Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 11
crar endurhæfingar
Hin daglega ganga sjúklinganna á Reykjalundi eflir þor og gleður andann. Þessi hópur var að leggja í göngu-
ferð á Helgafell einn sólfagran septemberdag.
líkamlega, heldur komi menn út með aðra lífssýn.
Menn kunna betur að lifa lífinu eftir dvöl hjá okkur,
halda sér við, læra að búa við sínar hömlur ef
einhverjar eru, og lifa heilbrigðara iífi en fyrr. Það
má segja að þarna rætist mottóið okkar, við erum
að styðja sjúka til sjálfsbjargar."
Björn segir að sundlaug og æfingalaug á Reykjalundi
geti að mati fróðra manna um endurhæfingu stytt
meðaltalsþjálfunartíma hvers sjúklings um nokkra
daga, menn tala um tvo og allt upp í fimm til sex
daga. Björn Ólafur segir að slíkur árangur með bættri
þjálfunaraðstöðu og vatnsmeðferð, sem nú er í
miklum metum í endurhæfingu, yrði stórkostlegur
og mjög eftirsóknarverður. „Þetta myndi leiða til
stórfellds sparnaðar fyrir þjóðfélagið auk þess sem
unnt væri að sinna þörfum stórs hóps fólks, sem í
dag er á biðlista eftir plássi á Reykjalundi. Þann hala
mætti stytta auk þess sem menn kæmust fyrr út i sitt
daglega líf en nú er."
Nokkrir óvissuþættir eru enn óleystir varðandi
uppbygginguna sem fyrirhuguð er á Reykjalundi.
Björn Ólafur segist ekki þora að spá fyrir um hvenær
nýja aðstaðan verðurtekin í notkun. Hönnunarvinna
fer á fullt skrið þegar búið er að leysa öll mál við
byggingayfirvöld og eldvarnaeftirlit. Framkvæmdir
muni vonandi hefjast fljótlega, og verða teknar í einu
stökki, frekar en í áföngum. Það ræðst þó af því hvert
framkvæmdaféð verður. Við viljum þó gjarnan að
verkinu Ijúki ekki síðar en á árinu 2000.
Dæmið sem aldrei verður reiknað
Við ræðum um Reykjalund sem verðmætaskapandi
fyrirbæri. í viku hverri kveðja sjúklingar Reykjalund
með þakklæti í huga. Endurhæfing í nokkrar vikur
getur gert kraftaverk. Menn koma á sjúkrahúsið oft
nokkuð bágir eftir skurðaðgerðir og sjúkralegur.
Endurhæfingin breytir lífinu og fyrr en varir er
fólkið farið að vinna og lifa eðlilegu lífi í þjóð-
félaginu. í stað örorku kemur atorka. En Reykja-
lundur er eins og aðrar sjúkrastofnanir,
reikningsdæmi sem aldrei verður hægt að reikna til
enda í krónum og aurum.
„Auðvitað eru það gríðarlegir fjármunir sem
þjóðfélaginu sparast hér á Reykjalundi. En það
Landssöfnun 2.-4. október
fyrir endurhæfingu á Reykjalundi
V