Morgunblaðið - 22.07.1998, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 22.07.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 23 GREINARGERÐ GREINARGERÐ LOGMANNS REYKJAVÍKURLISTANS Vegna umfjöllunar hér í blaðinu um vara- menn af Reykjavíkurlista í borgarstjóm Reykjavíkur, hefur Reykjavíkurlistinn ósk- að eftir því að Morgunblaðið birti greinar- gerð Jóns Sveinssonar hrl., sem hann tók saman fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, borgarstjóra, um þetta mál. Grein- argerðin fer hér á eftir: i. í framhaldi af samtali okkar og þeirri spumingu með hvaða hætti varafulltrúar Reykjavíkurlista skuli taka sæti aðalmanna í borgarstjórn Reykjavíkur kjörtímabilið 1998-2002 hef ég til upplýsingar og glöggvunar tekið saman eftirfar- andi greinargerð um málefnið. Astæða þess að spurningar hafa vaknað í ofangreindu efni mun vera sú staðreynd að 3. maður á Reykja- víkurlista, fulltrái Alþýðuflokks, hefur ákveðið að taka sér tímabund- ið leyfí frá störfum í borgarstjórn Reykjavíkur og 13. maður á Reykjavíkurlista hefur tekið sæti hans, en sá einstaklingur er fyrsti varamaður Alþýðuflokks á Reykja- víkurlistanum. Alitaefnið sem hér um ræðir snýst um það hvort slíkt sé heimilt eða hvort skylt sé að fyrsti varamaður á Reykjavíkur- lista, 9. maður og síðan 10. maður ef sá níundi er forfallaður o.sv.frv., eigi að taka sæti hvers þess aðal- manns sem forfallast. Túlkun og skýring í þessu efni snýr að því grundvallaratriði hvernig Samtök um Reykjavíkurlistann eru skil- greind, þ.e. hvort um er að ræða sjálfstæðan stjómmálaflokk eða stjórnmálasamtök eða hvort um er að ræða samtök og samstarf sjálf- stæðra og ólíkra aðila (stjórnmála- flokka eða stjórnmálasamtaka). Við umfjöllunina hef ég haft und- ir höndum samning eða samþykktir fyrir Reykjavíkurlistann dags. 25. apríl 1994, viðauka og breytingar við samning eða samþykktir fyrir Reykjavíkurlistann dags. 30. apríl 1998, reglur eða lög fyrir Regnbog- ann, félag stuðningsmanna Reykja- víkurlistans, úrskurð yfirkjörstjórn- ar 1994 og bréf Reykjavíkurlistans til yfírkjörstjórnar dags. 2. maí 1998. Fylgja nefnd gögn greinar- gerð þessari. II. í 4. mgr. 86. gr. laga nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna seg- ir að þegar kosið er bundinni hlut- fallskosningu og listi fær einn mann eða fleiri aðalmenn kjörna verði þeir varamenn sem ekki hlutu kosn- ingu á listanum. Samkvæmt 99. gr. sömu laga taka varamenn sæti í sveitarstjórn eftir ákvæðum sveit- arstjórnarlaga. f 24. gr. sveitarstjómarlaga nr. 45/1998, sbr. bráðabirgðalög nr. 100/1998, er fjallað um varamenn. Greinin er svohljóðandi: „Varamenn taka sæti í sveitar- stjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá, flytjast burtu eða forfallast varan- lega á annan hátt eða um stundar- sakir frá því að sitja í sveitarstjórn. Nú er framboðslisti borinn fram af tveimur eða fleiri stjómmálaflokkum eða samtökum og geta þá aðalmenn listans komið sér saman um mis- munandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Yfirlýsing um slíkt samkomulag skal lögð fram á fyrsta eða öðmm fundi sveitarstjómar eftir kosningar. Nú næst ekki samkomulag milli stjórnmálaflokka eða samtaka sem standa að sameiginlegum lista, og skulu þá þeir varamenn listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalmaður sá sem um er að ræða, taka sæti hans í sveitar- stjórn í þeirri röð sem þeir vora kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna slíks lista í sama stjómmálaflokki eða samtökum og aðalfulltrúinn sem í hlut á var þegar kosning fór fram taka varamenn listans sæti sam- kvæmt venjulegum reglum. Þegar aðalmaður flytur úr sveit- arfélaginu um stundarsakir má ákveða að hann skuli víkja úr sveit- arstjórn þar til hann tekur aftur bú- setu í sveitarfélaginu. Tekur þá varamaður hans sæti samkvæmt framangreindum reglum." Greinin er efnislega samhljóða 35. gr. eldri sveitarstjórnarlaga m'. 