Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 18

Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 18
18 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Bara ef mamma stendur með mér VIÐ sitjum saman sjö konur í hóp eitt kvöldið í fremur köldu herbergi í gömlu timburhúsi við Vesturgötu. Það er hvassviðri úti og ég heyri með öðru eyranu hvemig vindurinn ýlir við gluggann, meðan ég hlusta á frásagnir kvenn- anna. Mér verður fljótlega ljóst að það hefur sannarlega nætt um þess- ar konur og þær staðið á berangri á viðkvæmu skeiði ævinnar. Ég horfi á þær eina af annarri, þetta er hóp- ur kvenna sem allar hafa verið mis- notaðar sem böm. En það er ekki allt sem sýnist. Þrátt fyrir frásagnir af dapurlegri lífsreynslu er yfir þessum hópi einhver lifandi von- gleði, þetta era myndarlegar ungar konur sem era tilbúnar til að ganga á hólm við lífið í þess fjölbreytileg- ustu mynd, sýnast fullar af innri styrk þess, sem öðlast hefur sjálfs- traust og sálarró. Þær hafa undan- farið unnið saman að því að losa um tilfinningalegar stíflur sem mynd- uðust vegna misnotkunarinnar og sannarlega virðist allt benda til að sú vinna hafi borið giftusamlegan árangur. Þær era sammála um að það kosti mikið átak að fara að rifja þessi mál upp, en það sé þess virði. Léttir sé mikill að geta rætt um misnotkunina og það sé dýrmætt að losna við þá tilfinningu að „vera óhrein", vera öðra vísi en aðrir, yfir- vinna óbeit á snertingu, þora óhikað að gera ýmislegt sem aðrir gera, t.d. að fara í sund. Geta borið höfuð- ið hátt og finna sig að lokum vera orðna sterka og yfirvegaða, hafa unnið úr tilfinningalegu áfalli þannig að það verði lífsreynsla sem hægt sé að læra af. W Ymislegt kemur þó upp sem taka þarf afstöðu til. „Karlinn vildi koma á fundi með mér og móður minni til þess að „ræða mál- ið“,“ segir ein kvennanna. Karlinn sem um ræðir er „gerandinn", í þessu tilviki náinn ættingi. „Ég sé ekki að um neitt sé að ræða, þetta era ekki neinar hjónaerjur, maður sem hefur misnotað barn getur ekki búist við að fá syndaaflausn þegar bamið eldist, slíkum mönnum verð- ur einfaldlega aldrei fyrirgefið. Sá sem misnotar barn ber einn alla ábyrgð og losnar aldrei við sekt sína,“ segir önnur. Ég hlusta og hugsa um „skulda- daga“, í lífinu kemur augljóslega að þeim fyrr eða síðar. „Mitt mál er fymt, ég reyndi að kæra en það vora liðin meira en tíu ár síðan at- burðimir gerðust svo það var ekk- ert hægt að gera, samt vora lagðar fram stuðningsákærur af stúlkum sem hann hafði misnotað líka,“ seg- ir enn önnur. „Þeir sleppa margir við kærur og dóm vegna þess að það bamið sem misnotað er getur ekki beitt sér í málinu fyrr en það hefur öðlast þroska, skilning og hugrekki til þess að láta sverfa til stáls. Það gerist stundum ekki fyrr en bamið er komið á unglingsár og þorir að segja frá. Hafi bamið verið misnot- að t.d. fimm ára, er það kannski orðið fimmtán ára þegar það fer að geta gert eitthvað tíl þess að koma málinu á hreyfingu. Það er undar- legt að svona afbrot skuli fymast - það gengur verr að láta það fymast sem baminu hefur verið gert,“ segja konumar. Þær era sammála um að það þurfi að afnema umrætt fymingarákvæði og þyngja refsing- ar yfir kynferðisafbrotamönnum. En hvað er það mikilvægasta sem vinnst við hópvinnuna hjá Stíga- mótum? „Það að maður getur gengið uppréttur og skammast sín Það er hægt með markvissri vinnu að bæta mikið þann skaða sem fólk verður fyrir ef það er beitt kynferðislegu ofbeldi, líka ef um börn er að ræða. Guðrún Guðlaugsdóttirsat fund sjálfs- hjálparhóps vegna sifjaspella hjá Stígamótum og ræddi við kon- urnar sex sem hópinn mynda. MYND þessi er eftir eina af stúlkunum í sjálfshjálparhópnum sem f greininni er rætt við. ekki fyrir sig eða líkama sinn,“ er svarið. Við eram samankomnar tíl þess að ræða um gildi hópvinnu sem staðið er fyrir á vegum Stígamóta fyrir konur sem beittar hafa verið kynferðislegri misnotkun á unga aldri. Allar stúlkurnar sex era sam- mála um að það sé mikil og gagnleg tilfinningaieg útrás að fá að tala um misnotkunina við hlutlausan aðila. „Hér getur fólk fengið einkaviðtöl fyrst og síðan er valið í samstarfs- hópa, hvort tveggja er liður í með- ferð tíl þess að vinna sig út úr þeirri sálarkreppu sem misnotkun veldur í nánast öUum tilvikum, hvort sem misnotkunin stendur í skamman tíma eða mörg ár,“ segja þær. Það er þó auðheyranlegt af tali kvenn- anna að það er ekki auðveld ákvörð- un í upphafi að leita hjálpar vegna svona mála. „Ég dró það í mörg ár, vegna mömmu og fjölskyldunnar, ég hélt að það yrði svo erfitt að opna rnálið," segir ein. „Ég vildi ekki leggja það á mömmu að segja henni frá þessu,“ segir önnur. Allar era þær sammála um að mestu skipti hvaða afstöðu móðirin tekur þegar bam eða unglingur segir frá misnotkun. „Bara ef mamma stendur með mér, er mér sama um hvað aðrir segja.