Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 8

Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Þrjár konur vígðar til prestsstarfa ÞRJÁR konur voru vígðar til prests á sunnudag. Þær eru Bára Friðriksdóttir, sem vígðist til Vestmannaeyjaprestakalls, Guð- björg Jóhannesdóttir, sem vígðist til Sauðárkróksprestakalls, og Lára G. Oddsdóttir, sem vígðist Hnífstungumál á Egilsstöðum Gert að sæta geð- rannsókn MAÐUR sem stakk annan mann mörgum stungum með vasahníf á Egilsstöðum sl. laug- ardag var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. ágúst nk. og gert að sæta geðrannsókn. Árásin var gerð utanhúss. Tveir menn lentu í átökum og tók sá er úrskurðaður var í gæsluvarðhald upp hníf og stakk andstæðinginn mörgum stungum víða í líkamann. Þriðji maðurinn blandaði sér síðan í málið og gekk í skrokk á þeim sem hnífnum beitti. Maðurinn sem varð fyrir stungunum var fluttur á sjúkrahús á Norðfirði og mun hann ekki vera í lífshættu. Árásarmaðurinn var skoðaður af lækni eftir barsmíð þriðja að- ilans og mun vera talsvert mar- inn. Hann er í vörslu lögregl- unnar á Egilsstöðum. til Valþjófsstaðarprestakalls, og standa þær við hlið biskups Is- lands, hr. Karls Sigurbjörnsson- ar, á myndinni. Fyrir aftan þær eru sr. Hjálmar Jónsson, sem lýsti vígslu, sr. Ðalla Þórðardótt- ir vígsluvottur, sr. Jónína Elísa- bet Þorsteinsdóttir vxgsluvottur, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir vígsluvottur, sr. Hjalti Guð- mundsson, sem þjónaði fyrir alt- ari, og dr. Gunnar Kristjánsson vígsluvottur. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík. Eldsvoði í fískvinnsluhúsi í Sandgerði Tjónið líkleg'a 10-15 milljónir TALIÐ er að tjón af völdum elds- voða í saltfiskverkuninni Gullsteini í Strandgötu 22 í Sandgerði nemi yfir tíu milljónum króna. Það voru sjófarendur sem tilkynntu til lög- reglunnar í Keflavík að hús stæði í Ijósum logum um kl. tvö í fyrrinótt. Þegar Slökkviliðið í Sandgerði kom á vettvang skíðlogaði í húsinu. Um er að ræða tvær byggingar og það var norðurhúsið sem stóð í björtu báli þegar að var komið. Þar var til húsa saltfiskverkun. Húsin eru hlaðin og steypt, byggð fyrir um 20 árum. Slökkviliðið í Keflavík vann einnig að slökkvistarfinu. Eldurinn komst einnig með þak- inu yfir í syðra húsið þar sem eru geymslur. Þar voru m.a. þrír bflar. Slökkviliðið náði tveimur þeiiTa út en lakkskemmdir urðu á öllum bfl- unum. Mikil mildi var að eldur komst ekki í gaskúta sem þar voru geymdir. Nokkurt magn af saltfiski var í fiskverkunarhúsinu, plastkör og tæki til saltfiskframleiðslu. Þak hússins var fallið þegar slökkvilið kom að. Allt er talið ónýtt þar inn- an dyra. Rúnar Sveinsson slökkviliðsmað- ur í Sandgerði segir að starfið hafi aðallega miðað að því að hefta út- breiðslu eldsins en í nálægu húsi var veiðarfærageymsla. Hann seg- ir að grunur leiki á að upptök elds- ins megi rekja til hleðslutækis fyrir lyftara. Rúnar segir að tjónið nemi líklega 10-15 milljónum kr. Þá stöðvist rekstui'inn í húsinu. Illa gekk að gera eigendum fiskverk- unarhússins viðvart um eldsvoðann þar sem þeir eru í sumarfríi. í gær- morgun voru tveir starfsmenn mættir til vinnu og var þeim brugðið or þeir sáu að húsið var brunnið til kaldra kola. ^STÓRútsalan er Kafín! Gardínuefní fyrír eldKúsíð og fjölKreytt úrval - annarra efna á 190 kr. m. 15-50% afsláttur af allrí vefnaðarvöru. Úrval gluggatjaldaefna með míklum afslættí. Ögué-búðirnar Alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar Gróskumikið og öflugt starf hér á landi Kajit Habanananda ALLS eru 1.450.000 félagsmenn í Lionshreyfingunni í um 185 þjóðlöndum. Þar af eru um 2.500 Lions- menn á íslandi. Kajit Habanananda sem er frá Taílandi er ný- kjörinn alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar. Hann er annar Aslubúinn í áttatíu ára sögu hreyf- ingarinnar sem kjörinn er alþjóðaforseti. Kajit heimsótti íslensku Lions- hreyfinguna um síðustu helgi. „Það eru margir félag- ar í Lionshreyfingunni á íslandi miðað við höfða- tölu og starfsemin er mjög öflug. Hver deild í hreyfmgunni velur sér verkefni í sínu samfélagi án íhlutunar alþjóðasamtakanna og þau geta verið af ýmsum toga. Mér fannst mjög gaman að koma hingað til lands og sjá hversu gróskumikið og fjöl- breytt starf er innt af hendi meðal Lionsmanna, ekki síst það starf sem unnist hefur fyrir veik börn.