Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 44
'ÞL4 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR KIRKJUSTARF + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR YNGVI SIGURÐSSON, Hátúni 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 11. ágúst, kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vin- samlegast bent á líknarfélög. Birna Elín Þórðardóttir, Úifar G. Ásmundsson, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir, Þröstur Tómasson, Guðlaug Katrín Þórðardóttir, Markús Örn Þórarinsson, Ágústa Sigríður Þórðardóttir, Sævar H. Pétursson, Eva Þórðardóttir Buskquist, Sven Buskquist, Guðmundur Þórðarson, Pétur Þórðarson, Guðrún Elísa Þorkelsdóttir, Sigríður Steina Sigfúsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ERNA SÓLRÚN KRISTENSEN Sölvhólsgötu 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 12. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.30. Rudolf Ásgeirsson, Sólborg Marinósdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Hjördís Bergþórsdóttir, Gunhild Bjarnason, bamabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, INDRIÐI INDRIÐASON vélamaður, Langholtsvegi 14, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 12. ágúst kl. 13.30. Steinunn Hákonardóttir, Ingunn Karítas Indriðadóttir, Jóhann Sæberg Helgason, Guðný Vigdís Indriðadóttir, Kristgeir Friðgeirsson, Indriði Indriðason, Anna Árdís Helgadóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við fráfall og útför sambýlismanns míns, föður nokkar, tengdaföður, afa og langafa, GESTS KARLS KARLSSONAR, Eyrargötu 28, Eyrarbakka. Sérstakar þakkir til starfsfólks geisla- og krabbameinsdeildar Landspítalans. Jónína Kjartansdóttir, Aðalheiður Gestsdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson, Hafþór Gestsson, Emma G. Eiríksdóttir, Finnlaugur Pétur Gestsson, Ditte Poulsen, Marteinn Arnar Heimisson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGUNNAR M. ÞORSTEINSDÓTTUR, Snorrabraut 56, áður til heimilis f Ásenda 16. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga Karitas. Þorsteinn Emst Gíslason, Örn Emst Gíslason, Gylfi Ernst Gíslason, Birgir Ernst Gislason, Ásdís Gíslason, Þórlaug Daníelsdóttir, Lilja Valsdóttir, Þorbjörg Guðjónsdóttir, Ása Einarsdóttir, Páll G. Þórhallsson og barnabörn. SVANHVÍT JÓNSDÓTTIR + Svanhvít Jónsdóttir fæddist f Neskaupstað 6. janúar 1968. Hún lést á Landspítalanum 6. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Ilafnarfjarðar- kirkju 10. ágúst. Elsku Svanný mín, mig langar að senda þér nokkrar línur. Hvað ég öfundaði þig, þegar þú byrjaðir í skólanum Hringsjá og sagðir okkur skólasystkinum þínum frá veikind- um þínum. Eg tók utan um þig og þakkaði fyrir hvað þú varst einlæg. Þegar við fórum á gönguskíði, þú dast og ég ætlaði að hjálpa þér að rísa upp. Nei, þú vildir sjálf reyna, og upp stóðst og brostir. Svona varst þú með þitt æðruleysi. Þegar við vorum í World Class, mættir þú alltaf jákvæð og ákveðin í að takast á við veikindi þín. Stundum var ég pirruð út í þig, vegna þess að þú varst svo glöð og alltaf yndisleg. Vildir hjálpa öðrum þó að þín líðan væri ekki góð. Þegar ég kom með dætur mínar í heimsókn til þín, tókst þú okkur opnum örmum og sagðir okkur hvað þér liði vel í nýju íbúðinni. Nú ert þú horfín yfír móðuna miklu, og ég veit að þú hefur fengið góða heimkomu. Ég bið Guð að blessa þig og sendi samúðarkveðjur til fjölskyldu þinnar. Megi Guð styrkja þau í sorg þeirra. En minningin um góða Svanný mun lifa. Ólöf Jónsdóttir. GUNNAR ÁGÚST GÍSLASON + Gunnar Ágnst Gíslason frá Blómsturvöllum í Súðavík fæddist að Kleifarstöðum í KoIIafirði á Barða- strönd 27. ágúst 1916. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Isa- firði 2. