til að gegna emb-
ætti forseta.
Þrátt fyrir lýðhylh „Eraps“ á
hann við öfluga andstæðinga að
ghma, sem fyrirhta menntunar- og
menningarleysi hans og telja að
Filippseyjar muni tæpast fá staðist
það áfall að hann verði kjörinn for-
seti. „Verði Estrada forseti mun ég
flytja úr landi,“ sagði þekktur
skáldsagnahöfundur, Franlde Sion-
il Jose, í viðtali við erlenda fjölmiðla
fyrir skemmstu. „Heimsbyggðin öll
mun hlæja að Filippseyjum,“ bætti
hann við.
Ógnun við lýðræðið?
Stjórnmálaskýrendur og félags-
fræðingar á eyjunum kveðast
margir hverjir telja það alvöramál
hvemig sífellt aukið skrum og lýð-
hyggja einkenni kosningabaráttuna
í stað málefnalegrar umfjöllunar.
„Kosningabaráttan hef-
ur aldrei áður einkennst
af viðlíka persónudýrk-
un og svo algjörum
skorti á pólitískum hug-
_ myndum. Þetta vekur
upp áhyggjur um að lýð-
standi höllum fæti,“ sagði
dálkahöfundur, Amada
ræðið
þekktur
Doronila, í einum pisth sínum.
Aðrir benda á að þetta sé einung-
is í prýðilegu samræmi við hefðir
auk þess sem ekkert ríki í Suðaust-
ur-Asíu geti státað sig af svo opnu
og lýðræðislegu samfélagi.
Kjósendur munu kveða upp úr-
skurð sinn 11. maí og sökum fjölda
frambjóðenda getur tiltölulega htið
fylgi nægt til sigurs. Fidel Ramos
var kjörinn forseti með aðeins 24%
atkvæða á bak við sig, en þá voru
sjö menn í framboði. Nú verða þeir
11, sem hefur í fór með sér að sig-
urlíkur Joseph Estrada hljóta að
teljast umtalsverðar.