Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 44
44 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
Yt ' ...-..-
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Leyndardóm-
ur trúarinnar
í hugvekju dagsins
segir séra Heimir
Steinsson m.a.:
Af þessum sökum er
hverjum kristnum
manni skylt að virða
heilaga Maríu og
sýna henni viðeigandi
lotningu.
í DAG er fimmti sunnudagur í
fostu, boðunardagur Maríu. Guð-
spjall dagsins samkvæmt fyrstu
textaröð er að finna hjá Lúkasi, í
fyrsta kapítula, versunum 26 til
38. Þar getur að líta frásögnina
undursamlegu af því, er engill-
inn Gabríel var sendur frá Guði
„til meyjar, er var föstnuð
manni, sem Jósef hét, af ætt Da-
víðs, en mærin hét María. Og
engillinn kom inn til hennar og
sagði: Heil vert þú, sem nýtur
náðar Guðs! Drottinn sé með
þér“. En María varð hrædd við
þessi orð. Og engillinn sagði við
hana: „Óttast þú eigi, María, því
að þú hefur fundið náð hjá Guði.
Þú munt þunguð verða og son
ala, og þú skalt láta hann heita
Jesúm. Hann mun verða mikill
og kallaður sonur hins hæsta.
Drottinn Guð mun gefa honum
hásæti Davíðs töður hans, og
hann mun ríkja yfir ætt Jakobs
að eilífu, og á ríki hans mun eng-
inn endir verða.“ Þá sagði María
við engilinn: „Hvemig má þetta
verða, þar eð ég hef ekki karl-
manns kennt?“ Og engillinn
sagði við hana: „Heilagur andi
mun koma yfír þig og kraftur
hins hæsta mun yfirskyggja þig.
Fyrir því mun og bamið verða
kallað heilagt, sonur Guðs.“
Verði mér eftir
orðum þínum
Ofanrituð saga greinir frá
frumkvæði Drottins Guðs. Upp-
tök máls eru hjá Guði. Hann
sendir engilinn Gabríel og felur
honum að birta Maríu fyrirheitið
um fæðingu sonar. Guð er and-
inn heilagi, sem kemur yfir kon-
una ungu. Kraftur Guðs yfir-
skyggir Maríu. Hún er útvalin af
Guði til að verða farvegur hans
inn í mannheim.
Þannig er athöfnum Guðs far-
ið. Hans er mátturinn. Guð ræð-
ur, en mennimir þenkja, - eins
og komizt er að orði í gömlu mál-
tæki.
Þar með er þó ekki öll sagan
sögð. Guðspjalli dagsins lýkur
með því, að María tekur enn til
máls og segir: „Sjá, ég er ambátt
Drottins. Verði mér eftir orðum
þínum.“ - Guð hefur gefið mann-
inum frjálsan viija. Faðirinn á
himnum þröngvar ekki neinum
til trúar. Maðurinn bregzt af
sjálfs dáðum við frumkvæði föð-
urins. Enginn getur komið í veg
fyrir, að ég afneiti Guði, ef ég vil.
María var heldur ekki knúin til
að hlíta fyrirætlun Drottins. Hún
var frjáls að því að hafna útvaln-
ingu hins hæsta.
En María haftiaði engan veg-
inn þeim boðskap, sem til hennar
var snúið, afneitaði ekki Guði né
áformi hans. Hún kvaðst þvert á
móti vera „ambátt Drottins“ og
beygði sig fyrir orði Guðs.
Fæðing frelsarans í þennan
heim var þannig ekki einvörð-
ungu vilja Guðs að þakka, heldur
einnig trú Maríu, hlýðni hennar.
Þessa trú vegsamar kirkja
Krists og nefnir hina imgu heit-
konu Jósefs „heilaga Maríu" og
„móður Guðs“.
Ritning og arfleifð
Eiginlega vitneskju vora um
Maríu guðsmóður höfum vér alla
úr Heilagri ritningu. Raun-
kristnir menn véfengja ekki
Guðs orð. í hverri guðsþjónustu
játar kirkja vor trú á það, að
Jesús Kristur sé „getinn af
heilögum anda, fæddur af Maríu
mey“. Þessi er sameiginleg full-
vissa velflestra kirkjudeOda,
byggð á Ritningunni, grundvöll-
uð á fyrr nefndu guðspjalli þessa
Drottinsdags. Þannig heiðrum
vér trú Maríu og hlýðni hennar.
Þannig þakka kristnir menn
guðsmóðurinni hennar þátt í
hjálpræðisverkinu.
Kristnir menn hafa sumir
hverjir aukið nokkru við vit-
neskju sína um Maríu. I aldanna
rás er til orðinn mikill bálkur
sagna og ljóða um guðsmóður.
Þessar sögur eru hluti af „arf-
leifð“ þeirra kirkna, sem hlut
eiga að máli. Vor eigin kirkja
rækir ekki nákvæmlega þessa
arfleifð í helgihaldi sínu eða guð-
fræði. En vér virðum trú krist-
inna bræðra og systra hvarvetna
í heiminum.
