Morgunblaðið - 29.03.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.03.1998, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Svisslendingur og Austurríkismað- ur, bæði stoðtækjafræðingar og bæklunarskósmíðameistarar. „Ég lærði mikið af þessum mönnum, sem voru allir ungir og nýútskrifað- ir. Ég var heppinn að lenda á mönnum sem höfðu náð frábærum árangri í námi. Ég fékk því margar hugmyndir og lausnir, sem ég hafði ekki séð annar staðar," segir Kol- beinn. Hann lauk þó aldrei námi í stoð- tækjafræði og hefur staðið í tölu- verðri stappi við að fá nám sitt formlega viðurkennt. „Til stóð að semja reglugerð um réttindi og skyldur stoðtækjafræðinga, stoð- tækjasmiða og bæklunarskósmiða. Hún er ekki enn frágengin, en þeg- ar það verður reikna ég með að fá réttindin, því ég hef verið í grein- inni í um 20 ár,“ segir hann. 11 milljóna króna sparnaður Nýjungar í stoðtækjum eru sí- fellt að koma fram og segir Kol- beinn frá nýju spelkukerfi frá Belg- íu, sem hann kveður vera byltingu í sérsmíði. Hann fullyrðir að með því að taka upp þessa aðferð sparist verulegar fjárhæðir í heilbrigðis- kerfinu. „Um 200 bakaðgerðir eru gerðar á ári. Ég hef reiknað út að spamað- ur getur orðið 11 milljónir króna árlega ef notaðar eru neonfragt- spelkur í stað sérsmíðaðra plast- spelkna. Með því að taka einnig fót- og handarbrot inn í verður sparn- aðurinn enn meiri. Neonfragtspelk- ur er hægt að taka af og setja aftur á eftir þörfum. Einungis 20 mínút- ur tekur að sérsmíða bakspelkur (brotabakbelti), þær falla vel að lík- amanum og kosta um 23 þúsund krónur stykkið í stað 70-90 þúsund krónur úr harðplasti," segir Kol- beinn, sem fékk kennararéttindi frá Belgíu síðastliðið sumar í þessari aðferð. Hörð samkeppni Þar sem íslenski stoðtækjamark- aðurinn er lítill og samkeppnin mikil hafa menn leitað nýrra leiða innan þessa geira til að forðast að hafa öll eggin í sömu körfu. „Rekst- urinn er erfiður á þessu sviði og fyrirséð að við munum ekki geta selt ríkinu meira en nú er. Eini möguleikinn er að þróa aðra hluti og leita erlendra markaða," segir Kolbeinn. Hann tekur fram að fyrirtækjun- um væri eflaust fyrir bestu að sam- einast en hefur ekki trú á að svo verði nokkurn tíma. Þó er nú svo komið, að samkeppnisaðilar eru famir að vinna saman. Fyrir örfá- um vikum stofnaði Kolbeinn fyrir- tækið Remex ásamt tveimur af eig- endum Stoðar hf., stoðtækjafræð- ingunum Atla Ingvarssyni og Guð- mundi Magnússyni. hf. Bandarískt fyrirtæki, Alps, á jafn stóran hlut í fyrirtækinu og Kolbeinn eða 33%. Að sögn Kolbeins hefur Alps stóra markaðshlutdeild í sílikonhulsum. Framkvæmdastjóri Remex er Tryggvi Sveinbjörnsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Ossurar hf. „Remex er markaðs- og sölufyrir- tæki á stoðtækjum en einnig er lögð mikil áhersla á þróun og ný- sköpun. Til dæmis hafa Atli og Guðmundur í samvinnu við Alps þróað nýja sílikonhulsu," segir Kol- beinn. Hann bætir við að starfsem- in verði að mestu miðuð við