Morgunblaðið - 31.05.1998, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 E 9
Helgarvinna:
KringUn
Starfsfólk vantar í föst hlutastörf !
sérvöruverslun Hagkaups í Kringlunni.
Leitað er að reglusömum og drífandi
einstaklingum með ríkan vilja til
að veita viðskiptavinum Hagkaups
góða þjónustu.
Vinnutími er 9-18 laugardaga og
13-17 sunnudaga, eða eftir
samkomulagi.
Vinsamlega hafið samband við
Hörpu Guðmundsdóttur
á staðnum eða f síma
568 9300. HiGKAUI'
FLUGLEIÐAHÓTEL HF
FlugleiðahótelM. reka
14Eddu hótelvíðs
vegar um landið auk
5 heilsárshótela.
Fyrirtækið varstofnað
1. janúar 1998 og hj á þ ví
starfa um 300 manns.
Flugleiðahótel hf. leita eftir
hótelstjóra á eitt of
heilsárshótelunum úti á landi.
Viðkomandi þarf að vera ábyrgur, röskur,
duglegur og samviskusamur. Æskilegt er
að umsækjendur kunni auk eins norður-
landamáls, ensku og þýsku og hafi reynslu
af ferðamálmn eða úr ferðageiranum.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
fljótlega. FlugleiðahótelM. erreyklaust
fyrirtæki.
Umskóknum skal skila á Hótel Loftleiðir
merktar starfsmannastjóra ísíðasta lagi
föstudaginn S.júní. Eldri umsóknir óskast
endumýjaðar.
J. Hinriksson ehf.
Poly-lce
Járniðnaðarmenn
Vegna mikilla verkefna og framkvæmda óskum
við eftir framtíðarstarfsmönnum:
• Vönum rafsuðumönnum í framleiðslu á
Poly-lce toghlerum og við uppsetningu og
breytingar á stálgrindarhúsi.
• Vönum og sjálfstæðum rennismið á renni-
verkstæði; vinna við blakkarsmíði o.fl.
• Lagtæka aðstoðarmenn á verkstæði.
• Fagmann sem er vanur ýmis konar verk-
stæðisvinnu og framkvæmdum.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 588 6677
og á staðnum.
J. Hinriksson ehf.,
Súðarvogi 4,104 Reykjavík,
fax 568 9007.
/W\KENNARAHÁSKÓLI ÍSIANDS
Laust starf
háskólakennara
Laust ertil umsóknartímabundið starf aðjúnkts
við Kennaraháskóla íslands til tveggja ára.
Um er að ræða fullt starf en hlutastarf kemur
einnig til greina.
Meginverkefni aðjúnktsins er kennsla í sagn-
fræði (íslandssögu og erlendri sögu). Starfið
skiptist milli kennslu annars vegar og rann-
sókna og stjórnunar hins vegar sem kveðið
verður nánar á um í ráðningarsamningi.
Umsækjendurskulu hafa lokið meistaraprófi
hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og
reynslu. Umsókn skal fylgja ítarleg greinargerð
um menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk. og stefnt
er að ráðningu í starfið frá 1. ágúst 1998.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og Kennarafélags Kennaraháskóla
íslands. Ekki er um að ræða sérstök umsóknar-
eyðublöð en umsóknum skal skila á skrifstofu
Kennaraháskóla íslands, Stakkahlíð,
105 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Loftur Guttormsson
prófessorog Helgi Skúli Kjartansson dósent
í síma 563 3800.
Fjániiálaumsjón
Eitt stærsta fyrirtæki landsins
óskar að ráða viðskiptafræðing
í fjárreidudeild.
Helstu viðfangsefni fjármálstjóra:
Almenn fjárvarsla, eftirlit og um-
sjón með viðskiptareikningum,
almennt rekstrareftirlit og gerð
greiðsluáætlana.
Gerð er krafa um:
Viðskiptafræðimenntun, þekkingu
og áhuga á sviði tölvumála, frum-
kvæði og skarpa hugsun.
Starfsreynsla æskileg.
Upplýsingar veitir Drífa Sigurðardóttir.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Viðskiptafræðingur" fyrir
10. júní n.k.
o.
