Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 30

Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HELGA GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR + Helga Guðrún Eiríksdóttir fæddist í Hjarðardal í Onundarfirði 6. september 1940. Hún lést í Hollandi 7. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Helga Guðrún Guðmundsdóttir í Hjarðardal og Ei- ríkur Bjarnason frá Bóli. j Helga eignaðist fjórar dætur, þær eru: 1) Ólavía Vil- hjálmsdóttir, f. 27.5. 1959. Hennar sonur er óskar Yngvi Sigurðsson. 2) Solveig Sigríður, f. 29.11. 1960. Kjörfor- eldrar Solveigar eru Kristján Guðmundsson og Valborg Hall- grímsdóttir. Eiginmaður Sol- veigar er Magnús Gunnarsson. Þau eiga fimm börn: Kristján, Gunnhildi, Valgeir, Hákon og Símon. 3) María Þórðardóttir, f. 24.4. 1963. Hennar eiginmaður er Hörður Vignir Vilhjálmsson. 4) Halla Steinunn Hinriksdóttir, f. 24.12. 1966. Faðir Höllu og jþ* eiginmaður Helgu er Hinrik Guðmundsson frá Auðsstöðum í Hálsa- 'sveit, f. 10.4. 1931. Helga og Hinrik liófu sambúð árið 1966. Þau bjuggu fyrst í Hveragerði, fluttust siðan að Bóli í Biskupstungum, og hafa átt þar heimili síðan, þó þau, eink- um Helga, liafí unn- ið utan heimilisins næstum alla þeirra búskapartíð. Nokk- ur ár vann Helga á Hótel Hveragerði, hjá föður sínum og Sigríði sýúpu sinni, siðan á heilsuhæl- inu í Hveragerði. Eftir það fór hún að vinna á Sólheimum í Grímsnesi, og svo á sambýli við Árveg á Selfossi. Á þessum vett- vangi, á heimilum þroskaheftra, hefur hún unnið í tvo áratugi. Er hún lést var hún að sinna skyldustörfum sínum, er starfs- ojg heimilisfólk af sambýlinu við Arveg var á ferð í Hollandi. títför Helgu fer fram frá Skál- holtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. + Ástkær sambýlismaður, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÍSLEIFUR SIGURÐSSON framkvæmdastjóri, Vesturbergi 124, Reykjavík, sem andaðist á heimili sínu aðfaranótt 19. júlí, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugar- daginn 25. júlí kl. 13.30. Esther Skaftadóttir, Sigurður Hallmannsson, Einar Ólafur Hannesson, Sigriður Dúa Goldsworthy, Gunnlaugur fsleifsson, íris Rós Þrastardóttir, Sigurður Hallmann ísleifsson, Guðbjörg Jóna Pálsdóttir, Bjami Ellert ísleifsson, Halldóra Vala Jónsdóttir, Valgeir Gunnlaugur ísleifsson og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, tengdasonur og afi, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Skeljagranda 5, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 23. júlí kl. 13.30. Lovísa R. Jóhannesdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Þórunn G. Benson, Einar Guðmundsson, Jón Lárus Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Sindri Guðmundsson, Hulda Lúðvíksdóttir og barnabörn Mikael Benson, Sævör Þorvarðardóttir, Guðlaug Rögnvaldsdóttir, Ása Hrönn Sæmundsdóttir, + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi HALLDÓR GUNNAR PÁLSSON, Kaplaskjólsvegi 37, Reykjavík, andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, sunnudaginn 12. júlí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir góða aðhlynningu og hlýhug. m Garðar Valur Halldórsson, Hulda Magnúsdóttir, Bergþóra Ása, Sigurlaug Guðrún og Halldóra Garðarsdætur og fjölskyldur, Jóhanna Guðrún Halldórsdóttir, Garðar Steindórsson, Kristín, Bryndís og Áslaug Garðarsdætur og fjölskyldur. Hún Helga frænka er dáin. Þessar fréttir bárust mér þar sem ég var stödd í Danmörku, í heimsókn hjá börnum mínum. Hún, sem hafði verið svo hress og kát þegar við kvöddumst, daginn áður en ég fór utan. Helga var mér meira en frænka, hún var ljósið sem Helga systir gaf okkur þegar hún sjálf kvaddi þennan heim. Þú varst okk- ur sólskin í sorginni, Helga mín. Við tengdumst strax sterkum böndum í æsku þinni, mér fannst þú alltaf vera litla systir mín. Þegar mamma mín veiktist og þurfti að fara á sjúkrahús varst þú bara 5 ára, þá fluttir þú í rúmið til mín, eftir