Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
DANIEL DAY-LEWIS
EMILY WATSO
THE
BOXER
Einróma lof
gagnrýnenda!
★★★^
★★★^
★★★
★★★
A.S.
Dagsljós
H.L.
MBL
H.K.
DV
ÓHT
Rós 2
______ jjip
!
.Slorki <>o Hlakanleiil di aina... Siiill(larlc*>a leikin"
II.I.. MHl.
„Vol leiknar ojí lrú\ei ðiij*ar |)ersonur...“
OIH. Ras 2
M\ M) 1 IHU
.11.VI SHERIDAN (I NAENl EÖDIJRINS)
HNEFALEIKARINN
FÓLK f FRÉTTUM
SUNNUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 ► 17.30 Eftir að Superman
sló eftirminnilega í gegn árið 1978,
greip um sig æði meðal kvikmynda-
framleiðenda. Allir ætluðu að verða
ríkir á teiknimyndahetjum. Þeirra á
meðal var ítalinn Dino De
Laurentiis og Hvell Geiri (Flash
Gordon, ‘80), spratt fram á tjaldið.
Lítt minnisstæð, þrátt fyrir fram-
bærilega tónlist eftir Queen og lag-
leg leiktjöld. Aðalleikararnir, Sam
nokkur Jones og Melody Anderson,
voru afleitir. Aukaleikararnir,
Topol en þó enn frekar hin und-
urfagra Ornella Muti, lífguðu tals-
vert upp á grínið. irkV.á
Sjónvarpið ► 20.30 Mynd kvölds-
ins Á köldum klaka, (‘94). Sjá um-
fjöllun í ramma.
Stöð 2 ► 21.00 Ást og skuggar
(Of Love and Shadow (‘94), byggir
lítillega og frekar slælega á bók
argentínska skáldjöfursins Isabel
Allende, að dómi AMG. Sem gefur
Með Antonio Banderas og
Jennifer Connelly.
Sýn ► 21.55 Það er enginn annar
en sjálfur James Cameron, sem
sigraði svo eftirminnilega á
Oskarsverðlaunahátíðinni í vikunni
með Titanic, sem leikstýrir Hyl-
dýpinu (The Abyss, ‘89). Það er
ljóst að hafdjúpin heilla leikstjór-
ann, hér heldur hann sig mikið tii
undir yfirborði sjávar. Kjam-
orkukafbátur sekkur við dýpstu
neðansjávargjá í heimi og björgun-
arliðið uppgötvar nýtt lífsform á
botni hennar. Við AI segjum í
Myndbandahandbókinni óskeikulu;
„Cameron býður upp á bestu og
stórkostlegustu neðansjávarmynda-
tökur sem sést hafa í bíó og dælh- í
hana hasar einsog hann gerir best.
En vandi myndarinnar og á endan-
um stórfelld mistök, liggja á gjár-
botninum. ET í undirdjúpunum er
ekki hans besta hlið. Eftir allt sam-
an kafar hún of djúpt niður í hyl-
dýpið. ★★★„
Stöð 2 ► 23.40 Breski leikarinn
Gary Oldman er fantagóður leikari
sem er kominn langt með að eyði-
leggja orðstír sinn í einhæfum hlut-
verkum rugludalla í hverri mynd-
inni á fætur annarri. Hér bregður
hann útaf vananum og leikur sjálf-
an Ludwig van Beethoven í
Ódauðlegri ást (Immortal
Beloved, ‘94), og gerir það giska
vel. Greinir myndin frá tilraunum
einkaritara tónskáldsins heyrnar-
lausa, að hafa uppá hinni dularfullu
konu sem átti hjarta snillingsins.
Það sem uppúr stendur er traust
túlkun Oldmans á hinu kvalda tón-
skáldi og frábærlega endurskapað-
ur tíðarandi í tjöldum og búningum.
Þau standa sig einnig vel, Isabella
Rosselini og Jeroen Krabbé. Leik-
stjóri Bernard Rose. ★★V2
Sæbjörn Valdimarsson.
Furður á
norður-
slóðum
Sjónvarpið ► 20.30
RUV heldur áfram að
rifja upp með okkur af-
rakstur íslenskra kvik-
myndagerðarmanna,
sem er kannski það
merkasta og menningarlegasta
sem sjónvarpsstöðvar landsins
hafa tekið fyrir í vetur. Nú er
röðin komin að Á köldum
klaka, (‘94), sem er sjónrænast
sterkust af verkum Friðriks
Þórs með Ara Kristinsson í lyk-
ilhlutverki kvikmyndatöku-
mannsins. Sú alþjóðlegasta, þó
rammíslensk. Myndirnar sem
hann dregur upp af landinu
okkar eru óvenjulegar í slabbi
og snjóalögum vetrarins, gráar
í skammdegismyrkrinu, kulda-
legar og að lokum heillandi í yf-
irskilvitlegri, ójarðneskri feg-
urð.
Á köldum klaka er óvenjuleg
vegamynd um Japana (Masotshi
Nagase) sem kemur til landsins
um miðjan vetur til að heiðra
minningu foreldra sinna sem
drukknuðu uppá öræfum fyrir
sjö árum. Ferðalagið tekur ýms-
ar stefnur áður en tilganginum
er náð. Japaninn lendir í ólýsan-
legum, framandi hremmingum
og kringumstæðum, en fær fulla
umbun erfiðis síns. Verður fyrir
dulrænni reynslu við leiðarlok
sem mun fylgja honum og
styrkja.
Margir kaflar myndarinnar
eru óvenju sterkir og sitja
manni fyrir hugskotssjónum.
Fyrst og fremst ljóðrænn og
mystískur lokakaflinn, en ekki
síður lítlar og ljóðrænar, svolít-
ið absúrd, senur, einsog karla-
kór í byl uppá vörubílspalli,
sviðakjammar á þorrablóti,
svarthvítt landslag, ljós í göng-
um, eða var mig að dreyma?
Fyndin og frískleg. Með Lili
Taylor, Fisher Stevens, Gísla
Halldórssyni, o.fl. ★★★
Ahættustökk BMW
► FRANSKI áhættuleikarinn Je-
an-Pierre Goy stökk yfir röð
BMW-bifreiða á BMW R 1200
Cruiser mótorhjóli í Berlín á
dögunum. Goy var einn af
áhættuleikurum James Bond
myndarinnar „Tomorrow Never
Dies“ þar sem notuð voru hjól
og bflar af tegundinni BMW.
Stökkið var hluti af kynningu á
mótorhjólasýningu sem haldin
var í Berlin. Hjólið sem hann
notaði er 256 kfló að þyngd en
verðmæti bflanna sem hann
stökk yfír var tæplega 40 millj-
ónir króna.