Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens T7W17~P17Vr IN-Ik T\ T\ T\ tx —w--------■SP'- þ)ÐER Ö/nURLE6r a& i'eeA i LÆ6&/ kANTI F/T9UKEÐT- unnar/ . 01998 IKtxna Madia S«vtee«, Inc. /-/£ AH FVghta RnavM. Grettir Tommi og Jenni Smáfólk l'VE 0EEH READIN6 TM0MA6 WOLFE'5 "YOU CAN'T 60 MOME A6AIN " Ég hef verið að lesa bókina „Þú getur snúið heim á ný“ eftir Thomas Wolf. Þú ættir kannski að skrifa eitthvað álíka... Þú getur snúið heim á ný ef þú vilt. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Einkavæðing Frá Arnljóti Bjarka Bergssyni: MARGIR eru þeir sem skrafað og skrifað hafa um svokallaða einka- væðingu ríkisviðskiptabankanna að undanfömu. Hví er verið að fjalla um einkavæðingu núna á svo alvar- legan hátt sem raun ber vitni? Þegar gripið er til einkavæðingar verður að fram- kvæma hana af varúð og að vand- legri íhugun lok- inni. Ekki má rasa um ráð fram við einkavæðingu fremur en aðrar efnahagsstjómunaraðgerðir. Markmiðin verða að vera skýr. Einkavæðing einkavæðingarinnar vegna þjónar varla miklum til- gangi. Orðið sem slíkt er ekki töfraorð. Allir hljóta að sjá að land- ið verður ekki búsældarlegra þó að einkavæðing eigi sér stað á ein- staka annnesjum þess. Vakir það eitt fyrir stjómvöldum að auka tekjur ríkssjóðs svo fjárlög ársins fái staðist? Var það þá ekki fyrirsjáanlegt í vor að fjárlögin stæðust ekki nema að auknar tekj- ur kæmu inn og hefði þá ekki verið réttara að brjóta þau upp þá og þegar? Ef stefnir í þrot þá er nátt- úrlega um fátt annað að ræða en að draga úr útgjöldum. Er hagræðing helsta forsenda einkavæðingar? Hagræðing sem slík er góð og blessuð, því eyðsla sem hægt er að komast hjá er til óþurftar. Þar sem þrautþjálfaðir tölvuspekingar era á mála hjá hinu opinbera ætti tæpast að þurfa einkavæðingu til að ná hagræð- ingu. Nema þeir séu ekki hæfir til starfans. Á að neyta á meðan á nefinu stendur og selja aðilum hliðhollum stjórnvöldum meðan slíkt er mögu- legt? Liggur það þá ekki ljóst fyrir að næsta stjórn mun aðhafast á líka lund og selja vinum sínum öll arðvænlegu fyrirtækin sem eftir verða? Telja menn einkavæðingu einu tryggingu þess að misferli í banka- kerfinu, sem komist hefur upp um að undanförnu, endurtaki sig ekki? Vissulega er það ámælisvert að ráðherra sem neitað er um upplýs- ingar sem varða kjör bankastjóra skuli fátt hafa aðhafst til að komast að hinu sanna í málinu og veita þeim er neituðu ráðningu fyrir óhlýðnina. Bankar era ekki góð- gerðarstofnanir þar sem stjóm- endum er veitt sjálfdæmi hvað varðar kaup þeirra og kjör. Bankar era ekki til fyrir bankastjórana. Róðarí í rekstri banka er ekki gott fordæmi fyrir stjómendur t.a.m. lántakenda hjá bönkunum. Bankar era sérstakt og vand- meðfarið efnahagsfyrirbæri. Ekki er ýkja langt um liðið frá því að landsmenn hlupu undir bagga með Landsbankanum með fjárveitingu sem var öllu stærri en venjulegt heimilisbókhald fæst við að öllu jöfnu. Bankamir hafa verið byggð- ir upp með ærnum tilkostnaði þjóð- arinnar. Islendingar hljóta því í það minnsta að hafa forkaupsrétt á hlutafé í bönkunum. Bönkum sem era grannurinn að efnahagskerfí þjóðarinnar. Bönkum sem ætti ekki fyrr en í fulla hnefana að bjóða erlendum aðilum á silfurfati. Bönkum sem við eram stolt af að hafa reist frá granni. Fátt er meiri fásinna en að fjár- festa í því sem maður þegar á. Hvaða skynsemi er í því að bjóða eigendum fyritækja fyrirtækin sem slík til sölu? Því þurfa lands- menn að leggja fram meiri fjár- muni en þeir hafa þegar gert til að tryggja eignarhald sitt á bönkun- um? Ef sú niðurstaða fæst að einkavæða eigi bankana eða afmá með öllu afskipti ríkisins af banka- rekstri og koma eigi þeirri starf- semi í hendur einkaaðila er lítið réttlæti í öðra en að landsmönnum verði send hlutabréf í ríkisbönkun- um. Eflaust þykir einhverjum þá hætt við frekari þenslu í þjóðfélag- inu með peningaaustri hins opin- bera þar sem líklegt má telja að margur hyggi á skjótfenginn gróða með sölu þessara sömu hlutabréfa á almennum markaði. En þenslan verður tæpast meiri en sú að þeir sem eiga peninga festa þá í hluta- bréfum sem annars hefðu farið í eitthvað annað. Það er ekki um neina nýja eyðslu að ræða, hún færist bara á milli manna. ARNLJÓTUR BJARKI BERGSSON, formaður Varðar FUS Akureyri. Arnljdtur Bjarki Bergsson Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.