Morgunblaðið - 29.03.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ ÓSKAST
Morgunblaðið/Kristinn
HLJÓMEYKI gengst fyrir þrennun tónleikum í næstu viku í tilefni af
utanför sinni á alþjóðlega keppni áhugamannakóra á Ítalíu.
Tónleikar Hljómeykis
í tilefni af Ítalíuför
Ljósmyndir Roni Horn frá íslandi vekja athygli í Bandaríkjunum
í Chevrolet K1500 Extended Cab Silverado 4x4
árgerð '95 (ekinn 12 þús. mílur),
Ford Taurus GL árgerð '94,
Chevrolet Step-in-van P-20 m/dieselvél árgerð '87
og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar að Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 31. mars kl. 12- 15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
HLJÓMEYKI gengst íyrir þrenn-
um tónleikum á næstu dögum í til-
efni af þátttöku kórsins í alþjóð-
legri kórakeppni í Garda á Italíu
dagana 5.-8. apríl nk. Fyrstu tón-
leikarnir verða haldnir annað
kvöld, mánudaginn 30. mars, á Sel-
fossi. Aðrir tónleikamir verða í
Gerðarsafni í Kópavogi þriðjudag-
inn 31. mars og loks flytur kórinn
efnisskrá sína í Safnaðarheimili
Vídalínskirkju í Garðarbæ, mið-
vikudagskvöldið 1. apríl. Tónleik-
amir hefjast allir kl. 20.30.
Hljómeyki er 20 manna kór
áhugasöngfólks sem flest eiga að
baki tónlistarmenntun eða eru í
slíku námi. Aðaláhersla kórsins
hefur verið á flutning nýrra ís-
lenskra tónverka og á hverju ári
hefur Hljómeyki frumflutt verk ís-
lenskra tónskálda á Sumartónleik-
um í Skálholti. Efnisskrá tónleik-
anna nú er talsvert frábragðin
fyrri áherslum kórsins því verkin
koma víða að og era frá ýmsum
tímum. „Þetta verða sannkallaðir
tónlistarsögutónleikar," segir
Hildigunnur Rúnarsdóttir, einn
kórfélaganna. íslensk tónskáld
verða þó ekki alveg undanskilin því
flutt verða tvö lög eftir Hjálmar H.
Ragnarsson. Burðarverk tónleik-
anna era kórverkin Trois Chan-
sons eftir Debussy og This World-
es Joie eftir breska aldamótatón-
skáldið Amold Bax. Þá má nefna
flutning gregorískra kirkjusöngva
og verk eftir ungverskt sam-
tímatónskáld, János Vajda. Stjóm-
andi Hljómeykis er Bemharður
Wilkinsson.
Alþjóðleg keppni áhugamanna-
kóra í Riva del Garda hefst þann 5.
apríl nk. og stendur yfir í þrjá
daga. Hljómeyki tekur þátt í
tveimur keppnisliðum, annars veg-
ar flutningi skylduverka og hins
vegar kirkjulegra kórverka.
Hildigunnur segir að kórinn hafi
þyrst í utanfór og ákveðið að slá til
þegar þau höfðu spumir af kóra-
keppni í Garda. „Markmið ferðar-
innar er að hitta aðra kóra og láta
um leið heyrast í okkur sjálfum."
Listasafn íslands
Píanó- og
flaututón-
leikar
Morgunblaðið/ Árni Sæberg
SIGURÐUR A. Magnússon
ásamt sínum nánustu við upphaf
afmælisveislunnar á föstudag.
Afmæli
Sigurðar A.
Magnússonar
Sigurður A. Magnússon rithöf-
undur verður sjötugur á þriðju-
dag, 31. mars. Þann dag verður
hann á menningarráðstefnu í
Stokkhólmi. Haidið var upp á af-
mæli hans í Rúgbrauðsgerðinni á
föstudaginn og var þar margt
gesta. I tilefni afmælisins kemur
út bók með greinum eftir Sigurð
og skrá yfir ritverk hans.
Leikfélag Kvenna-
skólans sýnir Drekann
LEIKFÉLAG Kvennaskólans í
Reykjavík, Fúría, framsýnir leik-
ritið Drekinn eftir Evgenií Scvarc í
dag sunnudag kl. 16 og kl. 20 í
Tjarnarbíói.
Leikritið skrifaði Schwarz árið
1943 og „dulbjó“ í barnaleikritinu
Drekanum ádeilur á ríkisstjóm
Rússlands. Þrátt fyrir það var það
bannað í þó nokkum tíma en hefur
á undanförnum áram notið vin-
sælda utan Rússlands og þá aðal-
lega í Evrópu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Leikritið fjallar á gamansaman
hátt um riddarann Lancelot sem
kemur í borg nokkra þar sem
ógurlegur dreki hefur ráðið ríkjum
í yfir fjögur hundruð ár. Borgar-
búar eru löngu orðnir vanir kúgun-
inni og þjóna drekanum í einu og
öllu.
Um 30 leikarar koma að sýning-
unni. Leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir. Aðstoðarleikstjóri er
Ingibjörg Þórisdóttir.
