Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 48

Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 48
Drögum næst 24. í£h HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS MOROUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIS691100, SÍMBRÉF S691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.1S, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Tillaga um byggingu fjölnota íþróttahúss við hlið Laugardalshallar samþykkt í borgarráði -Leitað samvinnu við fjárfesta TILLÖGUR þriggja manna vinnu- hóps sem íþrótta- og tómstunda- ráð skipaði um undirbúning að byggingu fjölnota íþróttahúss voru samþykktar í borgarráði í gær. Tillögurnar fela í sér að fjölnota íþróttahús rísi við hlið Laugardals- hallar og í því verði knattspymu- -ítvöllur, aðstaða fyi-ir frjálsar íþróttii- og að húsið nýtist einnig fyrir sýn- ingar í tengslum við Laugardals- höllina. I samræmi við tillögu vinnuhópsins verður skipuð þriggja manna nefnd sem starfar ásamt framkvæmdastjóra ITR að því að gera tillögur til borgarráðs um á hvern hátt sé hægt að standa að fjármögnun framkvæmda við húsið og hvort aðrir aðilar en borgarsjóð- ur geti komið að framkvæmdum og rekstri slíks mannvirkis. Steinunn V. Óskarsdóttir, for- maður ITR, sem var formaður vinnuhópsins, segir að fundað hafi verið með forystumönnum íþrótta- hreyfingarinnar og skilaði hópur- inn af sér skýrslu um málið. „Við leggjum til að núna sé það í hönd- um borgarstjóra að skipa þriggja manna nefnd sem hafi það verkefni að koma með hugmyndir að því hvemig hægt verði að fjármagna framkvæmdina. Við leitum eftir að- ilum innan iðnaðarins eða fjárfest- um sem hugsanlega geta komið með hlutafé þannig að Reykjavík- urborg þurfi ekki að fjármagna framkvæmdina að öllu leyti sjálf,“ segir Steinunn. Lagt er til að nefndin Ijúki störfum fyrir 1. nóv- ember nk. Kostnaður líklega 400-500 milljónir króna Gert er ráð fyrir tiltölulega ein- földu mannvirki sem þó þarf að uppfylla ákveðnar kröfur. Þar verði æfingaaðstaða fyrir knatt- spymumenn og aðstaða fyrir frjálsar íþróttir. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er líklegt talið að húsið muni kosta um 400- 500 milljónir króna. Akveðið verður á seinni stigum hvort gólfflöturinn verði lagður gervigrasi, sandgrasi eða öðru gólflagi. Lausaganga búfjár víða vandamál Tryggingafé- lög greiða millj- ónir árlega ÓFREMDARÁSTAND er víða á þjóðvegum landsins vegna lausa- göngu búfjár og eru þá engir lands- hlutar undanskildir. Verði ökumaður fyrir því óhappi að aka á sauðkind, þar sem ekki er girt beggja vegna vegar, er viðkomandi skaðabóta- skyldur og skiptir þá engu um tildrög slyssins. Arlega greiða tryggingafé- lögin milljónir króna til búfjáreig- enda sem missa sauðfé eða hesta í veg fyrir bifreiðar landsmanna en það er þó aðeins lítil hluti af tjóna- kostnaði. Stærstur hluti tjónsins liggur hjá ökumönnum sjálfum en auk þess að bera fullan kostnað af eigin tjóni þá þurfa þeir oft að gi-eiða búfjáreigendum bætur fyrir skaðann. I könnun sem gerð var á síðasta ári hjá lögregluembættum landsins kom í ljós að árlega aka um 140 öku- menn á skepnur en flest þessara slysa eiga sér stað á bundnu slitlagi á þjóðvegi 1 að sumarlagi. Þetta eru þó aðeins skráð tilvik og er talið að fjöldinn kunni að vera töluvert hærri þar sem margir láta hjá líða að til- kynna óhappið. Til viðbótar veldur búfé oft slysum án þess að það komi fram í skýrslum. Þar eru ökumenn að reyna að forða slysi, oft með hörmulegum afleiðingum eins og gerðist um síðustu helgi. Nýlega var skipuð nefnd sem fjalla á um leiðir til að halda búfé frá helstu þjóðvegum landsins en það er eindregin stefna landbúnaðarráðu- neytisins að gera úrbætur