Morgunblaðið - 29.03.1998, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Málfundafélagið Óðinn hefur gætt hagsmuna launafólks innan Sjálfstæðisflokksins í sex áratugi
^ Ivar Andersen
Innan Oðins
stétt með
Morgunblaðið/RAX
starfar
stétt
ÞAÐ ER engin tilviljun að Sjálf-
stæðisflokkurinn stendur traust-
um fótum meðal launþega eins og
fjölmargar skoðanakannanir sýna
enda hafa þeir átt ríkan þátt í
stefnumörkun hans og átt greiðan
aðgang að forystumönnum flokks-
ins segir Ivar Andersen, starfs-
maður Olíufélagsins, og formaður
Málfundafélagsins Óðins. ívar
ræðir hér um starf og helstu
stefnumál félagsins og segir álit
sitt á verkalýðsmálum.
Um Qög^ur hundruð félagar eru
nú í Óðni og segir ívar að starfíð
hafí farið minnkandi í félaginu á
siðustu árum eins og hjá mörgum
öðrum félögum. „Fundaformið í
starfi félaga virðist smám saman
vera að ganga sér til húðar og
verða undir í samkeppni um frí-
tíma fólks. Meðalaldur félaga er
orðinn nokkuð hár en við höfum
hug á að nota afmælið til að
kynna Óðin og afla nýrra félaga.
M.a. viljum við efla starf félagsins
í verkmenntaskólum. Þá var
stjórnarmönnum félagsins nýlega
fækkað úr tólf í sjö í því skyni að
gera stjórnina snarpari og skil-
virkari.“
Innra starf félagsins, þ.e.a.s það
starf sem snýst um málefnavinnu
og þátttöku í viðburðum á vegum
flokksins, er með ágætum að sögn
Ivars en hann telur mikilvægt að
auka hlutjþess út á við. „I full-
trúaráði Oðins eru launamenn
með víðtæka reynslu úr öllum
greinum atvinnulífsins. Þeir
skynja betur en margir aðrir þær
miklu breytingar sem nú eru að
verða á atvinnulífi landsmanna
með sameiningu fyrirtækja og
víðtækum hagræðingaraðgerðum.
Þessar breytingar hafa ýmsa
kosti í för með sér en einnig galla
og það er hætt við að þeir komi
helst niður á launafólki. Tryggja
þarf að ekki verði gengið á rétt
þess og ekki verði flanað að
breytingum, sem hafa áhrif á af-
komuöryggi ótal fjölskyldna. Við
erum ekki á móti einkavæðingu
en teljum að hún megi ekki verða
nema tryggt, sé að kjör starfs-
manna skerðist ekki.“
Þörf á að efla félagið
ívar telur að Óðinn hafi staðið
sig vel við að túlka sjónarmið
verkamanna innan Sjálfstæðis-
fiokksins, ekki síst hinna lægst-
launuðu. „Við viljum efla félagið
enn frekar á því sviði og með því
að fjölga félögum vonumst við til
að geta enn frekar aukið breidd
þess og túlkað fleiri sjónarmið."
En er þetta ekki fremur hlut-
verk hefðbundinna verkalýðsfé-
Rætt við Ivar
Andersen, for-
mann Oðins
laga og má ekki segja að laun-
þegasamtök innan stjórnmála-
flokka séu tímaskekkja?
Ivar neitar því og segir að fá-
mennur hópur, sem standi gegn
öllum breytingum, stjórni flestum
verkalýðsfélögum. „Það er mjög
erfitt fyrir hinn almenna félags-
mann að hafa raunveruleg áhrif á
starf verkalýðsfélaga og ekki síst
þess vegna er full þörf á félagi
eins og Óðni þar sem menn berj-
ast fyrir hagsmunamálum sínum
án þess að þeir séu dregnir í
dilka eftir starfsstéttum. í Óðni
vinna t.d. saman hlið við hlið
borgarstarfsmenn, Dagsbrúnar-
menn, iðnnemar og jafnvel eftir-
launaþegar og læra þannig tillits-
semi hver gagnvart öðrum. Fund-
ir um kjaramál snúast ekki um
þennan endalausa samanburð
milli stétta eða hvort ein stéttin
hafi fengið meira en önnur. Það
skiptir ekki síður máli hvað hægt
er að fá fyrir launin en hvað
krónurnar eru margar. Mér
finnst verkalýðshreyfingin t.d. al-
gerlega hafa brugðist í mörgum
stærstu kjaramálunum en þar á
ég að sjálfsögðu við neytendamál
og skattamál. Það yrði t.d. gífur-
leg kjarabót ef innflutningur
landbúnaðarvöru yrði gefinn
frjáls og tollar á matvæli lækkað-
ir eða afnumdir en þetta virðist
verkalýðshreyfingin ekki hafa
komið auga á. Þá brást verka-
lýðshreyfingin algerlega þegar
R-Iistinn lagði á holræsaskattinn
þvert ofan í gefin loforð, og
hækkaði strætisvagnafargjöld
unglinga og aldraðra um 100%.
