Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 8
225 milljón krói
Bygging sem bætir úr brýnni þörf í endurhæfingarstarfinu
Vífill Oddsson er staöarverkfræöingur á
Reykjalundi. Hann er hagvanur á þeim slóöum,
ólst þar upp og fylgdist ungur meö uppbyggingu
staðarins, sem faðir hans stóð fyrir ásamt ýmsum
ágætum mönnum. Síðar nam Vífill bygginga-
verkfræði og starfar hjá Teiknistofunni Óðinstorgi.
Arkitektar nýbygginganna eru Hilmar Þór Björnsson
og Finnur Björgvinsson. Byggingarnar á Reykja-
lundi hannaði Gunnlaugur heitinn Halldórsson
arkitekt á sínum tíma. Þegar hann hætti störfum
fékk hann þá Hilmar Þór og Finn til að taka við
arkitektateikningum á staðnum, en Vífill hefur
annast um verkfræðiteikningarnar.
„Það hefur lengi staðið endurhæfingarstarfinu fyrir
þrifum að íþróttaaðstaða er lítil. Einnig er
sundlaugin allt of lítil og ófullkomin. Þarna er að
öðru leyti afar góð aðstaða og gott fólk sem vinnur
við endurhæfingu sjúklinga. Góður árangur hefur
náðst, en gæti án efa orðið enn betri. Þessar
breytingar tel ég lífsspursmál fyrir Reykjalund,
þannig að hann fái haldið sinni stöðu sem endur-
hæfingarstöð á heimsmælikvarða," segir Vífill.
í vetur er ætlunin að hafist verði handa með
jarðvinnu fyrir viðbyggingar á Reykjalundi. Þetta
íþrótta- og þjálfunarhús ásamt sundlaug á að verða
tæpir 2.000 fermetrar að stærð og að hluta til á
tveim hæðum. Á efri hæð verður 200 fermetra
tækjasalur. Á neðri hæð verða búningsherbergi og
íþróttasalur 10x33 m. Þá verður samtengt þessu
þjálfunarlaug 7.5x7.5 m og svo stærri æfingarlaug
10x15 m að stærð með léttu þaki sem hægt verður
að opna á góðviðrisdögum. Við þá laug verða heitir
pottar. Sundlaugin kemur milli sjúkraþjálfunar-
aðstöðunnar og svokallaðrar lengju.
Vífill Oddsson segir að framkvæmdaáætlunin geri
ráð fyrir að kostnaðurinn geti orðið 225 milljónir
króna. Byggingatími er áætlaður eitt og hálft ár.
Þegar þessi aðstaða verður fyrir hendi á Reykja-
lundur að geta tekið á móti mun fleiri sjúklingum til
endurhæfingar. Tilskilin leyfi fyrir byggingunum
liggja enn ekki fyrir. Teikningar verða senn lagðar
fyrir opinbera aðila, byggingayfirvöld í Mosfellsbæ.
Brunamálayfirvöld hafa ekki neitt við það að athuga
að þarna verði byggt í þá veru sem áætlað er. Þá
verður leitað eftir samþykki heilbrigðisyfirvalda.
Almenningur byggði Reykjaiund á sínum tíma
SÍBS og 15 önnur félög innan Öryrkjabandalagsins
standa fyrir landssöfnuninni 2.-4 . október.
„Ég hef fylgst grannt með því hvernig almenningur
á íslandi hefur alla tíð stutt vel við bakið á SÍBS og
Reykjalundi. Því hef ég fulla trú á því að það verði
ekki erfitt að fjármagna nýbygginguna. Almenn-
ingur byggði Reykjalund á sínum tíma, og ég er
viss um að almenningur í dag styður við
áframhaldandi uppbyggingu á staðnum, sem
Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu þessa blaðs
Alþýðusamband íslands, Reykjavík
Alþýöusamband Suðurlands, Selfossi
Alþýðusamband Vestfjarða, ísafirði
Axel Sveinbjörnsson, Akranesi
Brunamálastofnun íslands
Bændasamtök íslands
Fiskanes hf„ Grindavík
Haraldur Böðvarsson hf„ Akranesi
Herjólfur hf„ Vestmannaeyjum
Húsavíkurkaupstaður
Hvalur hf„ Hafnarfirði
íslenskir Aðalverktakar
S. Árnason & co„ Reykjavík
Síldarvinnslan Neskaupstað
Hafnarsamlag Norðurlands, Akureyri
Starfsmannafélagið Sókn
Valtýr Þorsteinsson hf„ Akureyri
Vélastjórafélag íslands
Verslunarmannafélag Suðumesja
Þorbjörn hf„ Grindavík