Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 E líT
Til leigu
Verzlunarhúsnæði á götuhæð við Skólavörðu-
stíg. Stærð 36 fm. Húsnæðið er laust strax.
Langtímaleiga. Allar nánari uppl. í símum
896 4090 og 896 4013.
Fiskverkun
Til sölu eða leigu 270 fm fiskverkunarhús með
kæli og frysti við Fiskislóð í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 553 6316 eftir kl. 19.00.
Skrifstofuhúsnæði til leigu
í Ármúlahverfi er til leigu rúmlega 300 fm skrif-
stofuhúsnæði. Leigist í einu eðatvennu lagi.
Upplýsingar í síma 568 1500 á skrifstofutíma.
.j#
FÉLAGSLÍF
KROSSINN
Sunnudagur: Almenn sam-
koma kl. 16.30. Barnagæsla er
meðan á samkomunni stendur. I
dag brennur hvítasunnueldur-
inn.
Mánudagur: Farið verður í
dagsferð frá Krossinum í Hlíða-
smára kl. 11.30.
Mánudagur: Útsending á
Omega kl. 21.30.
Priðjudagur: Biblíulestur kl.
20.30. Enn meira af orði Guðs.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30. Kraftur, dýrð og
enn meiri blessun.
Bóka- og gjafavöruverslunin er
opin alia virka daga frá kl. 14-18.
Við erum að hefja söfnun á
notuðum fötum og skóm. Tekið
verður við sliku alla virka daga.
Nefang okkar er
krossinn@skima.ís
OBAHÁ’Í
OPIÐ HÚS
Sunnudagskvöld kl. 20:30
Hilmar Axelsson:
Þjófur á nóttu
Hið undarlecja mál
hins þúsund ara ríkis.
Kaffl og veitmgar
Álfabakka 12, 2. hœð
sími 567 0344
www.itn.is/bahai
SMÁAUGLÝSINGA
Hörgshlfð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund f dag kl. 14.00.
Dagsferðir:
Mánudaginn 1. júní. Gengið frá
Fossá í Hvalfirði að Reynivöll-
um í Kjós. Gengið yfir Reyni-
vallaháls eftir Prestási og Kirkju-
stíg. Brottför frá BSI kl. 10.30.
Sunnudaginn 7. júní. Fjallasyrp-
an, gengið á Ármannsfell.
Brottförfrá BSÍ kl. 10.30.
Helgarferðir 5.-7. júní
Skjaldbreiður—Hlöðufell—
Úthlíð
Ekið að Meyjarsæti og gengið að
Skjaldbreið. Næsta dag er
gengið að Hlöðufelli og á sunnu-
degi er gengið um Brúarskörð
niður í Úthlíð. Gist í skálum. Far-
arstjóri verður Sylvía Kristjáns-
dóttir.
Básar. Ekið í Bása á föstudags-
kvöldi. Gist I skála.
Fimmvörðuháls. Gengið frá
Skógarfossi yfir Fimmvörðuháls
í Þórsmörk. Gist I Fimmvörðu-
skála.
Jónsmessan 1998
19.—21. júní Jónsmessunæt-
urganga yfir Fimmvörðuháls.
Ein vinsælasta útivistarferðin.
Gengið verður frá Skógum, yfir
Fimmvörðuháls I Bása. Hægt að
dvelja í Básum fram á sunnu-
dag.
19.—21. júní Snæfellsnes um
sólstöður. Boðið upp á sólstöðu-
göngu á Snæfellsjökul og skðun-
arferð á helstu staði undir jökli.
Farið verður á Hellna, Sölva-
hamra, Lóndranga o.fl.
Fimmvörðuhálsferðir í júní
6.-7. júní, 12.—14. júní nætur-
ganga, 20,—21. júní, 26.-28.
júní.
Heimasíða: centrum.is/utivist
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Spennandi hvítasunnuferðir:
Hvftasunnudagur 31. maí kl.
10.30 Geitafell — Selvogs-
heiði. Góð gönguferð um 5-6
klst. Verð. 1.300 kr. Fararstjóri:
Bolli Kjartansson.