Þessar skatta- og gjaldskrár-
hækkanir komu verst niður á
tekjuminnstu hópunum í þjóðfé-
laginu. Þetta eru hóparnir sem
geta síst borið hönd fyrir höfuð
sér og treysta á verkalýðshreyf-
inguna til að verja sig fyrir svona
árásum. Verkalýðshreyfingin
megnaði ekki að gera það og því
þurfa aðrir að taka upp merkið."
Velferð fyrirtækja og
verkalýðs fer saman
Óðinn hefur ætíð varað við
þeim málfiutningi vinstri manna
að stilla fyrirtækjum og verka-
mönnum upp sem andstæðingum
og lagt áherslu á að þessir aðilar
fái báðir að njóta sín. „Þar hafa
kjarabætur orðið mestar þar sem
skattar á atvinnulíf og launþega
hafa verið lágir. Fólkið hefur
þannig verið hvatt til að vinna og
fyrirtækin hvött til að græða. Ég
er ekki í vafa um að hin mikla
kaupmáttaraukning sem varð á
síðasta ári stafar af bættri af-
komu fyrirtækja sem má að stór-
um hluta rekja til þeirrar ákvörð-
unar ríkisstjórnarinnar á síðasta
kjörtímabili að lækka tekjuskatta
fyrirtækja verulega. Eftir því sem
fyrirtækin auka hagnað sinn,
eykst eftirspurn eftir vinnuafli og
launin hækka. Með auknum gróða
fjárfesta fyrirtækin einnig í frek-
ari atvinnurekstri og það dregur
einnig úr atvinnuleysi. Ekki má
heldur gleyma þeirri miklu kjara-
bót sem felst í stöðugleikanum því
þá eru launahækkanir ekki jafn-
óðum teknar til baka eins og
gerðist á verðbólguáratugunum.
Undir sfjórn Sjálfstæðisflokksins
hefur ríkt hér lengsta stöðug-
leikatímabil í sögu lýðveldisins og
slíku væri ekki að heilsa ef vinstri
stjórn hefði haldið um valdataum-
ana.“
Öflugir málsvarar
ívar segir eina helstu ástæðu
þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
jafnmikið fylgi og raun ber vitni
að flokkurinn hafi ætíð borið
gæfu til að styðja framboð laun-
þega til sveitastjórna og Alþingis.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt
marga verkalýðsleiðtoga sem
hafa komið ýmsum góðum málum
í höfn og þeir hafa látið rödd
launþega hljóma. Þessir leiðtogar
hafa flestir skilið að þarfir verka-
lýðsins og atvinnulífsins hafa far-
ið saman og átt frumkvæði að
miklum framfaramálum. Af
mörgu er að taka en nefna má til-
lögu um skattaafslátt vegna
kaupa á fyrstu íbúð og Ijölmarg-
ar tillögur um lífeyrismál. Guð-
mundur H. Garðarsson, sem lengi
var formaður Verzlunarmannafé-
lagsins, lagði t.d. fram frumvarp
á Alþingi 1975 um lífeyrissjóð
allra landsmanna og var í farar-
broddi þeirra sem börðust gegn
einokun ríkisins á útvarpi og
sjónvarpi. Þótt um tvö ólík mál sé
að ræða bera þau vitni um mikla
fyrirhyggju og sýna að frum-
kvæði í mikilvægum málaflokkum
hafa komið úr launþegahreyfingu
flokksins og náð fram að ganga á
Alþingi. Öflugt starf Málfundafé-
lagsins Óðins í framtíðinni trygg-
ir að launamenn munu áfram
eiga greiða leið að stefnumótun
og til áhrifa á vettvangi Sjálf-
stæðisflokksins," segir Ivar að
lokum.
Barðist gegn
pólitískri mis-
notkun verka-
lýðsfélaga
Málfundafélagið Óðinn, félag sjálfstæðis-
manna í launþegasamtökum, er 60 ára í
dag. Kjartan Magnússon stiklar á stóru í
-------------------------—-7------------
sögu félagsins og ræðir við Ivar Andersen,
núverandi formann þess.
ÁLFUNDAFÉLAGIÐ
Oðinn var stofnað 29.
mars 1938 á fundi í Varð-
arhúsinu gamla við Kal-
kofnsveg. Stofnendur félagsins
voru rúmlega fjörutíu talsins, sjó-
menn og verkamenn og níu mánuð-
um síðar voru þeir orðnir um 290.
