Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 45

Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 45 JOHANN INGIBJARTUR GUÐBJARTSSON + Jóhann Ingi- bjartur Guð- bjartsson fæddist í Reykjavík 20. júní 1907. Hann lést í Sjúkrahúsi ísafjarð- ar 4. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Anna Jóhannsdóttir _ frá Brekkubúð á Álfta- nesi, f. 1. ágúst 1883, d. 2. janúar 1947, og Guðbjartur Helgason, smiður á Flateyri, f. 20. april 1850, d. 7. okt. 1923. Systkini Jóhanns voru: Jón, f. 18. júní 1906, Helgi, f. 29. jan. 1909, Guðjóna, f. 11. ágúst 1912, Greipur, f. 15. apríl 1914, Hallfríður, f. 27. nóv. 1916. Þau eru öll Iátin. Hálfsystkini Jó- hanns, börn Guðbjarts frá fyrra hjónabandi, voru: Guðrún, f. 28. júní 1875, húsmóðir á Flateyri, Jóakim, f. 20. maí, 1879, skip- sljóri í Grimsby, Benónýja, f. 13. júlí 1885, húsmóðir í Gautaborg, Helga, f. 1. nóv. 1889, hjúkrun- arkona og húsmóðir í Svíþjóð. Móðir þeirra var Jóna Zakarías- dóttir, f. 14. mars 1848, d. 9. júlí 1899. Eftirlifandi eiginkona Jó- hanns er Guðrún Guðbjamadóttir, f. 7. apríl 1911 í Jafna- skarði í Borgarfirði, dóttir hjónanna Halldóru Þorsteins- dóttur og Guð- bjarna Guðmunds- sonar er þar bjuggu. Börn Jó- hanns og Guðrúnar: Svanur, skipsljóri, f. 15. júní 1935, Anna, húsmóðir í Reykja- vík, f. 13. okt. 1937, maki Emil R. Hjart- arson, kennari, Guð- bjami, húsasmíðameistari og sjómaður, f. 1. des. 1942, kvænt- ur Bám Guðjónsdóttur, þau búa á Akranesi, Guðbjartur, f. 12. jan. 1946, fórst af slysförum 26. okt. 1949, Þorsteinn, trésmíða- meistari, f. 2. júlí 1952, kvæntur Gunnhildi Brynjólfsdóttur, þau búa á Flateyri. Jóhann var verk- stjóri við síldarverksmiðjuna á Djúpavík, var sjómaður á fiski- bátum en starfaði lengst sem trésmiður. Hann var einn af eig- endum trésmíðaverkstæðisins Hefils á Flateyri. titför Jóhanns fer fram í dag frá ísafjarðarkirkju og hefst at- höfnin klukkan 14. Minningar okkar um afa eru margar og góðar, en við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp í nágrenni við afa og ömmu. Þar nutum við visku þeirra og hlýju í ríkum mæli. Afi var ekki orðmargur maður en það sem hann sagði hitti alltaf í mark. Við munum eftir afa sem mjög vinnusömum manni sem aldrei féll verk úr hendi. Ef hann var ekki að vinna úti varði hann löngum stundum í kompunni sinni í kjallaranum við ýmsa vinnu. Skrifborðið hans afa var ævin- týraheimur að okkur fannst. Þar var alltaf tyggjó, amerískt meira að segja, sem hann stakk upp í litla munna. Hann raulaði gjaman fyrir munni sér lítið stef sem við kunn- um öll og munum geyma sem stefið hans afa. Við kveðjum afa okkar og minnumst hans með þakklæti og virðingu. Sú minning mun lifa í hjörtum okkar. Lækkar lífdaga sól, löng er orðin mín ferð, fauk í faranda skjól, feginn hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Andrésdóttir.) Halldóra Kristín, Jóhann Hjörtur, Guðrún Ragna og Sigríður Anna. Tengdafaðir minn, Jóhann Guð- bjartsson, lést hinn 4. ágúst síðast- liðinn og eru þá látin öll börn hjón- anna Önnu Jóhannsdóttur og Guð- bjarts Helgasonar á Flateyri. Jó- hann og systkini hans bjuggu öll á