Annar í hvítasunnu 1. júní kl.
10.30 Húshólmi — Krísuvík-
urberg. Skemmtileg ganga að
merkum minjum í Húshólma
(Gömlu-Krísuvík) og um Krísu-
víkurberg, eitt áhugaverðasta
fuglabjarg Suðvesturlands. Um
5-6 klst. ganga. Verð 1.300 kr.
Brottför frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6. Fararstjóri: Ólafur
Sigurgeirsson.
IMýtt: Dagsferð í Þórsmörk á
annan í hvítasunnu kl. 08.00.
Verð. 2.800 kr. (hálft gjald
fyrir 7-15 ára). Heimkoma um
kl. 18.00.
Það þarf ekki að panta.
Brottför í ferðirnar frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
íslenska
Kristskirkjan
Samkoma á annan í hvíta-
sunnu á Bíldshöfða 10, 2.
hæð, kl. 20.00 í umsjón unga
fólksins í kirkjunni. Vitnisburðir,
einsöngur, lofgjörð og fyrirbæn-
ir.
Vöfflur með rjóma verða seldar
með kaffinu eftir samkomuna.
Allir velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Engin samkoma í kvöld vegna
hvítasunnumóts á Löngumýri.
fómhjálp
Samhjálp um hvítasunnu
Hvítasunnusdagur í Þríbúð-
um: Dorkassamkoma í Þríbúð-
um, Hverfisgötu 42, kl. 16.00.
Dorkaskonur annast samkom-
una með fjölbreyttum söng og
vitnisburðum. Stjórnandi Asta
Jónsdóttir. Kaffi að lokinni
samkomu. Allir velkomnir.
Annar í hvítasunnu í Fíladelfíu
Samhjálparsamkoma í Fíladelfíu,
Hátúni 2, kl. 11.00. Fjölbreytt
dagskrá með miklum söng.
Samhjálparkórinn syngur. Sam-
hjálparvinir segja frá reynslu
sinrii. Skírnarathöfn. Ræðumað-
ur Óli Ágústsson. Allir vel-
komnir.
Samkomunni í Fíladelfíu verð-
ur útvarpað hjá RÚV, rás 1.
Samhjálp.
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
Kl. 20.00 Almenn samkoma.
Predikun: Jón Þór Eyjólfsson.
Beðið fyrir sjúkum.
Föstudagur kl. 20.30:
„Eldur unga fólksins."
Bænastund miðvikudag kl. 20.00.
Allir velkomnir.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Almenn samkoma, annan í hvíta-
sunnu kl. 20.30. Ræðumaður er
Karlhanz Eichhorn.
Allir velkomnir.
Konur athugið
Missið ekki af síðasta Aglow
fundinum fyrir sumarfrí, sem
haldinn verður þriðjudagskvöldið
2. júní kl. 20.00 í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58—60.
Ræðukona fundarians er Katrín
Söebech formaður Aglow Reykja-
vík og er yfirskrift ræðunnar
„Guð kaupir sér akur".
Kaffi, söngur, hugvekja og fyrir-
bænir.
Allar konur eru hjartanlega vel-
komnar.
Stjórn Aglow í Reykjavík.
Hverfisgata 105, s. 562 8866
Sunnudagskvöld kl. 17.00
Fjölskyldusamkoma og krakka-
kirkja Gestapredikari Mike Pye
frá Spirit Life í Flórida.
Þriðjudagskvöld kl. 20.00
Biblíuskóli.
Föstudagskvöld kl. 21.00
Gen-X kvöld.
Trúboð í miðbænum kl. 23-4 að
Grófinni 1.
Smiðjuvegi 5, Kópáyogi.
Samkoma á annan f hvfta-
sunnu kl. 20:00.
Lofgjörð, predikun orðsins og
fyrirbæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Heimasíða:www.islandia.is/~vegur
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Hátíðarsamkoma kl. 16.30. Barna-
blessun og niðurdýfingaskirn.
Ræðum. Vörður L Traustason.