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Gísli Olafsson og Stein- unn Ólafsdóttir og áttu þau 5 böm. Gunnar kvæntist 15. júní 1950 Ingibjörgu Egils- dóttur, f. 26. desember 1929, og bjuggu þau lengstum á Blómst- urvöllum í Súðavík. Gunnar átti einn son fyrir, Ásgeir, f. 9. desember 1941, sem lést 20. október 1995, en börn Gunnars og Ingi- bjargar em: Frosti, f. 9. maí 1950, Eyrún Steinunn, f. 24. september 1953, Fjalar, f. 1. október 1959, Kolbrún, f. 6. nóvember 1961, Hulda, f. 20. júlí 1963 og Dagný Hrund, f. 2. janúar 1968. Útför Gunnars fór fram frá Súðavíkurkirkju 8. ágúst. Hljóttu yndi, hæsta gengi, hræðstu ei vindana, eltu kindur ennþá lengi, upp á tindana. Osjálfrátt koma þessi vfsuorð sem Auðunn Bragi Sveinsson orti til Gunnars Gíslasonar á 60 afmæli hans upp í hugann þegar ég fékk fréttina um að bjargvættur minn frá barnæsku væri látinn, hartnær 82 ára gamall. Sjálfsagt býr enn í undirmeðvitundinni rölt lítils þriggja eða fjögurra ára snáða yf- ir snævi þakta jörðina á eftir fjár- bóndanum sem var að reka fé sitt heim að húsum. Gunnar eða Gunnsi Gísla eins og hann var venjulega kallaður varð litið til baka og sá að snáðinn var horfínn, brást skjótt við og hljóp til baka og sá þar hvar drengurinn var að hverfa undir í skurði er hann hafði fallið niður í er snjóþekjan brast. Það er eins og þetta minningar- brot frá því áður en ég féll niður um snjóþekjuna af manninum er gekk í hægðum sínum yfír snævi % w Þegar andlát ber að höndum Utfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn þakta jörðina á eftir kindunum með pípuna í hendinni hafí á ein- hvern hátt meitlast inn í vitund mína og alltaf ef minnst hefur ver- ið á Gunnsa Gísla hefur þetta augnablik, þessi frysta mynd úr ævi minni, skotið upp kollinum og það er ekki laust við það að ég finni ilminn af tóbakinu hans þeg- ar ég hugsa til hans. Vísuorðin hans Auðuns Braga hafa að líkindum einnig styrkt þessa ímynd sem ég hef haft af þessum dagfarslega hæglynda manni sem átti þó svo ríkt skop- skyn og oftar en ekki sagði frá með þeim hætti að ekki gleymist. Djúp vinátta er ekki eitthvað sem verður til á augnabliki. Hún þróast, vex og dýpkar og þannig upplifði ég samband pabba og Gunnsa. Það var ekki eitthvað sem höfð voru mörg orð um, reyndar held ég að ég hafi yfir höfuð aldrei heyrt á það minnst en mér fannst eins og ég gæti næstum þreifað á því. Það auðgar þann sem slíkt skynjar og á tímum hraða og tíma- skorts er gott að rifja upp þær stundir sem lifa í minningunni sem endurspegla djúpa og ein- læga virðingu einstaklinga hvers fyrir öðrum. I sjálfu sér eru öll orð um mannlegt eðli eins og við þekkjum það best næsta fátækleg og þessar línur til að minnast manns sem sóttist ekki eftir gæðum þessa heims en mat einlægni og dreng- skap meir, frekar léttvægar en mér líður samt betur að hafa látið þær frá mér en ef ég hefði þeim sleppt. Eg kveð Gunnsa Gísla um leið og ég votta eiginkonu hans, börn- um, barnabörnum og öðrum að- standendum mínar dýpstu samúð- arkveðjur. Hálfdán Kristjánsson. www.mbl.is Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis- verður. Samverustund foreldra ungra bama kl. 14-16. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Seltjarnarneskirkja. Foreldra- morgunn kl. 10-12 Vídalínskirkja. Opið hús íyrir eldri borgara í Kirkjuhvoli kl. 13-16 alla þriðjudaga í sumar. Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvem einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, Á-4, miðað við meðal- línubil og hæfílega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetrar í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útfór hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disk- lingur fýlgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfí - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfínu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstu- dag. I miðvikudags-, fimmtu- dags-, fóstudags- og laugar- dagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrir birtingardag. Þar sem pláss er takmarkað, getur þurft að fresta birtingu minningargreina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.