Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 20

Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 20
hér vinnum höfum litið svo á að okkur beri ekki aðeins að reka hér læknisfræðilega, félagslega og atvinnulega endurhæfingarstarfsemi, heldur beri okkur líka að gera það með sem bestum og virkustum hætti. Annað væri ekki í anda frumherjanna sem stóðu að byggingu Reykjalundar í upphafi. Hér höfum við tækin og tólin, umhverfið og aðstöðuna. Nú er brýnt að nýta þetta að fullu, til þess erum við ráðin hér," sagði Björn. Á fyrstu árum í starfi fyrir Reykjalund kynntist Björn nokkrum frumherjanna, til dæmis þeim Oddi Ólafssyni, Árna Einarssyni, Júlíusi Baldvinssyni, Kjartani Guðnasyni og Þórði Benediktssyni. Björn segir það minnisstætt þegar Þórður Ben. sté í pontu á þingum SÍBS og brýndi menn óspart að láta aldrei deigan síga. Útvarpsávörp hans til þjóðar- innar í tengslum við berklavarnadaginn og merkjasölu voru eftirminnileg. Oddur hringdi oft eða kom í morgunkaffi til að frétta hvað væri að gerast á Reykjalundi en hann var formaður stjórnar Reykjalundar og reyndar SÍBS síðustu árin. „Hvernig er það Björn minn, er ekki allt í lagi hjá okkur?", sagði hann gjarnan. Á Reykjalundi voru líka margir af gömlu berklasjúklingunum vistmenn fyrstu ár Björns á staðnum. „Hér minnti margt á upprunann, staðurinn var þessu fólki heilagt mál. Sumir þeirra töldu hina læknisfræðilegu endur- hæfingu sem við vorum að taka upp óttalegt pjatt. Þeirra atvinnulega endurhæfing við störf í iðnaðar- deildum Reykjalundar hafði verið allt annars eðlis." Landssamtök hjartasjúklinga eru deild í SÍBS með rúmlega 3 þúsund félagsmenn innan sinnan vébanda. Samtökin reka skrifstofu að Suðurgötu 10, SÍBS húsinu. Samtökin eiga íbúð að Lokastíg 16 og er íbúðinni ráðstafað í samvinnu við hjartadeild Landspítalans. Styrktarsjóður hjartasjúklinga selur minningarkort um allt land. Samtökin gefa út blaðið Velferð sem er innifalið í félagsgjaldi. Safnanir á vegum samtakanna hafa skilað miklum árangri og eiga sinn þátt í góðri stöðu hjartalækninga á íslandi. Allir geta gerst félagsmenn - sameinuð erum við sterk! Landssamtök hjartasjúklinga - sími 552 5744

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.