Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBÖND
Heimskuleg mynd
Heimska fjölskyidan
(The Stupids)
(■amanmyntl
>/2
Framleiðsla: Leslie Belzberg. Leik-
stjórn: John Landis, Jessica Lundy.
Handrit: Brent Forrester. Kvik-
myndataka: Manfred Guthe. Tónlist:
Christopher Stone. Aðalhlutverk:
Tom Arnold, Bug Hall og Alex
McKenna. Bandarísk. Sam-mynd-
bönd. Leyfð öllum aldurshópum.
STUPID-FJÖLSKYLDAN sam-
anstendur af fjórum meðlimum sem
eru, í stuttu máli sagt, hver öðrum
heimskari. Þau eru svo vitlaus að þau
fatta einfaldlega ekki neitt og svo hepp-
in að sama hvað kemur íyrir þá sleppa
þau ekki einu sinni með skrekkinn, því
þau átta sig aldrei á hættunni sem að
þeim steðjar. Dag einn ákveður Stanley
Stupid, höfuð fjölskyldunnar þótt rétt-
ara væri að líkja honum við hinn end-
ann, að binda enda á langvarandi viku-
legan þjófnað á rush fjölskyldunnar.
Rannsókn hans leiðir hann á risastóra
hauga þar sem hann uppgötvar glæp
aldarinnar, víðfeðmt samsæri um að
ræna rush allra í heim-
inum. Hann biandast
fyrir slysni inn í ólögleg
vopnaviðskipti hersins
og alþjóðlegra hryðju-
verkamanna, sem ein-
hverra hluta vegna
halda að Stanley sé
njósnameistari.
John Landis á vafa-
saman heiðurinn af
leikstjórn þessarar myndar. Hann á að
baki langan og traustan feril við gam-
anmyndaleikstjórn í Hohywood og eft-
ir hann liggja margar frábærar myndir
eins og ,Animal House“, „Blues
Brothers" og „Trading Places“. Hér
fatast honum hins vegar gei-samlega
flugið og hann sekkur ofan í þann botn-
lausa leiðindapytt sem myndin er. Það
er varla hægt að brosa að nokkrum
sköpuðum hlut sem gerist og á köflum
verður myndin neyðarlega léleg. Ein-
staka hugmynd er góð í grunninn en
eyðilögð með leiðinlegum leik eða
heimskulegum útfærslum. Hins vegar
stendur myndin vel undir tithnum, þótt
ætla mætti að hann vísaði í skapara
myndarinnar frekar en persónur.
Guðmundur Ásgeirsson
Fös. 14. ágúst — lau. 15ágúst.
Sýningar hefjast kl. 20.
Miðasala sfmi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
í s ú p u n n i
fim. 13/8 kl. 20 örfá sœti laus
fös. 14/8 kl. 20 UPPSELT
lau. 15/8 kl. 20 UPPSELT
lau. 15/8 kl. 23.30 aukasýning
sun. 16/8 kl. 20 örfá sæti laus
fim. 20/8 kl. 20 örfá sæti laus
fös. 21/8 kl. 20 UPPSELT
fös. 21/8 kl. 23.30 aukasýning
TÓNLEIKARÖÐ IÐNÓ
Lög eftir Jón Múla
í kvöld 11/8 kl. 20.30
Mlðasala opln kl. 12-18
ðsóttar pantanlr seldar daglega
Miðasöluslmi: S 30 30 30
afeyilSPdlMfeg
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fim. 13/8 kl. 21
Lau. 15/8 kl. 21
Miðaverð kr. 110O fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vörðufélagar LÍ fá 30% afslátt
Sýnt f íslensku óperunni
Miðasölusfmi 551 1475
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Lethal Weapon 4 -k-kVz
Gaman, gaman, hjá Gibson og
Glover og áhorfendur skemmta
sér með.
Borg englanna ★★
Venjuleg ástarsaga og sérstök frá-
sögn af englum, blandast ekki vel
saman.