það sváfum við saman meðan ég var heima í Hjarðardal. Snemma fór að bera á umhyggju þinni íyrir öðrum. Þú varst 7 ára þegar ég var send suður með þig til læknis. Allt gekk að óskum, en þú hafðir áhyggjur af mér, sem þurfti að fara til læknis líka. Umhyggja fyrir öðrum var alltaf rík í fari þínu. Þó þú værir sjálf lasin gleymdist það ef þú vissir um einhvern sem þurfti á þinni að- stoð að halda. Ævistarf þitt var að hjúkra og hlynna að vanheilu fólki. Elsku Helga mín, við áttum svo margt ógert saman, ég átti eftir að fræðast um svo margt hjá þér. Því þrátt fyrir stutta skólagöngu varst þú svo rík af fróðleik, sem þú hafðir aflað þér, að mestu við lestur bóka. Það var svo gott að leita til þín ef ég var í vandræðum með eitthvert verkefni, því að lokum íúndum við ávallt farsæla lausn saman. Það er ómetanlegt að eiga vin sem ávallt er hægt að hafa samband við, hvort sem erindið er stórt eða smátt. Helga mín, þakka þér fyrir allar góðu samverustundirnar fyrr og síðar. Eg veit að það hefur verið tekið vel á móti þér á nýja staðnum. Ég bið góðan Guð að gefa Hinrik, dætrum þínum, og sólargeisla ykk- ar allra, Oskari Yngva, styrk í sorg- inni. Ragnheiður Guðmundsdóttir (Heiða). Sæmir ekki að syrgja þó svipt sé brott vini af lífsins leið. Allrar veraldar vegur, veikra sera hraustra, liggur að b'kum stað. En ef við trúum að alvís og góður Guð utn eilífð ráði svo er sorg öU óþörf. Helga hafði unun af bókalestri og las mikið, bæði laust mál og bundið. Fyrir skömmu lánaði hún okkur bók, sem hún hafði mætur á, „Ein- tal“ eftir Gísla Gíslason frá Uppsöl- um. (Gísla þann er Omar Ragnars- son gerði landsfrægan.) Ofanritað- ar ljóðlínur eru úr kvæði sem Gísli orti eftir lát móður sinnar. Mikið traust sýndir þú okkur Valborgu, Helga mín, er þú trúðir okkur fyrir uppeldi dóttur þinnar. Hún kom til okkar viku gömul, og hefur verið „lífsblómið" okkar síð- an. Gott er til þess að hugsa hve samband og vinskapur okkar hefur verið góður og náinn alla tíð. Við höfðum oft gaman af Solveigu okk- ar, þriggja til fimm ára, er hún var að sýna leikfélögum sínum ljós- myndir og sagði þá gjarnan: Þetta er pabbi, þetta er mamma, og þetta er Helga mamma. Ekki heyrðum við börnin undrast það neitt að Sol- veig ætti tvær mömmur, og víst var það að þau töluðu um „Helgu mömmu“ rétt eins og Solveig. Helga, systurdóttir mín, var á 5. ári er ég fór frá Hjarðardal, til tré- smíðanáms hér syðra. Ég minnist yndislegrar telpu, sem ekki varð þess aðnjótandi að kynnast móður sinni, en Sigríður móðuramma, Heiða móðursystir og allir aðrir í hennar stóru fjölskyldu reyndu að koma henni í móður stað. Ékki fór það framhjá sveitaskáldinu okkar, Guðmundi Inga, hve samband þeirra Helgu og Heiðu var náið og gott. Helga var 5 ára er hann orti fallegt kvæði um þær frænkur og nefndi „undir svefninn", og finna má í 3. bók hans Sóldögg. Guð- mundur Ingi var þá farkennari í sveitinni og var í Hjarðardal þriðju hverja viku skólaársins. Síðustu ár Helgu heima í Hjarðardal var ný húsmóðir komin á heimilið, Þórdís, kona Hagalíns móðurbróður henn- ar. Þá var amma hennar dáin og Heiða farin að heiman. En Þórdís reyndist Helgu sem besta móðir þau ár. Ellefu eða tólf ára fór Helga til Heiðu, sem þá var komin að Auðsholti. Eftir nokkra dvöl hjá Heiðu fór hún til fóður síns og Sig- ríðar konu hans í Hveragerði. Ástvinum Helgu óskum við Guðs friðar. Blessuð sé minning hennar. Kristján og Valborg. Af eibfðarljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðrá. Vort bf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphbninn fegri en auga sér mót öÚu oss faðminn breiðir. (E.Ben.) Frá því ég man fyrst eftir mér, vissi ég að ég ætti tvær mömmur, mömmu og Helgu mömmu, og ekk- ert fannst mér eðlilegra. Svo eign- uðust börnin mín Helgu ömmu. Um verslunarmannahelgina í fyrra áttum við, öll fjölskyldan, ynd- islega daga á Bóli, hjá Helgu og Hinrik. Þá daga, og marga aðra, varðveitum