Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
r * ; 'i
HÁSKÓLABÍÓ
HASKOLABI
Hagatorgi, sími 552 2140
mmm msssm wwm
NYTT 0G BETRA
Tíin n,\T.(ií(i[! r:(f.rí
rnnríf. nr m>im
nfrírr.rí rnjiririwiT'
miDiGnAL
Cí’iS UDÐ[
Sýnd kl. 4.45.
Síöustu sýn.
TnmatrawlMei/erDies,
www.samfilm.is
Úr sjálfheldu
frægðarinnar
BRESKA hljómsveitin Suede var á
hátindi frægðarinnar þegar gítar-
leikari hennar og helsti lagasmiður,
Bernard Butler, ákvað að hætta í
sveitinni, að sögn vegna þess að
hann kunni sviðsljósinu illa. Butler
hætti þó fráleitt að fást við tónlist og
eftir að hafa unnið með ýmsum tón-
listarmönnum hefur hann eiginlegan
sólóferil með sinni fyrstu sólóskífu,
People Move On, sem kemur út 6.
apríl næstkomandi, en meðal þess
sem vekur athygli er að hann syng-
ur sjálfur á skífunni, aukinheldur
sem hann leikur á gítara og fleiri
hljóðfæri.
Bernard Butler segir að það hafi
vissulega verið sérkennilegt að byrja
að syngja eftir að hafa unnið alla tíð
með ýmsum söngvurum, en hann
hafi haft góðan tíma til að venjast
því, „enda byrjaði ég á að synga rétt
eftir að ég hætti í Suede, þegar ég
fór að fást við að semja lög og taka
upp hugmyndir. I fyrstu skiptin
fannst mér ég syngja hörmulega , en
þó verð ég að viðurkenna að ég fer
alltaf hjá mér þegar ég heyri í sjálf-
um mér. Aðalmálið er kannski það
að þegar ég syng er tjáningin bein
og ekkert á milli mín og þess sem
hlustar, það er ekki gítar sem túlkar
það sem ég er að segja, þótt mér hafi
reyndar alltaf fundist mjög eðlilegt
að tjá tilfinningar með gítarhljóm-
um; það er ekki endilega betra að
gera það með orðum.“
Butler segist hafa troðið fyrst
upp með gitarinn fyrir skemmstu í
Lundúnum og kunnað því bráðvel,
það sé enn skemmtilegra að vera
einn í sviðsljósinu en að troða upp
með hljómsveit sem hann hafi þó
alltaf kunnað mjög vel. „Pað kostaði
auðvitað átak að fara að syngja eftir
að hafa haldið mig við gítarinn frá
því ég var unglingur, en ég velti aft-
ur á móti ekki fyrir mér samanburð-
inum við þá Brett [Anderson] og
MacAlmont, sem eru báðir frábærir
söngvarar. Eg kunni þó ekki alltaf
að meta sönginn í Suede og það var
í raun ekki fyrr en ég var hættur í
sveitinni sem ég áttaði mig á því
hvernig söngvara ég var að leita að.
Ég vildi ekki endilega mann með yf-
irburðatækni og óperurödd, frekar
einhvern sem gæti sungið af tilfinn-
ingu. Þannig fannst mér
MacAlmont oft syngja af stakri
snilld tæknilega en tilfinn-
ingalaust."
Butler segir að hann
hafi ákveðið að gera sóló-
skífu til að losna undan því
að vera alltaf að vinna með
öðrum, að vera alltaf að
leita að nýjum samstarfsaðilum.
„Það er svo mikið mál að fá til liðs
við sig nýja og nýja söngvara og tón-
listarmenn sem eru yfirleitt sjálfir
búnir að skapa sér nafn og móta sér
stíl og hafa eigin frama og ferO í
huga. Það er nánast ógerningur að
stofna nýja hljómsveit og ætlast til
þess að hún nái eins vel saman og
gamla sveitin sem var stofnuð af
sextán ára félögum. Mér finnst af-
skaplega gaman að vinna með ólík-
um listamönnum, en ekki að vera i
heimsfrægri hljómsveit sem ferðast
um heiminn á sífelldu tónlistarferða-
lagi í sjálfheldu frægðarinnar. Það
blasti því við að gera eitthvað á eigin
spýtur, meðal annars til að ná að
gera nýja plötu, enda áttaði ég mig á
því að ég hafði í raun engu að tapa
og gat þess vegna gert nánast hvað
sem mér sýndist."
