Morgunblaðið - 22.07.1998, Síða 16

Morgunblaðið - 22.07.1998, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Alþjóðagjaldeyriss j dðurinn samþykkir lán til handa Rússum Kírijenkó telur lánveiting'- una sigur fyrir stjórnina Moskvu. Reuters. SERGEJ Kíríjenkó forsætisráð- herra Rússlands sagði í gær að lán- veiting Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) væri sigur fyiir ríkisstjórn Rússlands, en henni mistókst í síð- ustu viku að fá samþykki rússneska þingsins fyrir öllum þáttum efna- hagsáætlunar sem lögð var fram til þess að afstýra efnahagshruni í landinu. Neitunarvaldi beitt Stjórn IMF samþykkti 11,2 millj- arða dala neyðarlán til handa Rúss- um á mánudag og brýndi um leið Boris Jeltsín forseta til að grípa strax til viðeigandi umbótaaðgerða í rússnesku efnahagslífi. Stjórn IMF samþykkti lánveit- inguna þegar ljóst var að efnahags- áætlun ríkisstjórnarinnar yrði hrint í framkvæmd þrátt fyrir andstöðu þingsins. Stjórnin hefur gripið til annarra ráðstafana og m.a. tilkynnt að nýr virðisaukaskattur verði tek- inn upp 1. ágúst nk. Jeltsín forseti beitti líka neitunarvaldi til þess að hindra lækkun skatta, auk þess að leggja á nýja landeignarskatta. „Petta er algjör sigur stjórnar- innar,“ sagði Kíríjenko. „Tekist hefur að stoppa í gatið sem mynd- aðist þegar þingið samþykkti ekki allar tillögur okkar.“ Utborgun lægri en búist var við Ríkisstjórn Rússlands voru greiddir 4,8 milljarðar dala strax sem er 800 milljónum dala minna en búist hafði verið við. Ástæða þessa er sögð óánægja IMF með seinagang yfirvalda við að hrinda nauðsynlegum efnahagsaðgerðum í framkv'æmd. Afgangur lánsins verður greiddur út síðar á þessu ári að því tilskildu að Rússar uppfylli skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um endurbætur í efnahagsmálum. Ríkisstjórn Rússlands hefur samið við IMF um lán að andvirði 22,4 milljarða dala gegn því að gripið verði til aðgerða til þess að bjarga efnahag landsins. Talsmað- ur forseta Bandaríkjanna lýsti í gær ánægju forsetans með þau skref sem stjórn Rússlands hefði nú tekið til þess að tryggja jafn- vægi og endurbætur í rússnesku efnahagslífi. Kanna brunann í Ecstasy Miami. Reuters. BANDARÍSKIR rannsókna- menn hófu í gær að kanna hvað olli brunanum, sem varð um borð í skemmtiferðaskipinu Ecstasy rétt eftir að það lagði úr höfn á Miami. Eldurinn kom upp í skutnum og fengu 60 manns reykeitrun og varð að leggja 10 inn á sjúkrahús vegna þess. Kom eldurinn upp í þvottaherbergi og það var áhöfn skips, sem sigldi framhjá Ecstasy, sem varð fyrst til að tilkynna strandgæslunni um hann. Að sögn Þóris Gröndal, ræð- ismanns íslands á Miami, er ekki vitað til, að neinn Islend- ingur hafi verið um borð í Ecstasy. Brundtland boðar breytingar Genf. Reuters. GRO Harlem Brundtland, fyrrver- andi forsætisráðherra Noregs, tók í gær formlega við starfi framkvæmda- stjóra Alþjóðaheil- brigðisstofnunar- innar (WHO) og boðaði róttækar breytingar á starfi og yfirbragði stofn- unaiinnar. Sagðist Brundt- land ætla að reyna að gera starf WHO beinskeyttara og „viðskiptavænna" og sagðist viija styrkja stoðir WHO við lyijaiðnaðinn. Til að styðja við bak Brundlandts í viðleitni hennar lofaði Rockefeller-sjóðurinn bandaríski við þetta tækifæri styrk upp á tvær og hálfa milljón Bandaríkjadala þannig að laða megi sérfrótt fólk til sam- starfs við WHO. Starfsfólk WHO tók ávarpi Brundtland vel og telja margir hana búna þeim kostum sem þurfi til að reisa hag WHO við en stofnunin er talin dæmigerð fyrir hnignandi trú manna á starfi samtaka er tengjast Sameinuðu þjóðunum. Er vonast til að hún sanni hið fornkveðna að nýir vendir sópi best. -----+-«-«.