Morgunblaðið - 29.03.1998, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 29.03.1998, Blaðsíða 56
|T|N|T| Express Worldwíde _ 580 1010 fslandspóstur hf Hraðflutningar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 569 1181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Kristinn VILHJÁLMUR Garðarsson, sjómaður 1 Þorlákshöfn. Flest skip komin á sjó í gær 15 skip á loðnu- veiðar FISKISKIP um Iand allt lögðu úr höfn í fyrrinótt og í gærdag eftir að verkfalli sjómanna lauk. Ágætis veðurútlit var um land allt. Nokkur skip eiga enn eftir óveiddan loðnukvóta og héldu 15 skip til loðnuveiða í gær sam- kvæmt upplýsingum Tilkynn- ingaskyldunnar. Voru þau við ioðnuleit út af Reykjanesi en engar fréttir höfðu borist af veiði um hádegisbilið í gær. Um 100 þúsund tonn af loðnu eru pgjin óveidd af leyfilegum heild- arkvóta. Netabátar á Suðurnesjum héldu strax út í fyrrinótt til að leggja og var búist við að þeir færu að tínast inn með afla til löndunar síðdegis. Að sögn heimildamanna í Þorlákshöfn voru trillubátar sem reru á föstudag með ágætisafla og leit ágætlega út með veiði í gær. Sérfræðingur við sýklafræðideild Landspftalans um fjölónæma sýklastofna Kapphlaupið tap- ast án aðgerða NAUÐSYNLEGT er að efla rannsóknir á því hvemig draga megi úr ofnotkun sýklalyfja og ónauðsynlegri sýklalyfjanotkun ef takast á að koma í veg fyrir að fjölónæmum sýklastofnum fjölgi með þeim afleiðingum að við stöndum vamarlaus frammi fyrir hættulegum sýkingum innan til- tölulega fárra ára, segir Karl G. Kristinsson, sérfræðingur í sýkla- fræði við sýklafræðideild Land- spítalans og dósent við Háskóla íslands. Karl kveðst vonast til að innan tíðar verði sett á laggirnar stofn- un eða nefnd sem hefði það hlut- verk að fylgjast með sýklalyfja- notkun og sýklalyfjaónæmi í bakt- eríum og finna leiðir til að sporna við þróun ónæmisins. Slíkum stofnunum hefur verið komið á fót í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og verið er að stofnsetja hana í Noregi. „Mönnum tókst lengi vel að breyta eldri sýklalyfjum þannig að þau virkuðu á ónæmar bakteríur en með vaxandi sýkla- lyfjanotkun er svo komið að við eram að tapa kapphlaupinu við sýklana. Við eram komin með nokkra sýkla sem era ónæmir fyrir öllum sýklalyfjum," segir Karl. Hann leggur áherslu á að full ástæða sé til að hafa allan varann á og að óþörf sýklalyfjanotkun við veirasýkingum og vægum bakter- íusýkingum auki mjög líkur á að bakteríur nái að þróa með sér ónæmi fyrir lyfjunum. „Við verðum að geta meðhöndl- að alvarlegar sýkingar áfram. Þeir sem þurfa virkilega á sýkla- lyfjum að halda verða að geta fengið þau,“ segir Karl. ■ Kapphlaup við sýkla/10 Morgunblaðið/RAX Bændur „ÞAÐ er sannkallaður vorboði þegar bænd- umir fara að streyma hingað til að sækja áburð,“ sagði Guðný Benediktsdóttir, mark- aðs- og sölustjóri í Áburðarverksmiðjunni, en talsvert var að gera í Gufunesi í vikunni. „Upp úr páskum vilja svo allir fá áburð á sama tíma byrjaðir að sækja og þá er mesta annríkið," sagði Guðný. Milli 1.000 og 1.500 tonn af áburði fara frá verksmiðjunni á dag þegar mest er að gera. Flutningur á áburði hefst í nóvember en þá er hann fluttur með skipum út á land. í apríl og maí er hann sendur bæði með flutningabílum áburðinn og skipum á Suður- og Vesturlandið. Grétar Júh'usson, verkstjóri í Áburðarverk- smiðjunni, kannaði ástand sekkjanna þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð.jjósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð. Framkvæmdir við ofanflóðavarnir ganga samkvæmt áætlun Yfír 300 milljónir króna til ýmissa verkefna í ár AÆTLA má að greiðslur úr Ofan- flóðasjóði á þessu ári vegna snjó- flóðavamavirkja og annarra verk- efna verði á bilinu 300-350 milljónir kr. Ráðist er í verkefnin að fram- *^fc'æði sveitarfélaganna og hafa framkvæmdir í öllum meginatriðum gengið eftir í samræmi við fram- kvæmdaáætlun um vamir gegn of- anflóðum, sem ríkisstjórnin sam- þykkti í fyrra, að sögn Smára Þor- valdssonar, starfsmanns Ofanflóða- nefndar. .rí'ramkvæmdum við snjóflóða- ^irnavirki verður lokið á þessu ári á Flateyri og gert er ráð fyrir að upp- græðslu, sem er lokaáfangi verkefn- isins á Flateyri, verði lokið á næstu tveimur til þremur áram. Þá er reiknað með að fljótlega hefjist miklar framkvæmdir við snjóflóða- varnir á Siglufirði. Áætlað er að heildarkostnaður við framkvæmd- imar sé um 350 milljónir en reiknað er með að þær standi yfir í tvö ár. Að sögn Smára er uppkaupum á húsum í Hnífsdal lokið og reikna má með að uppkaupum og flutningi byggðar í Súðavík ljúki á þessu ári. Fyrir fáeinum dögum vora kynntar tvær tillögur að snjóflóðavömum með mismunandi háum varnargörð- um í Neskaupstað. Er reiknað með að einhverjar framkvæmdir hefjist í Neskaupstað á þessu ári. Á yfir- standandi ári á einnig að skoða snjóflóðavarnir fyrir Bolungarvík. Töluverð umsvif á næstu árum „Samkvæmt áætluninni, sem er til ársins 2010, er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á Seyðisfírði á næsta ári og það verða væntanlega töluverð umsvif á næstu áram ef þetta gengur eftir,“ segir Smári. Einnig er gert ráð fyrir að byggður verði stór vamargarður undir Selja- landshlíð á ísafirði á næsta ári. Tekjur þær sem Ofanflóðasjóði era ætlaðar samkvæmt lögum eru um hálfur milljarður á ári. Fram- kvæmdir era sveiflukenndar milli ára en samkvæmt áætluninni sem unnið er eftir er gert ráð fyrir að heildarkostnaður verkefnisins fram til ársins 2010 verði um sjö og hálfur milljarður kr. Smári bendir einnig á að samhliða þessum verkefnum hef- ur Ofanflóðasjóður styrkt verulega þekkingaröflun á Veðurstofunni. Vollebæk í opinbera heimsókn til Islands KNUT Vollebæk, utanríkis- ráðherra Noregs, kemur til Islands í opinbera heimsókn 1. og 2. apríl næstkomandi. Hann hittir Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra. I för með Vollebæk verður eiginkona hans. Fyrri dag heimsóknarinnar fundar Vollebæk með forsæt- isráðherra og utanríkisráð- herra og seinni daginn halda fundimir áfram jafnframt því sem hann hittir að máli full- trúa utanríkismálanefndar á Alþingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.