Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 37

Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 37 Smásaga 1. Verðlaun - Gómsætur grillmatur - Háir hrokinn þér? AiÉr Laxness ■ kemur a óvart Nýr still • Lífsmymlusaga • Skakkí turninn í Pím * Bæfldsnisting ssm Harfir kóngsfdfki • Grænmetl&ræeiit i g»r#st©#wiflí • Krossgáfur » tímrrapsy&a AÐSENDAR GREINAR ROYAL & SUNALLIANCE Hinn I5. júní I998 tilkynnti breska fjármálaráðuneytið Vá- tryggingaeftirlitinu samkvæmt I I. (4.) grein þriðju tilskip- unar um líftryggingar, væntanlega flutninga samkvæmt við- eigandi breskum lögum á langtíma vátryggingaviðskiptum í Bretlandi (i) Sun Alliance and London Assurance Company Limited og Bradford Insurance Company Limited til Royal Life Insurance Limited og (ii) Royal Life (Unit Linked Assurances) Limited, Royal Life (Unit Linked Pension Funds) Limited, Sun Alliance Linked Life Ins- urance Limited og Sun Alliance Pensions Limited til Royal Heritage Life Assurance Limited. [Viðkomandi handhöfum vátryggingaskírteina verða sendar nánari upplýsingar og tillögurnar verða teknar til athugunar í High Court of Justice dómstólnum í Lundon, Englandi, í vikunni 26. október-2. nóvember I998 með tilliti til þess að þær komi til framkvæmda í desemberlok I998 eða þar um bil]. Viðkomandi handhafar vátryggingaskírteina, sem óska eftir að gera athugasemdir á þessu stigi málsins, ættu að skrifa Vátryggingaeftirlitinu á Suðurlandsbraut 6, IS-I08 Reykjavík (b.t. E. Lárussonar) og tryggja að hverskon- ar athugasemdir berist innan eins mánaðar frá dagsetningu auglýsingar þessarar. I I. ágúst I998 Royal & Sunaliiance London, Englandi www.mbl.is/ffasteignir Y angaveltur um löggæsluaðferðir ÁRIÐ 1991 var New York borg talin ein mesta glæpaborg í heiminum. Á því ári voru framin í borginni 2.300 morð, eða 6 morð á dag að meðaltali. Aðrir glæpir, svo sem líkamsmeiðingar, rán, innbrot og þjófnaðir, voru svo tíðir að flestir borgarbúar gerðu hreinlega ráð fyrir að verða þolendur slíkra mála og lifðu í stöðug- um ótta. Á þessum tíma voru fyrirmæli til lögreglunnar að vera í bílum sínum og skipta sér ekki af öðru en stærri afbrotum sem þeir kæmu að, eða verkefnum eftir beinum fyrirmælum. Það var um þetta leiti sem Giuli- ani borgarstjóri New York og ný- skipaður lögreglustjóri, William Bratton, hrundu af stað löggæsluað- ferð sem gengur undir nafninu Zero tolerance, sem mætti þýða sem Núll umburðarlyndi. ZT aðferðin byggist í stuttu máli á því að líða engin lög- brot. Lögð er áhersla á að umbera ekki smæstu lögbrot og þegar ein- staklingur er staðinn lögbroti eru hugsanleg önnur afbrot höfð í huga þegar afskipti eru höfð af viðkom- andi. Lögreglan hóf því að beina störfum sínum að lögbrotum eins og betli, drykkju á götum úti, ósæmi- legri hegðun, vændi, veggjakroti, brotnu hemlaljósi á bflum og þegar farið var gangandi yfir götu á röng- um stað eða tíma. Markmiðið var að endurreisa virðingu almennings fyrir löghlýðni. Undraverður árangur New York lögreglunnar hefur vakið heimsat- hygli og mörg lönd hafa tekið upp svipaðar löggæsluaðferðir. í dag eru 137 borgir í USA með hærri af- brotatíðni en New York. Áætlað er að í íyrsta skiptið síðan 1967 verði morð í New York innan við 600 og önnur afbrot hafa dregist saman um nærfellt helming. Aðrar áherslur í löggæslumálum