Rótt þekking á róttum tíma
-fyrir rétt fyrirtæki
HAGVANGUR RADNINGARÞJÓNUSTA
Coopers & Lybrand
Hagvangur hf.
Skeifan 19
108 Reykjavík
Sbtií 5813666
Bréfsími 568 8618
Netfang
radningar@coopers.is
Veffang
http://www.coopers.is
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Námsráðgjafi
Við Verkmenntaskólann á Akureyri er laus til
umsóknarVbstaða námsráðgjafa frá 1. ágúst
1998.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna. Skriflegar umsóknir, ásamt grein-
argerð um fyrri störf, berist Verkmenntaskólan-
um á Akureyri, Eyrarlandsholti, 600 Akureyri,
fyrir 10. júní 1998. Ekki er þörf á sérstökum
eyðublöðum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið námi í
námsráðgjöf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma
461 1710.
Skólameistari.
M KÓPAVOGSBÆR
Leikskólakennarar
Lausar eru stöður leikskólakennara
í eftirtöldum leikskólum:
Fögrubrekku, sími 554 2560.
Fagrabrekka erfjögurra deilda leikskóli,tvær
deildir eru fyrir 3—5 ára börn og tvær litlar
deildir fyrir 2—3 ára börn.
í Fögrubrekku er unnið uppbyggilegt starf með
tjáningu og hreyfingu í fyrirrúmi. Lögð er
áhersla á frjálsa leikinn í vali og hópavinnu.
Mjög gott leikrými er úti og inni.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sólveig Björg
Aðalsteinsdóttir.
Kópasteinn, sími 564 1565.
Kópasteinn erfjögurra deilda leikskóli sem
stendur í álfabyggðinni við Kópavogskirkju
og Listasafnið. Lögð er sérstök áhersla á tónlist
og hreyfingu.
Einnig óskast leikskólasérkennari, leikskóla-
kennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með
aðra uppeldismenntun vegna sérkennslu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Heiða B. Rún-
arsdóttir.
Einnig gefur leikskólafulltrúi, Sesselja
Hauksdóttir, upplýsingar um stöðurnar í síma
554 1988.
Starfsmannastjóri.
»11 ■ i
nTlrrfri
IMrjlJj
t
LANDSPÍTALINN
...í þágu mannúðar og vísinda...
Forstöðumaður tækni-
deildar tölvudeildar
Ríkisspítala
Forstöðumaður hefur umsjón með uppbygg-
ingu tölvuumhverfis á Ríkisspítölum. í því felst
uppsetning og rekstur vélbúnaðar, áætlana-
gerð og rekstrarlegt eftirlit.
Leitað er að tölvunarfræðingi/verkfræðingi
eða einstaklingi með sambærilega menntun.
Áhersla er lögð á að viðkomandi hafi góða
stjórnunar- og samskiptahæfileika og hafi
metnað til þess að ná árangri í starfi.
Upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Björns-
dóttir í síma 560 2360.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra Ríkisspítala,
Þverholti 18, 105 Reykjavík, fyrir 16. júní nk.
------------------------------------------
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarféiags
og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannaheldi
Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
/
Aðalbókari
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Tangi hf.
á Vopnafirði auglýsir starf aðalbókara laust
til umsóknar.
Helstu verkefni adalbókara eru:
• Færsla fjárhags- og viðskiptabókhalds Tanga
hf. og dótturfyrirtækja.
• Afstemmingar og frágangur bókhalds fyrir
uppgjör.
• Uppgjör á virðisaukaskatti.
Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi
kröfur:
• Hafa haldgóða menntun á sviði viðskipta.
• Hafa marktæka reynslu af bókhaldsstörfum.
• Vera samviskusamir, nákvæmir og tölu-
glöggir.
• Hafa haldgóða tölvuþekkingu.
• Vera reglusamir og áreiðanlegir.
Launakjör eru samkomulagsatriði og aðstoðað
er við útvegun húsnæðis á staðnum. Umsækj-
endur skulu senda skriflegar umsóknir merktar:
„Aðalbókari" til Tanga hf., Hafnarbyggð 7, 690
Vopnafirði eða í myndsíma 473 1513.
Umsóknarfrestur er til 8. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristjánsson
fjármálastjóri í síma 473 1143.