Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Samkeppnisráð vegna auglýsingar Essó á „bestu díselolíunnia Ekki ástæða til að vefengja fullyrðinguna SAMKEPPNISSTOFNUN hefur sent frá sér bréf þess efnis að ekki sé ástæða til að gera athugasemdir við að Olíufélagið hf. Essó auglýsi „bestu díselolíuna". Skeljungur hafði sent stofnuninni kvörtun vegna þessarar fullyrðingar Olíufé- lagsins, að það seldi „bestu díselolí- una“, með þeim rökstuðningi að enginn algildur mælikvarði væri til á gæðum díselolíu. Hugsanlega mætti telja díselolíu Olíufélagsins besta á mælikvarða brennisteins- mengunar, en ekki t.d. á mæli- kvarða vélarslits. Samkeppnisráð gaf þá Olíufé- laginu kost á að koma á framfæri við Samkeppnisstofnun þeim sönnunum sem auglýsingin byggð- ist á, enda væri notkun lýsingar- orða í efsta stigi, svo sem „best“, óheimil í auglýsingum nema aug- lýsandi gæti á auðveldan og hlut- lausan hátt sannað fullyrðingu sína, samkvæmt 21. gr. sam- keppnislaga. Olíufélagið sendi frá sér greinar- gerð tn sönnunar fullyrðingum sín- um. Þar kom fram að díselolía sú sem um ræddi nefndist „Premium Diesel“, innihéldi svokölluð MFDA bætiefni og væri sannanlega betri en sú díselolía sem ekki innihéldi þau. Eftir að báðum aðilum hafði gefist færi á að gera athugasemd sendi Samkeppnisstofnun, sem áð- ur segir, frá sér bréf þar sem sagði að ekki væri ástæða til að gera at- hugasemdir við auglýsingar Olíufé- lagsins. Bætiefnið gerir gæfu- muninn að mati ráðsins „Miðað við framlögð gögn telur Samkeppnisstofnun að ekki sé ástæða til að vefengja að s.k. „Premium Diesel", sem nefnd er Gæðadísel í auglýsingum Olíufé- lagsins, sé betri díselolía en sú sem ekki inniheldur bætiefni. Því telur Samkeppnisstofnun að miðað við íyrirliggjandi upplýsingar sé, að svo stöddu, ekki ástæða til að gera athugasemdir við notkun lýsingar- orðsins best um þá díselolíu með bætiefnum sem Olíufélagið selur. Jafnframt vill stofnunin taka fram að ef fram koma rökstuddar upp- lýsingar eða gögn sem sýna fram á að önnur díselolía sé jafngóð eða betri en díselolía Olíufélagsins hf. muni málið verða tekið aftur til meðferðar," segir í bréfi Sam- keppnisstofnunar. Reykjavík: Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi.Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestflrðír: Geirseyrarbúðin.Patreksfiröi.Rafverk.Bolungarvfk. w Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri, 1 Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri.KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: KHB, Egilsstööum. | Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. Kf. Stööfirðimga, Stöövarfirði. t Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík. f BEKO BEKO fékk viðurkenningu í hinu virta breska tímariti WHAT VIDEO sem bestu sjónvarpskaupin. Myndlampi Black Matrix • 100 stöðva minni • Allar aögerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring • Aukatengi f. hátalara • (slenskt textavarp SÍÐAN 1972 ISLENSKAR GÆÐA MÚRVÖRUR Á GÓÐU VERÐI MÚRKLÆÐNING Viðtöl sendiherra fá góðar viðtökur AUKIN áhersla utanríkisráðu- neytisins á þjónustu og aðstoð við fyrirtæki og einstaklinga í út- flutningi hefiir hlotið góðar við- tökur í atvinnulífinu. Töluverð ásókn er t.d. í sérstaka viðtals- tíma sendiherra sem standa yfir í Reykjavík um þessar mundir að sögn Ólafs Egilssonar, sendiherra íslands í Austur-Asíu, Astralíu og Nýja Sjálandi með aðsetur í Pek- ing. Meðfylgjandi mynd er tekin í viðtalstíma hjá Ólafi. Hann er Iengst til vinstri en síðan koma Inga Dagfinnsdóttir arkitekt, en hún hefur sinnt verkefnum í Jap- an og vann þar til verðlauna í samkeppni fyrir nokkrum árum, Sveinn Guðmundsson, Magnús Guðgeirsson og Tryggvi Þor- steinsson en þeir komu til að ræða vöruviðskipti við Kína. Utanríkisþjónustan hefur í samstarfi við Utflutningsráð unn- ið að því að stórauka þjónustu við íslensk fyrirtæki sem stunda eða hafa áhuga á að hefja út- flutning eða starfsemi erlendis. Ólafur segir að í tengslum við þetta átak hafi verið ákveðið að gefa útflyljendum færi á að kom- ast í beint samband við þá sendi- herra, sem þekki til á viðkom- andi