Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR11. ÁGÚST1998 49 «•'
FRÉTTIR
Hafnarfj arðarbær
Margar umsóknir
um stöðu yfírmanna
HAPNARFJARÐARBÆR aug-
lýsti nýlega eftir umsóknum um
störf þriggja framkvæmdastjóra
hjá Hafnarfjarðarbæ. Umsóknar-
frestur var til og með 5. ágúst sl.
Umsækjendur voru eftirfarandi:
Stjórnsýslu- og fjármálasvið:
Anna Sigurðardóttir, Dóra S. Stef-
ánsdóttir, Grétar Friðriksson, Guð-
mundur Marinósson, Gunnar Rafn
Einarsson, Gunnar Ingi Hjartar-
son, Halldór Árnason, Hallgrímur
Bergsson, Hjálmar Kjartansson,
Jóhannes Finnur Halldórsson,
Magnús Heimisson, Magnús B. Jó-
hannesson, Ólafur Haukur Magn-
ússon, Óskar Th. Traustason, Vil-
hjálmur Bjarnason og Þórður
Gautason.
Fjölskyldusvið: Árni Þór
Hilmarsson, Benedikt Sigurðsson,
Björn Sigurbjörnsson, Dóra S.
Þríþraut í
Garðabæ
SUNNUDAGINN 16. ágúst næst-
komandi verður haldin þríþraut
fyrir almenning og keppnisfólk í og
við íþróttamiðstöðina Ásgarð í
Garðabæ frá kl. 8:00 til 17:30.
Þeir sem ekki treysta sér til að
hjóla úti geta notað þrekhjól í
Iþróttamiðstöðinni Ásgarði. Kort
með hjóla- og gönguleiðum í
Garðabæ eru afhent við skráningu.
Þátttökugjald er kr. 500 fyrir full-
Stefánsdóttir, Elísabet Siemsen,
Garðar Björn Runólfsson, Guðrún
Bjarnadóttir, Gunnar M. Sandholt,
Hörður Þorsteinsson, Janus Guð-
laugsson, Jón Baldvin Hannesson,
Kristján Sturluson, Lárus M.
Bjömsson, Magnús Heimisson,
Marta Bergmann, Ólöf Thoraren-
sen, Sif Gunnarsdóttir, Sigtryggur
Jónsson, Sigurbjörg B. Ólafsdóttir,
Snjólaug G. Stefánsdóttir, sr. Car-
los A. Ferrer, Stui-la Kristjánsson,
Þráinn Hafsteinsson og Óm Sig-
urðsson.
Umhverfis- og tæknisvið: Gísli
Erlendsson, Guðmundur Karl
Marínósson, Gunnar Örn Gunnars-
son, Jón Ólafur Ólafsson, Kristinn
Ó. Magnússon, Magnús B. Jóhann-
esson, Ólafur Eggertsson, Símon
Þorleifsson og Sveinbjörn Stein-
grímsson.
orðna, kr. 300 fyrir 13 ára og yngri
og kr. 1.000 fyrir þrjá eða fleiri í
sömu fjölskyldu. Innifalið er að-
gangur að sundlaug, verðlaunapen-
ingur og útdráttarverðlaun meðal
þátttakenda. Allir þátttakendur fá
orkudrykk þegar þeir hafa lokið
þátttöku.
I ár verður í fyrsta sinn boðin
tímataka fyrir þá sem vilja keppni.
Almenningsíþróttadeild og sund-
deild Stjörnunnar í samvinnu við
íþrótta- og tómstundaráð Garða-
bæjar sjá um undirbúning og fram-
kvæmd þríþrautarinnar.
KFUM og K
með kaffisölu
í Ölveri
UM ÞESSAR mundir er að ljúka
starfí sumarbúða KFUM og K í Öl-
veri þetta árið. I sumar dvöldu þar
á þriðja hundrað börn í 9 flokkum,
þar af einum strákaflokki. Dvalar-
flokkunum lauk með unglingaflokki
sem hefur eflst með hverju árinu og
er það ekki síst að þakka dugmiklu
starfsfólki sem leggur metnað sinn
í starfíð. Forstöðukona í sumar var
Erla Káradóttir.
I Ölveri er lögð áhersla á fræðslu
um kristna trú, útivist og íþróttir
ýmiss konar. Einnig er bryddað
upp á ýmsum nýjungum eftir því
sem tilefni gefst til.
í lok hvers sumars efna sumar-
búðimar til kaffisölu í Ölveri til
styrktar sumarstarfínu og verður
hún nú sunnudaginn 16. ágúst og
eru allir velunnarar starfsins vel-
komnir.
Fyrirlestur
um spilafíkn
FYRIRLESTUR um spilafíkn
verður haldinn í dag, þriðjudaginn
11. ágúst, á vegum SÁÁ. Fyrirlest-
urinn verður haldinn á Grand
Hótel og hefst kl. 17. Sheila B.
