Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 1
STOFNAÐ 1913
224. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bandaríkjamenn og Bretar auka þrýsting á Milosevic Jiígóslavíuforseta
Undirbúningur loftárása
gegn Serbum á lokastigi
Lundúnum. Reuters.
Reuters
DOW Jones-vísitalan hækkaði
lítillega í gær, en sveiflur voru
miklar eins og merkja mátti á
pati þessara miðlara í Chicago.
Lækkun í
kauphöll-
um Evrópu
GENGI hlutabréfa á helztu fjár-
málamörkuðum Evrópu lækkaði í
gær, og hefur vísitalan í sumum
kauphöllum ekki verið lægri frá því í
nóvember í fyrra. Astæðan fyrir
lækkuninni er sú sama og undan-
farna daga; ótti við heimskreppu og
lélegar afkomutöiur.
Hins vegar má segja að máltækið
fóstudagur til fjár hafí átt við um við-
skipti í kauphöllinni á Wall Street í
gær. Eftir miklar sveiflui- yfir daginn
var Dow Jones-visitalan 2% hærri er
viðskiptum lauk í gærkvöld en við
lokun markaða daginn áður. Þessi
hækkun breytir því þó ekki, að þessi
vika hefur verið ein sú erfíðasta á
Wall Street í ár. Dow Jones-vísitalan
lækkaði yfír vikuna um 3%. Hún stóð
í 7.784,69 stigum í gærkvöldi.
í London lækkaði FTSE-vísitalan
um 3,22% og í Frankfurt hélt X-
DAX-vísitalan áfram að lækka. Við
lok viðskipta í gær hafði hún lækkað
um 1,84%, en yfír vikuna um heil
12,5%.
Að minnsta kosti 4.300 milljarðar
dollara hafa þurrkast út af fjármála-
mörkuðum heimsins frá því verð
hlutabréfa náði hámarki á Wall
Street 17. júlí sl., samkvæmt út-
reikningum alþjóðlega verðbréfa-
miðlunarfyrirtækisins HSBC.
DOMSMALANEFND fuUtrúadeild-
ar Bandaríkjaþings gerði í gær opin-
berar 4.610 síður til viðbótar af fylgi-
gögnum skýrslu
Kenneths Starrs,
sérlegs saksókn-
ara, í tengslum við
rannsókn nefndar-
innar á því hvort
gögnin gefi tilefni
til að hefja mál-
sókn til embættis-
missis gegn Bill
Clinton forseta.
Meðal þessara
gagna eru uppritaðar upptökur af
„trúnaðarsamtölum" Monicu Lewin-
sky, fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta
húsinu, og þáverandi vinkonu henn-
ar, Lindu Tripp.
Upptökurnar skiptast í tvo hluta. í
þeim fyrsta eru þær þannig til
komnar, að Tripp tók upp símasam-
töl þeirra Lewinsky. Hinn hlutinn
kom þannig til, að Tripp var með fal-
inn hljóðnema á sér frá alríkislög-
RÁÐAMENN í Bandaríkjunum og
Bretlandi juku í gær til mikilla muna
þrýsting á Slobodan Milosevic, for-
seta Júgóslavíu, vegna átakanna í
Kosovo. Rússar hertu hins vegar
andstöðu sína við hugsanlegar hern-
aðaraðgerðir gegn Serbum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagðist vona að Milosevic skildi að
Atlantshafsbandalagið (NATO) væri
reiðubúið að beita hei’naðarmætti
sínum ef hann stöðvar ekki ofbeldið
sem öryggissveitir hans beita
Kosovo-Alþani.
„Við verðum að vera mjög fastir
fyrir,“ tjáði Clitnon fréttamönnum.
„Við verðum að stöðva ofbeldið,
reglunni, FBI. í samtölum hennar
við Lewinsky meðan hún bar þennan
hljóðnema var hún að reyna að fá
Lewinsky til að tala um ákveðin at-
riði sem gætu hafa falið í sér eitt-
hvert athæfi sem bryti í bága við lög.
A einum stað ýtir Tripp Lewinsky
út í að lýsa afskiptum forsetans af
atvinnuleit hennar, sem og hvenær
hún átti fundi með Clinton og vini
hans Vemon Jordan og hvenær hún
hefði undirritað eiðsvarna yfirlýs-
ingu sína vegna Paulu Jones-máls-
ins. I þessari yfirlýsingu neitaði
Lewinsky að hafa átt í kynferðislegu
sambandi við Clinton.
koma á friðarsamkomulagi og vinna
okkur út úr þessu.“
Meint fjöldamorð á þorpsbúum í
Kosovo-héraði, sem serbneskar ör-
yggissveitir eru sagðar hafa framið,
hafa aukið þrýsting á NATO um að
láta til skarar skríða gegn hemaðar-
aðgerðum Serba í Kosovo, sem hafa
kostað að minnsta kosti átta hund-
ruð manns lífið og stökkt um 300.000
manns á flótta frá heimilum sínum.
William Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að ef
NATO tæki ákvörðun um að gera
loftárásir á serbnesk skotmörk
myndi verða af þeim innan tveggja
vikna.
Kjarnahluti rannsóknar Starrs
beindist að því hvort einhver tengd-
ur forsetanum hefði reynt að telja
Lewinsky á að þegja um ástarsam-
bandið í skiptum fyrir að henni væri
útveguð vinna. Þessar upptökur
sýna hvernig Tripp reyndi að spila á
Lewinsky til að fá hana til að segja
sem mest um sambandið við Clinton,
sem hægt væri að nota gegn honum.