mörkuðum, með sérstökum viðtalstímum. „Þessi viðtöl efla tengslin og verða vonandi liður í að styrkja stöðu þeirra sem hyggjast stunda viðskipti er- lendis. Flestir hafa verið að leita eftir ráðleggingum og fyrir- greiðslu vegna útflutnings á vöru eða þjónustu eða vegna úrlausn- ar einstakra vandamála sem hafa komið upp. Þá eru dæmi um áhuga á að komast í samband við erlend fyrirtæki vegna hugsanlegrar framleiðslusam- vinnu og svo má áfram telja. Við leggjum kapp á að leysa úr þess- um erindum eftir bestu getu og veita þá ráðgjöf sem við teljum að best dugi,“ segir Ólaf- ur. Auk Ólafs hafa Ingimundur Sigfússon, sendiherra í Þýska- landi, Austurrfki, Sviss og Ung- verjalandi með aðsetur í Bonn, og Benedikt Ásgeirsson, sendi- herra í Bretlandi, frlandi, Hollandi, Grikklandi og Indlandi með aðsetur í Lundúnum, einnig veitt viðtöl. Aðrir sendiherrar munu veita viðtöl eftir því hvenær þeir verða staddir á landinu og veitir utanríkisráðu- neytið frekari upplýsingar. MS í Reykjavík og Mjólkursamlagið á ísafirði í samstarf? Vilja koma í veg fyrir frekari samdrátt MJÓLKURSAMLAGIÐ á ísafirði hefur farið þess á leit við Mjólkur- samsöluna í Reykjavík að athuga mögulegar forsendur fyrir sam- starfi fyrirtækjanna, með það fyrir augum að styrkja rekstrargrund- völl kúabænda á norðanverðum Vestfjörðum og tryggja þeim sam- bærileg kjör og öðrum mjólkur- framleiðendum í landinu, eftir að nýr búvörusamningur tekur gildi í haust. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins áttu ísfirðingar frum- kvæði að viðræðunum í kjölfar samþykktar á síðasta aðalfundi Mjólkursamlagsins um að stefna að tryggari rekstri í framtíðinni með samstarfi eða sameiningu við stærri aðila í greininni. Vestfirskum kúa- bændum að fækka Ljóst er að Mjólkursamlagið, sem er í eigu bænda, hefur átt í rekstrarerfiðleikum um alllangt skeið og vestfirskum kúabændum hefur fækkað undanfarin ár. í dag eru framleiddir á svæðinu um 1.300 þúsund lítrar af mjólk á ári sem er 400 þúsund lítrum minna en 1991. Kunnugir segja að framleiðslan í dag fullnægi eftirspurninni en hins vegar megi lítið útaf bera til að vandræði skapist og grípa þuríi til þess ráðs að flytja mjólk inn á svæðið sem gæti reynst erfitt yfir vetrarmánuðina. Nýr ' búvörusamningur mun tryggja bændum ákveðna lág- marksgreiðslu fyrir hvern fram- leiddan mjólkurh'tra en síðan verð- ur einstökum mjólkurbúum í sjálfs- vald sett hvort og hversu mikið bændum verður greitt umfram til- greint lágmarksverð. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins miða aðgerðir Mjólkur- samlagsins á Isafirði fyrst og fremst að því að tryggja kúabænd- um viðunandi verð fyrir afurðina og koma þannig í veg fyrir frekari samdrátt í mjólkurframleiðslu á Vestfjörðum. LÉTT - STERK - FflLLEG !l steinprýöi STANGARHYL 7, SÍMI 567 2777 www.mbl.is Athugasemd frá Landsbréfum SunTrust kaupir Crestar New York. Reuters. SunTrust Banks Inc. hefur sam- þykkt að kaupa Crestar Financial Corp. íyrir 9,5 milljarða dollara í hlutabréfum og þar með verður komið á fót 10. stærsta banka Bandaríkjanna sögn fyrirtækj- anna. Sun Trust starfar á Flórída, í Georgíu og Tennessee, en eftir sameininguna mun hann einnig ná til Virginíu, Maryland og District of Columbia. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Lands- bréfum hf. „VIÐ hjá Landsbréfum hörmum það að frétt í Morgunblaðinu 18. júlí s.l. hafi kallað á persónulegar að- dróttanir framkvæmdastjóra Kaup- þings eignastýringar ehf. í garð sjóðsstjóra hjá Landsbréfum. Að öðru leyti höfum við ekki áhuga á að munnhöggvast við samkeppnisaðila okkar á þessu plani. Svör sjóðs- stjóra okkar voru m.a. byggð á frétt sem birtist á fréttavef Morgun- blaðsins þann 16. júlí. Sú frétt fjall- aði um það að verðbréfakaup hluta- bréfasjóðsins Auðlindar hefðu verið fjármögnuð að töluverðu leyti með erlendum lánum. Fjárfestingar sem byggja á lántökum eru að sjálfsögðu áhættusamari en fjárfestingar sem innstæða er til fyrir“. Sigurður Atli Jónsson, forstöðu- maður eignastýringar Landsbréfa. > \ > í > > > > > > I > > > >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.