Blume, prófessor í geðlækningum
og forstöðumaður meðferðardeild-
ar South Oaks sjúkrahússins í New
York, talar um spilafíkn og með-
ferð við henni og svarar fyrir-
spurnum.
Þórarinn Tyrfíngsson, yfírlæknir
SÁA, skýrir jafnframt frá þeirri
þjónustu sem SÁA býður spilafíkl-
um og aðstandendpm þeirra. Fyrir-
lesturinn er öllum opinn.
Sheila B. Blume hefur starfað að
meðferð spilafíkla og rannsóknum á
spilafíkn í meira en þrjá áratugi. I
fréttatilkynningu kemur fram að
hún sé einn af frumkvöðlum fíkni-
meðferðar í Bandaríkjunum og hafí
lagt sérstaka áherslu á þróun með-
ferðar íýrir konur.
SR. JÓN Guttormsson og Guð-
laug Margrét Jónsdóttir.
Niðjamót
í Dölum
NIÐJAMÓT verður haldið laugar-
daginn 15. ágúst í Hjarðarholti og
Laugaskóla í Sælingsdal. Þar kom
saman niðjar sr. Jóns Guttormsson-
ar, prests og prófasts í Hjarðar-
holti, og konu hans Guðlaugar Mar-
grétar Jónsdóttur en þau bjuggu og
störfuðu í Hjarðarholtsprestakalli
1867-1901.
Sr. Jón var fæddur í Vallarnesi á
Fljótsdalshéraði 1831 en lést í
Hjarðarholti 1901. Guðlaug M.
Jónsdóttir var fædd 1838 í Brekku í
Fljótsdal en lést 1920 í Reykjavík.
Af þeim standa merkar austfirskar
ættir. Þau eignuðust 7 börn sem öll
komust upp.
Dagskrá niðjamótsins hefst í
Hjarðarholtskirkju kl. 14. Síðan
hittist fólk að nýju í Edduhótelinu
að Laugum í Sælingsdal kl. 18. Þar
verður hátíðarkvöldverður og ýmis-
legt til fróðleiks og skemmtunar.
Þeir sem ekki hafa tilkynnt komu
sína eru vinsamlegast beðnir um að
hafa samband við Margréti K. Jóns-
dóttur, Löngumýrarskóla, Skagafirði
Kvöldganga
í Viðey
ÞRIÐJI hringur raðganganna í Við-
ey hefst í kvöld en þær eru fimm sem
hringinn mynda. I kvöld verður farið
með ferjunni úr Sundahöfn kl. 20.30.
Gengið verður af hlaði Viðeyjar-
stofu, austur fyrir gamla túngarð-
inn en síðan meðfram honum yfír á
norðurströndina. Þar verður gengið
á Sundbakka, hann skoðaður og
m.a. litið inn í Tankinn, 150 tonna
vatnstank frá tímum Milljónafélags-
ins, en Viðeyingafélagið hefur inn-
réttað hann mjög skemmtilega og
gert að félagsheimili sínu.
Þaðan verður svo farið í skóla-
húsið og þar skoðuð skemmtileg
ljósmyndasýning sem gefur góða
hugmynd um iífið í þorpinu sem
þarna var fyrr á öldinni. Frá skólan-
um verður svo gengið eftir veginum
heim að Stofu aftur og báturinn tek-
inn í land. Þetta verður um tveggja
tíma ganga og fólk er beðið að búa
sig eftir veðri.
Á norðurströnd Viðeyjar er fal-
legt landslag og margt að skoða
nær og fjær. Gjald er eklri annað en
ferjutollurinn, 400 kr. fyrir full-
orðna og 200 kr. fyrir börn.
Vakin skal athygli á því að ferðir
til eyjarinnar hefjast nú daglega kl.
13 og að grillskálinn er öllum opinn
milli kl. 13.30 og 16.30. Ennfremur
skal minnt á ljósmyndasýninguna í
skólahúsinu, reiðhjólaleigu, hesta-
leigu og veitingar í Viðeyjarstofu.
RAOAUGLVSINC3AR
TIL SÖLU
Jarðir til sölu
Ölvaldsstaðir 2, Borgarbyggð
Jörðin er ca 120 ha. að stærð og tún um 13
ha. Mjög gott nýlega endurnýjað íbúðarhús.
Jörðin á veiðirétt í Hvítá og Gufuá. Mjög góð
staðsetning, aðeins 10 mín. aksturfrá Borgar-
nesi. Verð kr. 11,2 miilj.
Lækjamót, Miklaholtshreppi,
Snæfellsnesi.
Jörðin er 50-60 ha. þar af tún um 21 ha. íbúðar-
hús byggt 1979 þarfnast viðhalds. Fjós með
16 básum, fjárhús fyrir 120 fjár.
Verð kr. 8,0 millj.
