Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ANNE Lambert lék skólastúlku í myndinni Piciiic At Hnnging Rock frá árinu 1975; PETER Weir ásamt leikaranum Mel Gibson við tökur á myndinni The Year Of Living Dangerously sem var gerð árið 1982. HARRISON Ford lék lögreglumann í myndinni Vitnið frá árinu 1985 sem fjallaði um Amish-fólkið. PETER WEIR ROBIN Williams fór á kostum í myndinni Dead Poets Society sem Weir gerði árið 1989. UNDIR lok sjöunda áratugarins fóru augu manna að beinast að ástralskri kvikmyndagerð, sem hafði ekki þótt sérlega merkileg fram til þess tíma. Leikstjórar eins og Bruce Beresford, Fred Schepisi, Gillian Armstrong, og ekki síst Peter Weir, komu álfunni sinni á kortið með nokkrum góðum myndum sem vöktu heimsathygli. Þessir ágætu menn voru því komnir til Hollywood fyrr en varði, en kveiktu áður slíkt bál meðal ástralskra kvikmyndagerðarmanna, að það logar enn glatt - líkt og við fáum af og til staðfestingu á í bíóum og í sjónvarpi. Itjóminn settist að í Kaliformu, þar sem gengi Ástralanna hefur verið skrykkjótt en yfir höfuð affarasælt. í fararbroddi þeirra var og er Sydney-búinn Peter Weir, (1944-), sérstæðastur þeirra allra, og sótti gjaman myndefni sitt til sagna frumbyggjanna, en hann hefur alla tíð borið málefni þeirra og menningu fyrir btjósti. Weir byrjaði með miklum látum á Kyrrahafsströnd, gerði hveija ágætismyndina á eftir annarri, allt fram á þennan áratug. Þá kom lægð og aðgerðarleysi, en nýjustu fréttir af þessum snjalla listamanni eru einkar uppörvandi. Ekki alls fyrir Iöngu var frumsýnd The Truman Show, nýjasta myndin hans vestra, og í stuttu máli sló hún rækilega í gegn hjá áhorfendum, enda aðalpersónan leikin af Jim Carrey, jafnt sem gagnrýnendum. Vafamál hvort nokkur mynd hafi fengið jafn almenna frábæra dóma á þessu ári. Kunnáttumenn spá henni fjölda Óskarsverðlaunatilnefninga og skjótfengnum sess meðal sígildra mynda. Efni hennar er óvenju nýstárlegt. Truman (Carrey) er e.k. dýr í búri. Býr á eyju sem er í rauninni risavaxinn tökustaður og hljóðver fyrir sjónvarpsþáttinn sem myndin dregur nafn sitt af. Líf hans hefur verið skráð af tökuvélum frá fæðingu, án hans vitundar, og notið feikilegra vinsælda. Upp komast svik um síðir. Truman, þó barnalegur sé, fer að gruna margt... Höldum okkur við fortíðina. Weir vakti strax athygli með annarri mynd sinni, The Cars That Ate Pasris, (‘74), gamanmynd sem gerði lukku heimafyrir og vakti nokkra eftirtekt erlendis. Sú þriðja, Picnic at Hanging Rock, (‘75), hlaut hins vegar heimsathygli. I kjölfarið fylgdi The Last Wave, (‘77), seiðandi og dularfull, báðar myndimar sækja efnið í dulúðugar bannhelgar frumbyggja. Gallipoli, (‘81), sem segir frá sögulegum atburðum úr fyrri heimsstyijöld, er litlu síðri mynd, og Hollywood beið handan við homið. Weir byijaði með glæsibrag á nýjum slóðum. The Year of Living Dangerously, (‘89), hlaut góða aðsókn og dóma. Komst þó ekki i því sambandi með tærnar þar sem næsta mynd hans, Vitnið - Witness, (85), hafði hælana. Mosquito Coast, (86), olli almenningi hins vegar nokkmm vonbrigðum, jafnvel þótt Harrison Ford léki betur en nokkm sinni fyrr og síðar. Gagnrýnendur lofuðu hana óspart. Sigurganga leikstjórans náði síðan hápunktinum með Bekkjarfélaginu - Ded Poets Society, (‘89), margfaldri verðlauna- og metaðsóknarmynd. Adam var ekki lengi í Paradís. Eftir linnulausa sigra í tæp 15 ár, kom Græna kortið - The Green Card, (‘89), gamanmynd um fransmann sem giftist bandarískri stúlku til að fá atvinnuleyfi í Guðseiginlandi, olli aðdáendum Weirs vonbrigðum, þó Depardieu stæði vel fyrir sínu í aðalhlutverkinu. Ekki tók betra við. Weir hægði á sér um hríð, þrem árum síðar kom Ottalaus - Fearless, (‘93), glórulaus mynd um eftirhreytur iðugslyss. Weirjátaði mistök sin og safnaði kröftum í fimm ár. Sú hvúd hefur borið tilætlaðan árangur, sem fyrr greinir. Kvikmyndaaðdáendur geta því hiklaust átt von á góðu í framtíðinni, frá þessum hæfíleikaríka listamanni, sem á manna auðveldast með að flétta saman listrænu handbragði og úrvals afþreyingu. Stirðbusalegur grautur TOM.IST >--------------------------------- Geisladiskur CARMEN NEGRA Diskur með tönlist og söngvum úr Carmen Negra, söngleik sem saminn af Stewart Trotter og Callum McLeod upp úr Carmen eftir Bizet. Tónlistarstjóri er Gunnar Þórðarson en söngvarar eru Caron Bar- ncs-Berg, Garðar Thór Cortes, Egill Ólafsson, Val- gerður Guðnadóttir, Helgi Björnsson, Jón Jóscp Snæbjömsson, Bubbi Morthens, Vilborg Halldórs- dóttir; Bergþór Pálsson og Bjartmar Þórðarson. Kjartan Valdimarsson leikur á hljómborð, Gunn- laugur Briem á slagverk og Gunnar Þórðarson á gítar. íslenska óperan gefur út, Skífan dreifir. 