Morgunblaðið - 27.09.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.09.1998, Blaðsíða 25
Ur ýmsum áttum Gestur Þorgrímsson, kallaði berklahælin á sínum tíma: Háskóla öreiganna Blaðið Berklavörn var fyrsta málgagn berkla- sjúklinga, kom fyrst út árið 1939. Þegar ritstjóri var að fletta fyrstu árgöngunum kom hann auga á nafnið Gestur Þorgrímsson meðal ritnefndarmanna. Þegar svo var slegið á þráðinn til Gests Þorgríms- sonar, myndhöggvara, kom í Ijós að hér var á ferðinni einn og sami maðurinn. - Já, ég var berklasjúklingur, fékkfyrst brjósthimnu- bólgu og var lagður inn á Landspítalann. Mér batn- aði en sló svo niður aftur. í stuttu máli þá léku berkl- arnir mig talsvert illa, ég fékk m.a. berkla í hálsinn. Ég náði ekki eðlilegum líkamsþroska enda var þá lenska að láta sjúklinga ekki reyna á sig. Það var ekki fyrr en nokkrum árum seinna að Ólafur Hjaltested, læknir, sagði mér að nú væri aldeilis búið að snúa hlutunum við þarna úti í Sviss - nú prédikuðu þeir þjálfun, gönguferðir og íþróttir til að stæla lungunl - Hvernig menn voru það sem stóðu í eldiínunni fyrstu árin? - Þetta voru miklar hetjur - sannfærandi og þaulvanir pólitíkusar og sellumenn. Jónas Þorbergsson, útvarpsstjóri, var stórhuga maður - kommarnir létu hann tala fyrir sig því þeir máttu náttúrulega hvergi nærri koma! Þó bar mikið á Jóni Rafnssyni og Oddur Ólafsson, læknir og Sjálfstæðismaður, átti alltaf samleið með ídealistunum. Árni Einarsson varði fyrsti framkvæmdastjórinn á Reykjalundi og svo var Andrés Straumland, fyrsti forseti sambandsins, merkilegur maður. Hann var alla tíð sjúkur maður en lét það ekki á sig fá, ferðaðist um landið og hélt fundi. Hann var ágætur og sannfærandi fyrirlesari. Andrés var burgeisalegur í fasi og framkomu, feitlaginn með gullúr, og því mikið notaðurtil að tala við fyrirmenn. - Það liggur við að maður öfundist út í þann samhug sem ríkti á þessum árum. - Já, þetta voru merkilegir tíma. Ég hef einhvern- tíma kallað Vífilsstaði og önnur berklahæli háskóla öreiganna, því á þessum tíma var álíka illa farið með menntamenn og fátæklinga í þessu þjóðfélagi. Á Vífilsstöðum voru margir heimsborgarar og mér kemur fyrst í hug Emil Thoroddsen, sem hreif marga. Við lásum mikið af góðum bókum, allir sem fengust við að skrifa studdu baráttuna gegn berklunum og gáfu bækur sínar inn á hælin og spítalana. - Hvað varstu að gera á þessum árum, byrjaður á myndlistinni? - Nei, ég var að yrkja á þessum tíma. Gestur er orðinn 78 ára gamall, en hann er ung- legur, nánast beinn í baki og tággrannur. Hann strýkur skeggið og segir: - Berkasjúklingar voru yfirleitt ekki daprir. Þeir urðu að trúa því að þeirra biði bati og betri framtíð. '•'íM£as&, Gestur við höggmyndina Kona með greiðu sem hann vann árið 1947 í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.