Butler segist ekki óttast saman-
burð við það sem hann hefur áður
gert enda sé allur samanburður á
tónlistarmönnum ómarktækur og
hljóti að byggjast á smekk en ekki
faglegu mati. „Bretar eru afskaplega
þröngsýnir og sífellt að metast um
það hver sé bestur, en mér finnst
það skipta öllu máli hvort viðkom-
andi sé að gera eitthvað af einlægni
og tilfmningu."
Butler bryddar upp á ýmsum nýj-
ungum á skífunni nýju, breytir út af í
útsetningum og tilbrigðum og segist
lengi hafa langað til að bregða á leik.
„Ég fékk ekki að gera það sem mig
langaði þegar ég vai- í Suede, fékk
ekki að brjóta óskráðar reglurnar og
sigrast á fordómunum sem hneppa
okkur alla í fjötra. Mér finnst
Bandaríkjamenn hafa mun heil-
brigðari afstöðu til tónlistar en Bret-
ar, þar eru menn ekki sífellt að bera
hljómsveitir og tónlistarstefnur sam-
an og gleyma því að það eina sem
skipti máli er hversu sannur þú ert í
tónlistinni.“
Bernard Butler segist ekki óttast
um sölu á skífunni nýju, hann eigi
ágæta íbúð og bíl og þurfi ekki miklu
meira. „Mitt hlutverk er að búa til
einlæga tónlist og þótt ég gæti
kannski hagnast meira með því að
laga mig að markaðnum held ég að
það sé betra að eiga minni peninga,
en hreinni samvisku, að
vita að ég hafi verið að
gera mitt besta.“
Tónleikaferð er fyrir-
huguð í sumar, meðal
annars segist Butler
munu leika á útihátíðum
í Evrópu. „Mér finnst gaman að vera
kominn í hljómsveit aftur, ekki síst
að vera að vinna með öðrum gitar-
leikara, því ég hef ekki gert það áð-
ur. Það má þó ekki láta sem ég hafi
verið einn á ferð í hljóðverinu því
það kom grúi tónlistar- og tækni-
manna að plötunni og því eru það
ekki mikil umskipti að vera kominn í
hljómsveit aftur. Það var þó gaman
að byi-ja að æfa lögin fyrh- tónleik-
haldið, því ég leyfði félögum mínum
ekki að heyra plötuna, heldur spilaði
ég lögin fyrir þá á kassagítar og síð-
an unnum við útsetningarnar sam-
eiginlega sem gæðir lögin nýju lífi.
Það er ekki hægt að eltast við plötu-
útgáfur laga, það verður að brydda
upp á einhverju nýju, að sýna tón-
listina í nýju ljósi.“
ARBONNE LOKSINS, LOKSINS!
INTERNATIONAL
--—
" I.P’í
*Sil
Varst þú búin að heyra það?
ARBONNE jurtasnyrtivörurnar
eru komnar í verslanir.
Hágæða snyrtivörur unnar úr jurtum
og jurtaolíum, ofnæmisprófaðar
og að sjálfsögðu án ilmefna.
Leyndardómurinn á bak við þessar snyrtivörur
kemur frá Svissneskum efnafræðingum en
vörurnar eru framleiddar í U.S.A.
Útsölusta&ir:
Reykjavík: Libia, snyrtivöruverslun í Mjódd, Pönglabakka 6.
Reykjavík: Hraunbergs Apótek, Hraunbergi 4.
Akranes: Litla búðin, Esjubraut 13.
Grundarfjörður: Verslunin María, Hrannarstíg 3.
Blönduós: Apótek Blönduóss, Flúðabakka 2.
Dalvík: Jódý, hársnyrti- og naglastofa, Hafnartorgi.
Hveragerði: Ópus, hársnyrtistofa, Breiðumörk 2.
Porlákshöfn: Hárnýjung, Unubakka 2.
F Nátíúmvörur e EF.
- Heildverslun, sími 568 3258.
í fyrstu skiptín
fannst mér ég
syngja hörmu-
lega