við vel í minningunni. Didda, Oskar, Maja, Vignir, Halla og Hinrik, megi góður Guð styrkja og styðja ykkur öll. Blessuð sé minning Helgu mömmu. Solveig. Fagran sumardag í júlí erum við enn minnt á hve lífið getur verið hverfult, er við fáum þá sorgar- fregn að Helga sé horfin brott úr þessum heimi. Spurningar sækja á hugann en fátt er um svör, nema þá staðreynd að ekki er spurt um stund eða stað þegar kallið kemur. Helgu kynntumst við vel í gegn- um áralangt starf hennar á Sambýlinu við Árveg 8, þar sem við höfum átt margar góðar stundir. ÖIl okkar samskipti voru hin ánægjulegustu. Þar fór heldur ekki framhjá neinum sá eiginleiki Helgu að miðla öðrum af lífsgleði sinni, krafti og dugnaði sem hún bjó yfir. Og hin ýmsu vandamál hversdags- lífsins leyst á auðveldan hátt. Nokkrar voru ferðirnar sem hún fór með bróður okkar, Jón Sæ- mund, með sér í Tungurnar, annað- hvort á hans heimaslóðir eða bauð honum með sér heim að Bóli þar ^arasKom v/ Possvogskifkjwga*^ a w Símii 554 0500 v' Írjííryííjur Upplýsingar í símum ; 562 7575 & 5050 925 iSf 1 í HOTEL LOFTLEIÐIK U lCELANDAIR HOTELS GLÆSILEG KAFFIHIAÐBORÐ FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA sem hann naut gestrisni þeirra Helgu og Hinriks og fylgdist með sveitastörfunum. Þessum ferðum hefur Jón sagt okkur frá á sinn einstaka hátt geislandi af ánægju, þar sem um- hyggjusemi og vinátta Helgu átti stóran hlut að máli. Við kveðjum Helgu með þakklæti og söknuði og vottum Hinrik og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira, Drottinn minn gefi dauðum ró en hinum líkn er lifa. (Úr Sólarljóðum.) Margrét og Hrefna Kristinsdætur. Elsku vinkona, ég skrifa þessar línur sem síðustu kveðjuorð hér á okkar jarðneska sviði. En veit að sálin þín getur tekið við öllum hugsunum mínum og bænum. Við kynntumst ekki vel fyrr en við lentum saman í stjórn þessa fé- lagsskapar sem var okkur báðum svo kær. Ég sem formaður og þú sem varaformaður. En í raun voru lítil skil þar á milli því við heyrð- umst næstum daglega í síma og stundum oftar en einu sinni á dag. Voru þá málin rökrædd fram og aftur. Svo sannarlega missti Sálar- rannsóknarfélag Suðurlands drif- fjöður og kæran félaga. Þegar fundum okkar bar saman fyrst 1991 tók ég strax eftir hve blátt áfram þú varst. Sagðir þínar skoð- anir án þess að skreyta þær og vildir að hlutirnir væru gerðir, en aldrei án vandlegrar íhugunar. Þegar ég kom svo inn í stjórn 1996 varstu þar fyrir, traust, full af hug- sjón og ákafa. Og sú stund kom, að mig langaði að gefast upp á öllu stjórnarbasli, þá bléstu á það sem hverja aðra vitleysu. Elsku vin- kona, ég sakna símtala okkar, kímnigáfunnar og hreinskilni þinn- ar. En ég veit að þú ert þegar farin að vinna í því sem þér er hugleikið því þú ert ekki vön að sóa tíma þín- um. Kæra vina, ég þakka þér fyrir samvistirnar núna og veit að end- urfundir okkar verða skemmtilegir og nóg að spjalla um. Þú varst sérlega lagin að finna vandaðar bækur og þetta ljóð fannst þér svo fallegt og valdir það í fréttabréfið okkar síðast. Ljúfi drottinn lýstu mér svo bfsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá jær ljóma í sálu minni. Þín vinkona, Dóra Mjöll Stefánsdóttir. Kveðja frá íbúum og starfs- fólki sambýlisins Árvegi 8 Hjálpa þú mér helg og væn, hbnnamóðirin bjarta! legðu mrna bljúgu bæn baminu þbiu að hjarta! þá munu ávallt grösin græn í garðinum skarta, í garðinum mínum skarta. Bænheit rödd mín biður þín, blessuð meðal fljóða; vertu æ unz ævbi dvín bintak mbina (jóða; móðrá Krists sé móðir mbi og móðir þjóða, móðff allra þjóða. Kenn mér að feta fór þín ein, feta að himnaborðum, leiddu þennan litla svern, líkt og Jesúm forðum. Líkt og Krists sé heyrn mín hrein að hlýða orðum, hlýða þínum orðum. (Halldór Kijjan Laxness.) Sendum Hinrik og fjölskyldu hlýjar samúðarkveðjur. Megi birta og ylur ríkja yfir för Helgu að himnaborðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.