Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 20

Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 20
12 mn sham .es fluoAŒJMMrjg 20 SUNNUÐAGUR 29. MARZ 1998 aiaAjavfuoHOM MORGUNBLAÐIÐ FRA SKIÐASKALANUM í REYKHOLT „Það eru margir hissa á því hvað ég er að brölta þetta, orðinn svona gamall,“ segir Oli Jón Olason sem verður 65 ára á þessu ári, en kveðst ekki finna fyrir aldrinum. —_-------------------- Oli Jón og kona hans, Steinunn Hansdóttir, hafa tekið á leigu heimavistarhúsnæði Reykholtsskóla í Borg- arfirði og opnuðu þar hótel um síðustu mán- aðamót. Hildur Frið- riksdóttir blaðamaður og Kjartan Þorbjörns- son ljósmyndari heim- sóttu Hótel Reykholt til að heyra hvaða hug- myndir eru uppi um reksturinn, menning- una og framtíðina. HÓTELHALDARARNIR Óli Jón Ólason og Steinunn Hansdóttir stefna að fjölgun gistinóttura á Vesturlandi, sem eru fáar samkvæmt nýlegri könnun. t DAGNÝ Emilsdóttir forstöðumaður Heimskringlu ehf. Samvinna milli Heimskringlu og hótelsins EGAR ég var að byrja í veitingarekstri íyrir um 40 árum, sagði gamalreyndur veit- ingamaður að annað- hvort yrði ég hættur innan tveggja ára eða sama væri hversu oft ég hætti, ég myndi alltaf byrja aftur. Hann hafði rétt fyrir sér. Eg hef dregið mig út úr veit- ingarekstri fjórum sinnum en alltaf dottið inn aftur eftir tiltölulega stuttan tíma,“ segir Óli Jón Ólason. Ferill Óla Jóns sem veitinga- manns hófst árið 1959 þegar hann tók við rekstri Skíðaskálans í Hveradölum, sem hann rak í 10 ár. Því næst lá leiðin til Akraness, þar sem hann tók við rekstri Hótel Akraness af Ferðamálasjóði. Það rak hann í fimm ár og segir að veit- ingareksturinn hafi þá verið kominn í sæmilegt horf, en hótelrekstur hafi ekki átt neina framtíð fyrir sér þar sem húsið hafi ekki verið byggt sem slíkt. „Kröfurnar eru sífellt að breytast," segir Óli Jón. „Þegar ég byrjaði í Skíðaskálanum þótti ægi- lega fínt að hafa herbergi með vaski eins og var til dæmis á Hótel Borg- amesi, en nú þykir slík aðstaða ekki hæfa nema til einnar nætur.“ Hann lauk prófi frá Verzlunar- skóla íslands á sínum tíma og eftir 15 ára starf í veitingarekstri ákvað hann að söðla um og hóf störf við endurskoðun hjá Loftleiðum. Síðan lá leiðin að Laugum í Dalasýslu, þar sem hann réð sig sem bryta í eitt ár. Þau urðu fimm, því á sumrin rak hann sumarhótel fyrir hreppana. Sami gestur getur haft tvenns konar þarfír Óli Jón rak einnig gistiheimili ásamt Steinunni konu sinni í Reykjavík, nánar tiltekið á Miklu- braut. Á sama tíma ráku þau gisti- heimili í Armúla yfir sumartímann, sem tók 80 manns í svefnpokapláss. Hann rifjar upp hversu gaman hann hafði af því að fylgjast með breyt- ingum sem urðu á ferðamönnum eft- ir að þeir höfðu ferðast um landið. „Þegar útlendingar gistu hjá okkur við komuna tU landsins voru þeir feimnir að dveljast innan um aðra gesti. Á heimleiðinni voru þeir ekki í vandræðum jafnvel með að ganga hálfstrípaðir hver innan um annan, enda hafði fólkið vanist því í hinum ýmsu fjallakofum," segir Óli Jón og hlær við tilhugsunina. Hann segir það vera mikinn mis- skilning að einungis fólk með lítil fjárráð gisti í svefnpokaplássum. Hann kveðst hafa lært það í Sviss, að sami ferðamaðurinn geti haft tvenns konar þarfir eins og til dæm- is að fara fínt út að