8/1986 með síðari breytingum, ef frá er talið niðurlag 4. mgr. þeirrar greinar (3. og 4. málsliður). Sam- kvæmt því ákvæði var aðalmanni, ef hann forfallaðist um stundarsakir vegna veikinda eða af öðram ástæð- um, rétt að tilnefna þann af vara- mönnum sínum sem taka skyldi sæti hans á meðan. Ef hann tilnefndi engan úr hópi varamanna skyldi varamaður taka sæti hans sam- kvæmt ákvæðum 1. og 2. mgr. Þetta ákvæði er hins vegar ekld í núgild- andi lögum. Um varamenn í nefnd- um er fjallað í 43. gr. gildandi laga. III. Fyrir borgarstjórnarkosningam- ar 1994 bundust Kjördæmisráð Al- þýðubandalagsins í Reykjavík, Full- tráaráð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík, Fulltrúaráð Framsókn- arfélaganna í Reykjavík og Kvenna- listinn í Reykjavík samtökum um að vinna saman að borgarstjórnarmál- um í Reykjavík og bjóða fram einn sameiginlegan lista i borgarstjóm- arkosningunum það ár. Gengu aðil- ar frá skriflegum samningi (sam- þykktum) af þessu tilefni sem full- tráar allra aðila undirrituðu og dag- settur er 25. apríl 1994. I 1. gr. samningsins (samþykkta fyrir Reykjavíkurlistann) segir að heiti sameiginlega framboðsins og framboðslistans sé Reykjavíkurlist- inn og að sótt skuli um listabókstaf- inn R sem bókstaf listans í borgar- stjómarkosningunum vorið 1994. Heimili og vamarþing listans er í Reykjavík skv. 2. gr. og skv. 3. gr. er tilgangur aðila að vinna saman að borgarstjómarmálefnum í Reykjavík á næsta kjörtímabili og bjóða fram einn sameiginlegan framboðslista í borgarstjómai’kosningunum í Reykjavík, sem fram fara 28. maí 1994. Þá er í samþykktunum fjallað um fjárframlög og fjármál, fram- kvæmdastjóm, aðalfund, reikninga og endurskoðun, gildistíma samn- ingsins, sem var upphaflega kjör- tímabilið 1994-1998, og samstai'fið að öðra leyti. Reykjavíkurlistinn fékk kennitölu í febráar 1994, m.a. vegna fjárhagslegra málefna framboðsins. Fyrir borgarstjórnarkosningarn- ar 1994 reis ágreiningur um það hvemig R-listinn skyldi auðkenndur í auglýsingu framboða og á kjörseðl- um við kosningarnar. Yfirkjörstjórn kvað upp sérstakan úrskurð af þessu tilefni en í honum segir m.a.: „A framboðslista þeim, sem barst yfirkjörstjórn fyrir lok framboðs- frests og auðkenndur hefur verið með listabókstafnum R, segir orð- rétt: „Afþýðubandalagið, Alþýðuflokk- urinn, Framsóknarflókkurinn og Kvennalistinn hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista við borg- arstjórnarkosningarnar í Reykjavík sem fram eiga að fara 28. maí 1994. - Heiti listans er Reykjavíkurlistinn og óskað hefur verið eftir listabók- stafnum R.“ Af þessum tilvitnuðu orðum verður ekki annað ráðið en listinn sé borinn fram af fyrrgreind- um fjóram stjórnmálaflokkum eða - samtökum. Eins og listinn er úr garði gerður lítur yfirkjörstjórn svo á að „Reykjavíkurlistinn" sé heiti á listanum en ekki á stjórnmálasam- tökum, sem að honum standa. Hvorki í sveitarstjórnarlögum né í lögum um kosningar til Alþingis er ráð fyrir því gert að framboðslistar beri sérstök heiti, heldur ber ein- ungis að auðkenna þá með listabók- stöfum." Þá ákvað yfirkjörstjórn jafnframt að á kjörseðli yrði eftirfarandi texti fyrir ofan nöfn frambjóðenda á R- lista: „R. Listi borinn fram af Al- þýðubandalagi, Alþýðuflokki, Framsóknarflokki og Kvennalista." IV. Fyrir borgarstjómarkosningarn- ar 1998 ákváðu sömu aðilar og stóðu að Reykjavíkurlistanum fyrir borg- arstjórnarkosningarnar 1994 að standa sameiginlega að prófkjöri á sameiginlegan framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1998 samkvæmt reglum sem aðilar komu sér fyrirfram saman um. I prófkjör- inu var sjö efstu sætunum skipt á milli flokkanna fjögurra. Attunda og níunda sætinu var ráðstafað með sérstökum hætti samkvæmt sam- komulagi aðila. Að prófkjöri loknu var síðan raðað á framboðslistann í önnur sæti og fullt tillit tekið til flokkanna fjögurra