Morgunblaðið - 10.09.1998, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Hiti með við-
eigandi titringi
Morgunblaðið/Halldór
JAZZHATIÐ Reykjavíkur var sett í Ráðhúsinu síðdegis í gær og með-
al þeirra sem þar komu fram var kvartett Putte Wiekman sem síðan
kom fram á fyrstu tónleikum hátíðarinnar á Hótel Sögu í gærkvöld.
TÓNLIST
Hótel Saga —
Jazzhátíð Koykjavfkur
KVARTETT
PUTTE WICKMAN
Putte Wickman klarinett, Claes
Crona píanó, Hans Backenroth bassi
og Pétur Ostlund trommur. Miðviku-
dagskvöld 9.9.1998.
FLESTALLIR helstu djassleik-
arar Dana hafa heimsótt Island á
síðustu tuttugu árum, en annað er
upp á teningnum með Svía. Aðeins
einn hinna stóru í sænskri djass-
sögu hefur komið hér, píanistinn
Bengt Hallberg, sem lék á Lista-
hátíð árið 1970. Nú bætist annar í
hópinn, klarinettuleikarinn Putte
Wickman. Lasse Gullin er allur
(sonur hans Peter hefur heimsótt
Island með tríói sínu), en Ame
Domnerus er enn í fullu fjöri og á
vonandi eftir að koma hingað.
Hann er jafnaldri Putte - þeir eru
fæddir árið 1924.
Pétur Ostlund hefur leikið með
Putte af og til í áratugi. í janúar
1973 hljóðritaði hann í fyrsta skipti
með Putte. Hljómplatan nefndist
Happy New Year og af átta lögum
voru aðeins tveir standardar, flest
hinna samin í samvinnu kvartetts-
ins. Þetta var óvenju framsækin
skífa og er víða til á íslandi -
vegna Péturs.
Pétur kallar Putte mesta klar-
inettuleikara í heimi. Hvað sem
um þá fullyrðingu má segja er það
víst að hann telst til hinna stóru í
klarinettuleiknum og er mun víð-
feðmari í tónlist sinni en helstu
keppinautar hans um titilinn á
Norðurlöndum: Daninn Jorgen
Svare og Finninn Anti Sarpila. I
Bandaríkjunum blása í svínghefð-
inni Kenny Davern og Ken
Peplowski, en Buddy DeFranco er
nær bíboppinu eins og Eddie Dani-
els og Jimmy Guiffre leitar ætíð
nýrra leiða eins og vinsælasti klar-
inettuleikari djassins um þessar
mundir, Don Byron.
Þeir félagar Putte og Pétur eru
engir aukvisar. Píanistinn Claes
Crona sem m.a. hefur leikið inná
dúódisk með Niels-Henning og
bassaleikarinn Hans Backenroth
sem lék með Pétri í kvartetti
Svante Tureson á RúRek 1992.
Efnisskráin á Hótel Sögu var
ekki eins framsækin og á Happy
New Year 1973. Flest laganna
góðkunnir standardar utan Anja
eftir Pétur, gullfalleg ballaða er
hann tileinkar konu sinni og heyra
má á fyrstu einleiksskífu hans
Power Flower, sem Jazzís gaf út í
fyrra og Blues For Laila eftir Cla-
es Crona - og svo léku þeir einn
sálm, en Putte hefur haldið ótelj-
andi kirkjutónleika um dagana, oft
með vini sínum Svend Asmussen.
Putte kynnti fyrsta lagið á
ensku, það var Never Been In
Love before, síðan skipti hann á
milli sænsku og ensku og það var
gaman hve áheyrendur í þéttsetn-
um sal Hótels Sögu tóku vel við
kímninni á sænsku.
Ég hef hlustað á Putte í áratugi
og stundum farið í taugamar á
mér hve tónnin var kaldur, en
þarna á Sögu var kominn meiri hiti
í hann en ég hef heyrt fyrr með
viðeigandi titringi. Old Folks blés
hann á klassískan hátt og
hrynsveitin studdi hann vel og
Pétur með bursta í hendi. Þeir
léku Onju ekki ósvipað og svo var
vínarkruss eins og Putte nefndi
How High The Moon. The Duke
eftir Brubeck og I Love You Mad-
ly eftir sjálfan The Duke (Ell-
ington) voru þrælútsett af Kjell
Ohman, sem oft er píanisti Putte,
en frelsið var meira í blúsi Crona
sem fyrr er nefndur. Þar fóru
Hans og Pétur á kostum í fjór-
um/fjórum, en yfirleitt fundust
mér sólóar Hans litlausir þótt
hann sé góður rýþmaleikari.