erlenda markaði og þá á nokkuð breiðum grundvelli. Þróunarstyrkur Kolbeinn er einnig í samstarfi við þýskt og hollensk stórfyrirtæki um þróun á bæklunarskósmíði í gegn- um skóverksmiðjuna Skrefið hf. á Skagaströnd, sem hann keypti í fyrra. Hlaut Stoðtækni meðal ann- ars styrk frá Rannsóknarráði til þessa þróunarstarfs. „Ég verð ekki framleiðandi heldur hönnuður að nýrri aðferð," segir hann og bætir við að hvorugt fyrirtækið verði í beinni samkeppni við Össur hf., því það fyrirtæld sé á ákveðnum mörk- uðum og leggi megináherslu á sí- líkonhulsur til útflutnings. „Heimurinn er stór og þótt fyrir- tækin verði tvö á íslandi sem flytja út þá er það eins og dropi í hafið. Össur hefur skapað íslandi gott nafn á þessu sviði og því er auðveld- Morgunblaðið/Þorkell Á TTA SKÓSMIÐIR í ÆTTINNI Effir Hildi Friðribdóftur VIÐSKIPnAIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ►Kolbeinn Gíslason fæddist 1955 í Reykjavík. Hann lærði skósmíði hjá föður sínum, Gísla Ferdinandssyni, síðan bækl- unarskósmíði hjá Ferdinand Róbert Eiríkssyni í Hafnarfirði og lauk sveinsprófí 1981. Sama ár tók hann við rekstri skó- smíðaverkstæðis Gísla Ferdinandssonar hf. af föður sínum. Meistaraprófí í orthopedískri skósmíði lauk hann í Dan- mörku árið 1989. Síðan þá hefur hann unnið sem stoðtækja- fræðingur og er nú eigandi Stoðtækni-Gísla Ferdinandsson- ar ehf. Starfsmenn eru 15 og framkvæmdasijóri er Áshildur Jónsdóttir. Kolbeinn keppti í júdó á Ólympíuleikum 1984 á heimsmeistaramóti 1989 og var fyrsti íslenski alþjóðadómar- inn í júdó. Kolbeinn á Qögur börn á aldrinum 7-24 ára og er kvæntur Ingibjörgu Sigtryggsdóttur. VARLA var fæti niður stíg- andi fyrir skókössum, þegar blaðamaður kom inn í Stoðtækni - Gísla Ferdinandsson í vikunni. Rýming- arsala stóð yfir vegna væntanlegs flutnings og þvældist blaðamaður hálfvegis fyrir viðskiptavinunum í plássleysinu meðan hann beið eftir eigandanum, Kolbeini Gíslasyni. „Vantar þig ekki skó? Nú er tæki- færið til að gera góð kaup áður en við flytjum," sagði Kolbeinn um leið og hann kom blaðskellandi upp úr kjallaranum, þar sem hann hefur vinnuaðstöðu. „Það er orðið alltof þröngt um okkur og þar fyrir utan er miðbærinn orðinn eitt óvin- sælasta umhverfið fyrir bíleigend- ur. Gott aðgengi er nauðsynlegt fyrir starfsemi eins og okkar og því hentar Kringlan vel,“ segir hann þegar við höfum komið okkur fyrir inni á skrifstofu sem er í senn skoð- unarherbergi. Ætt fram af ætt Óhætt er að segja að Kolbeinn tilheyri einni þekktustu skóaraætt á landinu. Afi hans, Ferdinand Ró- bert Eiríksson, var skósmiður á Hverfisgötu frá 1918 og í fótspor hans fylgdu tveir synir hans, þeir Eiríkur og Gísli, faðir Kolbeins. Sjálfur var Kolbeinn ekki nema 10—11 ára þegar hann var farinn að vinna við skóviðgerðir á sumrin og um 13 ára aldur hafði hann tekið ákvörðun sína. Bæklunarskósmiður skyldi hann verða. Leiðin lá í Iðnskólann og var hann fyrst á samning hjá fóður sín- um en færði sig síðan yfir til Ferdinands fóðurbróður síns. „Ég var f námi með hléum því mér lá svo mikið á á þessum árum,“ segir hann. „19 ára var ég kominn með konu og tvö böm, hús og bíl og allt hvað þurfti, en 21 árs var ég skil- inn. Upp úr því dreif ég mig í að klára skólann.