í þeim málum. Stefnt er að þvi að banna lausagöngu á helstu þjóðvegum en talið er óraunhæft að losna við fé af öllum þjóðvegum landsins. Hinni ný- skipuðu nefnd er gert að Ijúka störf- um fyrir 1. október næstkomandi. ■ Ráðuneytið hyggst/10 • Gott sumar fyrir geit- ungana MIKIÐ er um geitungabú nú í sumar, segir Erling Olafsson, skordýrafræðingnr hjá Náttúru- fræðistofnun Islands. Erling seg- ir fyrri hluta sumars skipta sköp- um fyrir geitunga og þar sem það hafi verið mjög gott á höfuð- borgarsvæði og Vesturlandi sé mikið um geitunga þar, mun meira en siðustu tvö sumur en svipað og fyrir þremur árum. *■ „f júní voru geitungabú í trjám það lítil að ég gat gefið þeim, sem treystu sér til að fjarlægja sjálfir búin, leiðbeiningar í gegn- um síma. Nú eru búin hins vegar orðin svo stór að ég ráðlegg fólki ekki sjálfu að fjarlægja þau, heldur kalla til sérfræðinga." Þrjár tegundir geitunga finn- ast hér á landi, ein sem gerir bú í tijám og tvær sem gera sér bú í jörðu og í holum í húsveggjum, undir þakskeggi og þess háttar stöðum. Að sögn Erlings eru þannig bú að koma í Ijós núna, þau séu orðin það stór að garð- eigendur taki eftir flugnastraumi inn og út úr þeim. * Erling segir stungur geitunga misalvarlegar, sumir hafi ofnæmi fyrir eitri þeirra og þeir geti þurft að leita til læknis. Morgunblaðið/Árni Sæberg GEITUNGABU era algengari í austurborg en vestur, m.a. * vegna þess að þar er skjólsælla. .. Morgunblaðið/Arnaldur OKUMAÐUR á leið frá Flateyri slapp með skrekkinn í gær þegar sauðfé hljóp í veg fyrir bifreið hans. Minna um kvótaviðskipti nú en áður V erð á kvóta aldrei hærra MINNI hreyfing hefur nú verið á kvótamarkaði samanborið við fyrri ár þegar liðlega mánuður er eftir af yfirstandandi fiskveiðiári enda mun verð á kvóta nú vera hærra en nokkru sinni fyrr. Að sögn Hilmars A. Kristjáns- sonar, framkvæmdastjóra KM- Kvóta, er eftirspurnin eftir kvóta greinilega minni en verið hefur undanfarin ár. Lítið er eftir af þorskkvótanum og leiguverð á þorski nú komið í um 90 krónur á kg. „Ég hef orðið var við að menn treysta sér ekki til að halda áfram á þessu háa verði. Engu að síður er þó talsverð eftirspurn eftir þorski og eins karfa, grálúðu og humri. Hins vegar er mikið framhoð af ýsu, ufsa, kola og reyndar flestum öðrum tegundum.“ Hilmar segir einnig gífurlega eftirspurn vera eftir varanlegum kvóta, sérstaklega þorski. Lægsta sölutilboð í varanlegan þorskkvóta er nú 880 krónur á kílóið og hefur aldrei verið jafnhátt. „Það era ein- hverjir sem eru tilbúnir að kaupa þorskkvóta núna á 870 krónur og maður veit að kílóið hefur verið selt á 850 krónur." Að sögn Hilmars er verð á rækju mjög lágt um þessar mundir. Mikið er eftir af rækjukvótanum, leigu- verðið hefur gersamlega hrunið og verð á varanlegum rækjukvóta er nú komið niður í 285 krónur. Ekki er langt síðan það var í 480 krón- um. ■ Minni eftirspurn/Bl Hagleiksfólk skreyti veggi BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu uin að hagleiksfólki verði falið að spreyta sig á veggskreyt- ingum. Vinnuskólinn sem stend- ur fyrir átaki um hreinsun veggjakrots hefur ráðið tvo lista- menn til aðstoðar við undirbún- ing og framkvæmdir. Lagt er til að borgarráð styrki verkefnið með 350 þús. krónum. Bent er á átta veggi til að skreyta en þeir eru undirgöngin við Valsheimilið, undii'göngin við hús Landsvirkjunar við Bústaða- veg, undirgöngin undir Reykja- nesbraut við Fáksheimilið, undir- göngin við Austurberg við Hraunberg, bakveggur undir stúku við Leiknisvöll í Efra Breiðholti, undirgöng við Fjall- konuveg, undirgöng milli Rima- hverfis og Borgarholts og vegg- ur við Austurbæjarskóla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.