Frá stofnun var það eitt helsta
hlutverk félagsins að skipuleggja
baráttu sjálfstæðismanna í verka-
lýðshreyfingunni í Reykjavík en fé-
lagið var einnig samstarfs- og sam-
komuvettvangur launamanna. Það
hélt málfundi þar sem verkamenn,
fylgjandi Sjálfstæðisflokknum,
komu hagsmunamálum sínum á
framfæri og æfðu sig í ræðu-
mennsku. Þá var gefið út innanfé-
lagsblaðið Vilji þar sem menn
skrifuðu um hugðarefni sín. Þá
stóð félagið fyrir ýmsum skemmt-
unum og hópferðum um landið. A
meðan bílaeign var ekki almenn
voru slík ferðalög oft eina tækifæri
alþýðufjölskyldna til að kynnast
landinu.
Hörð barátta um
verkalýðshreyfinguna
Á fjórða áratugnum var verka-
lýðshreyfingin óspart notuð í póli-
tískum tiigangi og var oft harka-
lega tekist á um völdin í einstökum
félögum eða samböndum hennar.
Stjómmálaöfl, aðallega jafnaðar-
menn og kommúnistar, reyndu að
eigna sér verkalýðshreyfmguna og
segja má að sú tilhneiging hafi náð
hámarki á árunum eftir 1930 þegar
Alþýðusambandið var innlimað í
Alþýðuflokkinn og hélst sú skipan
nokkuð á annan áratug. Jafnaðar-
menn gripu til þessa ráðs í hat-
rammri baráttu við kommúnista
um völdin í verkalýðshreyfingunni
en kommúnistar klufu sig út úr AI-
þýðuflokknum árið 1930.
Mörgum blöskraði slík notkun á
verkalýðshreyfingunni og töldu
hana koma niður á hagsmunamál-
um hennar. í þessari baráttu fór
ekki hjá því að menn væru dregnir
í dilka eftir pólitískum skoðunum.
Tveir meginhópar, kratar og
kommúnistar, börðust um völdin
en þeir, sem voru óflokksbundnir
eða fylgdu öðrum flokkum að mál-
um, urðu utanveltu í starfi verka-
lýðshreyfingarinnar. Mörgum
fannst þessir starfshættir vera
ólýðræðislegir og hrein og bein
misnotkun á hreyfingunni.
Málfundafélagið Óðinn og mörg
önnur launþegafélög sjálfstæðis-
manna um land allt voru ekki síst
stofnuð til að berjast gegn þessu
óréttlæti. Eitt helsta baráttumál
félagsins i upphafi var þvi að krefj-
ast þess að menn hefðu rétt til
frjálsrar, pólitískrar skoðunar i
stéttarsamtökum sínum.
Lagt til atlögu
Fljótlega eftir stofnun Óðins
fóru sjálfstæðismenn að seilast til
áhrifa í reykvískum verkalýðsfé-
lögum með skipulegum hætti. í
ársbyrjun buðu þeir fram lista í
stjórnarkosningu í Dagsbrún til að
draga úr sterkum áhrifum komm-
únista og alþýðuflokksmanna í fé-
laginu. Listi Sósíalistaflokksins
undir forystu Héðins Valdimars-
sonar hlaut 660 atkvæði og sigraði.
Mikla athygli vakti hins vegar að
listi sjálfstæðismanna hlaut næst-
flest atkvæði, 427, en listi Alþýðu-
flokksins 409. Sjálfstæðismenn
urðu þannig í fyrstu tilraun
sterkara afl í reykvískri verkalýðs-
hreyfingu en Alþýðuflokkurinn.
sem hafði reyndar klofnað skömmu
áður. Tveimur árum síðar buðu Óð-
insmenn og Alþýðuflokkurinn fram
stjórnarlista í Dagsbrún gegn Sósí-
alistaflokknum og unnu kosning-
una. Héldu þeir völdum í samstarfi
við aðra, t.d. stuðningsmenn Héð-
ins Valdimarssonar eftir að hann
hafði sagt sig úr Sósíalistaflokkn-
um; í fjögur ár, til 1942.
Á fimmta áratugnum má finna
mörg dæmi um að sjálfstæðismenn
seildust til áhrifa í ýmsum verka-
lýðsfélögum um landið, ýmist einir
FUNDUR í málfundafélaginu Óðni. í fremstu röð sitja f.v. Guðmund-
ur Guðmundsson, Haukur Helgason, Bjarni Bentsson og Guðmundur
Nikulásson. í næstu röð sjást m.a. Meyvant Sigurðsson og Stefán
Gunnlaugsson.
>
I
I
>
I
\
>
>
)
)
I
I
)
>