Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 29
Ur ýmsum áttum
Neysluhæfingarhópur lungnasjúklinga
Hérsjáum viö neysluhæfingarhóp lungnasjúklinga
á Reykjalundi en þeir þurfa að gæta aö mataræði í
tengslum viö sinn sjúkdóm. Þessi hópur hittist einu
sinni í viku, eldar mat saman og borðar saman.
Jafnframt ræöa þau um næringu og samsetningu
fæðunnar. Þetta fólk dvelur á Reykjalundi í 6-8 vikur
aö jafnaði. Á myndinni eru frá vinstri til hægri: Erna
Þorsteinsdóttir, Anna Magnea Valdimarsdóttir,
Haukur Þorbjörnsson, Bára Pétursdóttir, Sonja Rán
Hafsteinsdóttir og Sigríður Baldursdóttir.
Verslun og samkomusalur í
Suðurgötu
SÍBS á helming af þessu húsi, Suðurgötu 8, og
hefur neðri hæðin ekki verið í notkun um hríð.
Margrét Ragnars og kraftmiklar vinkonur hennar úr
Neistanum, ásamt fleirum velunnurum átaksins,
ákváðu að hreinsa til á hæðinni og gera þarna
vistlega aðstöðu. Þær stöllur vonast til að þarna
fáist leyfi til að reka verslun með notaða og nýja
muni. Jafnframt hafa þær í huga að fólk sem vilji
spjalla og leita ráða geti litið inn þegar því hentar.
En meira um þetta síðar - hugsanlegur ágóði á að
renna til byggingarátaksins á Reykjalundi.