“ ísland er fyrsta landið utan Asíu sem Kajit Habanananda heimsækir sem alþjóðaforseti en hann hyggst sækja heim um 85 lönd þetta ár sem hann gegnir embætti alþjóðaforseta. -1 hverju er starf þitt sem al- þjóðaforseti fólgið? „Ég mun verja miklum tíma á skrifstofu alþjóðaforsetans sem er fyrir utan Chicago í Banda- ríkjunum og framfylgja ýmsum verkefnum sem hafa verið sett af stað fyrir minn tíma sem al- þjóðaforseti. Lionsmenn hafa undanfarin ár sinnt alþjóðlegu verkefni sem ber nafnið Sjónvemd. Takmark þess er að koma í veg fyrir ónauðsynlega blindu í heiminum. Við höfum þegar staðið fyrir milljón augnaðgerðum víða um heim þar sem fátækt er mikil og í kjölfarið boðið fólki linsur eða gleraugu þegar það hefur átt við. Okkur hefur tekist að safna 46 milljón dollurum til þessa verkefnis og enn höfum við ekki eytt þeim fjármunum. Við höfum hins vegar gefið loforð um að nota söfnunarféð í þágu þessa málefnis svo verkefnið heldur áfram næstu árin.“ - Eru önnur verkefni af þess- ari stærðargráðu á dagskrá? „Nei svona viðamikil verkefni mega ekki vera á dagskrá of oft og við leyfum nokkrum tíma að líða milli slíkra alheimsverkefna. Allir Lionsmenn gefa vinnu sína og þegar alheimsverkefni eins og Sjónvemd eru á dagskrá bætist sú vinna við aðra sjálf- boðavinnu sem félagsmenn eru að sinna í sínu samfélagi." - Hvað er það sem dregur fólkí hreyfínguna? „Ég held að fyrst og fremst sé það af knýjandi þörf til að gefa aðeins af sér til þeirra sem minna mega sín og einnig til að minnka bilið milli þeirra sem mikið eiga og lítið. Að vera hluti af sterkri hreyfingu sem starfar að líknarmálum er mjög gefandi því meiru verður áorkað þegar margir vinna saman en þegar hver og einn vinnur í sínu horni.“ ►Kajit Habanananda er fædd- ur í Bangkok árið 1937. Hann nam stjórnunarfræði við Ball State háskólann í Indiana. Kajit á ráðgjafarfyrirtæki í Taflandi á sviði fjarskipta- tækni þar sem liann starfaði lengstum sem alþjóðlegur ráð- gjafi með gervihnattaíjarskipti sem sérgrein. Auk þess á hann ýmis önnur fyrirtæki á sviði eignaumsýslu. Kajit er hættur störfum í heimalandi sínu og sinnir nú einvörðungu starfi sem al- þjóðaforseti Lionshreyfingar- innar. Eiginkona Kajits heitir Panida Habanananda og þau eiga þrjú uppkomin börn. Kajit segir að þeir sem gerist félagar í Lions eignist marga vini innan hreyfingarinnar, bæði í sínu nánasta umhverfi en líka víða um heim. - Er langt síðan konur fengu að vera félagsmenn? „Það eru tíu ár síðan Lioness- ur urðu fullgildir félagar í Lions en fram að því höfðu þær starfað í klúbbum samhliða Lionsklúbb- unum en án fullrar aðildar. Kon- ur ganga nú til liðs við hreyfing- una í auknum mæli og eru þær nú 124.000 talsins. Þær eru bæði í blönduðum klúbbum en líka í klúbbum þar sem eingöngu eru konur. Það hefur verið mikill akkur í að fá konur til liðs við okkur. Þær eru mjög örlátar á tíma sinn og ósérhlífnar í allri vinnu. Ég er ekki frá því að það sé líka orðið skemmtilegra en áður með þær innanborðs.“ -Er einhver sérstakur boð- skapur sem þú leggur áherslu á þetta ár sem þú ert alþjóðafor- seti hreyfíngarinnar? „Það er fyrst og fremst eitt orð sem er efst í huga mér og það er „harm- ony“ eða samhljómur. Án hans næst enginn árangur í starfi okkar og það er sama hvaða svið verið er að tala um. Þá er fjölskyldan afar mikil- væg og þau gildi sem hún endur- speglar og mér finnst mikilvægt að koma þeim boðskap áleiðis. I heimsóknum mínum til félags- manna mun ég leggja áherslu á jákvæð viðhorf til lífsins og fólks almennt og ég mun minna félaga mína á að heimurinn er alltaf að minnka með gríðarlegum fram- förum í fjarskiptatækni." Án jafnvægis næst ekki árangur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.