Heilög ritning er grundvöllur
evangelisk-lútherskrar trúar.
Vér eigum einnig vora „arfleifð“,
t.d. sálma kirkju vorrar og fjöl-
margt annað. En sú arfleifð
skipar ekki sama sess í hugum
vorum og Guðs orð. Ritningin
ein á þar óhaggað sæti á innsta
bekk. Og sem fyrr greinir veitir
ritningin ein oss þá fræðslu um
Maríu, sem óyggjandi er.
Einstaða Maríu
Þar með er ekki sagt, að
mönnum sé óheimilt að íhuga
stöðu konunnar ungu, Maríu.
Hún var útvalin af Guði til þess
að fæða í heiminn frelsara mann-
anna, son hins hæsta. Hvað segir
þetta um hlutskipti hennar?
Jesús Kristur og Guð faðir eru
eitt. Sá sem hefur séð Krist, hef-
ur séð föðurinn. Þannig hljóða
orð frelsarans sjálfs (Jóh. 10:30
og 14:9). Hann sagði einnig: „Áð-
ur en Abraham fæddist er ég“
(Jóh. 8:58). Drottinn Kristur er
ævarandi Guð til vor kominn í
mynd mannsins Jesú.
Konan, sem fékk það hlutverk
að veita eilífum Guði viðtöku, og
fæða son hans í heiminn, býr við
ríkulega sérstöðu. Hún var raun-
ar útvalin til verkeftiis, sem engu
verður til jafnað. Hún var móðir
Guðs sonar og ól drenginn upp
við kné sér, glæddi hans ein-
stæðu trú og hlúði að þeirri trú,
unz hún bar ávöxt mönnum til
hjálpræðis.
Af þessum sökum er hveijum
kristnum manni skylt að virða
heilaga Maríu og sýna henni við-
eigandi lotningu.
Opinberun
leyndardóms
Allt það, sem Heilög ritning
segir oss um komu Krists í
heiminn, er opinberun leyndar-
dóms. Það á í ríkum mæli við um
frásögnina af boðun Maríu. Vér
tökum við þeirri frásögn í trú.
En það merkir ekki, að vér höf-
um afhjúpað leyndardóminn.
Þvert á móti: Vér beygjum oss
fyrir þeim skilmálum, sem
leyndardómurinn setur.
Leyndardómur trúarinnar
nærist á lofgjörð og tilbeiðslu.
Vér skulum því lúta höfði og
biðja Guð að gefa oss náð til að
segja með Maríu guðsmóður:
„Verði mér eftir orðum þínum.“
Veit þú mér, Drottinn, að
treysta því orði og hlýða, sem
heilög ritning þín beinir til mín,
þennan dag og allar stundir.
Amen.
K.
vELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
A einhver
Radione-tæki?
VE LVAKAND A barst
eftirfarandi bréf frá Fritz
Wech í Austumki:
„Ég er að vinna að
rannsóknarverkefni um
Nikolaus von Eltz og
bróður hans. Árið 1924
stofnuðu þeir útvarpsfyr-
irtæki: Radio Nikolaus
Eltz-Radione. Tækin sem
þeir framleiddu komu til
Islands á þriðja og fjórða
áratugnum. Umboðs-
menn/þjónustuaðilar voru
Friðrik P. Dungal og
Gunnar Bachmann.
Vinsamlegast birtið í
blaðinu litla tilkynningu
eða greinarstúf eftir því
sem við á þar sem leitað
er upplýsinga um það
hvort nokkur á íslandi
eigi enn Radione-tæki.
Viðkomandi myndi hafa
samband við mig. Ég tala
ensku og þýsku og smá-
vegis í frönsku, en hvers
vegna læra ekki bara ís-
lensku?"
Fritz Wech,
Wienerstr. 7
A2345 Brunn a. Gebrige
Österreich.
Hrossasóttin
GUÐRÚN hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hún telja að svokölluð
hrossasótt geti stafað af
því að geysimikið gosefni
hafi dreifst yfir landið eft-
ir Skeiðarárhlaupið og af
þeim sökum stafi einnig
fugladauðinn á Suður-
landi. Hugsanlega gæti
hafa myndast eiturefni í
plastbaggaheyinu sem
hestunum er gefið og
skemmi það innyflin sem
valdi veikinm.
Þekkir einhver
áritunina BK
MÉR áskotnaðist fallegt
olíumálverk af Þingvöll-
um, virðist vera gamalt,
það er áritað BK á sér-
stakan máta, þannig að K
kemur inn í B. Er ekki
einhver sem gæti upplýst
mig um hver málarinn er
og hve gamalt þetta gæti
verið.
Þeir sem gætu gefið
mér upplýsingar vin-
samlega hafið samband
við Guðrúnu í síma 555
3819.
Tapað/fundið
Hálsraen í
óskilum
FYRIR nokkrum dögum
fannst hálsmen á bíla-
stæði í vesturbænum.
Sú sem getur sannað
eignarrétt sinn á gripnum
getur hringt í síma 557
9436.
