Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI AKSJÓN Þriðjudagur 11. ágúst 20.30Þ-Sumariandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Ákureyringa í ferðahug. 21.00^-Fundur er settur Fundur í bæjarstjórn Akureyrar. Morgunblaðið/Björn Gíslason Bíllinn vakti athygli SÍTROÉNBRAGGI Þjóðverjanna Heidrun Strunk og Reenhard Klu- ge vakti óskipta athygli vegfar- enda sem leið áttu um bflastæðið við Skipagötu á Akureyri. Komu menn í hópum til að berja bflinn augum enda var hann nokkuð frá- brugðinn þeim bifreiðum sem alla jafna aka um götur bæjarins. Björn Stefánsson hefur drepið 60 tófur í Eyjafírði í sumar STJÓRN Útvegsmannafélags Norðurlands beinir því til íslenskra stjómvalda að sérstaklega verði hugað að hlutdeild Islands í heild- arveiði á Flæmingjagrunni. Island er eina ríkið sem stjórnar veiðum á svæðinu með aflamarki en önnur ríki styðjast við sóknardagakerfi. Töluleg gögn um þróun veiðanna á þessu ári hafa ekki verið birt en stjóm ÚN bendir á að í ljósi fregna af batnandi aflabrögðum liggi fyrir að þau ríki sem stunda veiðar eftir sóknardagakerfi auki hlutdeild sína í heildarveiðinni á kostnað ís- lensku skipanna sem bundin eru ákveðnu aflamarki. Stjóm Útvegsmannafélags Norðurlands skorar á stjómvöld að kanna sérstaklega hvort afli á tog- tíma á Flæmingjagrunni hefur aukist frá 1997-1998 og upplýsing- ar um það liggi fyrir á ársfundi NAFO sem haldinn verður í Liss- abon 14.-18. september nk. í kjöl- farið verði gerðar nauðsynlegar breytingar á aflamarki íslensku skipanna, með það að markmiði að hlutfall íslands í heildarveiðinni haldist óbreytt. Hætta á að hlutdeild lækki enn frekar Hlutur íslendinga í heildarveið- inni á Flæmingjagrunni minnkaði milli áranna 1996 og 1997 úr 44,8% í 27,8% eða um 17 pró- sentustig. Ef afli á togtíma hefur vaxið á þessu ári er mikil hætta á að hlutdeild íslands minnki enn frekar. Stjórn ÚN vill því að strax verði brugðist við og þess gætt við ákvörðun heildarkvóta Islend- inga að hlutdeild Islands minnki ekki vegna þeirrar veiðistýringar sem aðrar þjóðir viðhafa á svæð- inu, þrátt fyi*ir mótmæli Islend- inga. Tófan kemur hingað frá Vestíjörðum BJÖRN Stefánsson, refaskytta á Akureyri, hefur skotið 60 tófur, bæði fullorðin dýr og hvolpa, í Eyjafirði í sumar og hann sagðist í samtali við Morgunblaðið aldrei hafa orðið var við jafn mikið af ref og nú. Hann hefur þó ekki orðið var við dýrbít á því svæði sem hann fer um. í fyrrasumar skaut Björn helmingi færri dýr eða um 30. ^ „Eg er handviss um að tófan er farin að koma hingað norður í Eyjafjörðinn frá Vestfjörðum, þar sem hún hefur verið friðuð síðustu ár. Tófunni hefur fjölgað mikið þar og þær eru ekki allar á sama stað. Tófan hefur ekkert fyrir því að hlaupa á milli landshluta og t.d. voru fimm greni innan við Illuga- staði í Fnjóskadal í sumar, þar sem hafa verið í mesta lagi eitt til tvö greni.“ Alls staðar refur Björn sagðist hafa náð að hreinsa alveg þrjú greni í Hörgár- dalnum í fyrrasumar og drepið þar tvö önnur dýr að auki. „Eg átti því ekki von á að mikið yrði að gera í Hörgárdalnum í sumar en annað kom á daginn og það var á þeim öllum í vor og komið eitt greni til viðbótar.“ Björn náði að vinna öll grenin fjögur í sumar og það verður því fróðlegt að sjá hvort þeim á eftir að fjölga enn frekar næsta sumar. „Það er alls staðar refur, á Gler- árdalnum, í Hlíðarfjalli, Þela- mörk, Súlumýrum og Garðsár- dal.“ Veiðitímabilið hjá Birni stóð yf- ir frá 10. júní til 1. ágúst og var í lengra lagi vegna þess hversu veðrið var leiðinlegt. Víða eru greiddar 7.000 krónur fyrir full- orðinn ref og 1.600 krónur fyrir hvolpinn, sem skiptist á milli ríkis og sveitarfélaga. Björn sagði að það væri allt of lágt verð. Hann sagði ekki lengur borgað tíma- kaup við veiðarnar og menn væru því ekki að hanga í einn til tvo sólarhringa eftir nokkrum hvolp- um. Skilja hvolpana eftir „Með þessu fyrirkomulagi er hreinlega verið að hvetja menn til að skilja hvolpana eftir. Sum sveitarfélög borga þó mun meira Morgunblaðið/Bjöm Gíslason BJÖRN Stefánsson refaskytta með riffilinn sem hann notar við veiðarnar og hluta af bráðinni. og maður hefur heyrt tölur eins og 14-18 þúsund krónur fyrir full- orðið dýr og 10 þúsund krónur fyrir hvolpinn. Á þessu svæði er samvinna milli sveitarfélaganna og þau greiða 14 þúsund krónur fyrir fullorðið dýr og 10 þúsund krónur fyrir hvolpinn, sagði Björn, sem sagði nauðsynlegt að sveitarfélögin í landinu hefðu meira samstarf í baráttunni við refinn. Ályktun stjórnar ÚN um veiðar á Flæmingjagrunni Hugað verði að hlutdeild Islands - leikur á www.mbl.is 3 SKIPTIR MÁLI mm,r rnæsm** xumbuu. mw&. mm im. mr mm aua _ smmm imww® œsiJKB «hw*æís® •5««s smm * |jtWMifc>a>7i?-.aFr? nrri **£ JÍSSS asoassasj® JQL'r Léttur leikur á mbl.is A næstunni verður spennumyndin Godzilla frumsýnd. Af þvi tilefni standa Morgunblaðið á Netinu og Stjörnubio fyrir skemmtilegum spurningaleik þar sem þu getur unnið mióa á myndina, Godzilla-bol, -húfu. -risablýant eða -geisladisk með tonlistinni úr myndinni frá Spor, Musík og myndum. Taktu þatt í skemmtilegum leik og hver veit nema þú vinnirl www.mbl.is Söngvaka í Minja- safnskirkj- unni SÖNGVAKA verður í Minja- safnskirkjunni á Akureyri í kvöld þriðjudaginn 11. ágúst. Dagskráin hefst kl. 21.00 og stendur í um klukkustund. Á söngvökum eru flutt sýn- ishom úr íslenskri tónlistar- sögu svo sem rímur, tvíundar- söngur, sálmar og eldri og yngri sönglög. Flytjendur eru Sigríður Iva Þórarinsdóttir og Þórarinn Eldjám. Miðaverð er kr. 700. Söngvökur era haldnar í Minjasafnskirkjunni öll þriðjudags- og fimmtudags- kvöld í júlí og ágúst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.