Um Pétur þarf engin orð að hafa
- hann framdi þann rýþmagaldur
sem honum er einum lagið.
Sá þeirra fjórmenninga sem
kom mér mest á óvart var píanist-
inn Claes Crona. Hann er fágæt-
lega persónulegur píanisti, með
næma hljómatilfmningu og minnir
að því leyti á Bill Evans að hann
bætir í hljómana með eigin lagi. Að
öðru leyti eru þeir ekki líkir. Claes
á rætur í eldri píanódjassi og er
ekki ókunnur blokkhljómunum og
gladdi það margan píanistann í
salnum. Frábært upphaf á
Jazzhátíð Reykjavíkur sem lýkur á
sunnudaginn með tónleikum Ray
Brown-tríósins.
Vernharður Linnet
UTSAU
GOLFTIPPI
20-50% aisl
frá kr. 676 m2
Vcös- oö ðólfllisar
20-40% afsl.
SfitrO 30X30 Clll
^lrá kr. 1.190--
UTIFLISAR
frá kr. 1.199 m
BOEN
ARMSTRONG
LINOLEUM
Gúmimollnr
Góllmoflur
20-50% afls.
GeRnheill
parhef
frákr.1.690 ni
Gólfdreglar
20-35% afls.
Grasfeppí
frákr.796 m2
133 - 2 - 4 oi breiðd
filffeppí
frákr.345 m2
4 in breidd
VEGGDUKUR
25% aOs.
allí að 70% afsl
Iahið málin með,
þaðflýfirfyriraígrciðslu.
Góð greiðslukjör!
Raðgrelðslur tll allt að
36mánaða
Suðurlandsbraut 26 s: 568 1950
norshf gœða parhel gólfdiikur dúkur
frákr.2.990 m2 20-30% afls. V 20-50% afls ^
Sólon íslandus
Fimmtudagur
KVARTETT Egils B. Hreinssonar
heldur útgáfutónleika í kvöld kl.
20.30. Kvartettinn skipa: Egill B.
Hreinsson píanóleikari, Óskar
Guðjónsson saxófónleikari, Tómas
R. Einarsson kontrabassaleikari
og Matthías Hemstock trommu-
leikari.
Tríó Tómasar R. Einarsson
heldur tónleika í kvöld kl. 22. Tríó-
ið er skipað þeim Tómasi R. Ein-
arssyni kontrabassaleikara, Árna
Heiðari Karlssyni píanóleikara og
Guðmundi R. Éinarssyni trommu-
leikara.
Kaffíleikhúsið
Cristán Cuturrufo, trompetleik-
ari frá Chile, Agnar Már Magnús-
son píanóleikari, Þórður Högnason
kontrabassaleikari og Matthías
Hemstock trommuleikari verða
með tónleika kl. 22 í kvöld.
Tímarit
ó HUGUR, tímarit um heimspeki
er komið út og er níundi árgangur
tímaritsins.
Ritið hefur að geyma sjö grein-
ar. Fjórar þeirra fjalla á einhvern
hátt um sáttmálakenningar. Ber
þar þrjú nöfn helst á góma,
Immanuel Kant, John Rawls og
Júrgen Habermas.
Stefán Snævarr skrifar greinina
Sannleikur og suttungamjöður,
Anthony Kenny ritar greinina
Descartes fyrir byrjendur, Vil-
hjálmur Arnason er með tvær
greinar, Leikreglur og lífsgildi og
Smíðagripir Rawls og Kants, grein
Stefáns Erlendssonar heitir Sam-
ræðusiðfræði Júrgens Habermas,
grein Halldórs Guðjónssonar nefn-
ist Gagnrýni opinberrar skynsemi
og Jóhann Björnsson ritar grein er
nefnist Að girnast konu.
Utgefandi er Félag áhugamanna
um heimspeki. Ritstjóri er Hrann-
ar Már Sigurðsson. Ritið er 129
bls. ogkostar 1.980 kr. Háskólaút-
gáfan sér um dreifingu.