BÖRN i Nauthólsvík.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Víkverji skrifar...
A
AMORGUN, 30. marz, eru 49 ár
síðan ísland gekk i Atlants-
hafsbandalagið, vamarbandalag
lýðræðisríkja. Stofnríki bandalags-
ins voru Bandaríkin, Belgía, Bret-
land, Danmörk, Frakkland, Hol-
land, ísland, Ítalía, Kanada, Lúx-
emborg, Noregur og Portúgal. Síð-
ar bættust fleiri ríki í hópinn.
Róttækum vinstri mönnum tókst
að gera aðild Islands að Nató að
miklu átakamáli. Það er trú Vík-
veija að reynslan hafi fært heim
sanninn um að aðildin var gæfu-
spor. Það hefur ekki hvarflað að
neinni ríkisstjóm, sem síðan hefur
setið, hvorki hægri né vinstri
stjómum, að hverfa úr Nató. Meira
að segja Alþýðubandalagið undi
sér vel í íslenzkum aðildarríkis-
stjómum að Atlantshafsbandalag-
inu, þótt gömul og spjáð spjöld,
„ísland úr Nató...“, séu viðruð
endmm og eins. Fyrrum austan-
tjaldsríki sækja og fast eftir aðild.
Senn verða Ungveijaland, Pólland
og Tékkland Nató-ríki. Þjóðir
Eystrasaltsríkjanna eiga og fáar
óskir heitari en bætast í þennan
hóp. Og flest bendir til að A-ið á
móti Nató, Alþýðubandalagið,
renni inn í eða saman við A-ið með
Nató, Alþýðuflokkinn.
XXX
SVEITARFÉLÖG hér á landi
vora flest árið 1951,229 talsins.
Árið 1990 er tala þeirra komin nið-
ur í 204. Á h'ðandi áratug hefur
þessi samranaþróun hert á sér.
Þegar kosið verður til sveitar-
stjóma í maímánuði nk. verða
sveitarfélögin trúlega aðeins 124 -
hefur fækkað um 105 frá því þau
vora flest.
Orsök þessarar þróunar - í færri
og stærri sveitarfélög - er marg-
þætt. Fyrst skal nefna byggðaþró-
un, fólksstreymið úr strjálbýh í
þéttbýh, sem kallað hefur á sam;
rana fámennustu hreppanna. í
annan stað hafa stórbættar sam-
göngur fært ýmis áður aðskilin
byggðarlög saman í eitt atvinnu-
og þjónustusvæði. í þriðja lagi
hafa lögbundin verkefni sveitarfé-
laga aukizt það mikið, sem og kröf-
ur íbúa um framkvæmdir og þjón-
ustu, að það þarf stór og sterk
sveitarfélög til rísa undir þeim - og
standast samkeppnina um búsetu
fólks.
Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu era þegar vaxin saman f
eitt atvinnu- og þjónustusvæði.
íbúar þeirra gætu, að mati Vík-
verja, sparað sér feiknmikla fjár-
muni með því að sameinast í eitt
sveitarfélag.
XXX
AÐ VAR mikið um að vera í
Kópavoginum um síðustu
helgi. Fjölbreytt matvælasýning í
íþróttamiðstöðinni í Smáranum og
opnunarhátíð nýrrar verzlunar-
kringlu við Smáratorg. Bærinn
bókstaflega iðaði af lífi.
Víkverji las það í bæjarmála-
blaðinu Vogum að meira hafi verið
byggt í Kópavoginum einum síð-
ustu árin en samanlagt í öðram
sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu. Mest hefur verið byggt af
íbúðarhúsnæði en fleiri byggingar
fylgt í kjölfarið: skólar, leikskólar,
félagsheimih fyrir aldraðra og
heilsugæzlustöð. Tvær nýjar
[þjóðjkirkjur hafa risið í bænum á
síðustu áram, auk stórhýsis Kross-
ins f Hlíðasmára. Stór verzlunar-
kringla hefur risið við Smáratorg
og önnur er sögð í burðarliðnum.
Gerðarsafn, sem þegar hefur getið
sér gott orð, og tónlistarhús, sem
senn rís, bera menningaráhuga
vitni. Aukin atvinnuumsvif og mikil
fjölgun íbúa tryggja bænum tekju-
auka til að rísa undir vaxandi þjón-
ustu.
Víkveija sýnist sem Kópavogur
hafi skotið Reykjavík ref fyrir rass
á mörgum sviðum á hðandi kjör-
tímabili. Fólk og fyrirtæki hafa
flykkzt til bæjarins í ríkum mæh.
XXX
ELDRI kona hringdi í Víkveija
og kvartaði undan „ömurlegri
sjónvarpsdagskrá“. Dagskráin var
að hennar sögn eins og færiband
með „aulamyndum“ - og greinilega
ekki samansett með áhorf sæmi-
lega vitiborins fólks í huga. Ljósi
punkturinn væri sá að dagskráin
gæti vart breytzt nema til hins
betra. Ljótt atama ef rétt er.