borða þegar hann er með maka sínum. Þegar hann sé á einn á ferð nægi honum einfaldar, fljótlegai- máltíðir. „Einu sinni gistu hjá okkur hjón í svefnpokaplássi sem báru með sér að vera efnuð. Þegar ég forvitnaðist um hvers vegna þau gistu á þennan máta sögðu þau, að það fólk sem vissi allt um náttúru landsins gisti í svefnpokaplássum. Þetta fólk myndu þau ekki hitta á börunum á hótelunum. Þegar þau vildu njóta lífsins þá gistu þau á fínum hótelum. Ég fór að hugsa um það eftirá, að fólkið sat einmitt á kvöldin og sagði hvert öðru frá því sem það hafði séð og heyrt.“ Gamla ferðamála- skýrslan dregin fram Fyrir um 15 árum var Óli Jón ferðamálafulltrúi á Vesturlandi og gerði þá uppbyggingaráætlun fyrir ferðaþjónustu á fjórtán svæðum á Vesturlandi. Reykholt var eitt af þeim. „Þegar auglýst var eftir hug- myndum í fyrra sagði ég við konuna, hvort ekki væri rétt að dusta rykið af einhverjum þessara hugmynda,“ segir Óli Jón. Hann tekur fram, að í fyrstu hafi þau ekki hugsað sér að sjá um reksturinn sjálf. Sú hug- mynd hafi ekki fæðst fyrr en þau voru beðin að útfæra tillögur sínar nánar. „Það var þó ekki fyrr en í september að við vorum spurð hvort við værum tilbúin að taka við rekstr- inum, ef okkar hugmynd yrði ofan á.“ Um jólin fengu þau að vita að samið yrði við þau. Þá var Óli Jón markaðsstjóri hjá Fjarðarpóstinum og Kópavogspóstinum. Þegar sagt var frá því, að þau hjón tækju að sér rekstur Reykholts kom fram í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu, að auk hefðbundins gisti- og veitingarekstr- ar yrði lögð áhersla á tengsl við sögu staðarins. Þegar Óli Jón er spurður hvaða hugmyndir þau hafi í þessa átt segir hann þær vera margar. Stendur síðan upp til að ná í gömlu skýrsluna frá 1985 og segir að margt af því sem þar hafi verið stungið upp á hafi verið framkvæmt, þótt það hafi ekki allt einskorðast við Vesturland. Hann segir að hugmyndirnar í skýrslunni hafi fyrst og fremst verið fyrir heimamenn að vinna úr, svo sem ferðir upp á Snæfellsjökul og Langjökul, sem hvort tveggja sé nú komið. „Einnig voru hugmyndir sem urðu ekki að veruleika. I gagnrýni Ástþórs Magnússonar kom til dæm- is fram að ég ætlaði að halda svall- veislur héma,“ segir Óli Jón og brosir góðlátlega. „Það var nú svo- lítið til í því á sínum tíma,“ heldur hann áfram íbygginn. „Ég stakk upp á því að innrétta veitingasöluna í fornum stíl og að fólki yrði boðið upp á mat undir n'mnakveðskap eða einhverju slíku. Ég sá fyrir mér, að „VIÐ höfðum horft upp á fjölda ferðamanna streyma að Snorra- styttu, Snorralaug og svo aftur út í bfl. Nauðsynlegt þótti að sinna gestum staðarins og þess vegna réðst Reykholtssöfnuður í að byggja Reykholtskirkju og Snorra- stofu. Hlutverk Snorrastofu er að rækja minningu Snorra Sturluson- ar og þeirra sem komið hafa við sögu staðarins," segir Dagný Emilsdóttir forstöðumaður Heimskringlu ehf., dótturfyrirtæk- is Snorrastofu. Hlutverk Heimskringlu er að sjá um daglegan rekstur Snorra- stofu, að annast tónleikahald í Reykholtskirkju og að veita ferða- mönnum upplýsingar um hvaða möguleikar bjóðast í héraðinu. Dagný er bjartsýn á reksturinn á hótelinu en kveðst geta tekið undir með öðrum heimamönnum um að draumurinn hefði verið að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.