og óháðra við röðun í einstök sæti. Sömu aðilar og stóðu að Reykja- víkurlistanum 1994 ákváðu jafn- framt að framlengja samstarfs- samninginn sem gerður var 25. apr- fl 1994. Þá urðu þeir sammála um að veita Regnboganum, stuðningshópi um Reykjavíkurlistann í Reykjavík, aðild að fyrri samningi aðila með til- teknum réttindum og skyldum. Gengið var frá breytingum og við- auka við fyrri samning (samþykkt- ir) fyrir Reykjavíkurlistann, sem undirritaður var af fulltrúum allra aðila 30. aprfl 1998. í viðaukanum er 1. gr. fyrri samnings (samþykkta) breytt og hún orðuð svo: „Heiti samstarfsins er Samtök um Reykjavíkurlistann, daglega og hér á eftir nefnt Reykjavíkurlistinn. Heiti framboðs samtakanna og list- ans er Reykjavíkurlistinn. Sótt skal um listabókstafinn R sem bókstaf listans í borgarstjórnarkosningun- um vorið 1998.“ Eldri samningur var með viðauk- anum framlengdur um kjörtímabilið 1998-2002 og tekið fram í 4. gr. að efni fyrri samnings frá 25. april 1994 skuli taka til aðila og standa óbreytt að öðra leyti en því er fram kemur í viðaukanum. í bréfi sem fylgdi framboðslista Reykjavíkurlistans til yfirkjör- stjórnar dags. 2. maí 1998 , sbr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 5/1998, segir m.a.: „Hér með er lagður fram fram- boðslisti til borgarstjórnar við sveit- arstjórnarkosningarnar í Reykja- vík, sem fram eiga að fara hinn 23. maí 1998. Hann er borinn fram af Samtökum um Reykjavíkurlistann, kennitala 630294-2079, en samtökin hafa heimili og varnarþing í Reykja- vík. Hann ber heitið REYKJA- VÍKURLISTINN og farið er fram á listabókstafinn R. Listanum fylgir samþykki allra frambjóðenda fyrir því að taka sæti á listanum og skrá yfir meðmælendur samkvæmt ákvæðum kosningalaga." Með bréfi og framboðslista til yf- irkjörstjórnar fylgdi bæði upphaf- legur samningur (samþykktir) aðila frá 25. aprfl 1994 og viðauldnn frá 30. apríl 1998 til skýringar á þvi hverjir stæðu að framboðinu. A kjörseðli við borgarstjórnar- kosningarnar 1998 fyrir ofan nöfn frambjóðenda á R-lista var eftirfar- andi texti: „R. Listi borinn fram af Samtökum um Reykjavíkurlista." Á fundi borgarmálaráðs Reykja- víkurlistans hinn 16. júní 1998 var eftirfarandi yfirlýsing borgarfull- trúa og varaborgarfulltráa Reykja- víkurlistans samþykkt: „Með tilvísun til 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, hef- ur Reykjavíkurlistinn, en að honum standa: Kjördæmisráð Alþýðu- bandalagsfélaganna í Reykjavík, Fulltráaráð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík, Fulltráaráð Framsókn- arfélaganna í Reykjavík, Kvenna- listinn í Reykjavík og Regnboginn, stuðningshópur Reykjavíkurlistans, samþykkt að ef um forfoll borgar- fulltrúa til lengri tíma er að ræða, taki varaborgarfulltrái, frá sömu stjórnmálasamtökum og sá sem for- fallast tilheyrir, sæti í borgarstjórn. Slíkar breytingar, ef til þeirra kem- ur, munu verða kynntar til borgar- ráðs - borgarstjórnar. f öllum öðram tilvikum taka vara- menn sæti í borgarstjórn í þeirri röð sem þeir era kosnir." Framangreind yfirlýsing (sam- þykkt) mun hafa verið lögð fram á fundi borgarstjórnar hinn 2. júlí sl. í samræmi við 2. mgr. 24. gr. sveitar- stjómarlaga, V. í því álitamáli (ef álitamál skyldi kalla) sem hér er uppi skiptir meg- inmáli hvernig Samtök um Reykja- víkurlistann era skilgreind. í ljósi bæði efnis og orðalags samnings (samþykkta) þeirra sem að Reykja- víkurlistanum stóðu 1994 og við- auka og breytingum við fyrri samn- ing (samþykktir) 1998 er engum vafa háð að fjögur sjálfstæð stjóm- málaöfl (stjómmálaflokkar) stóðu að framboðinu árið 1994 og einnig árið 1998, en þá að viðbættum Regnboganum, sem er félag stuðn- ingsmanna Reykjavíkurlistans og rúmar m.a. þá aðila sem standa ut- an stjórnmálasamtakanna fjögurra. Stjórnmálasamtökin fjögur hafa hvert um sig sína stefnu og sitt skipulag á landsvísu en mynduðu sameiginlegt tímabundið