Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 21

Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 21
Helga Friðfinnsdóttir, framkvæmda stjóri Happdrættis SÍBS Happdrætti SIBS hefur byggt Reykjalund upp „Samstaða þjóðarinnar um endurhæfingu á Reykja- lundi hefur fram að þessu birst í einstökum stuðningi við Happdrætti SÍBS sem hefur staðið undir allri uppbyggingu þar. Happdrættið mun halda þessu lífsnauðsynlega verkefni sínu áfram þegar söfnuninni lýkur", segir Helga Friðfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Happdrættis SÍBS. Þegar dregið er í happdrættinu hefst dráttur á því að teningar eru látnir í tromlu. Eftir að teningunum hefur verið snúið nokkrum sinnum kemur upp tala sem látin er í tölvuna og á þeim talnagrunni byggist útdrátturinn. Yfir tveir milljarðar frá Happdrætti SÍBS til uppbyggingar endurhæfingar Fæstir gera sér grein fyrir því Grettistaki sem Happ- drætti SÍBS hefur lyft með uppbyggingu sinni að Reykjalundi, öflugustu endurhæfingu sem við eigum. Helga Friðfinnsdóttir, núverandi fram- kvæmdastjóri happdrættisins hefur starfað hjá SÍBS í fjöldamörg ár. Er hún ánægð með árangurinn? „Happdrættið hefur fært endurhæfingu á vegum SÍBS yfir 2 milljarða króna á núgildandi verðlagi. Það er ástæða til þess að vera ánægð og þakklát fyrir undirtektir þjóðarinnar og velvild í garð SÍBS. Vandamál okkar felst hins vegar í því að þörfin fyrir áframhaldandi uppbyggingu eykst stöðugt og þar með þrýstingur á happdrættið um meiri árangur á sama tíma og samkeppnin á happdrættismarkaði hefur harðnað gífurlega". Happdrætti er bæði þægileg og skemmtileg leið til fjármögnunar „Þjóðin þarf að eiga aðgang að öflugri nútíma endurhæfingu. Stöðugt fleiri veikjast og slasast en eiga betri von um að komast aftur út í lifið með góðri og markvissri endurhæfingu. Endurhæfingin að Reykjalundi hefur sýnt að hún er þjóðhagslega hagkvæm en hún kostar mikið fé og leiðir að fjármagni eru ekki margar. Happdrætti SÍBS hefur reynst farsæl leið en stundum stöndum við á tímamótum sem krefjast sérstakra aðgerða eins og núna. Þegar þeim er lokið tekur happdrættið aftur við og heldur áfram með verkið. Sú leið hefur reynst þægileg fyrir velunnara Reykjalundar og líka skemmtileg". Það er gleðiauki að eiga miða „Kannanir sýna að flestir kaupa miða af velvilja í garð málefnis og líta á vinninga sem ánægjuauka og hafa gaman af eftirvæntingunni sem skapast þegar dregið er einu sinni í mánuði. Þeir íslendingar sem hafa fengið vinninga í Happdrætti SÍBS skipta tugum þúsunda og margir hafa orðið milljónum rikari. Við kunnum ótal skemmtilegar sögur sem vinnings- hafar hafa sagt okkur af happanúmerinu sínu sem kannski skilaði ekki vinningi árum saman en á ögurstund kom sá stóri og tilveran brosti á ný". Helga kemur upp um sig í lok viðtalsins, hún er ein af þeim sem sleppir engu tækifæri til þess að vinna málefninu lið og bætir við: „Þótt happdrættisárið byrji um hver áramót þá er hægt að panta sér miða núna, eitt símtal nægir". Landssöfnun 2.-4. október fyrir endurhæfingu á Reykjalundi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.