Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
SKRÚÐGANGA var farin að Háskólabíói
frá Kvennaskólanum.
STUÐNINGSMENN Kvennó mættu með
striðsmálningu, - líka í hárinu.
NEMENDUR Verslunarskólans hylla sína menn
og klappa þeim lof í lófa.
KAPPHLAUP var um sæti í salnum enda
fjölmenntu stuðningsmenn liðanna.
STEMMNINGIN var mikil hjá
stuðningsmönnum Versló.
RAGNAR Guðmundsson frum-
mælandi Verzlunarskólans
leggur áherslu á mál sitt.
ATLI Már Ingólfsson dómari
ábúðarfullur. Úrslitin ráðin og
aðeins eftir að gera þau opinber.
TÓMAS Eiríksson.
Morgunblaðið/Halldór
, liðsstjóri, kyssir bikarinn.
MIKIÐ gekk á hjá liði Kvennaskólans, frá vinstri: Guðni Már Harðarson,
Gumiar Hrafn Jónsson, María Rún Bjarnadóttur og Eyrún Magnúsdóttir.
Verslunarskólinn vinnur Morfís fimmta árið í röð
Mjótt á mummum
BUÐ
af nýjum
vörum
Amerisk sófasett
lampar
úrval rúmdýna
, rúmteppi lök
góð gæði gott verð
Nýborg/#
Armúla 23, sími 5686911
U" RSLITAKEPPNI Morfís,
mælsku- og rökræðukeppni
framhaldsskóla Islands, fór fram í
Háskólabíói síðastliðið fóstudags-
kvöld að viðstöddum þúsund áhorf-
endum. Lið Kvennaskólans í Reykja-
vík og Verslunarskóla íslands
kepptu um bikarinn í þetta skipti.
Gríðarleg stemmning var í salnum
og hörð barátta háð, jafnt milli
ræðuliðanna á sviðinu og stuðnings-
liða á áhorfendabekkjum. Orrustan
sem fram fór í ræðupúltinu var öllu
málefnalegri.
Ræðumenn skiptust á þungum
höggum mælskubragða og hárbeitt-
um sendingum rökvísi á meðan gróf-
arí aðferðum var beitt úti í sal. Par
einkenndist styrjöldin öllu frekar af
hávaða þar sem andstæðar fylkingar
reyndu að yfirgnæfa hvor aðra með
kraftmiklum ómi lungna, lúðra og
ásláttarhljóðfæra.
Umræðuefni kvöldsins var
egóismi. Verslingar mæltu með fyr-
irbærinu og fyrstur sté liðsstjórinn,
Tómas Eiríksson, í pontu og kynnti
lið og málefni. Frummælandi Versl-
inga var Ragnar Guðmundsson.
Hann flutti harðskeyttar ræður af
mikilli tilfinningu. Meðmælandi liðs-
Úrslit Morfís fóru
fram í fyrradag og
voru æsispennandi.
Umræðuefnið var
egóismi. Guðmundur
Ásgeirsson fylgdist
með keppninni.
ins var Herjólfur Guðbjartsson sem
lét hraustlega tO sín heyra með skör-
uglegri framsögn. Stuðningsmaður-
inn, Hafsteinn Þór Hauksson, flétt-
aði sinn flutning rökum, fimlega og
sannfærandi.
Liðstjóri Kvennaskólans var
Gunnar Hrafn Jónsson. Hann kynnti
sitt fólk og frummælandann, Maríu
Rún Bjamadóttur. Hún lék sitt hlut-
verk með tiiþrifum og glans með
ísmeygilegri og írónískri ræðu. Guðni
Már Harðarson gaf henni hvergi eft-
ir enda vel klyfjaður kornflögum.
Næstur tók til máls stuðningsmaður-
inn Eyrún Magnúsdóttir sem sendi
flugbeitt skot sem geiguðu hvergi
með ógnarhraða til andstæðinganna.
Úrslitin voru kynnt eftir spenn-
andi keppni. Biðin eftir niðurstöðu
dómaranna var löng og leikræn, en
þrír nemendur Verslunarskólans
gerðu hana ljúfari með vel heppnuð-
um söng. Lið Verslunarskólans
sigraði með sáralitlum mun og gert
var opinbert að dómarar hefðu ekki
verið á eitt sáttir um úrslitin. Ræðu-
maður kvöldsins var Hafsteinn Þór,
sem tók við verðlaunum sínum við
gríðarlegan fögnuð stuðnings-
manna. Versló hélt því Morfísbik-
arnum.
Þetta er í fyrsta sinn sem Kvenna-
skólinn í Reykjavík kemst í úrslit í
keppninni og aðeins í sjöunda skipti
sem skólinn tekur þátt í henni. Það
kom þess vegna nokkuð á óvart hve
mjótt var á mununum, því rótgróin
hefð er fyrir mælskukeppni í Versl-
unarskólanum. Síðastliðin fjögur ár
hefur skólinn sigrað og hlaut bikar-
inn til eignar 1986. Þetta er fimmta
árið í röð sem Verslunarskólinn ber
sigur úr býtum í Morfís. Síðasti bik-
ar stendur á verðlaunahillu skólans
þar sem hann verður til frambúðar
og nú er að bíða og sjá hvort þessi
hlýtur sömu örlög, sigri ræðulið
skólans á ný að ári.
50 sam-
kynhneigð
pör í
hjónaband
►UM FIMMTÍU samkyn-
hneigð pör gengu í hjóna-
band við formlega athöfn í
San Franciseo nú á dögun-
um. Sum paranna hafið ver-
ið í sambúð í allt að 30 ár
og því mikil gleði að fá
hana staðfesta með þessum
hætti.
Athöfnin, sem fúr fram í
ráðhúsinu í San Francisco,
er ekki viðurkennd utan
borgarinnar og hefur því
ekkert lagalegt gildi annars
staðar í Bandaríkjunum.
Pörin voru þú sammála um
að athöfnin skipti þau
miklu máli.
San Francisco hefur
löngum verið þekkt sem
borg samkynhneigðra þar
sem víðsýni og frjálslyndi
gagnvart þeim þykir vera
meira þar en anuars staðar
{ Baudaríkjunuin.