-- Angóla Tugþúsundir á flótta und- an átökum Caxito. Reuters. BARDAGAR hafa brotist út á ný á milli Úníta-skæruliða og stjórnar- hersins í Angóla. Matvælahjálp Sa- meinuðu þjóðanna hefur skráð 70 þúsund manns á flótta undan átök- um það sem af er júlímánuði. Forseti Angóla, Jose Eduardo dos Santos, segir skæruliða hafa ráðist á rúm- lega sjötíu bæi og þorp og myrt meira en 200 manns. Óttast er að borgarastyrjöld kunni að brjótast út á ný en fjögur ár eru síðan friðarsamningar náðust á milli hinna stríðandi fylkinga í landinu, Úníta og MPLA. Almenningur til sveita flýr nú til byggða undan árásum " skæruliða, sem fara með ránshendi um og skilja þorp eftir í ljósum logum. Margir þeirra sem nú eru á flótta hafa áður þurft að flýja heimkynni sín, alls- lausir, undan árásum sem þessum, sumir fjórum eða fimm sinnum. Skæruliðar Úníta hafa á liðnum mánuðum reynst tregir til þess að afhenda vopn og landsvæði, sem þeim var gert að láta af hendi sam- kvæmt samningunum. Fráfall aðal- samningamanns Sameinuðu þjóð- anna, sem fórst í flugslysi í lok júní, er einnig talið hafa haft slæm áhrif á ástandið í landinu. Frammámenn veðja á Schröder GERHARD Schröder, kanzlara- efni þýzka Jafnaðarmanna- flokksins (SPD), er hér að spjalli við Renate Schmidt, sem fer fyrir flokknum í Bæjaralandi, á kosningafundi í Niirnberg í gær. Fundurinn markaði upp- haf formlegrar kosningaher- ferðar SPD fyrir kosningarnar til þings Bæjaralands, sem fram fara tveimur vikum fyrir Sam- bandsþingkosningarnar í haust. Skoðanakannanir benda enn til þess að SPD vinni sigur í Sambandsþingkosningunum, og í nýrri könnun hinnar virtu Al- lensbach-stofnunar á skoðunum frammámanna úr sijórnmálum og efnahagslífi Þýzkalands kemur fram, að yfirgnæfandi meirihluti þeirra þykist sann- færður um kosningasigur SPD yfír Kristilegum demókrötum (CDU), flokki Helmuts Kohls kanzlara. 70 hinna aðspurðu töldu að Schröder muni ýta Kohl úr kanzlarastólnum eftir kosningarnar 27. september. En flestir töldu ennfremur, að jafn- miklar líkur væru á því að eftir kosningarnar verði mynduð samsteypustjórn SPD og græn- ingja eins og að niðurstaðan verði „stórsamsteypa“, þ.e. sam- starf beggja stóru flokkanna, SPD og CDU. Reuters Norðmenn íhug- uðu Samveldisaðild Ósló. Morgunblaðið. MEÐ mikilli leynd velti norska rík- isstjómin því fyrir sér árið 1953 að koma Noregi inn í brezka Samveld- ið. Það, sem mun hafa stöðvað áformin, samkvæmt heimildum Aftenposten, var að Bretar töldu tvær konungsfjölskyldur ekki rúm- ast innan Samveldisins. Þetta kom á daginn er sagnfræð- ingarnir Helge 0. Pharo og Knut Einar Eriksen stunduðu rannsóknir í skjalasöfnum, í tengslum við smíði bókarinnar „Kalt stríð og alþjóða- væðing“, sem birtist í ritröð um sögu norskrar utanríkisstefnu. I einkaskjalasafni Halvards Langes, sem var utanríkisráðherra á þessum tíma, fundust athyglis- verð skjöl, sem sýndu fram á að hinn innri kjarni norska Verka- mannaflokksins kannaði með mikilli leynd þann möguleika að sækja um aðild að Samveldinu, samtökum ríkja brezku krúnunnar. I hinni háleynilegu nefnd, sem vann að þessu máli, sátu Oscar Torp, forsætisráðherra, flokksleið- toginn Einar Gerhardsen, auk utan- rikisráðherrans Halvards Langes og viðskiptaráðherrans Eriks Brofoss. Tenging við