“ Nú er sonur hans, Gísli Ferdinand, að læra skósmíði hjá föður sínum og bróðir Kolbeins, Matthías Rúnar, er fyrrverandi nemandi hans í bæklunarskósmíði, en hann lauk prófi frá Danmörku fyrir nokkrum árum. Auk þess er Jón Gestur Ármannsson (Eiríks- sonar) bæklunarskósmiður hjá Stoð hf. Kolbeinn varð alfarið eigandi fyr- irtækisins síðastliðið haust, þegar Gísli faðir hans dró sig í hlé, enda orðinn sjötugur og hafði unnið eins og forkur alla tíð. Hann stofnaði fyrirtækið 1956 í Lækjargötu 6, þar sem það hefur verið síðan, þótt breyting hafi orðið á eignaraðild og nafni. í síðasta mánuði stofnaði Kolbeinn nýtt hlutafélag um skó- viðgerðaverkstæðið, Skósmiðinn ehf., með Halldóri Guðbjömssyni, skósmið og júdókappa. Hyggjast þeir loka verkstæðinu í Lækjargöt- unni í sumar og flytja starfsemina í Miðjuna í Smárann en einnig opna annað skóverkstæði í Hagkaupi, Skeifunni. Þegar Kolbeinn tók við fyrirtæk- inu lagði hann einkum áherslu á að smíða innlegg og skó, sem varð fljótlega aðaluppistaðan í rekstrin- um. „Eftir að ég hafði keppt á heimsmeistaramótinu í Maastricht fór ég á námskeið til Birkenstoek- fyrirtækins í Þýskalandi, sem er þekkt fyrir sandala sína og innlegg. Þegar ég kom heim byrjaði ég á innleggjasmíðinni og var vinnu- plássið um einn fermetri," segir hann. Þá vom Halldór Arnórsson og Össur fyrir á markaðnum og Stoð kom til sögunnar skömmu síð- ar. „Þá strax upphófst hasarinn á milli fyrirtækjanna, sem hefur loð- að við síðan. Meðal annars átti að beita mig viðskiptaþvingunum," segir Kolbeinn kankvís. Fyrirtækin keyptu öll inn frá Svíþjóð, en þegar Kolbeinn komst að því að Svíarnir keyptu efnið frá Þýskalandi sneri hann sér þangað. „Þar kostaði efnið einungis brot af verðinu frá Sví- þjóð. Þegar samkeppnisaðilar mínir hér vildu líka fara að kaupa frá Þýskalandi hringdu Þjóðverjarnir til mín og spurðu hvort fyrirtækin væru góð og ábyggileg. Dæmið snerist því fullkomlega við,“ segir Kolbeinn og hlær nú hressilega. Hann kveðst hafa haldið sínu striki með smíðina og hóf „innflutn- ing á Þjóðverjum" eins og hann segir meðan hann var að ljúka meistaranámi sínu. Alls unnu hjá honum 14 manns, Þjóðverjar, ( Stoðtækni • Gísli Ferdinandsson ehf. ) 94% 33% 50% 90% C Skrefið hf. ) ( Remex hf. ) Cskósmiðurinn ehf.) Csjóntækni ehf.) Skóverksmiðja á Skagaströnd Markaðs- og sölu- fyrirtæki á stoðtækjum Skóverkstæði Eignarhalds- fyrirtæki Aðrir eigendur eru Verkal.- og sjóm.fél. Skagastrandar og Pétur 1. Pétursson í eigu innlendra og erlendra aðila (ALPS Inc. í Banda- ríkjunum, íslenskir stoð- tækjafræðingar og fleiri) Hinn helminginn á Halldór Guðbjömsson skósmiður 10 % á Karl Kreinig augnlæknir í Austurríki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.