Flateyri og settu sterkan svip á mannlífið í þessu þorpi hvert með sínum hætti. Ef á að lýsa þessum systkinahópi í heild koma strax í hugann orðin áreiðanleiki, traust og trámennska, samheldni og um- hyggja fyrir öllu sem þeim var trú- að fyrir hvort sem það voru störf í almannaþágu eða umönnun eigin barna og heimilis. Það samfélag er auðugt sem á slíka liðsmenn. Hjónaband Önnu og Guðbjarts var seinna hjónaband hans og var á þeim mikill aldursmunur, hann kominn yfir fimmtugt þegar þau giftust, og þegar hann féll frá voru börnin öll á unglings- eða barns- aldri. Það mun hafa fallið í hlut Jó- hanns öðrum fremur að vera í fyr- irsvari fyrir heimilið að fóðurnum látnum og fékk hann þannig snemma að kynnast alvöru lífsins. Hann, systkini hans og móðir stóð- ust þá raun og hefur þó vísast oft verið þröngt fyrir dyrum. Ef til vill hefur þetta orðið til þess að systk- inin voru alla tíð samheldin svo að af bar og mikill kærleikur þeirra á milli. Jóhann kvæntist Guðrúnu Guð- bjarnadóttur frá Jafnaskarði í Borgarfirði hinn 12. febráar 1938. Þau hófu búskap á Flateyri og áttu þar lengst af heimili. Um skeið bjuggu þau á Djúpavík á Ströndum en þar var Jóhann verkstjóri í síld- arverksmiðjunni og nú síðustu árin hefur heimili þeirra verið í dvalar- heimilinu Hlíf á Isafirði. Á Flateyri stundaði Jóhann framan af almenna vinnu til sjós og lands en lengst af vann hann við trésmíðar. Hann átti og rak ásamt Jóni bróður sínum og fleirum tré- smíðaverkstæðið Hefil á Flateyri. Þetta félag sá um mest alla smíða- vinnu og húsbyggingar á Flateyri um ái-abil auk þess sem félagið tók að sér húsbyggingar og smíða- vinnu á næstu fjörðum í talsverð- um mæli. Jóhann var afar góður verkmaður, laginn og útsjónarsam- ur, flýtti sér hægt, en afkastaði ekki síður en aðrir sem meira gusuðu. Um umhyggju hans fyrir fyrirtækinu og um leið þeim sem verkanna áttu að njóta, þurfti aldrei að efast. Jóhann tók ekki mjög mikinn þátt í félagslífi á Flateyri en þar sem hann sinnti því var það af heilum hug. Því kynntist ég þegar við vorum báðir félagar í Lions- klúbbi Önundarfjarðar. Hann sóttist þar ekki eftir metorðum eða stjórnarforystu en var aftur á móti í hópi þeirra félaga sem aldrei vantaði og hægt var að reiða sig á þegar kallað var til verka. Slíkir menn eru ómetanleg- ir hverjum félagsskap. Jóhann var dagfarspráður mað- ur og snyrtimenni hið mesta að hverju sem hann gekk. Hann var hógvær maður og víðsfjarri honum að vilja beina kastljósinu að sjálf- um sér. Hann var þó síður en svo neinn veifiskati sem snúa mátti að vild, öðru nær. Hann var fastur fyrir og fylginn sér og lét ekki hlut sinn fyrir neinum án alls ofríkis og hroka. Umhyggja hans fyrir sínum nánustu var þannig að enginn gat efast um kærleika hans. Hann var alvörumaður en kunni þó vel að gleðjast með glöðum þegar svo bar undir. Og hann stóð ekki einn. Guðrán kona hans er ein hin mesta mannkostakona sem hugsast get- ur. Saman áttu þau fallegt heimili sem þau hlúðu að hvort á sinn hátt og í sameiningu. Þegar bræðurnir frá Hlíðarenda riðu til skips til að fara til útlanda samkvæmt dómi gerðist það fræga atvik sem sagt