Allir hjartanlega velkomnir. >4
Annar f hvítasunnu:
Útvarpsguðþjónusta kl. 11.00.
Ræðum. Óli Ágústsson. Sam-
hjálparkórinn syngur. Niðurdýf-
ingarskírn að lokinni útsendingu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Mið. kl. 18.30: Fjölskyldusamve-
ra með léttum veitingum á vægu
verði. Kl. 19.30. Fræðsla og
bæn.
Fös. kl. 20.30: Unglingasam-
koma.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag íslands
Miðlarnir og huglæknarnir Bjarni
Kristjánsson, Guðrún Hjörleifs-
dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson,
Kristín Karlsdóttir, Margrét Haf-
steinsdóttir, María Sigurðardótt-
ir, Skúli Lórentzson og Þórunn
Maggý Guðmundsdóttir starfa
hjá félaginu og bjóða upp á
einkatima. Einnig býður Bjarni
Kristjánsson upp á umbreyting-
afundi fyrir hópa. Fræðslu-, fyrir- **
bæna og. sjálfstyrkingahópar
sem Friðbjörg Óskarsdóttir ann-
ast eru vikulega. Skrifstofan í
Garðastræti 8 er opin frá kl.
9.00—15.00. Þar og í símum fé-
lagsins, sem eru 551 8130 og
561 8130, eru veittar upplýsing-
ar, teknar niður bókanir og tekið
á móti fyrirbænum.
SRFÍ.
Stuðningur við ályktun Evrópuráðsins um ólögmætt og skaðlegt efni á Netinu
Dæmi um
gróft klám
RÁÐHERRAR á ráðstefnu evr-
ópskra ráðherra í Bonn í fyrra
lögðu mikla áherslu á hlutverk
einkaaðila í að verja hagsmuni
neytenda og hafa siðferðislegar
kröfur í heiðri. í því sambandi var
lýst yfir eindregnum stuðningi við
ályktun Evrópuráðsins frá því í
febrúar í fyrra varðandi ólögmætt
og skaðlegt efni á Netinu.
Hérlendis hafa verið rannsökuð
nokkur brot sem tengjast ólög-
legri dreifmgu á klámi með tölv-
um, einkum og sérflagi
barnaklámi. Fyrir nokkrum miss-
erum féll dómur í máli manns sem
hafði orðið uppvís að því að sækja
gróft klámefni á netið til geymslu í
einkatölvu sinni, og nokkur fleiri
dæmi eru kunn hérlendis um svip-
að athæfi.
í kjölfar þess að Rfldsútvarpið
flutti fyrir fáeinum vikum frétt frá
fréttaritara sínum í Sviss, byggða
á fréttaskeyti frá AP-fréttastof-
unni, um að bandaríska alríkislög-
reglan hefði haft veður af íslensk-
um notanda netsins sem hafði
áhuga á barnaklámi, kannaði lög-
reglan málið nánar. Fréttin
reyndist vera röng að því leyti að
FBI tengdist ekki málinu, en hins
vegar hafði staðarlögregla í New
Hampshire haft samskipti gegn-
um netið við íslending sem var
áhugasamur um slíkt efni.
„Bandaríski lögreglumaðurinn
sem vitnað var til hafði nefnt ís-
land í röð annarra ríkja til að sýna
fram á að allur heimurinn væri
undirlagður af þessari starfsemi.
Við könnum kom í ljós að málið
var meira en árs gamalt og of
gamalt til að hægt væri að rekja
það hjá netþjónustunum að upp-
runanum,“ segir Smári Sigm-ðs-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
alþjóðadeild embættis ríkislög-
reglustjóra.
FBI ræðst gegn barnaklámi
í nóvember í fyri-a ávarpaði
Stephen R. Wiley, yfirmaður
þeirrar deildar bandarísku alríkis-
lögreglunnar sem rannsakar of-
beldisglæpi og alvarleg brot, und-
irnefnd dómsmálanefndar full-
trúadeildar bandaríska þingsins,
sem fjallar um glæpi. í máli hans
kom fram að rannsóknir FBI hafa
leitt í Ijós að barnaníðingar leita
eftir samskiptum við börn á spjall-
rásum Netsins, enda eigi börn
kost á því að ræða málin tímunum
saman án vitundar eða samþykkis
forráðamanna. Barnið viti ekki
hvort „viðmælandinn" sé fjórtán
ára eða fertugur.
