Morgunblaðið - 27.09.1998, Síða 15
sérstaklega byggingarátakið
/Wif
MS-félag íslands
var stofnað 1968. Markmið félagsins er að
styðja MS-sjúklinga og aðstandendur þeirra
með rekstri dagvistar og stuðla að
rannsóknum á MS-sjúkdómnum.
Aðsetur félagsins er að Sléttuvegi 5, en þar er
dagvist og sjúkraþjálfun, opið 10-15, sími 568
8620.
Framkvæmdastjóri er Gyða Ólafsdóttir.
Parkinsonsamtökin á íslandi
voru stofnuð 1983. Á Akureyri er sérstök deild.
Markmið samtakanna er m.a. að aðstoða
Parkinsonsjúklinga og aðstandendur þeirra við
að leysa þann vanda sem sjúkdómnum fylgir.
Félagsmenn eru um 200 en mun fleiri glíma
við þennan sjúkdóm.
Skrifstofa félagsins er að Laugavegi 26, opin
17-19 á miðvikudögum, sími 552 4440.
Formaður er Nína Hjaltadóttir.
Samtök lungnasjúklinga
voru stofnuð 1996. Félagið hefur enn ekki
skrifstofu, en heldur fundi í félagsmiðstöð
Flallgrímskirkju. Aðalmarkmið félagsins er að
kynna fyrir félagsmönnum réttindi þeirra og
hvert þeir eigi að leita lækningar. Formaður er
Jóhannes Kr. Guðmundsson, heimasími
586 1088. Félagsmenn eru hátt á fjórða
hundraðið.
Samtök sykursjúkra
voru stofnuð árið 1971. Tllgangur samtakanna
er að tryggja velferð sykursjúkra og veita
upplýsingar um það helsta sem varðar
sjúkdóminn.
Félagsmenn eru um 700. Skrifstofa
samtakanna er að Laugavegi 26, gengið inn
frá Grettisgötu. Hún er opin á miðvikudögum
frá 17-19. Formaður félagsins er Sigurður
Viggósson.
SEM samtökin
voru stofnuð árið 1980. Tllgangur samtakanna
er að efla samhjálp mænuskaddaðra og vinna
að auknum réttindum þeirra og bættri aðstöðu
í þjóðfélaginu.
Félagsmenn eru 56. Skrifstofa samtakanna er
að Sléttuvegi 3, sími 588 7470, og er hún opin
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá
kl. 13-15.
Formaður samtakanna er Guðný Guðnadóttir.
Sjálfsbjörg - landssamband
fatlaðra
var stofnað 1959. Markmið samtakanna er
m.a. að stuðla að jafnrétti hreyfihamlaðra á
öllum sviðum þjóðfélagsins. Aðildarfélög
Sjálfsbjargar eru 16talsins.
Skrifstofur sambandsins eru að Hátúni 12, en
þar er einnig rekið Vinnu- og dvalarheimili
Sjálfsbjargar, sundlaug, sjúkraþjálfunarstöð og
dagvist. Á Akureyri er rekin
endurhæfingarstöðin Bjarg.
Framkvæmdastjóri er Sigurður Einarsson.
Sími 552 9133.
Styrktarfélag vangefinna
var stofnað 1958. Markmið félagsins er m.a.
að gæta hagsmuna vangefins fólks og koma á
fót heimilum, stofnunum og vinnustöðum fyrir
þennan hóp. Félagið rekur Dagheimilið
Lyngás, hæfingarstöðina Bjarkarás,
þjálfunarstöðina Lækjarás, vinnustofuna Ás,
sjö sambýli og tvær skammtímavistanir.
Starfsfólk félagsins hefur umsjón og eftirlit
með um tuttugu íbúðum þar sem fatlaðir búa.
Aðsetur félagsins er að Skipholti 50C,
sími 551 5941. Framkvæmdastjóri er Kristján
Sigurmundsson.
Landssöfnun 2.-4. október
fyrir endurhæfingu á Reykjalundi