Armageddon ★★
Afskaplega amerísk stórmynd
með húmor, fínum brellum og
miklum hetjum.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Lethal Weapon 4 ★★1/2
Gaman, gaman, hjá Gibson og
Glover og áhorfendur skemmta
sér með.
Mercury Rising ★★
Spennumynd um hundeltan, ein-
hverfan dreng sem telst hættuleg-
ur þjóðaröryggi, og alríkislögguna
sem tekur hann undir sinn vernd-
arvæng. Hefst með látum, heldur
dampinum lengst af, en lyppast
niður í lokin.
Borg englanna ★★
Venjuleg ástarsaga og sérstök frá-
sögn af englum, blandast ekld vel
saman.
Armageddon ★★
Afskaplega amerísk stórmynd
með húmor, fínum brellum og
miklum hetjum.
Sex dagar, sjö nætur 'k'kVz
Ford og Heche mynda prýðilegt
par í gamanhasarmynd a la Rom-
ancing the Stone. Fulltuggið en
ekki leiðinlegt.
The Man Who Knew Too Little ★
Bill Murray er sá eini með viti í
meðvitaðri klisjusúpu sem gengur
ekki upp.
Anastasia ★★★
Disneyveldið er ekld lengur eitt
um hituna í gerð úrvalsteikni-
mynda. Anastasia jafnast á við
það besta sem gert hefur verið.
Frábærar teikningar, persónur og
saga, sem fer frjálslega með sögn-
ina af keisaradótturinni og bylt-
ingu öreiganna.
Mr. Magoo ★
Ofyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir
henni ekki upp, er leiðinlegur Mr.
Magoo.
Litla
hafmeyjan ★★★
Falleg og fyndin kvikmynd þar
sem töfrar ævintýrsins blómstra
að fullu.
HÁSKÓLABÍÓ
Mar/a, má ég kynna Frank, Dani-
el og Laurence ★★
Ein af myndum bresku nýbylgj-
unnar. Þokkaleg gamanmynd en
lítið meira.
Vinarbragð ★★★
Mögnuð og eftirminnilega vel leik-
in, dönsk (-íslensk) mynd um vin-
áttu tveggja ungra Kaupmanna-
hafnar-smákrimma, sem lýkur
með ósköpum á Islandi. Ovenjuleg
mynd um manneskjur og tilfinn-
ingar.
Blúsbræður 2000 ★★
Heldur óspennandi framhald af
góðri kultmynd.
Rökkur ★★■/
Paul Newman er alltaf sami
töffarinn, þó kominn sé um sjötugt
og fer létt með að bera uppi dökka
einkaspæjara-film noir-mynd sem
líður fyrir það eitt að handritið er
míglekt og ein klisja frá fyrstu til
síðustu mínútu. Með leikhóp
(Hackman, Sarandon, Gamer,
Newman), sem einn og sér lyftir
myndinni yfir meðallagið. Auk
þess er leikstjórn Bentons í sama
gæðaflokki.
Kvikt hold •k'k'k
Almodóvar heimfærir góða breska
sakamálasögu uppá blóðhita landa
sinna, gráglettinn og bersögull að
vanda. Skortir meira taumleysi til
að jafna sín bestu verk. Magnaður
leikur.
Grease ★★★
Það er engin spurning, myndin er
algjört „ring a ding a ding“.
KRINGLUBÍÓ
Lethal Weapon 4 kkVi
Gaman, gaman, hjá Gibson og
Glover og áhorfendur skemmta
sér með.
Mereury Rising ★★
Spennumynd um hundeltan, ein-
hverfan dreng, sem telst hættu-
legur þjóðaröryggi, og alríkislögg-
una sem tekur hann undir sinn
verndarvæng. Hefst með látum,
heldur dampinum lengst af, en
lyppast niður í lokin.
Armageddon ★★
Afskaplega amerísk stórmynd
með húmor, fínum brellum og
miklum hetjum.
Sex dagar, sjö nætur ★★'/>
Ford og Heche mynda prýðilegt
par í gamanhasarmynd a la Rom-
ancing the Stone. Fulltuggið en
ekki leiðinlegt.