„FBI hefur rannsakað ríflega
70 mál sem tengjast barnaníðing-
um sem hafa farið á milli ríkja til
fundar við leynilögreglumenn sem
þóst hafa verið börn eða ungling-
ar, í þeim tilgangi að koma á ólög-
mætu kynferðislegu sambandi,“
sagði Wiley. Hann nefndi tvö
dæmi í því sambandi, annars veg-
ar mál barnaníðings, kvænts
þriggja barna föður, sem var
handtekinn 1 nóvember 1995, eftir
að hafa ferðast frá Minneapolis í
Minnesota-fylki til Tampa í
Flórída, með það í huga að eiga
mök við stúlku sem hann hafði
rætt við á spjallrásum Netsins og
hélt að væri 13 ára gömul. „Fórn-
arlambið" í þessu tilviki var á veg-
um FBI og handtók manninn, sem
hlaut dóm fyrir brot sitt.
Þá var annar maður handtekinn
á almenningsbókasafni í Springfí-
eld í Virginíu eftir að hafa farið yf-
ir fylkismörk í þeim tilgangi að
eiga mök við ólögráða einstakling,
12 ára gamla stúlku. Þegar gögn í
tölvu mannsins voru skoðuð, kom í
ljós að hann hafði þóst vera 16 ára
gamall þegar hann ræddi við fólk
gegnum Netið, þar á meðal nokkr-
ar aðrar stúlkur, 12 til 15 ára
gamlar, sem hann hafði reynt að
fá til lags við sig.
Alríkislögreglan bandaríska,
hefur að sögn Wiley, ráðist gegn
útbreiðslu barnakláms á Netinu
og hjá netþjónustum, og þeim
barnaníðingum sem freisti þess að
komast í samband við ólögi'áða
einstaklinga í kynferðislegum til-
gangi. Þeirri baráttu verði haldið
áfram með fullum þunga.
Níðingar tengjast á Netinu
„FBI og aðrar löggæslustofnan-
ir verða að halda áfram að þróa
nýjungar á sviði rannsóknarað-
ferða í því skyni að glíma við
glæpi sem framdir eru í netheim-
um, ásamt því að búa til traustar
lagalegar forsendur í því skyni að
styrkja slíkar rannsóknir og máls-
höfðanir þeim tengdar," sagði
hann.
í Evrópu telja lögreglumenn að
sá angi Netsins sem hér um ræðir,
hafi valdið aukinni starfsemi á
sviði barnavændis og styrkt
tengsl barnaníðinga á svæðinu.
Nokkrum sinnum á undanfórnum
misserum hafa evrópsk lögreglu-
lið tekið höndum saman í því skyni
að vinna bug á slíku hátterni, og
er ein árangursríkasta þeirra að-
gerð sem kallaðist Operation St-
arburst og beindist gegn bama-
níðingum sem notfærðu sér Netið.
I kjölfar átaksins var hópur
manna handtekinn og sakfelldur
vegna þessa, menn sem tengdust
flestir lauslega í gegnum Netið.
Árið 1996 var sett á stofn í
Englandi Eftirlitsstofnun Netsins,
eða Intemet Watch Foundation,
og hóf hún að starfrækja símalín-
ur í desember það ár, til að veita
viðtöku ábendingum um ólöglegt
efni á Netinu, þar á meðal
barnaklám. Fyrstu sex mánuðina
fékk stofnunin 374 ábendingar,
þar af 257 í tengslum við
barnaklám. Þorri þeirra átti rætur
að rekja til Bandaríkjanna.
PCI lún og fugueíhi
m
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Finnolme sánaklefarnir koma í
27 stöðluðum stærðum eða
smíðaðir eftir þínum óskum.
Minna mál umboðið, s. 557 4244