60,36 min. SÖNGLEIKURINN Carmen Negra hefur ver- ið á fjölunum hjá Islensku óperunni í sumar, en eins og kemur fram í kynningartexta er verkið söngleikur byggður á Carmen eftir Bizet. Mikið mannval kemur að flutningnum, bæði í söng og hljóðfæraleik. Söngvarar fara víða á kostum og hijómsveitin stendur sig vel að frátöldum gervileg- um hljóðgervahljóðum. Gaman er að heyra í Gunn- ari Þórðarsyni á gítar, smekklegur að vanda, og mennimir sem hann hefur með sér eru marg- reyndir að fimi og smekkvísi. Mikið mæðir á söngkonunni Caron Barnes-Berg sem syngur Carmen, og hún stendur sig og með prýði, þó ekki sé flutningur hennar gallalaus. Garðar Thór Cortes syngur frábærlega og Val- gerður Guðnadóttir stendur sig einnig afburðavel að vanda. Jón Jósep Snæbjörnsson hefur dægilega rödd, en framburðurinn þvælist fyrir honum, til að mynda er efitt að greina hvað hann er að syngja í Theories on the Poor. Egill Ólafsson syngur frá- bærlega og knattspyrnumaðurinn Escamillo sprettur fullskapaður af disknum. Helgi Björnsson nýtur leikþjálfunar sinnar og kemst langt í að skila sinni persónu á plasti, en Bubbi Morthens á ekki nema hluta úr lögum á plötunni og því erfitt að meta hans framlag. Carmen Bizets er mikið meistaraverk og ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar reynt er að færa verkið til í tíma og rúmi. Það tekst og ekki nema miðlungi vel hjá þeim félögum Trotter og Mcleod, textainnlegg Trotters er óspennandi og gamaldags klúrheit og tilgerðar- legt orðbragð spilla fyrir frekar en að gæða verk- ið lífið. Útsetningar Mcleods eru líka stirðbusa- - -• ‘ . íf,\ ÚR UPPFÆRSLU íslensku óperunnar á Carmen Negra. Egill Ólafsson sem Escamillo og Caron Barnes-Berg sem Carmen. legur grautur, hvorki fugl né fiskur. Diskur með tónlistinni úr Carmen Negra er sjálfsagt skemmtileg minning fyrir þá fjölmörgu sem séð hafa sýninguna, en þeir sem heima sátu fá lítið fyrir sinn snúð. Árni Matthíasson Sígild myndbönd BEKKJARFÉLAGIÐ - („DEAD POETS SOCIETY“, 1989) irkirk Bókmenntakennari við banda- rískan einkaskóla hefur afdrifarík áhrif á líf nemenda sinna með óvenjulegum kennsluháttum og þeir stofna leynifélag um ljóða- lestur. Úrvalsmynd sem fjallar ekki aðeins um kúgun, heldur, og ekki síður, að leysa andann úr læðingi. Full af bjartsýni og trú á lífið og því grimmari og sorglegri í lokin. Óskarsverðlaunahandrit Toms Schulman er firnagott og Weir tekst einkar vel í lýsingu á drengjunum, tilfinningum þeirra og þrá, og kitlandi spennunni í andrúmsloftinu. Williams er stór- kostlegur en ekki yfirgnæfandi því myndin er drengjanna fyrst og fremst. Lokaatriðið framkallar tár í augu. „0 kapteinn, minn kapteinn...“ VITNIÐ - („WITNESS“, 1985) kirk'k Lítill Amish-drengur (Lucas Ha- as), á ferðalagi með móður sinni (Kelly McGillis) í stórborginni, verður vitni að morði á lestarstöð. Þegar lögreglumaðurinn (Harrison Ford) sem rannsakar málið, kemst að því að félagar hans standa að baki, flýr hann ásamt mæðginun- um til fólksins þeirra í sveitinni. Dúndurgóður þriller í bland við ástarsögu McGillis og Fords og árekstur tveggja menningarheima (efni hugstætt leikstjóranum úr heimahögum), í forvitnilegu um- hverfi Amishanna. Weir fjallar af tilfinningu um siði þeirra og hefðir, stillir friðsælu lífi þeirra upp gegn dekkri siðmenningu stórborgarinn- ar. Leikararnir afbragð (takið eftir staffírugum Alexander Godunov - þetta var toppurinn á sorglegum ferli hins landflótta ballettdansara í Vesturheimi). Hlöðudans Fords og McGillis undir ljúfum tónum Sams Cooke, er með eftirminnileg- ustu atriðum myndarinnar. Frá- bær mynd, listileg með magnað skemmtigildi. PICNIC AT HANGING ROCK (1975) kirkV'i Þrjár stúlkur hverfa við Gálga- klett í Ástralíu um síðustu alda- mót, án þess að nokkur skýring finnist. Ein af fyrstu og forvitni- legustu myndum leikstjórans og áströlsku nýbylgjunnar. Weir skapar meistaralega dimmt og drungalegt andrúmsloft og ógn- andi dulúð framandi menningar frumbyggjanna gagnvart kristn- um, hvítum innflytjendum. Tekur á einu af sínum huglægustu við- fangsefnum, sambandi mannsins við náttúruna, af eftirminnilegri reisn. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.