er frá í Njálu og varð til þess að Gunnar sneri aftur og rauf þar með sættina. Bróðir hans, Kolskeggur, sagði við þetta tækifæri: „Hvorki skal ég á þessu níðast og á engu öðru því er mér er til tráað“ og hélt áfram fór sinni. Snemma fannst mér að þessi orð gætu verið einkunnarorð tengda- föður míns, svo ríkt var í fari hans að orð skulu standa. Jóhann var af þeirri kynslóð sem sá íslenska þjóð rísa úr fátækt til ríkidæmis. Hann var þátttakandi í því ævintýri og lagði þar gjörva hönd á plóginn. Nú er langri og farsælli ævi hans lokið. Hann gat að leiðarlokum litið yfir farinn veg með gleði þess manns sem veit að vel var unnið, og lagst til hinstu hvíldar með orð Davíðssálma á vörum: „í friði leggst ég til hvíldar því að þú, Drottinn minn, lætur mig búa óhultan í náðum.“ Við þökkum honum samfylgdina og biðjum Guð að blessa minningu hans. Emil R. Hjartarson. Með þessum fátæklegu orðum mínum langar mig að minnast hans afa míns, sem nú er látinn. Það er svo margt sem streymir gegnum hugann þegar ég hugsa um þig, afi minn. Ég man t.d. svo vel eftir vinnuherberginu þínu á Brimnesveginum. Þar kenndi ým- issa grasa og fyrir mér var það þinn helgidómur. Eg man líka svo vel þegar þú komst heim í frákost á hverjum morgni úr vinnunni, svona rétt til að fá þér kaffisopa. Eftir að við flytjum á Akranes, þegar ég er þriggja ára gömul, var ekki eins mikið um samverustundir og áður en þrátt íyrir fjarlægðina á milli okkar hittumst við alltaf reglulega. I mörg ár komuð þið amma alltaf suður fyrir hverja páska og dvölduð hjá okkur. Nú síðustu árin hefur verið tómlegt á páskunum þar sem ykkar hefur ekki notið við. Á hverju sumri varð ég svo að komast vestur til ykkar því annað var ómögulegt. Þegar ég réð mig í sveit í nokkur sumur kom aldrei til greina að vera lengur en tvo mán- uði í sveitinni því þriðja mánuðinn varð ég að nota í Flateyrarferð. Við fórum í nokkrar gönguferð- irnar saman og flestar þeirra á Skaganum. Við spjölluðum um margt skemmtilegt og mikið dáðist ég alltaf að því hvað þú varst lík- amlega hress. Það virtist alltaf allt vera í toppstandi. Síðustu samverustundirnar átt- um við þegar þið amma komuð á Skagann í fyrrasumar þegar Sól- rún mín var skírð og haldið var upp á níræðisafmælið þitt. Það voru ánægjustundir að fá að njóta nær- veru ykkar þá. Ég minnist þín, afi minn, sem hægláts og ástríks manns sem hafðir svo margt að gefa okkur sem yngri erum. Ég fæ tár í augun þegar ég raula stefið þitt því það áttir þú einn. Ég þakka þér, afi minn, fyrir allar samverustundirn- ar. Minning þín mun lifa í hjarta mínu. Ég bið þig, algóður Guð, að styrkja hana ömmu mína í sorg- inni. Guðrún Guðbjarnadóttir. MINNIN6AR' ÖG TÆKIFÆRISKORT Segðu hug þinn um leið og þú lætur gott af þér @5614400 iciða <SlT kjálmmtofnuk Vjfy KIRKJUNNAB ÞORGERÐUR SIGRUN JÓNSDÓTTIR + Þorgerður Sig- rún Jónsdóttir var fædd á Vopna- firði 10. ágúst 1913. Hún lést á Droplaugarstöðum í Reykjavik 12. apr- íl 1998. Þorgerður var dóttir hjónanna Jóns Gíslasonar frá Hafursá á Fljóts- dalshéraði og Þór- unnar Sigfúsdóttur frá Vopnafírði. Bræður Þorgerðar eru Einar, f. 1916, búsettur á