Næstu sýningar verða þriðjudag-
inn 31. mars, fimmtudaginn 2. mars
og föstudaginn 3. mars. Sýningarn-
ar verða allar kl. 20.
STEFÁN Ragnar Höskuldsson
flauturleikari og eiginkona hans,
Elizaveta Kopelman, halda tónleika
í Listasafni íslands sunnudaginn 29.
mars kl. 20.30.
A efnisskránni verða tónverk eft-
ir Bach, Schumann, Bartók, Magn-
ús Blöndal Jóhannsson og
artengínska tónskáldið Astor Pi-
azzola, en þess má geta að tónlist
hans er samin í anda hins argent-
ínska tangós.
Stefán Ragnar er fæddur á Nes-
kaupstað árið 1975 og hóf nám í
flautuleik níu ára að aldri hjá Bern-
hard Wilkinson. Hann lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskóla Reykja-
víkur árið 1995. Árið síðar, 1996,
lauk hann námi við Konunglega tón-
listarskólann í Manchester. Síðast-
liðin tvö ár hefur hann verið í einka-
námi í Lundúnum.
Elizaveta Kopelman er fædd í
Moskvu árið 1974, hún hóf þar nám
í píanóleik fimm ára að aldri. Hún
lauk námi við Tónlistarháskólann í
Moskvu árið 1991 og líkt og Stefán
DÚETTINN Stefán Ragnar
Höskuldsson flautuleikari og
Elizaveta Kopelman pfanúieikari.
lauk hún námi við Konunglega Tón-
listarháskólann í Manchester árið
1996. Frá árinu 1994 hefur Eliza-
veta verið á samningi hjá hinu virta
umboðsfyrirtæki Young Concert
Artist Trast í Lundúnum. Hún hef-
ur komið fram sem einleikari víðs-
vegar um heim og má nefna að hún
spilaði einleikskonsert með Sinfón-
íuhljómsveit Lundúna í Barbican
Center í Lundúnum. Sem dúó hafa
Stefán og Elizaveta komið fram í
Norður-Ameríku, Evrópu og
Englandi og á íslandi.
Hlaut sjónlistar-
verðlaun í Kaliforníu
ypllJ
eítH
LJÓSMYNDAVERK eftir Roni Horn frá sýningu hennar,
Inner Geography, f listasafninu í Baltimore árið 1994.
BANDARÍSKA myndlistarkonan
Roni Hom sem er þekkt fyrir bók-
verk sín og Ijósmyndir úr íslenskri
náttúra, hlaut nýverið Albert-lista-
verðlaun, CAL-ARTS, menningar-
miðstöðvarinnar í Santa Monica í
Bandaríkjunum á sviði sjónlista.
Segja má að Roni Hom hafi gert
Island að vinnustofu sinni. Hingað
ferðast hún reglulega og vinnur að
flokki bókverka þar sem uppistaðan
er landslagsljósmyndir: Þeirra
þekktast er hennar síðasta verk,
You are the weather, 100 ljósmynd-
ir af íslensku kvenmannsandliti,
teknar í útisundlaugum víða um
land.
Nýjasta bókverk hennar, Arctic
Circles, er 160 blaðsíður með ljós-
myndum frá Melrakkasléttu og
Grímsey. Þema verkanna lýsir Roni
sem hringrás atburða. Arctic
Circles er hið 7. í röð bókverka sem
listakonan vinnur hér á landi og
kemur út í Bandaríkjunum í júní.
Albert-verðlaunin, CAL-ARTS, í
Santa Monica era veitt með þeim
hætti að hópur fólks tilnefnir árlega
listamenn í fimm listgreinum; á
sviði sjónlista, tónlistar, kvikmynda
og myndbandagjörningum. Dóm-
nefnd skipuð listfræðingum og sýn-
ingarstjóram velur síðan þá lista-
menn sem verðlaunin hijóta hverju
sinni en verðlaunaupphæðin nemur
um 3,5 milljónum ísl. króna. Að-
spurð hvaða þýðingu viðurkenning
sem þessi hefði sagði Roni að þar
skipti mestu máli að hún væri nú að
hljóta viðurkenningu fyrir list sína í
heimalandinu en fram til þessa hafi
list hennar verið betur kynnt í Evr-
ópu.
Innan næstu 18 mánaða stendur
til að halda sýningu á verkum Roni
Horn í Galleríi Ingólfsstræti 8 en
síðast hélt hún sýningu þar sl. sum-
ar. Þá hefur henni verið boðið að
sýna í Listasafni íslands. Listakon-
an var hér á landi í febrúar sl. og
hyggst vinna að næsta verkefni
sínu hér á landi næsta vetur. „Ég
reyni að forðast að koma til Islands
yfir sumartímann vegna allra
ferðamannanna og kýs fremur að
ferðast um landið að haust- eða
vetrarlagi líkt og í febrúar síðast-
liðnum en sá tími hentaði mér eink-
ar vel.“
Fyrirlestur
um japanska
leirlist
TETSUYA Yamada leirlista-
maður frá Japan heldur fyrir-
lestur um eigin list og jap-
anska leirlist í Barmahlíð, íyr-
irlestrarsal MHÍ í Skipholti,
mánudaginn 30. mars kl.
12.30.