sterlingspundið aðalkeppikeflið Frá norskum bæjardyrum séð var hér um tvennt að ræða: að fá inngöngu í Samveldið eða að tengjast nánar gjaldmiðilssvæði sterlingspundsins. Það sem þótti brýnast var að tengjast pund- svæðinu, en fengist ekki samið um nógu hagstæð skilyrði fyrir teng- ingu við það var álitið að innganga í Samveldið kæmi til greina, skrif- ar Helge 0. Pharo. Að baki þessum hugmyndum lágu bæði pólitískar og efnahags- legar ástæður. Stjórnin óttaðist efnahagslega einangrun, er Mars- hall-hjálpinni var ekki lengur til að dreifa, og vonaðist til að nánari tengsl við Bretland myndi hjálpa efnahagsþróuninni í Noregi eftir stríðið, en hugsunin var líka sú að efla tengslin við Bretland í því NÚ er ljóst að þrír frambjóðendur munu berjast um embætti for- manns stjómarflokksins í Japan, Frjálslynda lýðræðisflokksins, en framboðsfrestur rann út í gær. Dagblaðið Yomiuri Shimbun taldi sig í gær hafa öruggar heim- ildir fyrir því að utanríkisráðherr- ann Keizo Obuchi myndi fara með sigur af hólmi. Samkvæmt fréttum blaðsins hefur hann tryggt sér stuðning um 170 kjósenda, en 207 atkvæði þarf til að hljóta kosningu. Heilbrigðisráðherrann Junichi Koizumi mun að sögn njóta stuðn- ings um 90 kjósenda, en Seiroku skyni að lágmarka áhrif Þýzka- lands og meginlands Evrópu á Noreg. Að áformunum skyldi hafa verið haldið svo kyrfilega leyndum kem- ur sagnfræðingunum ekki á óvart; að vilja tengjast öðru ríki með svo nánum hætti tæpri hálfri öld eftir að Norðmenn slitu sig út úr ríkja- sambandinu við Svíþjóð hefði, að mati Pharos, verið talið til helgi- spjalla í röðum borgaraflokkanna, sem þá voru í stjórnarandstöðu. Kajiyama, sem er vinsæll meðal fjármálamanna, rekur lestina með 60 atkvæði. Viðskiptablaðið Nihon Keizai Shimbun taldi einnig að Obuchi væri sigurstranglegastur, en bæði blöðin bentu þó á að sigurinn væri ekki í höfn, þar sem óvíst væri um afstöðu hátt í hundrað kjósenda. Stjórnmálaskýrendur fögnuðu því í gær sem merki um að breyt- ingar væra að eiga sér stað, að flokksmenn fengju að velja á milli þriggja frambjóðenda, þar sem öldungarnir í flokknum hefðu hing- að til valið leiðtoga bak við tjöldin. Lína sem Lólfta Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. RITHÖFUNDURINN Astrid Lindgren hyggst ekki taka því athugasemdalaust að sögupersóna hennar, Lína Langsokkur, sé klædd eggj- andi fötum og mynduð í kyn- ferðislega ögrandi stellingum í bandaríska tímaritinu Interview. Þetta hefur ritari Lindgren tilkynnt sænskum fjölmiðlum. Lindgren varð níræð á síð- asta ári og kemur orðið sjald- an fram. Að sögn ritara hennar tók hún myndirnar nærri sér og fær ekki skilið hvers vegna Lína hennar er ekki látin í friði. Líklegt er að tímaritinu verð stefnt fyr- ir uppátækið, ekki aðeins vegna þess að hin eilíflega níu ára Lína er þarna sýnd á óviðeigandi hátt, heldur einnig af því að nafnið Pippi Longstocking er skrásettt vörumerki í Bandaríkjunum. Það eru því höfundarréttará- kvæði, sem birtingin brýtur gegn. Hugmyndin að uppákomu tímaritsins hefur sennilega vaknað þar sem nýlega var framsýnd í Bandaríkjunum teiknimynd um „Pippi longstocking“, en Pippi er sænskt nafn persónunnar, sem íslendingar þekkja sem Línu. Interview var upphaf- lega stofnað af bandaríska listamanninum Andy Warhol og hefur einbeitt sér að efni og myndum, sem tekið væri eftir. Formannsslagur stjórnarflokks Japans Obuchi þykir sigur- stranglegastur Tókýó. Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.