Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 24

Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNB LAÐIÐ ■M Fullveldi Færeyja Meira fé til undir- búnings Þórshöfn. Morgunblaðið. LANDSSTJÓRN Færeyja leggur nú allt kapp á að flýta undirbúningi fullveldis til handa Færeyjum og til- heyrandi breytingum á sambandinu við Danmörku. í þessu skyni hefur stjórnin lagt til að á þessu ári verði varið í þennan undirbúning sem svarar 21 milljón íslenzkra króna til viðbótar við það sem áður hafði ver- ið ráðgert. Það verður nýja „stjarnan“ í fær- eyskum stjómmálum, Högni Hoy- dal, sem kemur til með að stýra þessu starfi, sem hefur verið sldpt upp í nokkra áfanga. Meðal meginverkefnanna við und- irbúning færeysks fullveldis verður að setja saman tillögu um nýjan samning um samband Danmerkur og Færeyja. Því næst á að semja til- lögu um fjárhagslegt uppgjör í sam- skiptum Dana og Færeyinga. Nýi ráðherrann, sem fer með ráðuneyti sjálfstjórnarmála, á líka að skipa nefnd, sem á að semja drög að stjórnarskrá fyrir Færeyjar. Færeyingar eiga svo að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu bæði um stjómarskrána og hinn nýja sjálf- stjómar-sambandsssamning við Danmörku. Fénu, sem landsstjórnin vill að þingið heimili að verði bætt á fjár- lög þessa árs, hefur hún ætlað að verði varið til undirbúningsins upp- lýsinga- og fræðslustarfs fyrir al- menning í Færeyjum um hina væntanlegu nýju stjómarskrá og sambandssamning við Danmörku. Háskóli Færeyja - Fróðskaparsetr- ið - mun hafa framgöngu um þetta fræðslustarf. ----------------- Rushdie neit- að um far Teheran. Reuters. BRESKA flugfélagið British Air- ways mun ekki flytja breska rithöf- undinn Salman Rushdie með vélum sínum, að því er framkvæmdastjóri félagsins í íran tilkynnti á frétta- mannafundi í Teheran á sunnudag. British Airways hefur hafið beint flug á milli London og Teheran, og er tilkynnt var um það sagði fram- kvæmdastjórinn, Bob Chaplin, m.a.: „Þótt það hafi slæm áhrif fyrir okk- ur í flugmálaiðnaðinum áskiljum við okkm- rétt til að flytja ekki Salman Rushdie og við flytjum hann ekki.“ Ayatollah Ruhollah Khomeini, leiðtogi trúarbyltingarinnar í íran, birti dauðadóm yfir Rushdie 1989 íyrir að hafa svívirt helgi islamstrú- ar með skáldsögunni Söngvar Satans. Persson vill samstarf við alla nema Hægriflokkinn Stuðningur við jafnaðarmenn eykst hægt og bítandi fyrir kosningarnar í næsta mánuði Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SAMSTARF allra flokka nema Hægriflokksins er framtíðarsýn Görans Perssons, forsætisráðherra Svía og leiðtoga jafnaðarmanna, en það er þó einkum samstarf við Mið- flokkinn, sem hann vonast eftir að haldist eftir kosningarnar í haust og tryggi jafnaðarmönnum áfram- haldandi völd. Stóru flokkamir hafa ekki lagt fram kosningayfir- lýsingar sínar, en Jafnaðarmanna- flokkurinn leggur mesta áherslu á velferðarmálin meðan Hægriflokk; urinn hamrar á skattalækkunum. I nýrri skoðanakönnun Gallup, sem birt var í Expressen um helgina, kemur í ljós að stuðningur við jafn- aðarmenn hefur aukist um 1,6 pró- sent og er 39,5%. Aðeins dregur úr stuðningi við hægrimenn, um 0.5% og er hann nú 26,5%. Áhersla á samstarf allra flokka í sumarræðu sinni nýlega, einni af hefðunum í sænskum stjórnmál- um, lagði Persson áherslu á sam- starf allra flokka, nema hvað Hægriflokkurinn gæti ekki átt að- ild að því sökum þess að stefna hans væri andsnúin velferðarkerf- inu. Persson benti á að Jafnaðar- mannaflokknum hefði í minni- hlutastjórn tekist að vinna með mismunandi