hafa tímabundið notið vinsælda hjá lögregl- unni. Má þar nefna t.d. „sýnilegri lögreglu" þar sem áhersla er lögð á að fjölga lögreglu- mönnum sem eru sýni- legri á götum úti og þá helst gangandi. „Grenndarlöggæsla" þar sem lögreglumenn eru tengdir betur ákveðnu svæði og lögð er áhersla á góð tengsl við íbúa svæðisins sem í sumum tilvikum hafa myndað eftirlitshópa. „AJmannatengsl“ þar sem lögreglan fer í skóla og stofnanir til að brýna lög- hlýðni fyrir almenningi og þá sér- staklega varðandi fíkniefnavandann. Löggæslumál eru og þm-fa að Allir geta verið sam- mála um, segir Bjarn- þdr Aðalsteinsson, að almenn löghlýðni sé undirstaða réttarríkis. vera í sífelldri endurskoðun. Nú ný- verið hefur innanríkisráðherra Breta, Jack Straw, snúið baki við „Núll umburðarlyndi" og rannsókn- ir hafa leitt í ljós að flestar hinna aðferðanna hafa ekki skilað nægi- legum árangri miðað við tilkostnað. Heldur Straw því fram að til langs tíma litið muni ástandið í New York fara aftur versnandi. Bendir hann m.a. á að þeir sem komast á saka- skrá vegna minniháttar afbrota eigi í erfiðleikum með að fá vinnu, sem aftur geti leitt til þess að viðkom- andi leggi fyrir sig afbrot. Þá verði of margir „venjulegir borgarar" fyr- ir óþægilegum afskiptum vegna smámunasemi sem aðferðinni fylgir og verði því andsnúnir lögreglunni. I nýrri löggæsluáætlun Breta er gert ráð fyrir að lögreglan dragi Bjarnþór Aðalsteinsson raunhæfa markmiðalínu í afbrota- tölfræðinni til fækkunar lögbrotum. I stað þess að fjölga lögreglumönn- um á götum úti af handahófi, verður sérþjálfuðum lögreglusveitum beint á lögbrot og svæði þar sem afbrot eru fleiri en fyrirfram ákveðin markmiðalína hverju sinni segir til um. Síbrotamenn verða lagðir í ein- elti, ef svo má að orði komast, og áhersla lögð á skjóta dómsmeðferð þeirra. Þá er lögð áhersla á hjálp og aðstoð til handa þolenda afbrota. Sérstakiá herferð er hrundið af stað til hjálpar eiturlyfjasjúklingum við að losna undan fíkn. Fjármagn til raunhæfra afbrotavarna aukið, svo fátt eitt sé nefnt. Af framansögðu sést að löggæslumál eru víða að taka verulegum breytingum. Áhersla er lögð á aukinn árangur miðað við tilkostnað umfram allt. Menn greinir á um leiðir en sjaldn- ar um markmið. Allir geta verið sammála um að almenn löghlýðni sé undirstaða réttarríkis. Þegar leikreglur samfé- lagsins verða flóknari og flóknari með degi hverjum er afar áríðandi að lög, reglur og önnur fyrirmæli séu skýr, sanngjöm og tiltölulega lítið umdeild. A íslandi eigum við því láni að fagna að afbrotatíðni er með því minnsta sem þekkist í heiminum og skoðanakannanir hafa sýnt að almenningur í landinu ber mikið traust til lögreglunnar og virðir störf hennar. Að halda þess- ari stöðu er að mínu mati verðugt markmið. Óþarfa smámunasemi, óbilgimi og skilningsleysi á aðstæð- um fólks mun einungis hafa öfug áhrif. Hins vegar þarf réttlætis, ákveðni og samræmis að gæta í störfum lögreglu og dómsvalds. Vel menntaðir, sjálfstæðir og um- fram allt duglegir lögreglumenn sem hafa skýr markmið að stefna að eru beittasta vopnið gegn hverskyns lögbrotum. Höfundur er lögreglufulltrúi. WasíMlla Auglýsendur Pantanatími auglýsinga er fyrir kl. 16.00 á þriðjudögum. AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is J .//

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.