Litla hafmeyjan ★★★
Falleg og fyndin kvikmynd þar
sem töfrar ævintýrsins blómstra
að fullu.
LAUGARÁSBÍÓ
Mercury Rising ★★
Spennumynd um hundeltan, ein-
hverfan dreng, sem telst hættu-
legur þjóðaröryggi, og alríkislögg-
una sem tekur hann undir sinn
vemdarvæng. Hefst með látum,
heldur dampinum lengst af, en
lyppast niður í lokin.
Skotmarkið ★★★
Húmorinn er einstakur í þessari
spennumynd, uppfullri af nýjum
hasarbrellum og frumlegri sýn á
glæpaheiminn. Mark Wahlberg er
frábær í aðalhlutverkinu.
Týnd ígeimnum ★★
Byggð á slöppum sjónvarpsþátt-
um en tekst að skemmta manni
framundir hlé. Þá rennur allt útí
geiminn...
REGNBOGINN
Senseless ★★
Wayans geiflar sig og grettir
prýðilega í heldur ónýstárlegri
gamanmynd sem stundum er
hægt að hlæja að.
Mimic ★★
Grámuskuleg hrollvekja, andfúl
og kámug en heldur sínum
kámuga dampi.
The Object of My Affection k-kVz
Ljúf og falleg mynd um ást og vin-
áttu. Ekki væmin og dýpri en bú-
ast mátti við.
Titanic kkkVz
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu,
virðingar fyrir umfjöllunarefninu.
Falleg ástarsaga og ótrúlega vel
unnin endurgerð eins hrikalegasta
sjóslyss veraldarsögunnar.
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með sögnina af keis-
aradótturinni og byltingu öreig-
anna.
STJÖRNUBÍÓ
Heift ★
Afspymuléleg tengdamömmuhroll-
vekja með ótrúlega bágum Jessicu
Lang og Gwyneth Paltrow, leik-
stjóm og handriti og handónýtu og
dúllulegu karlkyns nýstimi.
Skráðu húsnæðið þitt hjá Leigulistanum þér að kostnaðarlausu. Með
aðeins elnu símtali er húsnæðið þitt komið á skrá hjá okkur og þar með
ert þú komin(n) í samband við fjölda leigjenda. Skráðu (búðina núna
áður en hún losnar og komdu I veg fyrir að hún standi auð og arðlaus.
Skráning í síma 511-1600
EIGUUSTINN
LEIGUMIÐLUN
Skipholti 50B, • 105 Reykjavík
Fréttakona
Minutes“?
LEIKKONAN Candice Bergen,
sem lék fréttakonu í sjónvarpsþátt-
unum „Murphy Brown“ um árabil,
virðist vera efni í raunverulega
fréttakonu að mati forráðamanna
sjónvarpsstöðvarinnar CBS. Fregn-
ir herma að framleiðendur hins
virta fréttaskýringaþáttar „60
Minutcs" hugleiði að bjóða leikkon-
unni starf sem alvöru fréttamaður.
„Nú þegar hún er ekki lengur að
leika fréttakonuna Murphy Brown
datt mér í hug að hún hefði áhuga
á að vinna eina eða tvær frétta-
skýringar fyrir okkur," sagði
framleiðandinn Don Hewitt í við-
tali við tímarit á dögunum. „Þegar
við höfum fundið frétt við hennar
hæfl þá ætlum við að gefa henni
tækifæri og sjá hvemig gengur.“
Sjónvarpsþættirnir um frétta-
konuna Murphy Brown höfðu
gengið samfleytt í tíu ár þegar
framleiðslu þeirra var hætt fyrr á
árinu. Þess má geta að Candice
Bergen þreytti starfspróf fyrir
„60 Minutes" fyrir 25 ámm síðan
þegar hún var ungur og upprenn-
andi fréttaljósmyndari. „Hún mun
ekki taka við af Mike Wallace og
hugmynd Dons Hewitt er á frum-
stigi,“ sagði talsmaður CBS þegar
hann var inntur fregna.