Til sölu er Garðyrkjustöðin Kvistur, Klepp-
járnsreykjahverfi í Reykholtsdal, Borgarfirði.
Um er að ræða tvö gróðurhús, alls 1450 m2
að stærð, pökkunarhús 90 m2 og gott stein-
steypt íbúðarhús 140 m2. Leigulóð 1,5 ha. og
3 sekúndulítrar af heitu vatni.
Verð kr. 20,0 millj.
Allar nánari upplýsingar fást hjá undirrituðum.
Gísli Kjartansson, hdl.,
lögg. fasteigna- og skipasali,
Borgarbraut 61, Borgarnesi,
sími 437 1700, fax 437 1017.
HÚSNÆBI ÓSKAST
Til leigu
við Suðurlandsbraut
Til leigu við Suðurlandsbraut 2. og 3. hæð,
hvor um sig 110 fm. Hentar fyrir skrifstofur,
arkitekta, verkfræðistofu eða heildverslun með
léttar vörur.
Upplýsingar í símum 568 9230 og 897 3047.
Góð íbúð óskast
Snyrtileg og reyklaus kona óskar eftir íbúð til
leigu sem allra fyrst. Helst í hverfi 101—108
Reykjavík. Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum heitið. Vinsamlega hafið samband
í síma 562 4350 eða 551 4083 eftir kl. 17:00.
Rúmgott húsnæði
Reyklaus fjölskylda með uppkomin börn óskar
eftir rúmgóðu og vönduðu einbýli eða sérbýli
til leigu á höfuðborgarsvæðinu. Öruggar
greiðslur og reglusemi. Uppl. í síma 899 2947.
BÁTAR 5KIP
Þessi bátur er til sölu
Fiskanes NS-37, skn. 1081. Bátuirnn er 54 bt.,
smíðaður á Seyðisfirði 1969. Véin er af gerð-
inni Scania, 343 hö, árgerð 1985. Báturinn selst
með aflahlutdeild, sem er 100 tonn þorskur.
Bátur til sölu, Enok AK 8
Til sölu er Enok AK 8, skipaskrárnúmer 1666.
Báturinn er 15 bt, smíðaður á Skagaströnd
1983. Vélin er af gerðinni Caterpillar 205 hö.
Bátnum hefur verið haldið mjög vel við og er
hann í góðu ástandi. Báturinn er útbúinn m.a.
með Fureno-dýptarmæli, Koden 32 mílna rad-
ar, GBS-sjálfstýringu og línu- og netaspili. Bát-
urinn selst með veiðileyfi, án aflahlutdeildar.
Skipasalan Bátar og búnaður,
sími 562 2554. fax 552 6726.
FUIMDIR/ MANNFAGIMAÐUR
Konur— konur
Kvennaþing og landsfundur verður
á Akureyri 11. —13. september nk.
Nánar auglýst síðar.
Samband Alþýðuflokkskvenna.
VEIÐI
Svalbarðsá, Þístilfirði
Lausir veiðidagarfrá 26. ágústtil 10. septem-
ber. 2—3 stangir með veiðihúsi.
Upplýsingar í hs. 553 4432, fax 553 4433 og
vs. 505 0248, Jörundur.
SMAAUGLYSINGAR
KENNSLA
Að virkja orku og sköpunar-
kraftinn.
Dags- og/eða
helgarnámskeið í
náttúruperlunni
Nesvík á Kjalarnesi
22.-23.8 og 12.-13.9.
Þessi námskeið
eru fyrir þá sem vilja:
•Opna og orkujafna orkustöðvar
•Losa stress/spennu og lina
sársauka
•Uppgötva röddina sína
•Upplifa sjálfstjáningu
•Heila með orku og tónun
Kennari verður Esther Helga
Guðmundsdóttir, fv. skólastjóri
Söngsmiðjunnar. Upplýsingar
og skráning í sima 699 2676.
ÝMISLEGT
M Stjörnukort
1 Persónulýsing,
framtídarkort,
mt einkatímar.
Gunnlaugur
Gudmundsson.
Uppl. í síma 553 7075.
Sendum í póstkröfu.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSIANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 12. ógúst
Kl. 8.00: Þórsmörk, dagsferð
eða til lengri dvalar. Verð
2.800 kr. Brottför frá BSÍ, austan-
megin.
Kl. 20.00: Kvöldganga í
Elliðaárdal. Mæting við Ferða-
félagshúsið, Mörkinni 6. Fritt.
(Ferðin er í stað Viðeyjar).
Ný helgarferð 14.—16. ágúst:
Álftavatn — Öldufellsleið —
Mýrdalur. Gist við Álftavatn og
Reynisbrekku. Ökuferð með
styttri og lengri gönguferðum.
Pantið strax.
Fullbókað f Skagfjörðsskála
um helgina, en næg tjald-
stæði í Þórsmörk.
www.mbl.is