Vopna- firði, kvæntur og á tvö börn, og Gisli, f. 1923, búsettur í Þórshöfn í Færeyjum, kvæntur og á tvö börn. Þorgerður gift- ist Siguijóni Rist vatnamæl- ingamanni árið 1941. Þau slitu samvistir 1953. Þau eignuðust ekki börn saman. Gerða frænka hefði orðið 85 ára hinn 10. ágúst hefði hún lifað svo lengi en hún dó á páskadag í vor eftir stutt veikindi. Hún kom til Akureyrar 15 ára gömul og var þar í vist eins og þá tíðkaðist. Hún átti þar athvarf á heimili föðursystur sinnar, Hólmfríðar Gísladóttur, og manns hennar, Sigurjóns Jóhann- essonar. Þau hjónin eignuðust tvö böm, Gísla, f. 1904, og Fanneyju, f. 1907, en Gerða varð eins og yngsta barnið í fjölskyldunni. Ég man fyrst vel eftir Gerðu þegar ég fékk að fara með henni og manni hennar, Sigurjóni Rist, til Reykjavíkur. Um Sigurjón lék æv- intýi'aljómi, hann sagði skemmti- lega frá kennileitum, fólki og fyrir- bærum á leiðinni, allir þekktu hann og tóku honum sem heimilisvini og við nutum góðs af. Það næsta sem ég man er það að Gerða kom norð- ur til Fanneyjar frænku og ég frétti að þau Sigurjón væru skilin. Skilnaðurinn var Gerðu þung- bær. Hún hafði fengið ýmis áfóll heilsufarslega og nú bættist þetta við. Hún sagði síðar að hún hefði beðið guð um að hjálpa sér svo að hún yrði ekki beisk. Á þessum erf- iðu árum þroskaðist Gerða, hún varð jákvæð, mild og hlý svo að fólk dróst að henni. Gerða fór aftur LEGSTEINAR Guðmundur Jónsson F. 14.11.1807 D. 21. 3.1865 í I Graníf HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 að vinna úti við sauma- skap og fleira, lengst af í Lífstykkjabúðinni. Þar eignaðist hún tryggar og góðar vin- konur. Vinskapur Gerðu og Fanneyjar hélst allt þar til Fanney lést ár- ið 1995 og var hann þeim báðum mjög mikilvægur. Fanney dvaldist hjá mér í Reykjavík í nokkur ár eftir að hún hætti að geta búið ein. Þá var Gerða tíður gestur á heimili okkar og nutu þær frænkur báðar samvistanna í ríkum mæli en töluðust við í síma flesta þá daga sem þær hittust ekki. Gerða var alltaf svo jákvæð og elskuleg að hún lífgaði upp á umhverfi sitt og var því ætíð gaman að fá hana í heimsókn. Hún var mikill höfðingi heim að sækja í litlu íbúðina sína í Hátúninu og átti alltaf til kökubita handa þeim sem litu við, ekki síst smáfólkinu. Heilsu Gerðu hrakaði verulega síðustu árin, uns svo var komið að hún gat ekki lengur séð um sig sjálf. Þá fékk hún inni á Droplaug- arstöðum og naut þar góðrar að- hlynningar síðustu æviárin. Þegar hún gat ekki lengur farið ein út fékk hún heimsóknarvin frá Rauða krossinum sem fór með hana um næsta nágrenni og naut hún þess. Gerða hafði í kringum sig tryggan hóp vina og ættingja sem heimsóttu hana þegar færi gafst og er einstakt hve margir héldu tryggð við hana allt til dauðadags. Ég vil þakka henni fyrir alla vel- vild í minn garð og dætra minna í gegnum árin. Hólmfríður Gísladóttir. , v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 Legsteinar Lundi Erfidrykkjur H H H H H H H H H H H Simi 562 0200 Lxxxnxxxxirl L E 11 S T E 1II A R I rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. S.HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.