Varpar skýrara ljósi á það sem
vitað var en ekki meira
Lögfræðingar Hvita hússins sögðu
í gær að þessi gögn sýndu að Tripp
hefði leikið vafasamt hlutverk sem
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að heimurinn hætti
á að til stórkostlegra mannlegra
hörmunga kæmi og að átök breidd-
ust út um stærra svæði á
Balkanskaga, ef hann sneri baki við
þeirri „villimennsku" sem hersveitir
Serba hefðu gerzt sekar um í
Kosovo. Það væri kominn tími til að
Vesturlönd settu Milosevic stólinn
fyrir dyrnar, að sögn Blairs.
Til að fylgja orðum eftir með gerð-
um tilkynntu brezk stjómvöld að
þau myndu senda fjórar orrustuflug-
vélar til viðbótar til NATO-flugvallar
á Italíu þar sem þær yrðu til reiðu ef
ákvörðun verður tekin um loftárás á
vekti spurningar um hvað hafi vakað
fyrir henni.
En þessi nýju gögn virtust ekki
innihalda neitt sem gæti varpað nýju
ljósi á málið eða breytt því sem þegar
er vitað svo að neinu nemi. í þeim
kemur fram nánar hvað hver vissi og
hvenær. Mesta athyglin beindist að
upptökunum á samtölum Tripp og
Lewinsky, en auk þess er í gögnunum
að fínna vitnisburði Vernons Jordans
fyrir rannsóknarkviðdómnum, sem
og vitnisburð Betty Currie, einkarit>
ara Clintons, Bruce Lindsey, vinar og
aðstoðarmanns forsetans, Lucianne
Goldberg, vinkonu Lindu Tripp, og
ýmissa leyniþjónustustarfsmanna.
Dómsmálanefndin mun ræða á
mánudag hvort hefja beri málsókn á
hendur forsetanum. Demókratar
sögðust myndu reyna að fá settan
ákveðinn frest til að ljúka málinu, en
þar sem repúblikanar ráða yfir 21 at-
kvæði í nefndinni en demókratar að-
eins 16 er Ijóst að vilji repúblikana
verður ofan á.
Serbíu. Þar eru fjórar brezkar þotur
fyrir.
Talsmenn Júgóslavíustjómar
sögðust þegar hafa orðið við þeirri
kröfu sem samþykkt öryggisráðs Sa-
meinuðu þjóðanna gekk út á, það er
að serbneskar öryggissveitir yfir-
gæfu Kosovo-hérað. I gær varaði
Belgrad-stjórnin við þvi að Serbar
myndu verjast ef á þá yrði ráðizt.
Rússar bera blak af Serbum
Undirbúningur NATO fyrir loft-
árásir er á lokastigi, en stjórnarer-
indrekar greindu frá því að Rússar,
hinir fornu bandamenn Serba, hefðu
hreyft andmælum á fundi með erind-
rekum NATO í vikunni.
Dúman, neðri deild rússneska
þingsins, samþykkti í gær harðorða
ályktun, þar sem varað er við því
sem kallað er „ólögmætum yfir-
gangi“ gegn Serbum, sem myndi
kalla á alvarlega endurskoðun sam-
bands Rússa við NATO.
Rússneskir embættismenn voru á
meðal fulltrúa stórveldanna sex, sem
mynda „tengslahópinn" svokallaða,
en þeir áttu vinnufund í Lundúnum í
gær þar sem þeir endumýjuðu kröf-
una um að Milosevic drægi hersveit-
ir sínar til baka frá Kosovo.
Nasreen
ákaliar
heiminn
um hjálp
París. Reutcrs.
RITHÖFUNDURINN Tas-
lima Nasreen bað í gær um-
heiminn að koma sér til hjálpar,
en íslamskir
bókstafstrúar-
menn í ætt-
landi hennar,
Bangladesh,
hafa hótað
henni dauða og
stjómvöld hafa
skipað fyrir
um handtöku
hennar.
Nasreen er gefið að sök að
hafa farið með guðlast í einni
bóka sinna og lagt blessun sína
yfir kynlíf utan hjónabands í
annarri. Rithöfundurinn birti
hjálparbeiðni sína í franska
dagblaðinu Le Monde, en mál
hennar hefur vakið miklu minni
athygli en mál rithöfundarins
Salmans Rushdies, sem klerka-
stjórnin í íran lýsti réttdræpan
fyrir meint guðlast.
í bréfinu til Le Monde segir
Nasreen að hún hafí haldið aft-
ur til Bangladesh úr fjögurra
ára sjálfskipaðri útlegð til að
sinna sjúkri móður sinni, en
sagðist nú óttast um öryggi sitt.
„Aðstæður mínar eru
örvæntingarfullar, móðir mín
sjúk, og ég þarfnast hjálpai',“
skrifaði Nasreen í bréfi, sem
bar yfirskriftina „Hjálp!“
Reuters
ALDRAÐUR Kosovo-Albani situr við grafir fjórtán íbúa þorpsins Galica, sem serbneskar öryggissveitir eru
sagðar hafa myrt. Fregnir herma að sum líkanna hafi borið merki um alvarlegar misþyrmingar.
Fleiri málsgögn sem tengjast skýrslu Kenneths Starrs gerð opinber
Washington. Reuters.
Lewinsky
sætti þrýstingi
Linda
Trípp