Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 21

Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 21 ÚR VERINU Fjöldi íslenskra togara á leið í Smuguna Lítil veiði síðustu daga Bjartsýni ríkir um batnandi veiði FJÖLDI íslenskra togara er nú á leið í Smuguna eftir að fréttir bár- ust af góðum afla þar í síðustu viku en þrjú íslensk skip fengu þá góða veiði í einn sólarhring en veiðin datt niður á ný og hefur verið mjög treg síðan. Þeir skipstjórnar- og útgerð- armenn sem Morgunblaðið hefur rætt við segjast þó vera nokkuð bjartsýnir á batnandi veiði. I gær voru fjögur íslensk skip við veiðar í Smugunni; Freri RE, Snorri Sturluson RE, Haraldux; Kristjánsson HF og Þerney RE. í gærmorgun voru hins vegar átta skip á leiðinni þangað; Mánaberg ÓF, Gnúpur GK, Sléttanes ÍS, Akureyrin EA, Baldvin Þorsteins- son EÁ, Björgvin EA, Barði NK og Víðir EA og má búast við að flest hefji þau veiðar í dag eða á morgun. Þetta hefur verið mikið lotterí síðustu árin Þemey RE hefur síðustu vikur verið á makrílveiðum í Síldarsmug- unni en hóf veiðar í Smugunni á Fjöldi skipa gefur von um fisk Morgunblaðið/Helgi Bjarnason VEL heppnað hal í Smugunni. föstudag. Að sögn Þórðar Magnús- sonar skipstjóra var kropp fyrsta sólarhringinn en lítil veiði eftir það. „Við ákváðum að skella okkur í Smuguna enda fór maður að iða í skinninu eftir að fréttir af afla bár- ust. Makríllinn verður að bíða betri tíma. Veiðin hér er mjög treg í augnablikinu, enda hefur verið leið- indaveður síðustu daga. Hvort það skiptir máli er erfitt að segja til um. Þó að hitastig sjávar sé þokkalegt og hér virðist vera nokkuð af æti hefur þetta verið mikið lotterí síð- ustu árin og maður þorir ekkert að segja um framhaldið." Þórður sagði ís- lensku skipin vera að veiðum nokkru austar en áður, en Freri RE hóf veiðar í suðvest- urhorni Smugunnar þegar hann kom fyrstur á svæðið í síð- ustu viku. Þórður sagði að þar hefði enginn fiskur verið en hins vegar væri fjöldi erlendra skipa á veið- um víða á svæðinu. „Eg hef aldrei séð jafnmörg skip að veiðum í Smugunni og hér í kring. Það eru skip hér um allt og því virðist vera nokkuð af fiski í ná- grenni Smugunnar. Það gefur manni von um að fiskurinn gangi hér inn. Eins og er er vægast sagt lítið um að vera en vonandi rætist úr þessu því það eru mörg skip á leiðinni hingað norður eftir og það er dýrt að senda þau hingað,“ sagði Þórður. Ekki ráðgert að senda varðskip í Smuguna Gera má ráð fyrir að hátt í 300 ís- lenskir sjómenn verði við störf í Smugunni þegar öll tólf skipin verða komin á veiðar. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, sagði í samtali við Verið í gær að ekki hefði komið til tals að senda varðskip í Smuguna að þessu sinni og væri ekki reiknað með að svo yrði í ár, frekar en á síðasta ári. LAUS DVALARRYMI A HEILSUSTOFNUN NLFÍ Að gefnu tilefni skal því komið á framfæri, að um þessar mundir eru nokkur laus dvalarrými á Heilsu- stofnun NLFÍ í Hveragerði. Beiðnir þurfa að berast frá læknum. Nánari upplýsingar gefur innlagnaritari í síma 483 0300. Stórgóð mjólk fyrir litlar hendur g alveg stórgóð Þau vítamín og næringarefni sem mjólkin hefur að geyma gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi. Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili. Stórkostlegt verð - með ábyrgð r a iii i i y m n pergo 4 gerðir, 7mm. Verð kr. 1.995 pr.m2f stgr. O r i g i n a I 151IIIPERGÖ 11 gerðir, 8mm. Verð kr. 2.995 pr.m2f stgr. ^fj?OfnasmiDjan Háteigsvegi 7,sími 511 1100, netfang www.ofn.is w/ «900''

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.