flokkum, allt eftir málum. Þetta fékk Svenska Dagbladet til að álykta sem svo á leiðarasíðu að með þessu ræki Persson þá kjósendur, sem breytingar vildu, beint í faðm Hægriflokksins þar sem sá flokkur væri greinilega eina örugga tryggingin íyrir að ekki væri óbeint verið að kjósa jafnað- armenn. Persson er einnig býsna óljós í orðum um stefnumál flokks- ins en leggur aðaláherslu á að ekki komi til skattalækkana nema tekjuafgangur verði, eins og stefnt er að á næstu árum. Um síðustu helgi bauð Persson Lennart Dahléus, nýkjörnum for- manni Miðflokksins, í kvöldmat á Harpsund, sumardvalarstað sænska forsætisráðherraembættis- ins. Fundurinn var talinn enn eitt dæmi um hve mikla áherslu Pers- son leggur á að tengja Miðflokkinn betur Jafnaðarmannaflokknum. Dahléus vill ekkd taka undir að flokkamir tveir standi nær hvor öðrum en áður og segist ekki vilja ræða væntanlegt stjómarsamstarf eða hver sé með hverjum. Það ráð- ist af kosninunum. Hægriflokkurinn leggur aðalá- herslu á skattalækkanir. Skoðana- könnun bendir þó til að aðaláhuga- efni kjósenda séu aukin atvinna og velferðarmálin, þar sem um og undir fimmtán prósent kjósenda álitu þessi mál mikilvægust. Tæp- lega fímm prósent nefndu skatta- lækkanir sem mikilvægasta málið. Carl Bildt, leiðtogi Hægriflokksins, bendir hins vegar á að skattalækk- anir og aukin atvinna séu tvær hliðar á sama hlut, þar sem skatta- lækkanir ýti undir atvinnusköpun. Bildt hefur leynt og ljóst reynt að undirstrika að borgaralegu flokk- amir fjórir, sem sátu saman í stjóm 1991-1994, þar með talinn Miðflokkurinn, eigi enn ljósa sam- leið. Styrkur Alþýðusambandsins í brennidepli Vinstriflokkurinn hefur kynnt stefnuskrá sína sem þykir taka mjög mið af kröfum Álþýðusam- bandsins um að félagsbætur verði hækkaðar í fyrra horf. Um leið undirstrika forystumenn flokksins að mun eðlilegra sé fyrir meðlimi Alþýðusambandsins að kjósa Vinstriflokkinn en Jafhaðarmanna- flokkinn, sem ekki hafi sinnt kröf- um sambandsins. Jafnframt hefur Vinstriflokkurinn gagnrýnt kosn- ingastuðning sámbandsins við Jafnaðarmannaflokkinn, sem sam- svarar því að hver meðlimur sam- bandsins greiði um 60 krónur ís- lenskar til kosningabaráttu flokks- ins. Gudrun Schyman, formaður Vinstriflokksins, vonast til að flokkurinn fái um tíu prósenta fylgi og verði þar með þriðji stærsti flokkurinn á eftir Jafnaðarmanna- flokknum og Hægriflokknum. Samkvæmt skoðanakönnun SIFO styðja 53,5 prósent meðlima sam- bandsins jafnaðarmenn, en Vinstri- flokkurinn og Hægriflokkurinn njóta hvor um sig stuðnings fimmt- án prósenta meðlimanna. Eftir þingkosningamar 1994 var Jafnað- armannaflokkurinn með flesta þingmenn, en síðan kom Hægri- flokkurinn, Miðflokkurinn, Þjóðar- Reuters Persson telur stefnu Hægriflokksins andsnúna velferðarkerfinu. flokkurinn, Vinstriflokkurinn, Um- hverfisflokkurinn og Kristilegir demókratar, en skoðanakannanir benda til að síðastnefndi flokkurinn jaðri nú við að fá ekki þingmann kjörinn. I kosningasjóði Jafnaðarmanna- flokksins em 43 milljónir sænskra króna, Hægriflokkurinn hefur 25 milljónir til umráða, Miðflokkur- inn 15-20 milljónir, Þjóðarflokk- urinn 11 milljónir, Umhverfis- flokkurinn 6,8 milljónir, Vinstri- flokkurinn 6,4 milljónir og Kristi- legi demókrataflokkurinn 3-4 milljónir. Nú bjóðast þessar mögnuðu amerísku glæsibifreiðir á óviðjafnanlegu verði. Gríptu tækifærið og láttu ameríska drauminn rætast. Ath! Takmarkað magn af bílum á þessu lága verði. IÖFUR ' NÝBÝLAVEGI 2 • KÓPAVOGI • SÍ»I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.