kosninga- bandalag bæði í kosningunum 1994 og 1998. Tók fyrra samstarfið sam- kvæmt ákvæðum upphaflegs samn- ings aðeins til eins kjörtímabils eða fjögurra ára og var síðan framlengt um önnur fjögur ár með viðaukan- um frá 30. aprfl 1998. Hér er því um mjög afmarkað, tímabundið og stað- bundið samstarf að ræða. Samning- urinn frá 1994 og viðaukinn frá 1998 fylgdu með framboði Reykjavíkur- listans til yfirkjörstjómar vorið 1998. Hvorki yfirkjörstjórn né nokkrum öðrum gat því dulist hverjir stóðu að framboðinu. I ljósi þessa er fráleitt að líta á Samtök um Reykjavíkurlista sem sjálfstæð- 25 ÁRA REYNSLA ÍSLENSKAR GÆBA MÚRVÖRUR Á GÓÐU VERÐI SÍDANIS72 EÐALPÚSSNING MARGIR LITIR !l steinprýði STANGARHYL 7, SIMI 567 2777 an stjórnmálaflokk eða sjálfstæð stj órnmálasamtök. I 1. gr. samningsins frá 25. apríl 1994 kom ekki fram sérstakt heiti þess samstarfs sem aðilar höfðu bundist samtökum um að standa sameiginlega að. Af þessum sökum þótti yfirkjörstjóm ekki annað fært vorið 1994 en að auðkenna framboðið sem framboð stjómmálasamtakanna fjögurra svo sem fram kom síðar á kjörseðli, þrátt fyrir beiðni fulltráa framboðsins um að einungis yrði notað heitið „Samtök um Reykjavík- urlista" eða „Reykjavíkurlistinn". Með tilliti til þessa gerðu aðilar með viðaukanum hinn 30. aprfl 1998 breytingu á nefndri 1. gr. fyrri samnings aðila. í breytingunni kem- ur fram að heiti samstarfsins sé „Samtök um Reykjavíkurlistann", daglega nefnt Reykjavíkurlistinn, og að heiti framboðs samtakanna og listans skuli vera Reykjavíkurlistinn. Bæði í inngangi samningsins frá 25. apríl 1994 og viðaukanum frá 30. apríl 1998 er skýrt tekið fram að að- ilar geri með sér samning og „hafa ákveðið að bindast samtökum um að vinna saman að borgarmálum í Reykjavík og bjóða fram einn sam- eiginlegan lista í borgarstjómar- kosningunum“ fyrst 1994 og síðan á ný 1998. Fram kemur með skýram hætti heiti „samstarfsins“ eins og það er orðað. Eftir þessa breytingu féllst yfirkjörstjóm á að nota heitið „Samtök um Reykjavíkurlistann" fyrir framboðið í stað langrar upp- talningar á þeim aðilum sem að framboðinu stóðu. Var atkvæðaseðill m.a. auðkenndur á þann hátt svo sem að framan er rakið. Á breytingu þá sem gerð var með viðaukanum verður því að líta sem minniháttar formbreytingu sem að öðra leyti hafði hvorki áhrif á fyrra samstarf og samning aðila né fyrri stöðu og eðli Reykjavíkurlistans. Með í huga það sem rakið er hér að framan er afar langsótt og reyndar algjörlega út í hött að líta svo á að með viðauk- anum hafi verið stofnuð ný stjóm- málasamtök með formlegum hætti. Með tilvísun til framangreinds taka varamenn Reykjavíkurlistans sæti í borgarstjóm Reykjavíkur samkvæmt 2. og 3. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Fullt samkomulag er með borgar- fulltráum og varaborgarfulltráum listans um hvemig varamenn skulu taka sæti, sbr. samþykkt fundar borgarmálaráðs Reykjavíkurlistans hinn 16. júní 1998 og framlagningu samþykktarinnar (yfirlýsingarinn- ar) í borgarstjórn Reykjavíkur 2. júlí sl., sbr. 2. málslið 2. mgr. 24. gr. sveitarstjómarlaga. Nefnd 3. mgr. 24. gr. á því ekki við. Niðurstaða mín er samkvæmt öllu framangreindu sú að borgar- fulltrúar Reykjavíkurlistans geti ótvírætt á grundvelli 2. mgr. 24. gr. sveitarstjómarlaga komið sér sam- an um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur for- fallast. Þar sem yfirlýsing um slíkt samkomulag hefur verið lögð fram í borgarstjórn Reykjavíkur í sam- ræmi við 2. málslið 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga verður ekki annað séð en að öll lagaskilyrði séu uppfyllt í þessu efni. Fullkomlega eðlilegt og löglegt verður því að telja samkomulag borgarfulltráa Reykjavíkurlistans um að 13. maður á listanum taki sem varamaður sæti 3. aðalmanns listans um stundar- sakir. Virðingarfyllst, Jón Sveinsson, hrl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.