“ Sú sem þetta segir má hafa það að föðurfjölskylda hennar talar ekki við hana, þar hefur fólk ákveðið að standa með föður sem misnotaði litla dóttur sína. Hann neitar þó ekki verknaðinum, heldur ber fyrir sig minnisleysi. Móðurfjölskyldan stendur hins vegar þétt við hlið stúlkunnar. „Jólin vora það allra versta, að þurfa að óska honum gleðilegra jóla og þakka honum fyr- ir jólagjafirnar, eftir það sem hann hafði gert mér, það er mikill léttir að hafa tekið þá ákvörðun að um- gangast hann ekki og vera laus við hann,“ segir hún. Nú er sem sagt ýmislegt að baki, og stefnan sett á fram- tíðina. Það er í samræmi við spakmæli nokkurt sem skrifað er á blað sem hengt hefur verið upp í húsnæði Stígamóta: „Við getum skilið líf okkar með því að horfa til baka, en aðeins lifað með því að líta til framtíðar.“ En þótt stelpurnar sem ég sit hjá hafi haft kjark til að leita þeirrar aðstoðar sem dugði, þá er ekki þar ^ með sagt að allir erfiðleikar séu að | baki. „Það besta við starfsemina hér er að fá að tala við manneskjur sem hafa svipaða reynslu, þótt hún sé ekki alveg eins. Við eram allar með sömu tilfinningamar og það skapar samkennd. Það er ekki hægt að bú- ast við að nokkur verði sáttur við at- burði eins og misnotkun á bams- aldri, en það er hægt að verða sátt- ur við sjálfan sig og það er mikill áfangi,“ segir ein þeirra. Þær segjast allar undrast það hve dómskerfíð sé ótrúlega „miskunnsamt“ í meðferð sinni á ofbeldismönnum sem mis- nota böm. „Menn fá þyngri dóma fyrir að flytja inn fíkniefni en mis- nota bam, þó hefur misnotkun ekki minni eyðileggingu í för með sér. Sá sem má líða kynferðislegt ofbeldi á í alls kyns erfiðleikum áram og ára- tugum saman, ofbeldið hefur áhrif á allt lífshlaup hans og getur í sumum tilvikum leitt til sjálfsvígs eða sjálfs- vígstilrauna." í umræðunum kemur fram að all- ar þessar konur hafa áhyggjur af bömum sem era í kringum þá of- beldismenn sem þær urðu fyrir barðinu á. „Við eigum bæði systkini, böm og frændsystkini sem þessir menn era í námunda við og það tek- ur á taugamar. Ég sá þann sem misnotaði mig taka upp litla telpu, barnabam hans, augnaráð mitt fékk hann til að setja bamið niður eins og hann hefði brennt sig. Það eru mikil líkindi til þess að svona menn haldi áfram að misnota böm ef ekk- ert er gert til þess að koma í veg fyrir það.“ Þrátt fyrir áhyggjur og baráttu sem enn er ekki að fullu séð fyrir endann á hjá öllum er samt létt hljóðið í stúlkunum sex sem unnið hafa saman að því að ráða bót á þeim skaða sem kynferðislegt of- beldi í æsku olli þeim. „Nú er að koma rólegur og góður tími, þar sem hægt er að njóta þess virkilega að vera tíl. Það er búið að opna mál- ið og skila því af sér og kominn tími til að njóta lífsins," segir ein og teygir úr sér með vellíðunarsvip. Það er gleðilegt að sjá hvað þessi unga kona er vel á sig komin, and- lega sem líkamlega, henni virðist að mestu hafa tekist að yfirvinna þann skaða sem ofbeldið gerði henni, hún á sannarlega fyrir því að njóta góðra daga og mun vafalaust takast það. Hið sama á við um hópsystur hennar fimm, þær hafa gengið hart fram og það hefur kostað tár, þjáningar og andvökunætur, en | árangurinn er nú að skila sér í formi I betri líðanar að öllu leyti. Það vekur | manni von um betri heim að sjá * hvað þær era orðnar glaðlegar og óþvingaðar. Það er heldur ekki slæmt að gera sér grein fyrir að þolendur kynferðislegs ofbeldis geta með einbeittri og markvissri vinnu bætt mikið þann skaða sem orðinn var - gerendumir era hins vegar hinir seku og má ætla að líðan þeirra og raunveralegt lífsgengi sé í samræmi við það, þegar upp er [ staðið. | í bæklingi um Stígamót segir: Meginstyrkur Stígamóta felst í því að þar er tekið mark á reynslu þolenda kynferðislegs ofbeldis, gengið út frá henni í öllu starfi, og þar vinna einnig konur, sem sjálfar hafa slíka reynslu. 011 þjónusta Stígamóta er ókeypis og allar per- sónulegar upplýsingar era algjört > trúnaðarmál. A árinu 1997 leitaði 431 einstaklingur til Stígamóta, af I þeim voru 215 að leita sér aðstoðar | í fyrsta skipti. Frá stofnun Stíga- móta 1990 til ársloka 1997 leituðu 2420 einstaklingar aðstoðar í fyrsta skipti. Þess ber og að geta að 3848 ofbeldismenn hafa beitt þessa þolendur kynferðisofbeldi - þetta er mikill smánarblettur á íslensku samfélagi sem allir geta vafalaust verið sammála um að nauðsynlegt | sé að afmá. Það er því mikilvægt að fólk sé vel á verði og láti vita ef það hefur grun um að bam sé misnot- ) að.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.